Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.1983, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.1983, Síða 6
6 DV. MIDVIKUDAGUR 16. MARS1983. ' Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur Hvað ertannkrem? Ekkert tannkrem kemur í veg fyrir tannskemmdir — stiklað á stóru í grein eftir Ólaf Höskuldsson „Hvaö er tannkrem” heitir grein stiklaðhérástóruígreinOlafs. Fægiefni 25—60% eftir Ölaf Höskuldsson tannlækni og „Tannkrem er efni sem ásamt tann- Hreinsiefni allt aö 2% lektor viö Háskóla íslands í nýjasta bursta er notaðtil þess aö hreinsa hina Vætiefni 20—40% hefti ritsins Heilbrigðismál. í þeirri aögengilegu fleti tannanna. Þaö er Bindiefni alltaö2% grein bendir hann á aö meöalskammt- gert af mörgum efnum sem hvert og Bragðefni alltaöl,5% ur af tannkremi, sem hvert manns- eitt þjónar ákveönum tilgangi. I’ Vatn 15—50% bam á landinu notar, sé um 1 gramm á mörgum tilfellum er hin endanlega Litur, rotvamarefni o.fl. dag. Sá skammtur kosti 20—50 aura. uppskrift vandlega varöveitt leyndar- alltaö3% Ljóst er því aö um stórar fjárhæöir er mál framleiöandans. Þó er vel Virkefni alltaö2%” aö ræöa þegar tannkremskaup þjóöar- kunnugt aö hiö dæmigeröa tannkrem innar eru skoðuð í heild. Veröur því inniheldureftirtalinefni: I greininni eru þessi efni síðan Nokkrar af þeim mörgu tannkremstegundum sem fást hér á Iandi. Dag- skammturinn kostar20—50aura. Myndin er úr tímaritinu Heilbrigðismál. skilgreind nánar. Segir meðal annars aö fægiefnin gegni þeim tilgangi aö fjarlægja matarleifar, lit og sýkla af yfirborði tannanna og fægja þær. Geti slík efni valdiö slitskaöa a tönnum en án þeirra yrðu þær fljótt gular. Hreinsiefnin losi um óhreinindin og geri auðveldara að ná þeim af. Vætiefnin haldi kreminu röku, jafnvel þó aö gleymist að skrúfa tappann á túpuna. Bindiefnin haldi kreminú saman og bragðefnin bæti eins og nafnið bendir til bragö kremsins. 1 tannkrem er notaö eimaö og afjónaö vatn. Virk efni eru síöan flór, klórhexi- dín, strontium og hvatamir amyló- glúkósídasi og glúkósfosídasi. Mismunandi magn þessara efna er í tannkreminu og þau stuöla hvert á sinn hátt aö því aö draga úr tannskemmd- um. „Enn sem komiö er hefur ekkert tannkrem á markaönum fengiö viður- kenningu fyrir að hindra myndun sýklu og tannvegsbólgu og jafnframt aö vera óskaðlegt við eðlilega notkun. Hafa mörg efni verið könnuö 1 þessu augnamiði og sum þótt lofa góðu,” segir í greininni. Jafnframt er bent á að tannkrem er ekki ómissandi við tannhreinsun. Mikilvægust sé hreinsun með bursta, tannstönglum og tann- þræði. En óneitanlega veröi tannhreinsunin ljúfari með tilkomu þess. DS Matseðill ástarinnar? Leiðin frá magan- um til hjartans — aðsögn enskra Ástin er hverful, svo mikið er' víst. I gegnum aldirnar hafa menn reynt aö finna ráö til þess aö kveikja hana meö fólki eða halda henni viö. Hafa hvers kyns töframeðul ekki veriö spöruð í þeim tilgangi. Nýlega rák- umst viö á uppskriftir af mat í bresku blaði. 1 grein meö uppskriftun- um sagði að þetta skyldu menn gefa elskunni sinni ef þeim þætti ást hennar vera farin að kólna. Ekki seljum viö þetta dýrara en viö keyptum þaö. En réttimir líta út fýrir aö vera góöir, hvaö sem ástinni líöur. Og ekki sakar ef þeir glæöa kulnuð hjartabál. Aioli 3 dl ma jónes 2 lauf hvítlaukur, afhýddur saltogpipar örlítið sinnepsduft 1 tsk. nýkreistur sítrónusafi. Kreistiö hvítlaukinn og blandiö öllu saman. Berið fram með rækjum, þar af nokkrum óskelflettum til skrauts. Kebab (kjöt á teini) og pílaff hrísgrjón með ýmsu góðgæti saman við 450 g kjöt. I upphaflegu uppskrift- inni er mælt meö kalkúnakjöti. En harla litlar líkur em á því að hægt sé aö fá það hér. Kjúklingakjöt er ágætt í staðinn en vel má nota kindakjöt eða nautakjöt, jafnvel folaldakjöt. soja-sósa sinnep örlítið vín (hvítt eöa rautt) eöa vermúth 2 paprikur (rauö og græn) 100 g sveppir 100 g laukur 100 g beikon í sneiðum olía. Skeriö kjötiö í passlega munnbita. Hræriö örlitlu sinnepi, soja-sósu og vínslettu saman. Blandiö síðan kjötbit- unum saman viö. Látiö liggja í nokkra klukkutíma svo að kjötið drekki vel í sig bragöið. Skerið paprikumar 1 sneiðar og fjarlægiö kjamann. Fjar- lægið leggina af sveppunum. Skræliö laukinn og skeriö í sneiðar. Þræöiö nú til skiptis upp á tein kjötbita, lauk, papriku, sveppi og beikon. Penslið meö olíu. Grillið viö meöalhita og snúiö ööru hverju. Misjafnt er hversu vel menn vilja hafa matinn grillaöan en ef þiö notið kjúklingakjöt er ráölegt aö grilla það vel í gegn. Saltið og pipriö aö smekk. Haldið heitu. Rúsínu pílaff Þegar suörænar þjóöir búa til pílaff steikja þær hrísgrjónin fyrst. En þaö er meira fitandi og erfiöara,auk þess sem höfundur uppskriftanna segir að bragðmunur sé sáralítill. 100 g hrísgrjón. Hér er mælt með basmati eöa patnagrjónum. Ekki veit ég hins vegar hvort þau fást hér 1 búöum. Venjuleg hrísgrjón ættu líka að geta komiö í staö þeirra. 1 tsk. turmerik (fæst meðal annars í Heilsuhúsinu á Skólavörðustíg). salt ogpipar 4 tsk. rúsínur eöa kúrennur 4 tsk. hnetur eða möndlur olia. Hitiö lítra af vatni aö suöu. Setjið hrísgrjónin út í þaö, turmerikið, salt og pipar einnig ef þiö viljiö. Sjóðiö hrís- grjónin í 12 mínútur frá því suöan kemur upp. Helliö öllu í sigti til þess aö sía vatn frá grjónunum. Ef þau loöa saman er gott aö hella svolitlu heitu vatni yfir þau. Látiö kólna. Brúniö möndlumar á djúpri, þykkbotna pönnu, viö lágan hita. Leggiö rúsínum- ar í bleyti í vatn, vín eöa te og látið þær drekka vel í sig. Hálftíma áður en borðað er hitið þá lítilsháttar oliu á stórri pönnu yfir lágum hita. Setjiö hrísgrjónin út í olíuna og hræriö rólega í. Notið gaffal, það kemur í veg fyrir aö grjónin hlaupi í kekki. Þegar grjónin eru orðin heit bætiö þá hnetunum út í og rúsínunum. Saltið og pipriö aö smekk. Sírópsterta 200 g smjördeig (bútterdeig). Fæst hjá sumumbökurum. 6 tsk. brauörasp (helst heimatilbúiö úr hveitibrauöi) 4—6 tsk. síróp safi og rifinn börkur af einnisítrónu Heimilisbókhald DV: Verðlaun janúarmánaðar fara til Ólafsvíkur Verðlaun fyrir þátttöku í heimilis- bókhaldi DV eru þrjú þúsund krónur mánaðarlega. Hver sá áskrifandi, sem sendir okkur útfylltan upplýsingaseöil meö tölum um matarkostnaö heimilisins, á von á vinningi. Sá háttur hefur verið á aö undanförnu að vinnings- hafar hafa valið sjálfir einhver heimilistæki fyrir vinningsupphæð- ina. Seðlar fyrir janúarmánuö voru óvenju margir og vonum viö sannar- lega aö framhald verði á góðri þátt- töku. Við drógum einn seöii úr bunkanum og á þeim er nafn Hilmars Gunnarssonar, Hábrekku 6, Ólafsvík. Þaö er fjögurra manna fjölskylda, samkvæmt upplýsingum á seölinum, sem aö þessu sinni getur nú farið á stúfana og valið sér heimilistæki fyrir þrjú þúsund krón- ur. Við óskum Hilmari Gunnarssyni og fjölskyldu til hamingju 'með verðlaunin. Þess má geta að þetta var fyrsti upplýsingaseðillinn sem okkur hefur borist frá þessari fjöl- skyldu í Olafsvík. -ÞG Hræriö saman raspi, sírópi, sítrónu- safa og berki. Fletjið smjördeigiö þunnt út á bökunarform sem er um 20 sentimetrar í þvermál. Klæöiö hliöar formsins einnig með útflöttu deiginu. Stingið nokkur göt í þaö meö gaffli. Leggiö alla deigafganga til hliðar. Hellið nú raspi og sírópsblöndunni yfir deigiö. Skerið deigafgangana í þunnar ræmur og leggiö yfir fyllinguna í fallegu mynstri. Penslið yfir meö vatni eöa mjólk. Bakiö í 10 mínútur í 220 gráöa heitum ofni. Lækkiö þá hitann í 190 og bakið áfram í 20 mínútur. Ef ykkur sýnist kakan ætla aö fara aö brenna efst má breiða álpappir yfir hana. Rjómabúðingur 225gkotasæla 1 peli r jómi 1 eggjahvíta 1/2 tsk. vanilluessens 1 kúfuö tsk. steytturmolasykur Þeytið kotasæluna eöa stáppiö hana í gegn um sigti til þess aö minnka í henni kekkina. Hún á að verða alveg jöfn áferðar. Þeytið rjómann vel. Þeyt- iö eggjahvíturnar þar til þær eru stíf- ar. Blandið rjómanum saman viö kota- sæluna meö málskeiö, varlega. Bætið í vanilluessensinum og sykrinum og síðan eggjahvítunum. Helliö þessu í jógúrt-bauka eöa bauka undan kota- sælu, sem áður hefur veriö stungið gat á botninn á með bandprjóni (nokkur göt ef um stærra ílát er aö ræða). Látiö standa á köldum staö yfir nótt og þá lekur aukasafi úr búöingnum. Hvolfiö honum á fallegan disk og beriö fram. DS Dagsetning á súr- mjólk og jógúrt Okkur hefur borist fyrirspurn frá Hnífsdal um dagstimplun á súrmjólk og jógúrt. Segist bréfritari hafa keypt hvort tveggja þann 4. mars og var súr- mjólkin siimpluö meö síöasata sölu- degi 13. mars og jógúrtin 14. mars. Hvort tveggja er frá Mjólkurstöö Isafjarðar. Pétur Sigurösson mjólkurbússtjóri hjá Mjólkurbúi Isafjaröar sagöi aö leyfi heföi verið veitt fyrir því aö stimpla þessar vörur 10 daga fram í tímann. Er það vegna þess aö oft geng- ur erfiðlega aö koma þeim til neyt- enda. Enda eigi aö vera í lagi meö vör- una eftir þann tíma. Neytendur Dóra Stefánsdóttir °g Þórunn Gestsdóttir DS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.