Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1983, Qupperneq 1
7.TBL,— 73. og 9. ÁRG. — MÁNUDAGUR 10. JANÚAR 1983.
DAGBLAÐIÐ — VÍSIR
40.000 EINTÖK PRENTUÐ í DAG.
Frjálst, óháð dagblað
RITSTJORN SIMI 86411 • AUGLYSINGAR OG AFGREIOSLA SIMI 27022
Prófkjör framsóknarmanna í Reykjavík:
Ólafur Jóhannesson
sigraði glæsilega
—Haraldur Ólafsson í2. sæti
Olafur Jóhannesson utanríkisráð-
herra varð efstur í prófkjöri fram-
sóknarmanna í Reykjavík sem fram
fór í gær. Fékk hann 207 atkvæði.
Haraldur Ölafsson kom næstur með
127 atkvæði í 1. til 2. sæti. Þriðji varð
Björn Líndal með 101 í 1. til 3. og
fjórði Ásta Ragnheiður Jóhannes-
dóttir með 131 í 1. til 4. Jöfn í 5. sæti
urðu Bolli Héðinsson og Steinunn
Finnbogadóttir með 156 atkvæði
samanlagt í 1. til 5. Dregið var á milli
þeirra og hlaut Bolli 5. sætið og Stein-
unn 6. Röð fjögurra neðstu manna er
ókunn. Af 300 manns með atkvæðis-
réttkusu280.
Olafur Jóhannesson sagði í
morgun að miðað við erfið skilyrði
vegna ófærðar og óveðurs hefði kjör-
sókn verið góð. „Ég get verið
ánægður og allt er þetta gott fólk í
efstu sætunum 6. Hinir eru náttúr-
lega góðir líka.”
Komu yfirburðir þínir þér á óvart?
„Það var náttúrlega ár aldraðra í
fyrra og ætli maöur njóti ekki góðs af
því,” svaraði Olafur.
JBH
Starfsmenn rússneska sendiráðsins láta íslenskan byl ekki á sig fá og œfa
fótboltann eins og ekkert hafi í skorist. Myndin var tekin upp úr hádeginu
á laugardag á Framnesvellinum. Þá gekk á með dimrnum éljum en það
virtist aðeins auka leikgleðina.
DV-mynd. Kristján Ingi.
—
Flateyri:
ÁRABÁT HVOLFDI - MAÐUR
SLAPP VIÐILLAN LEIK
Arabát með einum manni hvolfdi í
höfninni á Flateyri á föstudags-
morgun um klukkan 8.30. Tildrögin
voru þau aö Aðalsteinn Guömunds-
son útgeröarmaður fór út á legufæri í
höfninni til að freista þess að gang-
setja bát sem hann haföi þar. Ætlun
hans var að flytja fólk út á flugvöll
sem ekki komst þangað landleiðis
vegna ófærðar. Bátnum hvolfdi hins
vegar og Aðalsteinn komst við illan
leik í land og þurfti að kafa snjó heim
tU sín. Enginn var á ferli og ekki var
heldur vitað um f erðir mannsins.
Að sögn Sigríðar Sigursteinsdóttur
á Flateyri hefur ekki sést annar eins
snjór þar í fleiri ár. „Sem dæmi má
nefna að á föstudag átti að fljúga
hingað. Byrjað var kl. rúml. 5 um
morguninn að moka út á vöU, mUU 10
og 15 kílómetra leið. Vegurinn opn-
aðist ekki fyrr en um kl. 18, en þá var
flugvélin löngu farin. Þeir sem
treystu sér gengu á skiðum úr
þorpinu eöa fóru með vélsleðum.
Annars er hér allt ófært og húsin hálf
ákafi.”
Sigríöur sagði að enn í gær heföi
verið rafmagnslaust á Ingjaldssandi
og í Valþjófsdal og hefði verið svo
nokkra daga. BUun er uppi í fjaUinu
Þorfinni fyrir ofan Ofæru. Þar eru
klettabelti sem eru mjög iUfær,
jafnvel þótt enginn snjór sé. Munu
fjórir staurar hafa brotnað og veldur
það rafmagnsleysinu. Unniö er að
viðgerð. A f jórum bæjum býr fólk viö
mikinn kulda og tU dæmis þarf aö
handmjólkakýmar.
A Flateyri er snjóbíUinn búínn að
vera bUaður frá því i fyrra en nú er
unnið að viðgerð á honum. Og fleiri
tæki eru bUuð. Aðfaranótt föstudags
kom stór jarðýta frá ísafirði. Hún er
biluð og því verður að notast við hefil
tilsnjóruðnings.
-JBH.
Rafmagnsleysi,
ófærð, þrumur
ogeldingar
— sjá bls. 2,3,4 og 5
Óstaðfest
íslandsmet
íhástökki
— sjá íþróttir bls. 24
ErTarzan
ástfanginn?
— sjá myndasögur
bls. 30 og 31
UzTaylor
„skandalíserar,f
— sjá Sviðsljós bls. 36
íþróttamenn
ársins
— sjá Sviðsljós bls. 37
Viljum við
miðstýrin,gueða
valddreifíngu
— sjá Leiðara bls. 12