Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.1983, Side 19
DV. FIMMTUDAGUR17. MARS1983.
Menning
Menning
„Tíminn
stendur kyrr
en klukkan
gengur”
Sverrir Stormsker.
Mynd: G.E.O.
Sverrir Stormsker:
KVEÐIÐ í KÚTNUM
Fjölvaútgáfan 1982.
Bókaútgáfan Fjölvi hefur á undan-
fömum árum gefið út flokk ljóðabóka
undir samnefninu Ljóðasafn Fjölva. I
því safni hafa verið rosknir og ráðsett-
ir ljóðasmiðir og engir angurgapar,
dyggir riddarar hefðar og ljóðstafa
flestir hverjir. Tíu ljóðabækur hafa
áður komið út í flokki þessum, en nú er
sem bregði til annarrar áttar með
hinni elleftu, þar sem tekinn er í
hópinn unglingur sem hefur ekki einu
sinni fengið atkvæðisrétt. En þessi
ungi maður stendur fyrir sínu og fer
vel af stað í upphafi annars tugar
þessarar ljóðaaldar Fjölva.
Sverrir Stormsker nefnir kver sitt
Kveðið í kútnum, en þó gerist hann svo
djarfur að „ljóða á þjóöina” úr þessum
stað. Þaö má mikið vera ef þessi ungi
maður á ekki eftir að kveða sig úr
kútnum og vel það, og raunar finnst
mér hann hafa gert það í þessari fyrstu
atrennu, svo fimur er hann í beitingu
vopna sinna, orðanna, en það er fyrsta
þroskaþrep ungs skálds að kunna með
þauaöfara.
Sverrir Stormsker úthýsir engan
veginn stuðlum og ljóðstöfum og beitir
þeim töluvert en er ekki þræll þeirra og
rýfur þann fjötur — eða vébönd — í
flestum vísum að einhverju leyti.
Sverrir er ísmeygilegur í þeirri list
að koma úr óvæntri átt að hversdags-
legum hlutum og spurningum svo að
mann rekur sem snöggvast í stans.
Orðaleikur hans er líka oft og einatt
bráðsnjall. Stundum minnir hann
örlítiö á Stein Steinarr.
Ég horfi í augu
augu sem horfa
í augu min.
Ég horfi í augun
ogeygiþar
augu min.
Og um tímann (en ekki vatnið):
Ungur drengur.
— Þá aldurhniginn.
Augnabliksævi
sem er ei lengur.
Timinn stendur kyrr
en klukkan gengur.
Bókmenntir
Andrés Kristjánsson
Og um jörðina og böm hennar er
þessi vísa:
Flestir virðast feta sama stig,
fæstir vilja að náunganum hyggja.
Jörðin snýst í kringum sjálfa sig,
sömuleiðis þeir sem hana byggja.
Og þessi þversögn lýsir lífi manna
mætavel:
Allt vort líf er ólánspuö
að elta og krækja i hamingjuna.
Svo tilbið jum við góðan guð
sem gaf oss lifið—þjáninguna.
Þannig mætti tína til allmarga staði
þar sem hnyttilega er að orði komist,
bent á þverstæður, andstæður látnar
vegast á, orðtök leyst upp og skeytt
saman aftur af nokkurri hugkvæmni.
Að vísu er kaldhæðnin allhranaleg
eins og þessum aldri hættir til, og ekki
rennir hann vonaraugum til kirkju eða
klerka:
Klerk einn tek ég tali
og spyr úr nokkrum spjörum.
Undir óráðshjali
sit ég sviptur von.
Hið eina sem hann segir:
„Drottins eru vegir
órannsakanlegir.”
Tómleiki og fánýtiskennd er allrík í
þessum smáljóðum, víöa vonbrigða-
hreimur, jafnvel hneiging til ömur-
leika eins og gjarnan hæfir tímanum
og aldri skáldsins:
Öljós draumur djúpt í hvers manns geði
drífur áfram lífið fært í hlekki.
Vonin eftir varanlegri gleði
er varanleg, en það er gleðin ekki.
Þess verður auðvitað víða vart, að
fágun, hnitmiðun og umburðarlyndi
lífsreynslunnar vantar í þennan ljóða-
leik. En þetta kemur allt saman með
aldri og viðleitni. Þessi ungi höfundur
hefur vísinn að öðru meira til að bera.
Og þá er ekki annað eftir en spyrja:
Hvað verður okkur nú úr þessu skáld-
efni? Ég spái því að hann kveði sig úr
kútnum áður en varir.
Þess er vert að geta, að Guðrún E.
Olafsdóttir hefur gert nokkrar bráð-
fallegar dráttmyndir í kverið. Þessar
myndir auka því staöfestu og sumum
stefjum inntak og blæ. Þær eru bókar-
prýði.
Andrés Kristjánsson.
Sprunguviðgerðir - Múrviðgerðir
Bárujárnsþéttingar - Þakpappaviðgerðir
Stöðvið alkalískemmdir
Múr- og steypuviðgerðir
Steypuviðgerðir
Sprunguviðgerðir
Bárujárnsþéttingar
SPRUIMGUVIÐGERÐIR:
med efni sem stenst vel alkalí, sýrur og
seltuskemmdir og hefur góða vidloöun.
10 ára frábœr reynsla.
Höfum skriflega yfirlýsingu
margra ánœgdra verkkaupenda.
Látið fagmennina leysa leka-
vandamálið í eitt skipti fyrir öll
Upplýsingar veittar í síma:
91-20623 eftirkl. 18.
-------------------VIDEO ....................
OPIÐ ÖLL KVÖLD TIL KL. 23
KVIKMYNDAMARKADURINN , VIDEOKLUBBURINN
Skólavörðustíg 18 Rvik. Stórholti 1.
S. 15480. s- 35450■
Kirkjuvegi 19 Vestm.
í Vestmeyjum er opiö kl. 14—20 en um helgar kl. 14—18.
19
.VIDEO,
háfell
HÚSBYGGJENDUR - FRAMKVÆMDAMENN
Leigjum út belta- og hjólagröfur,
jarðýtur, vibróvaltara o.fl. Tökum
að okkur alla jarövinnu, gröfum
grunna, útvegum fyllingarefni.
Tilboðs- og tímavinna.
HÁFELL SF.
Bíldshöfða 14 - Simi 82616
AMERISK TIMARIT
Yfir 200 tegundir af ameriskum tímaritum um ótrúlegasta efni.
Viö tökum öll okkar amerísku timarit meö f lugi svo þau koma 1
Bókabúðir Braga á sama tíma og í verslanir 1 New York.
Vorum að taka upp stóra sendingu af april- og jafnvel maiblöð-
um.
Bílar— Golf—
Mótorhjól— Bátar—lúdó
Húsbúnaður—Tölvur Léttmeti — Sögur
Kvikmyndir—Grín Karate —Video
Myndasögur— Likamsrækt-
Wrestling— Stjörnuspá-
Tíska — Tækni —Flug
Ljósmyndir— o.fl. o.fl.
Það borgar sig að versla hjá Braga, urvalið af erlendum
blöðum og timaritum er hreint ótrulegt.
ENSK - AMERISK - DÖNSK - SÆNSK -
NORSK - FRÖNSK — ITÖLSK
Bókabúð
Braga
Laugavegur 118 v. Hlemm S:29311
Lækjargata 2 S:15597
Arnarbakki 2, Breiöholti S:71360
Blaöas. biöskýli SVR Hiemmi S:15600
Aðalfundur
H. f. Eimskipafélags íslands verður haldinn í
Súlnasal HótelSögu mánudaginn 21. mars 1983,
kl. 14:00.
DAGSKRÁ:
I. Aðalfundarstörf samkvæmt 14. gr. samþykkta
félagsins.
2. Tillaga um útgáfu jöfnunarhlutabréfa,
aukningu hlutafjár og innköllun eldri
hlutabréfa.
3. Önnur mál, löglega upp borin.
Tillögur frá hluthöfum, sem bera á fram á
aðalfundi, skulu vera komnar skriflega í hendur
stjórnarinnar eigi síðar en sjö dögum fyrir
aðalfund.
Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir
hluthöfum og umboðsmönnum hluthafa á
skrifstofu félagsins í Reykjavík frá 14. mars.
Reykjavík, 15. febrúar 1983.
STJÓRNIN.
EIMSKIP
*
■i
1 Gl U li CD GAI ÞVI 01 n r i ji R [ ÞRIFILLSF. 1 Sími 82205