Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1983, Síða 3
DV. FÖSTUDAGUR 25. MARS1983.
3
DV svarar Morgunblaðinu:
REIÐUBÚNIR í SAMEIGIN-
LEGT UPPLAGSEFTIRLIT
DV hefur sent Morgunblaðinu bréf
þar sem tekið er undir það með
Morgunblaðinu að þessi tvö blöð taki
upp sameiginlegt upplagseftirlit.
Hugmynd þessi var sett fram í
leiðara Morgunblaðsins 20. mars
siðastliðinn.
I bréfi DV er á það bent að DV hafi
fyrst íslenskra blaða tekið upp þá
nýbreytni að birta daglega
upplýsingar um upplag blaðsins. Þá
er orðuð sú hugmynd að auk sam-
eiginlegs upplagseftirlits komi þau
dagblöð, sem hér eru gefin út, sér
saman um sameiginlega könnun á
lestri dagblaðanna. Shk könnun yrði
þá gerð með reglulegu millibili.
DV leggur síðan til í bréfi sínu að
leitað verði samstöðu alb-a dag-
blaðanna um þessi mál því þótt DV
og Morgunblaðið beri höfuð og
herðar yfir önnur blöð í útbreiðslu
muni upplagseftirlit og lestrar-
könnun ekki koma að fullum notum
nema öll blöðin séu þátttakendur.
í lok bréfs DV til Morgunblaðsins
er því lýst að næst liggi fyrir að
fulltrúar blaðanna komi saman til
nánari athugana og undirbúnings
sem forráðamenn DV eru hvenær
sem er reiðubúnir að taka þátt í.
-óm.
Alþýðubandalagið
leggur fram kosningastefnuna:
SKIPULAGSUPP-
GJÖR ALLS
HAGKERFISINS
— eina leiðin til árangurs gegn
verðbólgunni
Alþýðubandalagið kynnti kosninga-
stefnuskrá sína á fundi með frétta-
mönnumígær.
I stefnuskránni segir að grund-
vallarforsendur efnahagsstefnu
Alþýðubandalagsins séu aö tryggja
fulla atvinnu, vernda kaupmáttinn og
koma á jafnari lifskjörum. Hafnað er
einhliöa aðgerðum gegn verðbólgunni,
sem séu ætið á kostnað launafólks, en
boðuð samræmd áætlun um aðgerðir
og skipulagsuppgjör á öllum sviðum
hagkerfisins. I því á að felast bætt
verðlagsstjóm, jafnvægi í gjaldeyris-
málum, ódýrari innflutningsverslun og
niðurskurður miIUUðakostnaðar. Þá er
boðað að þak verði sett á erlendar
skuldir.
1 launamálum leggur Alþýðubanda-
lagið megináherslu á styttingu
vinnutímans, þannig að 40 stunda
vinnuvika nægi til lífsframfæris.
Afnám tekjuskatts af lægstu tekjum og
hert barátta gegn skattsvikum eru lið-
ir í því að ná auknum félagslegum
jöfnuði ásamt með því að komið verði á
afkomutryggingu einstasðra foreldra.
Stefnt verði að auknum jöfnuði í búsetu
með lækkun hitunar- og orkukostnaðar
almennings, meðal annars með því að
hækka raforkugreiðslur frá álverinu.
Undir liðnum: jafnrétti í menntunar-
og menningarmálum, er tekið fram að
vera skuli öflugt ríkisúvarp í þágu
allra landsmanna.
Boðað er að komiö verði á sér-
stökum sjóði er nefnist „Ibúðir fyrir
ungt fólk” er starfi næstu fimm árin.
Honum er ætlað aö fjármagna hóflegt
húsnæði fyrir ungt fólk og þá sem eru
að tryggja sér húsnæði í fyrsta sinn.
Fjármagn sjóösins á aö koma með
auknu framlagi lífeyrissjóöanna og
lögbundinni þátttöku bankakerfisins í
húsnæðislánakerfinu, ásamt með því
að gripið verði til sérstakrar tekju-
öflunar í þessu skynL
Framkvæmdastofnun verður lögð
niður og Byggðasjóði kpmið á nýjan
grundvöll, segir ennfremur í stefnu-
skránni. Er það liður í endurskipu-
lagningu stjórnkerfisins en ætlunin er
að fækka ríkisstofnunum og sameina
þær til spamaöar, samræma fjár-
festingalánasjóði og einfalda banka-
kerfið.
I utanríkismálum er lagt til að
stöðvuö verði öll endurnýjun á víg-
búnaði og tæknibúnaöi Bandaríkja-
manna og Nató á Islandi. Bannað verði
með lögum að geyma og flytja kjam-
orkuvopn um Island, lofthelgina og
fiskveiðilögsöguna, segir í stefnu-
skránni og einnig að Alþingi skuli
álykta um aðild Islands að
kjamorkuvopnalausu svæði Norður-
landa. -ÓEF.
Lava loppet:
Um 220 keppendur
hafa skráð sig
— skíðagangan hefst
klukkan 11 ífyrramálið
Um 220 manns hafa þegar skráð sig
í Lava loppet, alþjóölegu skíða-
gönguna í Bláfjöllum sem hefst á
morgun. Enn er tækifæri fyrir þá sem
áhuga hafa á þátttöku því skráningu
lýkur ekki fyrr en í kvöld í Ferðaskrif-
stofunni Urvali við Pósthússtræti í
Reykjavík. Þar em einnig afhent ýmis
nauðsynleg gögn sem hver þátttakandi
verðurað hafa, rásnúmer og fleira.
Að sögn Knúts Oskarssonar hjá Ur-
vali höföu um 80 skráð sig í gær í 42,3
kílómetra, 50 í 21 kílómetra og um 90 í
10 kílómetra. Að minnsta kosti 7 eða 8
sveitir taka þátt í stystu gÖngURMÍ. í
feverri Svéií em 3 einstaklingar og
keppa þeir einnig sem slíkir en tími
þeirra síðan lagður saman.
Lava Icppet hefst klukkan 10.50 í
fyrramálið með ávaTpí Hreggviös
Jónssonar, formanns Skíðasambands
Islands. Klukkan 11.00 leggja
keppendur síðan af stað. Þar verða
bæði þaulvanir keppnismenn í göngu,
íslenskir og erlendir, og þeir sem
ganga sér til skemmtunar og heilsu-
bótar. Geta má þess að flestir af
fremstu skíðagöngumönnum
Islendinga verða með í Lava loppet.
Margs konar þjónusta verður við
keppendur og áhorfendur. Meðal
annars sér Ferðaskrifstofan Urval um
ferðir frá Umferðarmiðstöðinni
klukkan 8.00, 10.00 og 13.30 og frá Blá-
f jöllum klukkan 16.00,17.00 og 18.00.
Annað kvöld veröur svo lokahóf í
Broadway. Þar verður matur klukkan
20.00 og úrslit síðan birt og verðlaun
afhent. Á eftir verður dansleikur.
-JBH.
Kosningar nólgast. Rúmar fjórar
vikur eru nú til kjördags. Kosninga-
baráttan magnast með degi hverj-
um. Stjórnendur kosninganna eru
einnig að gera klért. Í fyrradag inn-
siglaði Jónas Gústavsson borgar-
fógeti kjörkassa fyrir utankjör-
fundaratkvæðagreiðsluna ■
Reykjavik sem hefst á laugardag. Á
myndinni eru starfsmenn borgar-
fógeta og yfirkjörstjórnarmennirnir
Hrafn Bragason og Jón G. Tómas-
son fylgjast með ásamt Inga R.
Helgasyni, fuiltrúa G-listans.
Skömmu áður hafði yfirkjörstjórn
fundað um listabókstafi og út-
hlutað Bandalagi jafnaðarmanna
bókstafnum C en Kvennalista bók-
stafnum V.
-KMU/DV-mynd: Bjarnlerfur.
Frekari afsláttur
aldraðra með SVR
— ókeypis fyrir yngri en fjögurra ára
Ákveðið hefur verið í borgarstjórn
Reykjavíkur að þeir ellilifeyrisþegar
á aldrinum 67—70 ára, sem njóta
tekjutryggingar frá Tryggingastofn-
un ríkisins, skuli eiga kost á sama af-
slætti á fargjöldum SVR og nú býðst
ellilífeyrisþegum, 70 ára og eldri.
Farmiðaspjöld aldraðra og öryrkja
eru seld gegn framvísun nafn-
skírteinis á Hlemmi og Lækjartorgi
frá og með 28. þessa mánaöar.
Stjóm SVR hefur einnig samþykkt
að böm innan fjögurra ára aldurs, í
fylgd með fullorðnum, fái fritt með
strætisvögnunum.
-PÁ.
VIÐ TEUUM
að notaðir
VOLVO
bílar
séu betri
en nýir bflar
af ódýrari
gerðum
VOLVO 245 GL '82,
ekinn 19.000, ljósblár, sjálfsk. Verö kr. 340.000,-
VOLVO 244 GL '82,
ekinn 14.000, blár, sjálfsk. Verð kr. 310.000,-
VOLVÖ 244 DL 'S2,
ekinn 19.000, beige, beinsk. Verö kr. 285.000,-
VOLVO 244 GL '81,
ekinn 35.000, ljósblár, beinsk. Verð kr. 270.000,-
VOLVO 244 GL '81,
ekinn 35.000, ljósblár, sjálfsk. Verð kr. 285.000,-
VOLVO 345 GLS '82,
ekinn 11.000, brúnn, beinsk. Verð kr. 230.000,-
VOLVO 345 GL '80,
ekinn 30.000, koparrauður, beinsk. Verð kr.
160.000,-
VOLVO 244 DL '78,
ekinn 40.000, ljósblár, beinsk. Verð kr. 155.000,-
OPIÐ LAUGARDAGA FRÁ KL. 10-16.
35200 VELTIR
SUÐURLANDSBRAUT16