Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1983, Side 28
36
DV. MÁNUDAGUR10. JANUAR1983.
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Liz Taylor „skandalíseraði”
í veislu hjá Philip prins:
Kommeð
Burton
fórmeð
Bufmann
Richard Burton hó/t hátíöarrœðuna. Og það var einmitt út af ræðunni
sem Liz sneri sór frá Burton. Henni þótti rmðan einfaldlega langdregin
og leiðinleg.
Hann Larry Hagman fer i veislur til annarra en olíu-
kónga. Hann mætti galvaskur hjá Phitip og brosti
sinu breiðasta. Þess má geta að Hagman hefur
miklar tekjur af þvi að mæta i veislur hjá fólki og
skiptir upphæðin tugum þúsunda dollara, sem
hann fær i vasann eftir kvöldið.
„Hjartaknúsarinn mikll frá Kasmir, eða þannig".
Caiy Grant, leit við með konunni sinni Barböru.
Hún er kölluð „litla, sæta frúin" af kunningjum
Cary. Kannski ekki nema von, hún er 28 ára, en
hann 78 ára. Hvað eru fimmtiu ár á milli hjóna?
Og hór er engin önnur en Debbie Reynolds. Fögur sem fyrr og heillandi.
Fylgisveinn hennari veislunni var grinistinn Rip Taylor.
Philip Bretaprins var nýlega á ferö
í Bandaríkjunum, nánar tiltekiö í
Hollywood. Þar hélt hann heljar-
veislu og bauð fjölda leikara.
Það sem vakti mesta athygli var
að gömlu skötuhjúin, Elizabeth
Taylor og Richard Burton, komu
saman til samkvæmisins og héldu
menn að þau væru farin aö draga sig
aftur saman. En í veislunni slettist
upp á vinskapinn. Burton hélt nefni-
lega hátíðarræðuna og Betu fannst
hún vera leiðinleg þannig að hún gaf
kappann upp á bátinn og sneri sér að
leikstjóranum Zev Bufmann. Með
þessu athæfi sinu þótti konan hafa
„skandalíserað” og sýnt Burton
lítilsviröingu.
Zev Bufmann og Beta voru þó ekki
að kynnast í fyrsta sinn, því hann
leikstýröi leikriti sem hún lék í á
Broadway í hittifyrra. Þar voru þau
þá þegar farin að vera saman, enda
hjónabandið við John Warner aö fara
út um þúfur.
Fjöldi frægra leikara leit inn í sam-
kvæmið til Philips prins og skemmti
sér konunglega. Við birtum hér
nokkrarmyndir úr veislunni.
Það kom i hlut leikstjórans Zev Bufmann að fylgja Liz úr veislunni. Hún kom þó með gamla vininum,
Richard Burton, en konan er skopheit og Burton fór í taugarnar á henni, svo að það var ekkert annað að
gera en snúa sór að öðrum.
„Eldri kynslóðin með gömlu
dansana" mætti hressileg. Hór er
það sjálf Ginger Rogers með fyigi-
sveininum sem er sennilega
þekktari, enginn annar en James
Stewart. Og það fór vel é með
þessum vinsælu leikurum. Ginger
var þó frekar þekkt sem afburða
dansari.
Í kúrekafötum komu þau Esther
Williams og Fernando Lamas i
veisluna. Þau eru ekki i hópi
þekktustu leikara, en góðir
leikarar samt.
Þau Raquel Welch og Andró
Weinfeld lótu sig ekki vanta i
veisluna. Kjóll Raquelar vakti at-
hygli. Nú hefur hún ekki lengur
áhuga á að vera likt við
kynbombu. Vill láta lita á sig sem
Ieikkonu fyrst og fremst. Hún er
nú 43 ára að atdri og ku vera kona
eigi einsömul.
Mæðgumar Tatum O'Neal og
Joanna More komu saman með
brosið i góðu lagi. Ekki laust við
að það só svipur með þeim
mæðgum.
Phiiip prins var gestgjafinn. Hann
hólt góða tölu og vitnaði meðal
annars i Shakespeare. Veislu-
gestir voru hrifnir af Phiiip og
sögðu hlæjandi að hann væri nú
greinilega orðinn almanna-
tengslafulltrúi Shakespeare
gamla.