Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.1983, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.1983, Blaðsíða 20
DV. MÁNUDAGUR 7. MARS1983. Fræbbblarnir—Warkweld in the west: Eni þetta virkilega þeir? Hver heföi trúaö því upp á Fræbbblana aö þeir sendu frá sér plötu þar sem uppistaðan væri kántrílag og djassslagari? Hvaö sem ööru líöur þá er þetta nú orðið staöreynd. Fyrir áramótin sendu drengimir frá sér fjögurra laga plötuna Warkweld in the west og varö hún sú síðasta þar sem Val- garöur Guðjónsson, foringi þeirra og fyrirliöi, lagði hönd á plóginn. Skemmtilegur endir á ævintýra- legumferli. Kántríslagarinn heitir Oh, Sally og er einmitt í sama dúr og nafngiftin. Kántrítónlistin hefur átt fáa fulltrúa hér á landi nema auövitaö Hallbjörn og örfáa aðra. Hér bætist liðsauki úr ólíklegustu átt. Og Oh, Sally er alls ekki svo fráleitt lag þótt kannski fylgi því ekki sama alvara og sumum öörum. Hressilegt lag sem kemur sannarlega á óvart. Síðasta lag plötunnar, Jerusalem Lights, kemur ekki síöur á óvart. Þar djamma menn dúndrandi djass og Mikki Pollock virðist vera í forsæti. Hin lögin tvö Where were you? og Boys eru meira í anda Fræbbblanna eins og flestir þekkja þá og falla þau óneitanlega í skuggann af hinum helmingnum. Boys er betra enda ljúfara og þar syngur Valli eins og engill. Sem fyrr segir hefur Valli vinur minn nú yfirgefið Fræbbblana og taka nú viö alvarlegri hlutir hjá honum. Valla má víst nefna einn sér- stæöasta músíkant sem nýja línan íslenska hefur alið af sér. Hann hefur verið umdeildur eins og allir góöir listamenn en hvaö sem um hann má segja þá liggja eftir hann margir góöir hlutir, bæöi lög og ekki síður textar. Þaö er engum vafa undir- orpiö að af þessum skemmtilega lag- lausa manni er eftirsjá. En Stebbi og Steinþór ætla að halda áfram. Verður gaman aö fylgjast meö hvaöa áhrif brotthvarf leiðtogans kemur til með aö hafa á Fræbbblana blessaða. En ekki fleiri minningarorð. War- kweldin the west er plata sem kemur á óvart og er þá vægt til oröa tekið. Þaö er fróölegt aö bera þessa plötu saman viö fyrstu plötur þeirra drengjanna. Mikill er munurinn. -TT. Þessi nýja Stranglers plata passar dægilega inn í þá svörtu ímynd sem hljómsveitin hefur skapaö sér á löngum ferli ef plötuhulstriö eitt er skoöaö: stór svartur kisi læðupokast á framhliöinni á svörtum grunni. En þaö þarf ekki aö hlusta lengi á tónlist Stranglers til þess aö finna breyt- inguna; fyrstu oröin úr barka Hugh Comwell eru þessi: I woke up on a god day and the world was wonderful. Einmittþað! Höröum Stranglersaðdáendum þykir eflaust súrt í brotiö aö gamla grófgeröa grúppan þeirra er farin aö vekja áhuga mæðra þeirra, en Stranglers hafa mildast reiöinnar býsn og flytja dillitónlist sem engan særir. Það er af sem áöur var. IMÝJAR PLÖTUR Málaö í mildum litum þessar mjúku laglínur í þungum bassa og hins vegar þessi alvörugefni söngur sem þrátt fyrir mýktina í laginu er haröur og ósveigjanlegur. Textarnir auka svo enn á andstæöurnar. Boriö saman viö tilraunastarf- semina á „La Folie”, sem þó er á ýmsan hátt hin merkasta plata, sýnist mér þaö hafa veriö vel til fundið aö hafa öll lögin á nýju plötunni í svipuöum dúr, einkanlega þar sem ein- hæfni stendur plötunni engan veginn fyrir þrifum. Til þess er líka aö líta, aö þó kveöiö sé í lága drifinu veitist Stranglers næsta auövelt að losna við draug sem skýtur upp kollinum hjá flestumhljómsveitum: væmnina! Enn sem fyrr er þaö styrkur bassa- leikur J. J. Bumel sem gengur eins og rauöur þráður gegnum tónlist Stranglers; Greenfield minnir á píanóiö annaö slagið en að ööra leyti eru fáar krúsindúllur í tónverkum Stranglers. Styrkur „Feline” felst í því hversu heilleg hún er, háösk og umfram allt auöveld áheyrnar. Bestu lög: Midnight Summer Dream, The European Female, It’s A Small World. -Gsal. A plötunni frá því í fyrra, La Folie, brydduöu piltamir upp á þessum mildu litum í titillaginu og „Golden Brown”, en þaö síðamefnda varð afar vinsælt og kom raunar fótunum undir Stranglers á nýjan leik eftir að hún haföi lent í djúpum öldudal um tíma. Síðar kom lag á 2ja laga plötu í sama dúr; Strange Little Girl, huggulegur söngur um sveitastúlku í mannhafi stórborgarinnar. Með þessari nýju plötu stígur Stranglers skrefiö til fulls; hér er vaggaö á ljúfum tónum frá upphafi til enda. Undirtónninn er aö sönnu á köflum allt annaö en rómantískur og hin guðdómlega geggjun liösmanna. Stranglers gægist annaö veifið upp á yfirboröið. Því hvernig gætu „venju- legir” ástarsöngvar heyrst á plötu hjá Stranglers? Ég veit ekki hvernig ég á aö koma oröum aö því, en mér finnst þessi tvö- feldni fjarska heillandi; annars vegar Fermingarveislur, árshútíðarveislur Og veislur fyrir aðra mannfagnaði \ « t ' mm - . % ÞÖRARINN GUNNAR GUÐLAUGSSON BOLLASON Reyndir matreiðslumeistarar ráðleggja yður og sjá um að veislan verður vel úr garði gerð. Leitið nánari upplýsinga ísíma 34349 KLEPPSMÝRARVEGI 8 I Michael Jackson — Thriller: | YNGSTIJACKSON- BROBIRINN BLÓMSTRAR Það eru ekki margar barna- stjömur í heimi dægurlaganna sem hafa þroskast upp í aö verða mikil- hæfir söngvarar og lagasmiöir en Michael Jackson er greinilega ein af þeim. Hann er þegar farinn að láta aö sér kveða svo um munar, rétt rúmlega tvítugur og á ábyggilega eftir aö láta mikið aö sér kveöa í framtíðinni. Hann byrjaöi feril sinn í bræöra- bandinu Jackson Five, þar sem hann var yngstur, innan viö tíu ára aö aldri, aö ég held, og þaö em margir sem muna hina skæru og lífsglöðu rödd hans í mörgum þekktum lögum. Mennirnir breytast meö aldrinum og röddin er ekki undanskilin breyt- ingum. I dag hefur Michael Jackson söngrödd sem sver sig í ætt viö aöra svarta söngvara sem syngja lög þar sem blandast saman soul og rokk meö sterku diskóívafi á köflum. Sólóferil sinn hóf Michael Jack- son meö miklum glæsibrag. Fyrsta plata hans „Off the Wall” náöi strax miklum vinsældum og náöu nokkur einstök lög af henni geysilegum vin- sældum. Ekki lítinn þátt í velgengni plötunnar átti Quincy Jones, hinn mikilhæfi tónlistarmaöur og stjórn- andi, en hann tók hinn unga Jackson upp á sína arma. Nú hefur önnur plata Michael Jackson litiö dagsins ljós og nefnist hún Thriller og enn er þaö Quincy Jones sem situr við stjórnvölinn og er árangurinn í heildina góöur og gerast plötur af þessu tagi ekki betri. Vandaöur flutningur og líflegur söngur Michael Jackson í aö vísu misjöfnum lögum sem hann hefur samiöásamt öörum. Platan byrjar ó tveimur lögum, Wanna Be Startin’ Somethin’ og Baby Be Mine, sem má eiginlega segja aö séu ekta diskólög af betri geröinni, vel útsett. Næst er fallegt lag The Girl Is Mine, þar sem þeir syngja dúett Michael Jackson og Paul McCartney og hefur þaö lag notiö nokkurra vinsælda aö undanförnu. Fyrri hliö plötunnar endar á besta lagi hennar, titillaginu Thriller, virkilega gott lag eftir Rod Temper- ton, sem ætíð hefur samiö lög á þær plötur sem Quincy Jones kemur nálægt. Það er að vísu ekki sunginn dúett í þessu lagi, en samt nýtur Michael Jackson aöstoöar ekki ómerkari manns en hins fræga leik- ara Vincent Price sem fer með „hug- ljúfa” þulu i laginu og gerir þaö á þann hátt sem honum einum er lagið. Seinni hlið plötunnar byrjar á eld- hressu lagi, Beat It, þar sem gítar- leikarinn Eddie Van Halen kemur viö sögu. Aö s jálfsögðu er þetta rokk- aöasta lag plötunnar. Næst er Billie Jean, en þaö lag skríður nú hraöbyri upp alla vinsældalista þessa dagana, enda melódía sem er fljótgripin. Human Nature er eitthvaö utangátta á plötunni og slaknar á tempónu viö hlustun á því. Síðustu lög plötunnar, P.Y.T. (Pretty Young Thing) og The Lady in My Life, eru ekta Quincy Jones lög, ef svo má aö orði komast, samin af þremur félögum, James Ingram, Rod Temperton og Quincy Jones. Thriller er ágætlega heppnuö plata og þrátt fyrir að hún sé nokkuð ójöfn aö gæðum á hún ábyggilega eftir að heyrast mikiö í nánustu framtíð. HK.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.