Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.1983, Qupperneq 15
DV. MIÐVIKUDAGUR16. MARS1983.
15
aö þau mynda flos á yfirborðinu en
bakhliðin er þakin styrkjandi plastefni
(polyuretan, polypropylen, polyester,
latex (gúmmíkvoðu) o.s.frv.
Fyrrnefnda gerðin er lek en hin
síöari ekki. Eins og fyrr getur er gras-
þekjan límd ofan á puntkfjaðrandi lag
til þess að mýkja viðnám fóta og
knatta. Þetta lag er framleitt og
afgreitt í vafningum eða plötum göt-
uðum eða þéttum, 10 mm á þykkt.
Velja má milli þekja úr polyuretan,
PVC-frauöi eöa gúmmíkurli.
Helsta vandamál við lagningu er
felling eða tenging jaðra þekjustrimla,
þar sem á þessi samskeyti reynir
kröftuglega við hitabreytingar, ákoma
fóta iðkenda og umferð tækja t.d. við
snjóýtingu. Límt er því með vatns-
fælnu lími samhæföu efnunum og hin
síðari ár hafa samskeytin einnig veriö
rimpuð saman meö saumi. Hefur
reynsla sýnt að sá háttur er hald-
bestur.
Stofnkostnaður og rekstrar-
kostnaður hækka við að gervigras-
völlur nýtur undirhitunar en reynsla
Svía og Norðmanna sýnir að slíkir
vellir hafa lengri nýtingartíma. Orku-
þörf undirhitunar Jordalsvallar í Osló
á einu ári samsvaraði að brennt hefði
verið 170.000 lítrum olíu.
Reynt að lækka
stofnkostnað:
Frá því 1980 hefur viðleitnin að
leggja ódýrari gervigrasvelli leitt til
tvenns: fyrst að fækka „stráum” en
fylla upp milli þeirra með fínkom-
óttum sandi (0.2—6 mm korn) og þá aö
sleppa malbiki en leggja grasþekjuna
á vel bundiö malarþaklag. Tveir vellir
slíkir hafa þegar veriö gerðir á
Englandi og Hollandi. Ef reynsla sýnir
góðan árangur, opnast leið að ódýrari
breytingu eldri malarvalla með góða
undirbyggingu í gervigrasvelli. Slíkir
vellir geta verið búnir undirhitun. I
Svíþjóð munu nú vera rúmlega 100
malarvellir meö undirhitun. I Svíþjóð
munu nú vera rúmlega 100 malarvellir
með undirhitun. Aögerö sem hefur
veitt knattspymuiðkendum mjúka,
ísingar- og snjólausa velli.
Fylgst með
gervigrasvöllum:
Skrifstofa sænska ríkisins,
Naturvárdsverket, sem annast leið-
beiningar um aðstöðu til íþróttaiöka og
útilífs hefur gefið út ritið: Fotbollsplan
med konstgras (Valhalla idrottsplads í
Göteborg), er geymir álitsgerðir 3ja
nefnda sem fylgdust með íþróttaiðk-
endum, sem notuðu Valhallavöllinn,
reksturskostnað vallarins og endingu
gervigrassins. Þeir bám niðurstöður
þessara þátta saman við þá sömu í
starfsháttum ákveðinna malar- og
náttúmgrasvalla.
STUI í Noregi gaf út 1980 hliðstæða
skýrslu þeirri sænsku um starfrækslu
Jordalvallarins í Osló frá í des. 1977 til
í okt. 1979. (Jordal Kunstgrasbane; 2-
ársrapport).
Niðurstöður nefnda þeirra sem
þessar tvær skýrslur em samdar út f rá
em fróðlegar fyrir þá sem hyggja á
lagningu gervigrasvallar.
Reynsla iðkenda
af gervigrasi:
Fyrir manninn er „íþrótt og íþrótta-
aðstaðan”. Því er mikilvægast að
skoöa heildamiðurstöðu svara þeirra í
Osló og Gautaborg, sem höfðu varðað
iðkendur eöa keppendur á gervigras-
völlum borganna tveggja. Að meðal-
tali svömðu 75% að þeir væm mjög eða
sæmilega ánægðir að leika knatt-
spyrnu á gervigrasi. Yfir 90% voru
ánægöir með vellina tvo og létu sér-
staklega í ljós gleði yfir þeim mögu-
leika aðgeta nýtt þá að vetrarlagi.
Frekar má lesa úr heildarniöur-
stöðum:
— leikurinn verður hraðari á gervi-
grasi enánáttúmlegu grasi eða möl.
— gervigrasið er hálla en gras eða
möl.
— best er að leika á þurm gervi-
grasi.
— gervigras er harðara undir fæti
en gras, mýkra en möl.
— leikur á gervigrasi skilur sig að
ýmsu frá leik á grasi og því er mikil-
vægt að æfa ákveðin leikviðbrögð
sérstaklega, svo sem stöðvun,
snúning og viðbragð.
— þurrt gervigras eykur álag á hné-
og ökklaliði vegna aukinnar snerti-
mótstöðu.
— sama gildir um gervi- sem
náttúrugras að eiginleikar þaklaga-
anna breytast í samræmi við raka-
stig.
Hvað um skó?
Leitast er við að hanna skó, sem
hæfa gervigrasi því að reynslan sýnir
að hinar hefðbundnu skógerðir duga
ekki. Kunnugt er meöal knattspyrnu-
iðkenda að breytilegt veðurlag hefur í
för með sér breyttar kröfur til gerða
skóa.
Hvað um
slysahættu?
— Reynsla 5—7 ára af iðkunum á
gervigrasvöllum í Noregi og Svíþjóð
sýnir, aö lítill eöa enginn munur er á
slysum á gervigrasvelli og á gras- eöa
malarvelli.
Notkun vallanna á þessum ámm
hefur afsannaö þá staðhæfingu að iðk-
endur fengju hættuleg bmnasár við föll
á gervigras. Sem varðandi aðrar
íþróttir má lækka slysatíðnina með
notkun réttra skógerða sem eru
hannaðir samkv. eðli íþróttarinnar og
gerð þaklags leiksvæðisins.
Kostir grasvallar
með undirhitun:
1) Þolir 2000—3000 nýtingarklst. á ári
meðan náttúmgrasvöllur verður eftir
tiðarfari ekki nýttur í meir en 150—200
klst.
2) Lágur starfrækslu- og viðhalds-
kostnaður í samanburöi við náttúru-,
gras-og malarvelli.
Jordalvöllur: 1977/1979 kostaði hver
nýtingarklst. n.kr. 64,- að sumri og
128,- að vetri, eða 100,- allt árið, á
sama tíma kostaöi hver nýtingarklst.
náttúrugrasvalla í Osló n.kr. 330,-
3) Meðaltalsnotkun Jordalsvallar
daglega 8,1 klst. en Valsvalla 7,9 klst.
Á sama tímabili var meöalnotkun
náttúrugrasvalla 0,6 klst. og malar-
valla 2,9 klst. Notagildi gervigras-
vallanna 12—12,5 sinnum meiri en
náttúrugrasvallanna eða eins og segir
í fyrrnefndum skýrslum 1 gervigras-
völlur á við 10—12 náttúrugrasvelli.
4) Notkun allt árið.
Galli gervigrasvallar er einkum sá
að stofnkostnaður hans (með
undirhitun) er á viö kostnað 3 náttúm-
grasvalla en sé þessum kostnaði deilt
niður á nýtingarklst. lenda n.kr. 340 á
gervigrasvöllinn en n.kr. 940 á náttúru-
grasvöllinn.
Staða gervigrassins hjá knatt-
spyrnusamtökunum: Alþjóða Knatt-
spyrnusambandið (FIFA) hefur
viðurkennt notkun gervigrasvalla í al-
þjóðlegri keppni en Evrópusambandið
(UEFA) hefur eigi leyft slíkt. Sænska
knattspymusambandið hefur frá 1.
mars 1981 leyft leiki á öllum stigum á
gervigrasi og sama hefur norska sam-
bandiö samþykkt.
Gervigrasvöllur
ráðgerður í
Reykjavík:
Nú nýlega hefur borgarstjórn
Reykjavíkur að tillögu íþróttaráðs
samþykkt að hefja á þessu ári lagn-
ingu gervigrasvallar, svo að knatt-
spymumenn eygja nú ömgga aðstöðu
óháða tíðarfari og árstíðum.
Eg leyfi mér í lokin að gera þá
athugasemd við væntanlega setningu
gervigrassins á Hallarflötina í Laugar-
dal, hvort eigi sé óráð að skera þá
aðstöðu sem flötin þegar veitir en
leggja heldur gervigrasið á fyrirhug-
aðan iðkunar- og keppnisvöll í Mjódd-
inni við Breiðholt, þar sem fátt er enn
um velli í rúmlega 20 þús. íbúa borgar-
hluta, sem samkvæmt alþjóöa við-
miðun þarfnast 10—12 knattspymu-
valla.
Þorsteinn Einarsson
fyrrv. íþróttafulltrúi.
TÖLVUSÝNING
TÖLVUR OG HUGBÚNAOUR
Opin:
Föstudag 4 - 10
Laugardag 1-10
Sunnudag 1-10
Tónabæ helgina 18-20 mars
Félag tölvunarfrædinema
Dn : \V; ' :(V 7p * &
TILBOÐ
PASKAEGG
Nóa páskaegg Leyft verð Okkar verð
nr. 2 40,- 31,40
nr. 3 79,- 62,-
nr. 4 130,- 102,-
nr. 5 189,- 148,30
nr. 6 336,- 263,60
Mónu páskaegg
nr. 2 60,- 46,60
nr. 4 120,- 93,15
nr. 6 160,- 125,50
nr. 8 210,- 164,70
nr. 10 315,- 247,-
MATVÖRUBUÐIR
KRON
KAUPFÉLAG REYKJAVÍKUR 0G NÁGRENNIS
Er lítið að gerast...?
SÚLUTURNAEIGENDUR, VEITINGAHUS,
VERSLUNAREIGENDUR, FÉLAGSHEIMILI:
NÚ
er tækifæríð
að auka
viðskiptin.
Höfum til sölu
eða leigu
nú þegar hin
geysivinsælu
tölvuleikspil
svo sem:
Pacmann, Phoenix,
Polaris, Scrambul
og fleira.
Sérstök spilamynd.
Greiðslukjör
við allra hæfi.
Viðgerða- og
varahlutaþjónusta.
HAGVAL S/F
umboðs- og heildverslun,
Hverfisgötu 50
— sími 22025.