Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.1983, Síða 6
6
Radíóþjómista Bjarna:
DV. LAUGARDAGUR 26. FEBRUAR1983.
Tæknin hefur skapað
miklu betri bfla
/fcrcí t""f'...............< '
f tf fr
* C ( f r ^ ^ ? C'f
*L.r < '<
Bjarni Karlsson: Hvað má bjóða þér ibiiinn, viltu ódýrt og gott eða vandað og flott kerfi með ÖUuf
Radíóþjónusta Bjama í Síðu-
múlanum er þekkt fyrirtæki á sínu
sviði. Þar er látlaus straumur bíla
inn og út allan liölangan daginn og
Bjami Karlsson sjálfur á þönum
langt f ram á kvöld. Fyrirtæki Bjarna
er sérhæft í ísetningum og viðgerð-
um á bílaviðtækjum af öllum
hugsanlegum gerðum.
Auk þess selur Bjami bíltæki af
mörgum gerðum og vömmerk jum.
Það kann að vera að einhverjum
þyki þaö skrýtið að útvarpsvirkjar
skuli sérhæfa sig í ísetningu á bíl-
tækjum en skýringin kemur fljótt í
ljós þegar farið er að kanna málið.
SLAGVEÐURS
MOTTAN
FRÁ
Staðreyndin er sú aö ekki einungis
era bílar yfirleitt nýrri og því verð-
meiri en áöur gerðist, innrétting bíl-
anna er íburðarmeiri en áður, en
síöast en ekki síst, ísetning útvarps-
tækja er orðin miklu meira mál en
tíðkaðist hér áður. Nú má heita
undantekning ef ekki þarf að taka úr
hurðaklæðningu vegna þess að
hátalarar era yfirleitt felldir inn,
sem kallað er. Fólk gerir auk þess
miklar kröfur um að tækið sé óað-
finnanlega fellt inn í mælaboröið og
að innrétting bílsins sé í fullkomnu
lagi eftir að hátöluram hefur verið
komið fyrir.
Bjarni Karlsson er búinn að vera í
Hór er Bjarni Karlsson með splunkunýtt og ónotað bíltæki, það er hins
vegar ekki af nýjustu gerð heldur lampatæki úr Buick 42. Þessi eru orðin
sjaldséð en hór áður var það ekki óalgengt að eftir að tækið hafði verið i
drjúga stund var ekki um annað að ræða en að fá einhvern til að ýta bílnum
igang.
þessu fagi í um 24 ár og sagði okkur
að um 1960 hefði það þótt óvenjuleg
flottheit að vera með tvo hátalara.
Nú til dags sagði Bjami að algeng-
ustu bíltækin væra á verðbilinu 10
þús. kr komið í bílinn, en af og til
settu þeir 50—60 þúsund króna kerfi í
bíla en það væri yfirleitt í efnismikla
og dýra bíla. Bjarni sagði að tæknin
hefði þróast þannig að nú væru um
80% bíltækja sambyggð útvarps- og
snældutæki þótt enn fengjust útvörp
fyrir mið- og langbyglju sem kostuðu
umllOOkr.
Þá sagði Bjarni að tæknin væri
orðin svo mikil í framleiöslu bíltækja
að það væri mun minni viðhalds-
kostnaður á þeim nú en fyrir áratug,
bilanir væra mun fátíðari og helst
væra þær vegna hreyfanlegra hluta í
snældutækjunum.
En hvað kostar aö fá tæki sett í bíl-
inn hjá Bjarna? „Það fer dálítiö eftir
því hvað tækin eða kerfið sem sett er
í er vandað, en algengast er að það
kosti 500—700 kr.,” sagði Bjarni og
stakk sér undir mælaboröið á nýrri
Mözdu.
BÍLMOTTAN SEM ÞU
GETUR NOTAÐ ALLT ÁRIÐ
Hrjúfur flötur fyrir bleytutíð, ann-
ar flötur fyrir þurra daga.
þú snýrð mottunni eftir veðurfar-
inu - og bíllinnerávalltsnyrtilegur.
Tvær stærðir.
BENSÍNSTÖÐVAR
SKELJUNGS
Er hæ^t ad blanda vatni
saman vid bensín?
Það hljómar undarlega í margra
eyrum en er engu að síður staðreynd,
— með því að blanda vatni saman við
bensíngufuna í branahólfum bensín-
vélar má auka afl hennar og virkni.
Ástæðan er sú að vatnsgufan lækkar
hitann í brunahólfunum og getur
þannig leitt til fullkomnari bruna,
vatn sem brey tist í guf u h jálpar til að