Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.1983, Blaðsíða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.1983, Blaðsíða 35
DV. MÁNUDAGUR7. MARS1983. 43 1 Sandkorn Sandkorn Sandkorn Hagkvæm vinnu- vernd t fréttabréfi Landssam- bands iðnaðarmanna, fyrsta tölubiaði þessa árgangs, er fjallað nokkuð um aðflutn- ingsgjöld af öryggistækjum í iðnaði. Þar kemur fram að öryggishjálmar bera 7% toll, reykskynjarar bera 7% toll og 32% vörugjald, sjúkra- kassar bera 35% toU og 32% vörugjald og slökkvitæki bera 7% toU. Það er greinUegt að ekki tapar rikið á lögum um að- búnað, hoUustuhætti og öryggi á vinnustöðum, eða lögum um hoUustuhætti og eftirUt. Gott ráð... í fréttabréfi Iöntæknistofn- unar íslands, ITI-fréttum, er greint frá því að fyrir frum- kvæöi trétæknideildar Iðn- tæknistofnunar hafi verið sett á laggirnar „Límtrésráð”. Eflaust hafa margir glaðst við tíðindm enda fyrir langa löngu orðin ljós þörfin á slíku ráði. Þetta er sem sagt gott ráð en spurningin er, verður það dýrt? Smávægilegur misskilningur I viðtali við Sverri Her- mannsson, sem Morgun- blaðið birti nýlega, þar sem Sverrir ræddi störf Norður- iandaráðs, var sagt að Pálmi Jónsson landbúnaðarráð- herra hefði rætt vamarmál. Þctta var leiðrétt síðar í Morgunblaðinu þvi að það var víst Olof Palme sem ræddi vamarmálin, ekki Pálmi Jónsson, ekki Olof Palme. Pálmi Jónsson. Hvernig þessi misskilningur hefur vaknað, veit enginn, en kannski hefur það verið vegna þess að Morgunblaðsmaður hélt aö með „vamarmálum” væri átt við sauðf járveikivamir. Vitið bæjarráðs Bæjarráð Akureyrar hefur átt í erfiðleikum með að koma saman endum fjár- hagsáætlunar bæjarins fyrir yfirstandandi ár. Bæjar- ráðsmenn reikna og reikna, en ekkcrt gcngur. Fyrirsjá- anlegt er að skera þarf niður útgjöld, lcggja á nýja skatta eða þá bjarga málunum fyrir- hom með erlendum lántök- um. Nema þá þetta verði allt notað í bland. Enginn hefur viljaö taka af skarið til þessa, en tíminn líður. Haldi svo fram sem horfir þá má ef til vill nota áætlunina sem reikn- ingsuppgjör fyrir bæjarsjóð þetta árið! Eða eru áætlanir nokkura tíma gerðar eftir á?! Hér á vel við vísa Rögnvaldar ráðhúsherra Rögnvaldsson- ar: Bæjarráðið gæti grátið giutraö öllu i vaskana. Vitið ekki verður látið vafningslaust i askana. Einn biti krydd- síldar í frétt Morgunbiaðsins á fimmtudag af miklu ráni í Kaupmannahöfn er greint frá þvi að síðast hafi sést til ræningjanna á þeysireið í átt- ina tU „Elsinore”. „Something is rotten in the state of Denmark”, sagði skáldmæringurinn, en þó hafa Dauir ekki enn úrættast svo að þeir afbaki bæjamöfn að cnskri fyrirmynd. Bærinn heitir Helsingör á flatdönsku, eða Helsiugjaeyri á íslensku. Það er ástæðulaust að hafa þessa afbökun eftir tjaUan- um. Einhvem tímann afbak- aðist nafn Hveragerðis í munni breskra hermanna, og varð Hurdygurdy. Við bíðum eftir AP skeyti þaðan. Umsjón: Ölafur B. Guðnason Kvikmyndir Kvikmyndir Kvikmyndir Bíóhöllin: Dularfulla húsið Háspenna-lífshætta Heiti: Dularfulla húsið (The Evíctors) Leikstjóri: Charles B. Pierce. Handrit: Charles B. Pierce, Garry Rusoff og Paul Fisk. Tónlist: Jaime Mendoza-Nava. Kvikmyndun: Chuck Bryant. Aðalleikendur: Vic Morrow, Michael Parks, Jessica Harper, Sue Ane Langdon. „Háspenna-lífshætta” var þaí fyrsta sem kom í hug minn þegar ég gekk út af myndinni DularfuUa húsið. Myndin er svo sannarlega spennandi og reyndar ekki á hver jum degi sem undirritaöur hefur orðiö var við aö fólk æpi, stappi og líti undan í bíói. Allt þetta og talsvert meira gerðist þó á myndinni Dular- fuUa húsiö. Myndin gerist áriö 1942 í litlu þorpi í Bandaríkjunum, LeadsvUle í Louisiana. Þetta er rólegheita þorp þar sem hlutimir ganga sinn vana- gang. T Ung hjón koma til bæjarins og kaupa sér hús sem er dálitiö út úr, en er hið smekklegasta. Eiginmaður- inn hefur fengið ágætis vinnu í þorpinu og það er ástæðan fyrir því að þau flytja í þorpið. Svo virðist þó sem ekki sé aUt með felldu hvað húsið varðar. Fljótlega kemur nefnilega í ljós að þar hafa ýmsir voveiflegir atburðir gerst. sem þeim hjónum hafði ekki verið sagt frá þegar þau keyptu húsið. Og það er ekki aö spyrja aö því, sagan sýnist ætla að endurtaka sig hvaö þau hjón varðar. Tæplega er þó Ungu hamingjusömu hjónin sem kaupa dularfuffa hús/ð, Michaei Parks og Jessica Harper. Þrátt fyrir sakleysið gripa þau á það ráð að kaupa sér byssu. Á myndinni er Michael að kenna Jessicu hvernig taka á í gikkinn. sniöugt að segja meira frá sögu- þræðinum. 1 raun eru famar þekktar leiðir tU að ná upp spennu í myndinni. Húsiö hefur lengi verið autt. Það er út úr og nokkuð dularfullt. AUt þekkt frá því að menn fóru á draugamyndimar í gamla daga. Munurinn er bara sá að hér era engir draugar á ferð heldur blóðþyrstir morðingjar. ÖU tækniatriði í myndinni eru í góöu lagi eins og reyndar í öUum bandarískum myndum sem sýndar eru í kvikmyndahúsum hér. Leikurinn í myndinni er nokkuð góður. Ungu hjónin, Michael Parks og Jessica Harper, sem leika aðal- hlutverkin, komast vel frá sínum hlutverkum. Og þá stendur gamla brýnið Vic Morrow sig alltaf vel. ' Hann hefur aldrei náð á toppinn sem leikari, en sennilega er hann flestum að góðu kunnur úr Combat-þátt- unum sem sýndir voru í Keflavíkur- sjónvarpinu hér á árum áður. Þaö er Sérlega spennandi að sjá hvernig ungu hjónin fara um húsið í blásakleysi sínu þegar hættan er svo skammt frá. Þetta gerir áhorf- andann nánast trylltan af æsingi. Svo spennandi er myndin að það er nánast spurning hvort hvetja eigi fólk til að sjá hana. Eitt er víst að þeir sem þola háspennu illa verða að vera tilbúnir aö líta undan á verstu augnablikunum. Jón G. Hauksson Laugarásbíó: Tvískinnungur If/a faríð með ágæta hugmynd Heiti: Tvískinnungur (Double Jeopardy) Leikstjóri: Ulli Lommell. Handrit: Ulli Lommell og John P. Marsh. Tónlist: Joel Goldsmhh. Adalleikendur: Suzanne Love, Robert Walker ogJeff Winchestor. Það er mikiö um að svokallaðar B- myndir séu sýndar í kvikmyndahús- um borgarinnar þessa dagana. Á ég þar við myndir sem geröar era á stuttum tíma, fyrir lítinn pening, með leikurum sem hafa yfirleitt annað til aö státa af en hæfileikum til að tjá sig í hlutverki og sögu- þráðurinn er oft gloppóttur í meira lagi. Ein þessara B-mynda er Tví- skinnungur. Er þar gerð tilraun til að gera sálfræðiþriller í anda Hitchcock, en útkoman er nokkuö langt frá því að vera sannfærandi. Myndin segir frá ungri konu sem bam aö aldri varð vitni að því þegar móðir hennar, sem er vændiskona, er myrt af kynferðislega brengluðum manni og á það eftir að eitra líf hennar þegar aldurinn færist yfir hana. Viö kynnumst henni næst þegar hún er oröin gift kona. En í einhvers konar geðveiki heyrir hún rödd móður sinnar sem hvetur hana til að fara út og verða sér úti um karlmenn til aö hefna sín meö því að drepa þá á sama hátt og hún var drepin og tekst þaðíeitt skiptihjáhenni. 1 leit sinni að karlmönnum hittir hún fyrir ungan mann sem er að meta hvort borgi sig að gera við hina frægu Lundúnabrú og verður ást- fangin af honum, en eiginmaöurinn kemst að sambandinu og í slagsmál- um sem koma upp á milli eigin- mannsins og elskhugans veröur elsk- huginn eiginmanni hennar að bana, að því er séð verður. Lundúnabrú er seld til Arizona og færist nú leikurinn frá rigningunni í London til veður- sældarinnar í Arizona, og þá fer nú leikurinn að æsast. .. Það verður að segjast að hug- myndin að láta Lundúnabrú veröa miðdepil myndarinnar er nokkuð góö, einnig er söguþráðurinn á köflum alls ekki svo vitlaus, en þaö er eins og úrvinnslan hafi öll farið úr skorðum. Spennan er lítil sem engin, sakamálasenumarlósköp máttlausar og leikurinn hjá aðalleikurunum í slappara lagi. Tvískinnungur ber þess greinilega merki að myndin er gert á stuttum tíma, fyrir lítinn pening og ágæt hug- mynd veröur að lítt spennandi mynd. Hilmar Karlsson. Kvikmyndir Kvikmyndir Kvikmyndir Sérfræðingar í einnota vörum. Besti bar í bænum! Á DUNI kaffibarnum eru 80 bollar sem aldrei þarf að þvo upp. Sterk hulstur (í ýmsum litum) og að sjálfsögðu hólf fyrir teskeiðar og sykur. DUNI kaffibarinn getur staðið á borði eða hangið á vegg, þannig að ekki standa þrengsli honum fyrirþrifum. DUNI — kaffistofa í hverjum krók! STANDBERG H.F. Sogavegi 108 Símar 35240 - 35242.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.