Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1983, Page 5
DV. FÖSTUDAGUR 25. MARS1983
5
Ragnar J. Ragnarsson, forstjóri Jöfurs, afhendir starfsmanni söfnunarinnar,
Pétri Ómari, gjafabréf að upphæð 108.000 kr.
JÖFUR GAF SÁÁ
ANDVIRÐISKODA
Fyrirtækið Jöfur hf. hefur gefið and- vegna vill okkar fyrirtæki styrkja
virðieinsSkoda-bílstilsöfnunarSÁA. það,” sagði Ragnar J. Ragnarsson,
„Staðreyndin er sú að þetta málefni forstjóri Jöfurs hf., þegar hann
er öllum náskylt ef menn vilja líta í samþykkti sex 18.000 kr. gjafabréf
kringum sig og viðurkenna það fyrir- SÁAaðupphæðl08.000kr.
sjálfum sér. Málefnið er gott og þess SBG/ÁÓ Starfskynning.
Tónleikará vegum SATT:
Fjórar hljómsveitir
spila í Klúbbnum
Innrás lifandi tónlistar inn á
veitingahús borgarinnar heldur áfram
og verður fyrrihluti föstudags- og laug-
ardagskvölds lagður undir tónleika-
hald á vegum SATT. I kvöld og á
morgun verða tónleikar frá 9—12 í
Klúbbnum. Fyrra kvöldið leika
Vonbrigði og Grýlumar en hið síðara
Q4U og Þeyr.
Einnig verður sýndur músíkþáttur
SATT og Ismyndar með hljómsveitinni
Ego. Ovæntur glaðningur verður í
videoinu.
Það er von forráðamanna SATT að
þessi nýbreytni falli öllu áhugafólki
um lifandi tónlist vel í geð, svo og þeim
sem kvarta undan stöðnuðu skemmt-
analifi.
Beitingamenn í Sandgerði:
Fresta verkfalli
Fyrirhuguðu verkfalli beitinga-
manna í Sandgerði, sem taka átti gildi.
á miðnætti síðastliðnu, hefur verið
frestað um viku. Utvegsmannafélag
Suöurnesja, hefur ekki samþykkt
kröfur beitingamanna um betri kjör og
forráðamenn félagsins hafa talið verk-
fallsboöunina ólögmæta. Fundur var
haldinn í gær með málsaðilum og ríkis-
sáttasemjara en þar gerðist ekki
annaö en að málinu var f restað.
Hér er ekki um að ræða marga
menn því línubátar á veiðum frá Sand-
gerði eru ekki margir um þessar
mundir. Ekki náðist í talsmenn
beitingamanna í gær. -PÁ.
Norðurland vestra:
Framboðslisti Banda
lags jaf naðarmanna
Framboðslisti Bandalags jafnaðar-
manna í Norðurlandskjördæmi vestra
í komandi alþingiskosningum er
þannig skipaður: 1. Þorvaldur Skafta-
son sjómaður, Skagaströnd, 2. Ragn-
heiður Olafsdóttir nemi, Gauksstöð-
um, Skagafirði, 3. Sigurður Jónsson
byggingafræðingur, Akureyri, 4.
Valtýr Jónasson fiskmatsmaður,
Siglufirði, 5. Stefán Hafsteinsson, for-
maður starfsmannafélags samvinnu-
félagsins, Blönduósi, 6. Vilhelm V.
Guðbjartsson sjómaöur, Hvamms-
tanga, 7. Friðbjörn öm Steingrímsson
íþróttakennari, Varmahlíð, 8. Erna
Sigurbjörnsdóttir húsmóðir, Skaga-
strönd, 9. Arnar Bjömsson nemi,
Húsavík, 10. Ásdís Matthíasdóttir
skrifstofumaður, Reykjavík.
-JBH.
Fimm sóttu um Landsvirkjun
Fimm umsækendur em um starf for-
stjóra Landsvirkjunar en umsókn-
arfrestur rann út síöastliðinn
miðvikudag.
Umsækjendur em Gísli Júlíusson,
deildarverkfræðingur hjá Lands-
virkjun, Halldór Jónatansson,
aöstoðarframkvæmdastjóri Lands-
virkjunar, Jóhann Már Maríusson,
yfirverkfræðingur Landsvirkjunar, og
Nafn drengsins
Drengurinn, sem lést í sjúkrahúsinu
á Akureyri um hádegisbiliö í fyrradag,
af völdum meiðsla sem hann hlaut í
umferðarslysi, hét Heiðar Þeyr
Fjölnisson. Hánn var fæddur 8. ágúst
1973 og átti heima aö Sunnuhlíö 2,
Akureyri. -JGH.
Kári Einarsson, forstöðumaöur
tæknideildar Ragmagnsveitna
rikisins. Fimmti umsækjandinn óskaði
eftir nafnleynd.
-óm.
Leiðrétting
Ranghermt var í frétt um tafir í
innanlandsflugi í DV 23. mars. Þar
stóð að fengnar hefðu verið vélar frá
Arnarflugi, Sverri Þóroddssyni og
Helga Jónssyni og að óhapp hefði orðið
á Akureyri viö afísingu. Hiö rétta er aö
fengnar vom vélar frá Amarflugi,
Emi á Isafirði og Flugfélagi Norður-
lands á Akureyri. Ohappið varð í
Reykjavík.
Beðist er velvirðingar á mishermi
þessu.
Nýtt álver gæti
borgað þrefalt
fyrir raforkuna
Nýtt 130 þúsund tonna álver, sem
byggt yröi í tveim jafnstórum
áföngum og með rafskautaverk-
smiðju, gæti skilað viðunandi
arðsemi við núverandi markaðs-
ástand og borgað samt 17,5 mills
fyrir kilóvattstund í raforku. Isal
borgar 6,45 mills.
Þetta er ein af meginniðurstöðum
norska ríkisfyrirtækisins Árdal &
Sunndal Verk en það hefur nú skilað
iðnaðarráðuneytinu umsaminni
skýrslu um hagkvæmni nýs íslensks
álvers.
Stofnkostnaður álversins og raf-
skautaverksmiðju er talinn vera um
410 milljónir Bandaríkjadollara, án
vaxta á byggingartíma. Það eru um
8,6 milljaröar króna á núvirði krón-
unnar. Mjög lítill munur reyndist
vera á stofnkostnaöi hvort sem
álverið yröi reist á Vogastapa á
Reykjanesi eða utan Akureyrar við
Eyjafjörð. -HERB.
Langar þig ekki
í Golf til Akureyrar
um páskana?
30% fljslottur hjá
Bílaleigu Flugleiða
Páskarnir eru fyrsta alvöru ferðahelgi
ársins. Bílaleiga Flugleiða býður bílana sína
á tilboðsverði í tilefni af því:
VW-Golf: Fyrir 389 kr. á sólarhring og 3.89 kr.
á kílómetraT
VW-Jetta, Mitzubishi 4WD og
VW-Microbus fást líka leigðir með 30%
afslætti.
Lágmarks leigutími er 4 dagar.
Upplýsingar og pantanasími Bílaleigunnar
eru 21188 og 21190.
Athugið að söluskattur er innifalinn í verðinu.
FLUGLEIÐIR
BÍLALEIGA