Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.1983, Blaðsíða 4
4
DV. MIÐVIKUDAGUR16. MARS1983.
Það eru mörg ár siðan eins kröftug mótmæli hafa verið fyrir utan Aiþingishúsið eins og undanfarna daga þegar vörubiistjórar og fleiri
hafa verið þar að mótmæla nýja bilaskattinum. p V-myndS
Bráðabirgðalög um nýja bílaskattinn:
Þá verður dýrt að
eiga þunga bfla
Steingrímur Hermannsson
samgönguráöherra sagöi í gær aö
fjáröflun til vegageröar veröi
ákveöin meö bráöabirgöalögum.
Þarna er um aö ræöa hinn svo-
kallaða bifreiöaskatt, sem mikill
hávaði hefur verið útaf aö undan-
fömu — aðallega þó fyrir utan
Alþingishúsið þarsem vömbílstjórar
og aðrir bifreiöaeigendur hafa haldiö
uppimótmælum.
Frumvarpiö var búið að fara í
gegnum efri deild Alþingis og voru
geröar þar á því ýmsar breytingar.
Koma þær eigendum stærri bifreiöa
helst til góöa. Hljóðar breytingatil-
lagan, sem samþykkt var í efri deild,
þannig:
„Af öllum bifreiðum og bifhjólum
skal frá og með árinu 1983 greiða ár-
gjald, veggjald, sem skal renna
óskipt tíl vegagerðar. Skal gjaldiö
nema kr. 1,00 af hverju kílógrammi
eigin þyngdar bifreiöar upp aö 2000
kg, kr. 0,70 fyrir hvert kg frá 2001 kg
til og meö 5000 kg eigin þyngdar
hverrar bifreiöar og kr. 0,50 fyrir
hvert kg þar umfram. Þó skal há-
mark veggjalds vera 7600 kr. fyrir
hverja bifreiö.”
Steingrímur sagöi aö þarna hafi
veriö komið allveruiega á móts viö
óskir atvinnubifreiöastjóra. Vega-
gjaldið hafi veriö Iækkaö á þyngri
bifreiðum og einnig hafi verið lagt til
aö tollur af hjólbörðum stærri bif-
reiða verði lækkaöur um helming.
Væri þaö áfangi í að lækka tolla af
hjólbörðum almennt.
Á að gefa afsér
109 milljónir
Samkvæmt upplýsingum sem viö
fengum hjá Vegagerð ríkisins í gær,
var áætlað aö þessi nýi bílaskattur
gefi af sér um 109 milljónir króna á
þessu ári. Er þaö aðeins brot af því
sem þarf til vegamála í landinu í ár.
Til þeirra mála er áætlaö aö verja
yfir einummilljaröi króna.
Gjalddagi þessa nýja bílaskatts er
samkvæmt frumvarpinu 1. janúar ár
hvert og eindagi 1. apríl. Bráöa-
birgðaákvæði varö því aö setja í
frumvarpið og segir þar að á árinu
1983 skuli gjalddagi vera 1. apríl
ogeindagil.mai.
Þaö þýöir einfaldlega aö allir bif-
reiðaeigendurveröa aö vera búnir aö
greiða gjaldiö fyrir 1. maí nk. og
samt er enn ekki búið aö gefa út lögin
og hvaö þá heldur aö senda út
reikninga til allra bifreiöaeigenda á
landinu.
TUbúnir að senda
út reikningana
Viö spuröum Lárus Ögmundsson
hjá fjármálaráöuneytinu aö því
hvort hægt yröi aö senda öllum
reikning í tæka tíö ef bráðabirgöalög
veröa sett á um bíiaskattínn nýja
einhvem næstu daga.
„Þetta er knappur tími sem viö
höfum en þaö á aö geta tekist. Viö
eigum prógramm yfir bifreiða-
gjaldið sem allir bifreiðaeigendur fá
í upphafi hvers árs, og það tekur ekki
langan tíma aö keyra þaö í gegn,”
sagöi hann.
Þegar bráðabirgðalögin um veg-
gjaldið og vegaáætlunina veröa sett
geta allir bifreiöaeigendur á landinu
átt von á því aö fá fljótlega úr því
reikning frá ríkinu. Þeir sem eiga
þyngstu bilana fá reikning upp á 7600
krónur, en flestir sem eiga venjulega
fólksbíla fá 800 tíl 1500 króna
reikning, enda er algeng þyngd á
fólksbílum um800 til 1500 kíló.. .
Listi Sjálf-
stæðisflokks
á Reykjanesi
Framboöslisti Sjálfstæöisflokksins í
Reykjaneskjördæmi fýrir komandi
alþingiskosningar hefur veriö sam-
þykktur af kjördæmisráöi flokksins.
Listinnerþannig skipaöur:
1. Matthías Á. Mathiesen alþingis-
maöur, 2. Gunnar G. Schram prófess-
or, Reykjavík, 3. Salome Þorkelsdóttír
alþingismaöur, Mosfellssv., 4. Olafur
G. Einarsson alþingismaöur,
Garðabæ, 5. Kristjana Milla Thor-
steinsson viöskiptafræðingur,
Garðabæ, 6. Bragi Michaelsson fram-
kvæmdastjóri, Kópavogi, 7. Ellert
Eiríksson sveitarstjóri, Gerðahreppi,
8. Helgi Jónsson bóndi, Kjósarhreppi,
9. Dagbjartur Einarsson útgeröar-
maður, Grindavík og Sigurgeir
Sigurösson bæjarstjóri, Seltjarnar-
nesi.
-OEF.
Listi
Alþýðuflokks
íReykjavík
Gengiö hefur veriö frá framboðslista
Alþýðuflokksins í Reykjavík fyrir
komandi alþingiskosningar. Listinn er
þannigskipaöur:
1. Jón Baldvin Hannibalsson
alþingismaöur, 2. Jóhanna Siguröar-
dóttir alþingismaður, 3. Bjarni Guöna-
son prófessor, 4. Maríanna Friöjóns-
dóttir dagskrárgeröarmaöur, 5.
Guðríður Þorsteinsdóttir fram-
kvæmdastjóri, 6. Ragna Bergmann,
formaður Framsóknar, 7. Jón Þor-
steinsson lögfræðingur, 8. Viggó
Sigurösson íþróttakennari, 9. Lísbet
Bergsveinsdóttir ritari, 10. Hrafn
Marinósson lögregluþjónn, 11. Kristín
Jónsdóttir nemandi, 12. Thorvald
Imsland kjötiönaöarmaöur, 13.
Brynjar Jónsson verkamaður, 14.
Helga Guömundsdóttir skrifstofu-
maöur, 15. Höröur Bjömsson skip-
stjóri, 16. Bjarni Þjóðleifsson læknir,
17. Katla Olafsdóttír meinatæknir, 18.
Regína Stefnisdóttir hjúkrunar-
kennari, 19. Margrét Pétursdóttír hús-
móöir, 20. Viðar Scheving múrari, 21.
Guðrún Guðmundsdóttir kaupkona, 22.
Bjarni P. Magnússon framkvæmda-
stjóri, 23. Emilía Samúelsdóttir fram-
kvæmdastjóri og 24. Eggert G.
Þorsteinsson forstjóri.
-ÓEF.
-klp-
Svo mælir Svarthöfði Svo mælir Svarthöfði Svo mælir Svarthöfði
Þjóðfrelsisbarátta Alþýðubandalagsins
lærdómur um, hvernig menn ganga
Alþingi íslendinga lauk með
hefðbundnum blæ. Þingmenn fluttu
sléttar ræður og skaut þar nokkuð
skökku við þá mynd, sem Ingvi
Hrafn hefur sýnt meö beinum út-
sendingum úr sjónvarpi undanfarna
mánuði. 1 sjálfu sér kom ekkert nýtt t
fram, utan það, aö sjálfstæöismenn
virðast hafa komiö sér saman um
sameiginlegan málstað aö verja í
næstu kosningum.
Eldhúsdagsumræöan gaf hins
vegar litla mynd af því, hvernig
kosningabaráttan verður. Flokkur
póstmeistara alþingis er enn
óskrifaö blaö og verður þar tii
framboöslistar hans verða kynntir.
Þá fyrst er hægt að gera sér grein
fyrir, hvort þar eru menn sem vilja
frekar bera fána en bréf. Á hinn bóg-
inn er Ijóst hvernig Alþýðubanda-
iagsmenn ætla að reka þjóðfreisis-
baráttu sína í þessum kosningum.
Því miður tókst lýðræðisflokkun-
um þremur ekki að koma fram
tillögu sinni um að taka áimálið úr
höndum iðnaðarráðherra. Austur-
þýskur blær mun því verða ráðandi
enn um sinn í rafmagnsmálum ís-
lendinga. Sá sem lagði linuna í þetta
sinn var formaður þingflokks
Alþýöubandalagsmanna, Ólafar R.
Grímsson, og svo vel tókst honum til
um að telja einfalt viöskiptamál til
þjóðfrelsismála, að hann taldi þá
Hjörleif vera í stríði gegn heims-
valdasinnum um allan heim.
Það er sagt, að þegar önnur böm
hafi leikið sér í skóginum á Hallorm-
stað hafi Hjörleifur unað sér við aö
hnýta bindishnút á rúmstólpa. Hið
vel hnýtta bindi vakti síðan mikla
aðdáun kennara hans í Austur-
Þýskalandi. Með sama hætti hefur
Ólafur R. Grímsson vakið aðdáun
manna fyrir vel lagt hár. En þótt
þeir félagar séu þannig að ytra útliti
snyrtilegir og temji sér stáss-
mennsku, þá virðast þeir ekki hafa
að sama skapi vald á hugsun sinni.
Þeir hafa orðið boðberar þeirrar
stefnu í Alþýðubandalaginu að
aðeins sé til ein stefna i álmálinu,
stefna iönaðarráðherrans. Og þeir,
sem standa að þeirri stefnu fylgja
fram hagsmunum landsins, en þeir,
sem efast um stefnu ráöherrans em
jafnframt að skorast úr leik, svikja
þjóð sina í mikilsverðu máli, gerast
taglhnýtingar erlends valds.
Andstæðingar ráðherrans láta sér
hins vegar nægjaaöbenda á,að þver-
móðska hans í álmálinu hafi orðið
þjóðinni dýrkeypt, og telja þess
vegna nauðsynlegt að hann iáti af
meðferð málsins. Enginn hefur orð á
því, að hagsmunir ráðherrans eigi
upptök sín utan lands.
Og er ekki í þessu fólginn nokkur
til stjórnmálabaráttu?
Þeir Hjörleifur og Ólafur R.
Grímsson brigsla nú andstæðingum
sinum um nákvæmlega sömu hlutina
og flokksbræður þeirra hafa gert
alls staðar þar sem þeir hafa náð
völdum. Skoðanaágreiningur er í
augum þessara manna ekki til, af þvi
að þeir trúa þvi, að þeir einir hafi
réttan málstað. Að hafa aðra skoðun
er þess vegna glæpsamlegt og ber að
stöðva. Áróður tvímenninganna i ál-
málinu sannar, að málfrelsi er í
þeirra augum cinungis frelsi til þess
að lofsyngja það sem er satt og rétt:
stefnu Alþýðubandalagsins. Og slik
ruglandi hugans veidur svo því, að
þessir islensku menn lofsyngja ein-
ræði hjá mönnum eins og Fidel
Kastró, teija að Mugabe hafi fyllsta
rétt til að ganga með valdi milli bois
og höfuðs á Nkomo, enda sá fyrri
meiri marxisti en sá síðarnefndi, og
telja sjálfsagt, að beita ráðherra-
valdi hér uppi á ísiandi til hins
ítrasta, enda þótt þeir viti vel, að öli
þjóðin stendur á móti þeim.
En það styttist vera Hjörleifs í
ráðherrastóli, og ef borgara-
flokkamir ná saman í þessum
kosningum, verður hægt að taka
höndum saman í endaðan sauðburð
um nýja stefnu í landsmálum, og
sigla skútunni úr þeim rauðasjó, sem
hún er búin að hrekjast um of lengi.
Svarthöfði.