Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1983, Page 11
DV. MANUDAGUR10. JANUAR1983.
11
Kjarvalsstaðir:
Sýning á verkum
ungra listamanna
Dagana 5,—20. febrúar nk. veröur
efnt til sýningar aö Kjarvalsstöðum á
verkum ungra myndlistarmanna.
Sýningin er haldin á vegum stjórnar
Kjarvalsstaða og er þátttaka miðuð
við listamenn 30 ára og yngri. Sérstök
dómnefnd f jallar um innsend verk og
verður tekið á móti verkunum á mánu-
daginn kemur, 10. janúar, frá kl. 10—
18.
Greidd verða dagleigugjöld fyrir þau
verk sem valin verða á sýninguna. Þá
verður og veittur f erðastyrkur og velur
dómnefnd úr hópi þátttakenda þann
sem styrkinn hlýtur.
Þrettándinn á Selfossi:
„Smávægileg
barnabrek”
— segirlögreglan
„Þaö var nokkur hópur krakka sem
safnaöist saman við Austurveg og
Eyrarveg, rétt við ölfusárbrú, en þaö
var ekkert að ráði sem var gert.
Nokkrir voru þó handteknir fyrir ólæti
en við getum frekar kállað þaö smá-
vægileg bamabrek,” sagði Jón
Guðmundsson yfirlögregluþjónn í
samtali við D V.
Hann sagði ennfremur aö fimmtán
manna lögreglulið frá Reykjavík hefði
komið til Selfoss í gærkvöldi og væri
það samkvæmt venju. „Annars fór
þetta betur fram en áður og það voru
engar teljandi bombur sprengdar,”
bætti Jónviö.
„Já, þetta var friðsamlegt og
mjög skemmtilegt þrettándakvöld.
Lögreglumennirnir sem komu frá
Reykjavík voru til fyrirmyndar, létu
ekki stríða sér, voru léttlyndir, ljúfir og
kátir í alla staði. Alveg öfugt við þá
sem komu hingaö í fyrra og lömdu
krakka sundur og saman,” sögðu tveir
ungir Selfyssingar í samtali við DV.
„Eiga við
sjúkleika
aðstríða”
„Það er ótrúlegt aö nokkur maður
skuli vilja hræða samborgara sína með
svona hringingum og það er ljóst aö
þeir sem þetta stunda hljóta að eiga
við mikil bágindi og sjúkleika aö
stríða,” sagöi Magnús Einarsson,
aðstoöaryfirlögregluþjónn í Reykja-
vík, við DV vegna sprengjugabbanna
að undanförnu.
DV hefur greint frá sprengjugöbbun-
um á Hótel Borg og svo í Utvegsbank-
anum í Kópavogi í gærmorgun. En síð-
degis á fimmtudag bættust svo við til-
kynningar um sprengjur í Alþingishús-
inu, húsi Almennra trygginga og bóka-
verslunarinnar Vedu í Kópavogi.
Hús bókaverslunarinnar og
Almennra trygginga voru strax rýmd
og könnuð en ekkert fannst. Ekkert
hafði verið um mannaferðir í Alþingis-
húsinu um tíma en þaö var þó kannað.
Unnið er að rannsókn aÚra þessara
mála.
-JGH.
„Þaö var lítil drykkja og aðeins kom til
smávægilegra slagsmála.
-JGH/ás
Laugavegi 87 — Sími 10—5—10
Opið laugardaga til kl. 18
Nú er hægt að gera góð kaup í teppum. Okkar
ár/ega bútasa/a og afs/áttarsa/a byrjar 10. janúar
og stendur í 10 daga.
Teppabútar af öl/um mögu/egum
stærðum og gerðum með miklum
afslætt/ og fjölmargar gerðir
gó/fteppa á ótrúlega góðu verði.
i m
SYGGINGAVORUR
HRINGBRAUT 120:
Byggingavörur...
Gólfteppadeild...
Símar: Timburdeild..................28-604
.28-600 Málningarvörur og verkfæri....28-605
.28-603 Flísar og hreinlætistæki......28-430
HRINGBRAUT 120 (Aökeyrsla frá Sólvallagötu)