Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.1983, Qupperneq 9
DV. FIMMTUDAGUR17. MARS1983.
9
Útlönd Útlönd Útlönd
Nú ógnar atvinnuleysi skipamiölum í Hamborg og þá f jölgar í biðröðum við
vinnumiðlanirnar og á afgreiðslum atvinnuleysisbóta.
Atvinnu-
leysi í
Hamborg
Allt að 4000 verkamenn við eina
stærstu skipasmíðastöð V-Þýska-
lands eiga nú á hættu að missa at-
vinnuna ef verður af framkvæmd
áætlunar til viðreisnar á verksmiðj-
um Howaldtswerke-Deutsche Werft í
Hamborg. Áætlun þessari hefur
hingað til verið haldið leyndri, sam-
kvæmt upplýsingum ráðherra fjár-
hagsmála Hamborgar, Volker
Lange, en þó hefur borgarstjóra
Hamborgar, Klaus von Dohnanyi,
verið kynnt skýrslan.
'• Lange, sem ekki hefur sjálfur séð
áætlunina, heldur því fram að 2000
verkamenn yrðu atvinnulausir í
Hamborg og aðrir 2000 í hafnarborg-
inni Kiel. Fyrirtækiö hyggst leggja
niður nýsmíðar í Hamborg en vinna
þar aöeins að viðgerðum.
Herferð gegn mafíunni
ttalska skattalögreglan hefur skýrt
frá því að hin nýju lög gegn mafíunni
hafi veriö notuð þegar eignir brota-
járnssala og konu hans voru gerðar
upptækar eftir að upp komst aö þau
liföu betur en skattframtal þeirra gaf
tilefni til að trúa. Brotajárnssalinn,
Luciano Montechiara og kona hans
eru talin hafa staöiö í ólöglegu sam-
bandi viö Camorra sem er hin napól-
íska mafía.
Hin ný ju lög til höfuðs mafíunni voru
keyrð gegnum ítalska þingið í septem-
ber síðastliðnum vegna almennrar
reiði yf ir morðinu á Carlo Alberto dalla
Chiesa herforingja og konu hans í
Palermo en dalla Chiesa hafði verið
sendur þangaö til þess að berjast gegn
mafíunni. Samkvæmt þessum nýju
lögum er lögreglunni heimilt að kanna
fjárreiður þeirra sem liggja undir grun
um aðild aö glæpasamtökum og gera
upptækar eignir sem keyptar hafa
verið fy rir ólöglegar tek jur.
Irakar borga ekki
Irakar hafa tilkynnt þýskum fyrir-
tækjum og stjómvöldum að þeir geti
ekki greitt skuldir sínar við þau á
þessu ári og því næsta. Fyrir þessu eru
tvær ástæður, kostnaðarsöm styrjöld
við Iran og lækkandi olíuverð í heimin-
um. Á blaðamannafundi sagöi tals-
maður þýska verktakasambandsins að
Irakar hefðu ekki greitt neinar skuldir
frá því í nóvember síðastliðnum
vegna iðnverkefna sem þýsk fyrirtæki
vinna að þar í landi.
Nýlega fengu Irakar lán hjá al-
þjóðlegum viðskiptabönkum upp á 500
milljónir dollara og í síðasta mánuði
fóru írösk stjórnvöld fram á fjTÍr-
greiðslu bandarískra og franskra
stjórnvalda til vopnakaupa.
Persaflóastyrjöldin, sem hefur stað-
ið í 30 mánuði, hefur leitt til þess að
útflutningshafnir Iraka viö flóann hafa
lokast og þar sem Sýrlendingar leyfa
Irökum ekki að flytja oliu um sitt land-
svæði geta þeir aðeins flutt olíu um
eina leiðslu sem liggur um Tyrkland.
Hagfræðingar telja að birgðir Iraka
af erlendum gjaldeyri nemi nú aðeins
um sjö milljörðum dollara en þær
námu mest um þrjátíu milljörðum
þegar hagnaöur af olíusölu var
mestur.
Grikkir vilja hern-
aðaraðstoð
Bandarískar herstöövar í Grikk-
landi þjóna ekki varnarhagsmun-
um Grikklands og framhaldið
ræðst af því hversu mikla
hemaðaraöstoð Bandaríkjamenn
vilja láta Grikkjum í té. Þetta
sagði forsætisráðherra Grikkja,
Andreas Pappandreou, í ávarpi til
liösforingja í gríska hemum fyrr í
vikunni. Hann bætti því við að
stjóm hans hefði ákveðið að tíma-
setja brottflutning Bandaríkja-
manna.
Viðræður milli ríkisstjóma land-
anna tveggja hafa staöið í fimm
mánuði en hafa ekki leitt til neinn-
ar niðurstöðu og stendur ágrein-
ingurinn helst um það hversu
mikla hernaðaraðstoð Grikkir vilja
fá.
Síðast voru viðræður í síðustu
viku og hefur ekki verið ákveðið
hvort eða hvenær þeim veröur
framhaldið.
Óþekktur kaupandi bauð í gegn-
um síma í verk Dadds, „Þver-
sögn — Oberon og Titania”, þegar
það var boðið upp hjá Sotheby’s.
Sérfræðingar segja að þetta sé
meira en helmingi meira en áður
hefur verið greitt fyrir málverk frá
þessu tímabili. Málverkið er inn-
blásið af leikriti Shakespears,
Draumi á Jónsmessunótt. Dadd
lauk því árið 1858, eftir að hafa
unnið að því í fjögur ár á Bedlam
geðveikrahælinu í London en þar
var hann lokaður inni 1843 fyrir
föðurmorð.
Skæruliðar
takagísla
Yfirvöld i Tékkóslóvakíu bafa
beðið alþjóðastofnanir um aðstoð
við að fá tékkneska borgara, sem
skæruliðar Unita-hreyfingarinnar í
Angola tóku höndum fyrir nokkru,
látna lausa. Tékkarnir, sem unnu
við pappírsverksmiðju og höfðu
Sksruliðar Unita-samtakanna i Angóla á f jöldasamkomu.
fjölskyldur sínar með sér, voru 64
talsins en einnig voru 20 Portúgalir
handteknir á sama tima. Sam-
kvæmt yfirlýsingu frá Unita munu
gislarnir fást látnir lausir i skipt-
um fyrir sex breska og einn irskan
málaliða sem hafðir eru í haldi í
Luanda.
MILLS RROTHERS
The IVIills Brothers
Stjörnurnar fra því þegar amma var ung. Hverjir muna ekki
eftir þeim á skjánum i nóvember síðastliðnum. Nú gefst ykkur
tækifæri tii aö rifja upp gömul kynni við átrúnaöargoðin frá
3ja áratugnum.
Safnplata með 16 bestu lögunum þeirra. Einnig
fáanleg á kassettu og aðeins á kr. 249.
16 O/taicTiQo^
PAPER DOLL
l'LL BE AROUND
BY THE WATERMELON VINE (LINDY LOU)
CHERRY
GOODBYE BLUES
LAZY RIVER
YOU ALWAYS HURT THE ONE YOU LOVE
PUT ANOTHER CHAIR AT THE TABLE
I GUESS l'LL GET THE PAPERS AND GO HOME
TILLTHEN
GLOWWORM
SAY "SI-SI"
OPUS NO. I
PLEASE DON7 TALK ABOUT ME WHEN l'M GONE
I GOT HER OFF MY HANDS (BUT I CANT GET HER
OFFMYMIND)
SMACK DAB IN THE MIDDLE
FÁLKINN
Suðurlandsbraut 8, s. 84670 Austurveri, s. 33360
Laugavegi 24, s. 18670. Heildsöludreifing, s. 84670.