Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1983, Qupperneq 17
DV. MIÐVIKUDAGUR9. MARS1983.
17
Lesendur Lesendur Lesendur
„Mér þætti vænt um ef þið gætuð birt mynd af hinum svokölluðu frúarbílum því að ímyndunarafi mitt dugir ekki.
til,” segir 4391-9150 meðal annars. A myndinni má sjá bíla sem vafaiaust mætti kalla herra- og frúarbíla.
Hvað er frúarbfíl?
— fyrirspurn út af smáauglýsingu
4391-9150 skrifar:
Mánudaginn þann tuttugasta og
áttunda febr. síðastliöinn renndi ég
augunum lauslega yfir smáauglýs-
ingasíðurnar. Þar rakst ég á ansi
hreint furöulegt orð í dálki sem
nefndur var „Bílar til sölu”. Þar stóð
nefnilega til sölu væri frúarbíll. Er
það einhver ný tegund af bíl? Ef svo
er langar mig gjarnan til þess að fá
upplýsingar um hverrar þjóðar hann
er. Tekið er fram í auglýsingunni að
umræddur bíll sé árg. ’77 svo að
varla er um nýja tegund að ræða. Sá
möguleiki er þó fyrir hendi að bíllinn
hafi verið keyptur erlendis og fluttur
inn af eiganda og því eðlilegt að fólk
hafi ekki fyrr barið fyrirbrigðið
augum.
Mér þætti vænt um ef þið gætuð
birt mynd af hinum svokölluðu frúar-
bílum því að ímyndunarafl mitt
dugir ekki til. Einnig væri ánægju-
legt ef einhver sem vit hefur á
þessum málum treysti sér til þess að
útskýra fyrir mér muninn á
þessum bílum og öðrum.
Athugasemd.
Það er vafalaust fremur ætlun
bréfritara að vekja athygli á að orðið
frúarbíll er niðrandi fyrir kvenþjóð-
ina en að fá skýringu á merkingu
þess. I Orðabók um slangur, slettur,
bannorð og annaö utangarðsmál
stendur undir „frúarbíll k,” lítil
bifreiö; ” „önnurbifreiðheimilis”.
Flugveliirnir:
Borgar sig að leggja
snjóbræðslukerfi?
Sigurður Grétar Guðmundssou skrif-
ar:
Snjóbræðslukerfi
Fyrir skömmu birtist í lesenda-
dálki DV bréf þar sem sett var fram
hugmynd um að leggja snjóbræðslu-
kerfi í Reykjavíkurflugvöll. Þar sem
fyrirtæki mitt Pípulagnir sf. i Kópa-
vogi er frumkvöðull að snjóbræðslu-
kerfum hérlendis langar mig að
leggja orðíbelg.
Fyrstu kerfin
Áriö 1973 lögðum við fyrstu snjó-
bræðslukerfin. Meðal stærri kerfa
sem viö höfum lagt á þessum áratug
má nefna Lækjartorg/Austurstræti,
við sjúkramóttöku ’ Landspítalans,
við bækistöð Hitaveitu Reykjavíkur
við Grensásveg og dælustöðina í
Mosfellssveit, viö hús Styrktarfélags
lamaðra- og fatlaðra, Háaleitis-
braut, við nýbyggingar Málningar
hf., ölg. Egils Skailagrímssonar hf.
og Karnabæjar hf., að ógleymdum
Iþróttavellinum í Kópavogi, svo
nokkuö sé nefnt. Þá hefur það aukist
geysimikið einkum á sl. fimm árum
að einstaklingar og húsfélög láti
leggja slík kerfi við íbúðarhús. Ég
fullyrði að fyrirtæki mitt hefur lagt
yfir 95% allra snjóbræðslukerfa hér-
lendis.
Efni og tækni
Við notum eingöngu sænsk
pexplaströr í snjóbræðslukerfin.
Þessi rör uppfylla þau þrjú skilyrði
sem nauðsynleg eru rörum til slíkrar
notkunar þ.e. um þrýstiþol, hitaþol
og þjálni. Engin önnur rör á mark-
aðnum uppfylla öll þessi þrjú skil-
yrði. Þaö er heldur ekki nóg að bjóða
plaströr í kerfin. Því verður aö fylgja
tæknileg þekking og ráðgjöf.
Þótt við fengjum í upphafi tækni-
ráðgjöf framleiðenda í Svíþjóð og
undirritaður sækti þangaö fleiri en
eitt námskeið í lögn snjóbræðslu-
kerfa hefur samt orðið að laga þessa
tækni að islenskum aðstæðum. Það
hefur verið mikið verk og ekki
einfalt.
Engin innlend plaströr eru heppi-
leg í snjóbræðslukerfi, en það er
skammt í að á því verði breyting.
Hálkan á f lugvöllum
Að leggja snjóbræðslukerfi í flug-
velli, gangstíga, brattar götur,
gatnamót, tröppur og víöar er ekki
aðeins til þæginda. Þetta getur bein-
línis sparaö f jármuni. Þetta er ekki
síst öryggisatriði. Ég hef fengið
nokkrar upplýsingar um hvaö það
kostar að strá kemiskum efnum á
Keflavikurflugvöll til hálkueyðingar
e.t.v. vegna einnar lendingar. Þaðer
engin smáupphæð. Aö leggja snjó-
bræðslukerfi í heilan flugvöll er held-
ur ekkert smámál. Það má reikna
með 230 w orkuþörf á mVklst. og
stofnkostnaður er talsverður. En er
ekki hægt að fara millileið og leggja
snjóbræðslukerfi á þá hluta flug-
brautar þar sem nauðsyn er mest?
Hér skortir mig þekkingu á flug-
tækni. Svo mikið veit ég þó aö þetta
er svo mikflvægt atriði að rétt væri
að menn með flugtækniþekkingu og
aðrir með hitatækniþekkingu, og þá
sérstaklega á snjóbræðslukerfum,
hittust og könnuöu möguleikana.
Skipuö hefur verið starfsnefnd af
minna tilefni. Þá væri rétt aö tækni-
menn viðkomandi orkuveitu ættu þar
hlutaömáli.
Að lokum þetta: Svo ör hefur
þróunin verið í lögn snjóbræðslu-
kerfa hérlendis að ég spái því aö eftir
4—5 ár þyki það jafnsjálfsagt að
setja snjóbræðslu í tröppur, gang-
stíga og bílastæði við hvert hús á
jarðhitasvæði, eins og að leggja í
húsið frárennsliskerfi eða hitakerfi.
ÓLAFSVÍK
Umboðsmaður óskast frá og með 1. aprll.
Upplýsingar gefur umboðsmaður Guðrún Karls-
dóttir, Lindarholti 10, sími (93)-6157.
IVELKOMIN TILl
ÍSAFJARÐAR
Svefnpokapláss m/morgunverði
(í rúmgóðum herbergjum)
Eins manns herb. m/morgunverði
2ja manna herb. m/morgunverði
Eins manns herb. í mánuð
2ja manna herb. í mánuö
(gengi 1/1 '83)
kr. 170,00
kr. 300,00
kr. 425,00
kr. 2.500,00
kr. 3.500,00
GISTIHEIMILIÐ
ÍSAFIRÐI
SlMI 94-3043.
REVKJANESKJÖRDÆMI
KVENNALISTI
TIL ALÞINGIS
Opinn fundur verður haldinn fyrir Suðurnes í kvöld,
miðvikudaginn 9. mars, ki. 20.30 í Safnaðarheimil-
inu innri-Njarðvík.
KONUR, FJÖLMENNIÐ
ÁHUGAHÓPUR UM KVENNALISTA
TIL ALÞINGIS
Leiklistarskóli
íslands
auglýsir inntöku nýrra nemenda, sem
hef ja nám haustið 1983.
(Jmsóknareyðublöð ásamt upplýsingum um inntökuna og
námið í skólanum Uggja frammi á skrifstofu skólans að
Lækjargötu 14B, sími 25020.
Skrifstofan er opin kl. 9—15 alla virka daga.
Hægt er að fá öU gögn send í pósti ef óskað er.
Umsækjendur komi með umsóknirnar á skrifstofu skólans eða
sendi þær þangað í ábyrgðarpósti fyrir 20. apríl nk.
SKOLASTJORI.
GÓÐIR
NOTAÐIR
BÍLAR:
Mercedes Benz 280 SLC, 2ja dyra,
1976, ek. 52.000 km. Bill í algjörum
sérflokki.
Subaru 4X4 1981.
Citroen GSA Pallas 1981, ek. 35.000
km.
Peugeot 505 1982, með öllu, ek.
12.000 km.
Galant 2000 XL 1981, fallegur bíll,
ek. 21.000 km.
Daihatsu Charmant 1982, ek. 7.000
km.
Toyota Cressida station 1981, ek.
20.000.
Honda Civic 1980, fallegur bíll, ek.
30.000 km.
Mazda Sport 1981, ek. 16.000 km.
Mercedes Benz 250 1979, einkabíll.
Toyota Corolla 1981, ek. 22.000.
Mitsubishi pick-up 4X4 1981.
Mazda 626 1980, fallegur bíll.
Datsun Cherry GL 1982, ek. 5.000
km.
ES3 bilasala
SUOMUNDAR
Bergþórugöfu 3 — Reykjavík
Simar 19032 — 20070
Síaukin sala
sannar öryggi
þjónustunnar.
GLUGGAÞVÚTTUR
hRIFILL SF.
Sími82205 .