Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.1983, Síða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.1983, Síða 16
16 DV. MIÐVIKUDAGUR16. MARS1983. Spurningin Ætlar þú á skíði um páskana? (unnið af Huldu Gísladóttur úr Vogaskóla) Þ6r Dan Viðarsson neml: Já, í Bláf jöll eða Hveradali og kannski á Akureyri. Bryngeir Jónsson nemi: Já, ég stunda mikið skíði og ætla í Bláfjöll eða Skála-. fell. Einar Baldvin Þorsteinsson nemi: Nei, ég fer ekki á skíði og fjölskylda mín ekki heldur. Margrét Benediktsdóttir húsmóðir: Nei, ég á fullt í fangi með að hugsa um bömin. Ingibjörg Baldursdóttir nemi: Nei ég stunda ekki skíði. Árni Steinar Jóhannsson garðyrkju- stjóri á Akureyri: Já, ég fer í Kjama-- skógágönguskíði. Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur Auöbrekka — Hjallabrekka: Hættu- leg skil í vegi 1825—0918 skrifar: I Auðbrekku-Hjallabrekku verða skil þar sem mætast malbik og möL Á þessum slóðum hefur orðið alvarlegt slys. Eg braut bílinn minn að framan á þessum stað í október. Staðurinn er auk þess aö vera hættulegur mjög illa upplýstur. Stendur ekki til að ráða bót á þessu? Bæjarverkfræðingur Kópavogs, Sig- urður Björasson, svarar: Lagt var bundið slitlag á lóðina framan við og vestur af verslunarhús- inu að Hjallabrekku 2 í ágúst síðastlið- ið sumar. Jafnframt var sett upp lýsing á svæðinu. Vestan þessa svæðis er um 25 m kafli af Auðbrekku ennþá malar- gata. Þar sem svo hagar til að malar- vegur tekur við af malbikuöum vegi myndast oft slæmar holur í rigningar- tíð, eins og allir þekkja, og þótt menn séu allir af vilja gerðir að fylla ja&ióð- um í holurnar þá getur vissulega skap- ast sly sahætta á slíkum stööum. Til athugunar er að endurbæta bráðabirgðalýsingu á umræddum kafla Auðbrekku en varanleg lausn fæst ekki á þessum vanda fyrr en þessi malargata veröur lögð bundnu slitlagi, gagnstéttir gerðar og endanleg lýsing. Á fjárhagsáætlun Kópavogskaup- staöar, fyrir árið 1983, sem lögð var fram í bæjarráði hinn 8. mars sl, er ekki gert ráð fyrir að framkvæma það verk á yfirstandandi ári. /s/ensku ma/arvegirnir hafa farið i//a með margan bi/inn. 1825—0918 er sérlega óánægður með ákveðin vegaskili Kópavogi. Finnum aðr ar leiðir en fóstur- eyðingu 6908-9941 skrifar: Að undanfömu hefur mikið verið talað og ritað um fóstureyðingar. Ég er sammála Jóni Þorvarðarsyni kenn- ara, sem ritað hefur grein í lesenda- dálk DV, aö það ætti aö vera ítarleg kynferðisfræðsla. Það hefur með and- lega og félagslega heilsu komandi kyn- slóðar að gera. Eg er alveg á móti fóstureyðingum. Ég á sjö börn og er ekki einstæð móðir. Það hefur aldrei hvarflað að mér að láta eyða fóstri þó að ég sé með stórt heimili og eigin- maðurinn vinni bara fyrir heimilinu. Við erum með sex börn heima núna. Eg er ánægð með mitt hlutskipti að vera sjö bama móðir. Geta þingmennirnir okkar ekki breytt fóstureyðingarlöggjöfinni? Hvert líf á heimtingu á að fá að lifa þegar það er komið í móðurkvið. Fóstureyðing leysir engan vanda. Konan er kannski fegin og finnst hún vera laus þegar aðgerðin er búin. Seinna sér hún svo eftir öllu saman, kannski alla ævi. Fóstureyðing er ekkert annaö en morð. Það ætti að reyna að finna einhverjar aðrar leiðir fyrir konurnar og ungu stúlkumar. Hækka mæðralaun, barnabætur og fleira. Eg vona að fleiri konur og karlar séu á sama máli og skrifi bréf um þessi mál. „Ég er alveg á móti fóstureyðing- um," segir 6908—9941 meðal annars.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.