Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.1983, Blaðsíða 1
DAGBLAÐIÐ — VÍSIR 63. TÖLUBLAÐ. - -73. og 9. ÁRG. — MIÐVIKUDAGUR 16. MARS 1983.
r i
Skipakirkjugarður
Skipsskrokkar eru nú farnir að safnast á
eiðið sem tengir Geldinganes og Gufunes.
Stálfélagið hefur leyfi Reykjavíkurborgar til
að geyma þá þarna til bráðabirgða. íþessum
nýja skipakirkjugarði bíða fyrrum afla-
skipin þess að stálverksmiðja rísi til að
brœða þau upp.
-KMU/DV-mynd: S.
Alþýðuflokkurinn á Vestfjörðum:
W MEINGALLAÐ?
— sjá bls. 3
Skiptar skoðanir um skipsskrokk
Skipasmíðastöðvar Njarðvíkur:
Hráefni eöa
fískiskip?
„Skipsskrokkurinn er ekki fluttur
inn sem skip, og þaö er útilokað að
tala um hann sem slíkt, til þess á
hann allt of langt i Iand,” sagði Þor-
steinn Baldvinsson, framkvæmda-
stjóri Skipasmíðastöðvar Njarðvík-
ur, í viötali við DV. Tilefnið er að
mjög skiptar skoðanir hafa verið um
annan tveggja skipsskrokka sem
komu til Skipasmíðastöðvarinnar f rá
Noregi í janúarmánuöi síðastliðnum.
Hefur málið meöal annars komist í
hendur viðskiptaráðuneytisins.
„Það komu tveir skipsskrokkar til
Njarðvíkur þann 18. janúar og var
annar þeirra samþykktur af Fisk-
veiðasjóði árið 1981,” sagöi
Þorsteinn. ,Hinn er aftur á móti
óseldur og hefur ekki veriö hreyfður
frá því hann kom. Þó bannað sé að
flytja inn fiskiskip nú er engan
veginn hægt að líta þannig á þennan
skipsskrokk. I hann vantar allan
búnaö.
Það er hugsanlegt að hann verði að
fiskiskipi einhvem tima í framtíðinni
en það ræðst eðlilega af því hvort ein-
hver þorskur finnst og hvort verkefni
verða næg í skipasmíðum.”
Ámi Vilhjálmsson, lögfræðingur í
viðskiptaráðuneytinu, tjáði blaðinu
aö umrætt mál hefði verið sent til
saksóknara með ósk um að það yrði
tekið þar fyrir sem opinbert mál.
Vissa þætti þess þyrfti að athuga
nánar.
„Málið er að fiskiskip eru háð inn-
flutningsleyfum,” sagði Árni, „og
ríkisstjórnin lýsti því yfir í ágúst síð-
astliðnum að innflutningur á þeim
væri óheimill næstu tvö árin.
Það verður að fara að þeim reglum
sem settar hafa verið. Ráðuneytið og
gjaldeyrisyfirvöld höfðu ekki vitn-
eskju um að flytja ætti inn tvo skips-
boli heldur var aðeins kunnugt um
einn. Fyrir honum var óbeint veitt
leyfií janúar 1982.”
-PÁ
Jóhanna
Bogadóttir
myndlistar■
maður
sjá viðtalið
ábls.11
Breiðdælingar fá nýtt skip
— sjá bls. 2
Slökkvilidsmenn voru enn ad spraula í gærkvöldi í
Álafossverksmidjunni í Mosfellssveit. Eldur logadi þó í
ull en þar reyndist hann lifsseigur. Vakt var í brunarúst-
unum í nótt og verdur áfram í dag. Hugsanlegt er tatid
ad enn geti leynst glædur í ullinni. Slökkviliðsmenn
munu því fylgjast með þegar byrjað verður að moka upp
úr rústunum. Rannsóknarlögreglumenn hafa ekki -KMV/ÞV-mynd: S.
fundið neina skýringu á hvers vegna eldur varð laus í
verksmiðjunni í fyrrinótt. Talið er að tjónið nemi milli
10 og 50 milljónum króna. Yfir eitt hundrað tonn af ull
eyðilögðust. 450 fermetra verksmiðjuhúsnceði er
gjörónýtt utan útveggja, sem enn standa.
sjá nánar á bls. 2
AlliráHalló
íkvöld
— sjá Sviðsljósið
á bls. 36 og 37
Ekkerttannkrem
kemurí vegfyrir
tannskemmdir
— sjá Neytendur
ábls.6og7