Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1983, Blaðsíða 1
Gumar fer ekki í framboð:
BÍÐUM ÁTEKTA OG
FYLGJUMST MEÐ
—segja stuðningsmenn hans
„Þetta eru okkur aö sjálfsögöu tölu-
verö vonbrigði,” segir Benedikt Boga-
son, einn af forvígismönnum þess hóps
sjálfstæðismanna sem að undanfömu
hefur gengist fyrir undirskriftasöfnun
þar sem skorað er á dr. Gunnar Thor-
oddsen forsætisráðherra að gefa kost á
sér til framboðs í komandi kosningum.
Dr. Gunnar tilkynnti þessum
stuðningsmönnum sínum á fundi í gær
að hann yrði ekki í kjöri og eftir því
sem DV kemst næst liggja ekki aðrar
ástæður að baki þeirri ákvörðun en
þær sem stuðningsmenn hafa talið
eðlilegar en vonuðu í lengstu lög að
kæmu ekki í veg fyrir framboð.
Eftir fundinn með dr. Gunnari héldu
stuöningsmenn hans annan fund og að
honum loknum var gefin út yfirlýsing
þar sem segir meðal annars: ,,Á
undanförnum árum hefur flokksræði
og óbilgimi færst í vöxt innan Sjálf-
stæðisflokksins. Um leið og þessi þróun
hefir gengið gegn helstu markmiðum
flokksins um lýðræði og einstaklings-
frelsi, hefur hún valdið vaxandi
óánægju og kvíöa hjá fjölmörgum
sjálfstæðismönnum. Þrátt fyrir mál-
efnalegt andóf gegn þessari þróun
hefur það komið æ betur í ljós að í stað
umburðarlyndis, stefnir nú í átt til
aukins flokksræðis, sem mun þrengja
flokkinn utan um harðan kjama fárra,
gegn fjöldanum. Með þessu er hinu
breiöa fylgi flokksins stefnt í voða.”
Síðar segir að þetta hafi meðal
annars orðið til þess að ákveðið var að
skora á dr. Gunnar að gefa kost á sér
til framboðs til að spoma gegn þessari
óheillaþróun i flokknum. Hafi þessar
áskoranir mætt harðri andstöðu hinna
þröngu flokksræðisafla eins og við var
búist.
I niðurlagi yfirlýsingarinnar segir:
„Nú hefur dr. Gunnar Thoroddsen for-
sætisráðherra ákveðið að gefa ekki
kost á sér í komandi kosningum og
höfum við því ákveðiö að bíða átekta
en fylgjast vel með framvindu mála.”
Undir þetta skrifa Benedikt Bogason,
Sveinn Bjömsson og Gunnar Baeh-
mann. -SþS.
Langvinnum vangaveltum um hugsanlegt framboð Gunnars Thoroddsen for-
sætisráðherra er nú lokið. Menn þurfa ekki lengur að leiða getum að þvi hvort
ræða hans við þingrofið hafi verið framboðsræða eða kveðjuræða. Forsætis-
ráðherrann sendi fjölmiðlum yfirlýsingu i gærkveldi þar sem segir að hann
muni ekki fara i framboð i komandi alþingiskosningum. Myndin hér að ofan
var tekin kvöldið sem þing var rofið. Þar má sjá Gunnar og Geir kveðjast í sið-
asta sinn á þingi. Rétt er að minna á að Geir Hallgrimsson verður á beinni línu
hjá DV í kvöld klukkan átta.
ÓEF/DV-mynd GVA
KristjánArason
skoraði 16 mörk
úrl6skotum
— sjá 8 síður
um íþróttir
Sólveigvarö
númertvö
-sjábls.2
Páskaglaðning-
urinnkominn
í verslanir
— sjá Neytendur
ábls.6og7
BEIN LÍNA TIL GEIRS
HALLGRÍMSSONAR í KVÖLD
Geir Hallgrímsson formaður Sjálf-
stæðisflokksins verður á BEINNI
LlNU á ritstjóm DV í kvöld frá
klukkan 20 til 21.30. Á þessum tíma
Geir Hallgrímsson, formaður Sjálf-
stæðisflokksins, svarar spurning-
um lesenda DV í kvöld.
— síminner 86611
gefst lesendum DV kostur á að
hringja á ritstjórnina í síma 86611 og
leggja spurningar um stjórnmála-
viðhorfið og stefnu Sjálfstæðis-
flokksins í komandi kosningum fyrir
Geir Hallgrímsson. Þeir semhringja
em beðnir að hafa spurningar sínar
stuttar og hnitmiöaðar svo sem
flestir komist að. I þriðjudagsblaöi
DV verða svo spumingar og svör birt
eftir þvisem rúm leyfir.
Formenn hinna stjómmálaflokk-
anna og fulltrúi kvennaframboðs
verða síðan á beinni línu næstu daga
og vikur en næstur í röðinni er
Svavar Gestsson, formaður Alþýðu-
bandalagsins. Hann mun svara
spurningum lesenda DV annað
kvöld, þriðjudagskvöld.
-óm.
Tröppugangur
hjá
Danna
it stiga-
manni
— sjá
Sviðs-
Ijósiðá
bls.44
aa. "3 og45