Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.1983, Blaðsíða 34
tit í tusMð
[i : J
'V ' 1 f J|
| 11 • / *:
Wf *
— tann-
læktm-
bíllinn í
Xeskaup-
stað er
stráheiU
þótt
gamaUsé
Mælaborðið var ekki flókið i Ford Modei B. Bensínmælirinn er efstur.
Baidur Óii Jónsson tannlœknir undir stýri. Nokkrir ungir Norðfirðingar sýndu bílnum mikinn áhuga.
Þeir eru ekki margir sem eiga
rúmlega fimmtíu ára gamlan bíl
úti í skúr, bíl sem hægt væri að
aka hvert á land sem er. Baldur
Oli Jónsson, tannlæknir í Nes-
kaupstað, geymir einn slíkan grip
í skúmum og fengu blaðamenn
tækifæri til að skoða hann nú fyrir
skömmu. Þessi bíll er af gerðinni
Ford Model B árgerð 1931. Að sögn
Baldurs Öla var þaö Garðar
Guðnason, rafstöðvarstjóri á
Fáskrúðsfirði, sem keypti bílinn
nýjan og flutti hann austur. Þegar
Garðar fékk bílinn var hann
tveggja dyra drossía, eins og það
kallaðist í gamla daga. Bíllinn
mun hafa verið Model B,
svokallaður „Five window coupe”
en þeir voru afar vinsælir í Banda-
ríkjunum og seldust grimmt.
Þegar Garðar Guðnason hafði
átt bílinn um árabil seldi hann
Gísla Bjömssyni, rafstöðvar-
stjóra á Hornafirði, bílinn. Gísli
átti hann lengi og það var hann
sem byggði yfir hann tréhúsið.
Það var síðan áriö 1954 að Baldur
Oli Jónsson keypti bilinn af Gísla
og ók Baldur bílnum allar götur til
ársins 1966.
Bíllinn er að mestu leyti í
upphaflegri gerð nema yfir-
byggingin, afturbrettin og
felgurnar sem eru af jeppa. Hann
er í fullkomnu lagi að ööru leyti en
því að „dínamórinn” hleður ekki.
Árin sem Baldur ók bílnum var
númerhans N-23.
Vélin er í fullkomnu lagi en það
er 4 strokka hliðarventlavél.
Baldur Oli sagði að bíllinn heföi
verið einstaklega þægilegur og
duglegur í akstri og hann hefði
reynst sér mjög vel þann tima
sem hann notaði hann. Svo vill til
að Baldur óli á allar upphaflegu
teinafelgurnar en vantar eitt dekk
til að geta komið þeim undir.
Það leynir sér ekki að vel hefur
verið hugsað um þennan bíl alla
tíð, hann er allur heill og ekki sést
á honum ryö eða aörar skemmdir.
Til þess að gera úr honum
sannkallaðan glæsivagn þyrfti að
sprauta hann.