Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1983, Side 32
27022 AUGLÝSINGAR SÍÐUMÚLA 33
SMÁAUGLÝSINGAR —AFGREIÐSLA SKRIFSTOFUR ÞVERHOLTI 11
86611 RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12—14
FÖSTUDAGUR 25. MARS 1983.
Leikurínn á Wembley:
FUNDIR
FÆRÐIR
TIL
Fjölmargir fundir og samkomur
sem vera áttu eftir hádegi á laugar-
daginn hafa verið færðar til vegna
beinu útsendingarinnar frá úrslita-
leiknum í ensku bikarkeppninni í
knattspymu, sem verður á laugar-
daginn.
Olíkiegustu fundir eins og
kvenféiagsfundir, fundir hjá sóknar-
nefndum og fleiri hafa verið fluttir á
annan tima út af leiknum og hætt
hefur verið við heiiu ráðstefnurnar,
sem ætlunin var að hafa á þessum
tíma.
Orslitaleikimir í 1 slandsmóti karla
í handknattleik hafa verið færðir til
út af leiknum. Byrja þeir fyrir
hádegi í Laugardalshöllinni og verða
því búnir áður en útsendingin hefst.
Lyftingamenn verða með sitt
íslandsmót kl. 16 en skíðagangan —
Lavalqipet — verður í gangi á
meðan á útsendingunni stendur.
Utsendingin byrjar kl. 14.15 og
verður fyrst sýnt frá leikjum Liver-
pool og Manchester United í 8-liða
úrslitum og undanúrslitum bikar-
keppninnar. Beint samband við
Wembley leikvanginn kemur kL
14.50 og verður allur leikurinn
sýndur svo og framlengingin ef með
þarf.
Ef ekki þarf að framlengja leikinn
sýnir sjónvarpið frá leik Southampt-
on og Manchester City, svo það
verður knattspyrna á boðstólum i
sjónvarpinu frá kl. 14.15 til kl. 17.25 á
laugardaginn. -klp-
Lögbannið á strætó:
„Til umræðu
ogumfjöllunar”
Vegna tilmæla Verðlagsráðs hefur
Verðlagsstofnun ákveðið að biða enn
með aögerðir vegna fargjalda-
hækkunar SVR þann 12. febrúar
síðastliðinn. Lögbannsmálið frá í
janúar er hins vegar enn til með-
ferðar í Bæjarþingi Reykjavíkur og
verður tekið næst fyrir í fyrstu viku
apríl.
Sveinn Björnsson, formaður
Verölagsráðs, sagði í viðtali við DV í
morgun að málið hefði verið til um-
ræðu og umfjöllunar í Verðlagsráði
og væri ekki lokiö, verið væri að
kanna allar hliðar þess. Af þeim sök-
um hefði liðið jafnlangur tími og
raun ber vitni. Sveinn sagðist gera
ráð fyrir að meðan umræöunni væri
ekki lokið myndi verðlagsstjóri fall-
astáaðbíðaennumsinn. -PA
Lögbannið er nú til þríðju
umræðu hjá verðlags-
stjóra.
— Landskjörstjórn samþykkir BB:
ODRENGILEGT
— segir Páll Péturs-
son um afskipti
framkvæmda-
stjórnarflokks
síns
„Fyrir mér er það ekkert mál
hvernig þessi göngumannalisti er
merktur. Það sem máli skiptir hvort
listinn fær atkvæði er ekki hvernig
bókstöfum hann flaggar heldur
hvurslags menn það eru sem skipa
hann og fyrir hvaða hugsjónum þeir
berjast,” sagði Páll Pétursson
alþingismaöur, eftir að landskjör-
stjórn hafði ákveðið að sérframboð
framsóknarmanna í Norðurlandi
vestra fengi að merkja lista sinn BB.
„Hitt er svo annað mál að mér
finnst það mjög alvarlegt og ekki í
þeim anda sem framsóknarmenn
hafa viljað starfa að framkvæmda-
stjóm flokksins sé að hlutast til um
uppstillingu eða framboð í hinum
einstöku kjördæmum. Eg tel að
framkvæmdastjórnin hafi tekið sér
vald sem óeölilegt sé að hún hafi og
betur væri komið hjá heimamönn-
um. Þetta var óþörf, ótímabær og
ódrengileg íhlutun,” sagði Páll.
Honum leist annars ágætlega á
kosningabaráttuna með hinn fram-
sóknarlistann við hliöina. „Þeir
menn sem standa að sprengifram-
boöinu virðast þjappa saman fram-
sóknarfólkinu um lista flokksins.
Göngumenn smala til okkar fólk-
inu,”sagðiPáll. -KMU.
Varð undir 40 tonna jaröýtu
Rúmlega tvítugur maður slasaðist illa á mjöðm er hann varð undir 40 tonna jarðýtu skammt frá Egiis-
stöðum laust fyrir hádegið í gær.
Verið var að skipta um rúllu i belti ýtunnar, á Völlum, skammt framan við Egilsstaði. Ýtan var hifð upp
með „ripper", piógi sem er aftan á ýtunni.
Skyndilega gekk plógurinn niður ijörðina, þar sem klakinn gaf sig. Við það varð maðurinn undir ýtunni
og varð að lyfta henni upp aftur til að ná honurn undan.
Hann var síðan fluttur með flugi til Reykjavíkur þar sem hann gekkst undir aðgerð. Á myndinni sést
hvar verið er að koma með manninn til Reykjavikur. — JGH/D V-mynd: Loftur.
Kaupfélagsstríðið á ísafirði:
Ljónið skipar Kaup-
félaginu úr húsinu
Kaupfélagið á Isafirði hefur fengið
tilkynningu frá fyrrverandi eigend-
um Vörumarkaðarins Ljónsins að
rýma húsið fyrir 6. apríl næstkom-
andL Kaupfélagið keypti Vöru-
markaðinn í október siðastliðnum en
þegar átti að undirrita samninga
endanlega í febrúar neituðu kaupfé-
lagsmenn að undirrita þar semhúsið
væri ekki löglegt gagnvart bruna-
málayfirvöldum. Gerðu þeir athug-
un á nauðsynlegum breytingum,
reyndust þær verulegar og kostnaöur
2,2 milljónir króna. Ljónsmenn neit-
uðu alfarið að taka þann kostnað á
sig, eins og Kaupfélagið vildi, vegna
þess að við samningana í haust hefði
kaupfélagsmönnum verið fullkunn-
ugt um að húsið væri ekki löglegt.
Heiðar Sigurðsson, framkvæmda-
stjóri Ljónsins, sagði í morgun að
kaupfélagsmenn hefðu ekki staðiö
við samninga að einu eða neinu leyti.
Því hefði þeim veriö tilkynnt í fyrra-
dag að þeir yrðu að fara úr húsinu
strax eftir páska.
„Þetta er beinlínis riftun á
kaupunum og verður ekki skilið
öðruvísi,” sagði Sverrir Bergman
kaupfélagsstjóri í samtali við DV í
morgun. Sagðist hann þó efast um aö
þeim væri stætt á að bera kaupfé-
lagið út. Það yrði bara að koma í ljós
hvort slíkt yrði gert.
JBH
Þráttfyrir krepputal:
Nærritvö
þúsund manns
íferðalögum
Þrátt fyrir mikið tal um kreppu í
þjóðfélaginu virðist landinn ætla að
leggjast í ferðalög umpáskahelgina.
AUs verða einhvers staðar á milli
fimmtán hundruö og tvö þúsund
manns á ferðum innan lands og utan.
Þar af fer liklega tæpt þúsund til
annarra landa. Um 4 þúsund verða
síðan á ferð með vélum Flugleiða
innanlands og tæplega 400 fara í
ferðir með ferðafélögunum tveim.
Síðan á eftir að telja alla þá sem
ferðast með Amarflugi, rútum og
bilum og þá sem fara til útlanda án
þess að íslenskir aðilar skipuleggi
ferðina.
Frammámaður i ferðaiðnaðnum
sagði reyndar að utanlandsferðir
fengjust á þannig kjörum aö f jöldinn
segði ekki allt. Þær væru greiddar
með þeim kjörum að lítið væri greitt
út og afgangurinn á löngum tíma.
„Menn verða með víxlahalann á eftir
sér fram að jólum,” sagði hann.
Ferðirnar nú eru einnig ódýrari en
þær koma til með að verða í sumar
ogsjámennsérþáeftilvillsparnaðí
aðfara strax.
DS
lagt á til
eins árs
Veggjaldið eða krónugjaldið svo-
kallaða verður lagt á með bráöa-
birgðalögum, jafnvel í dag. „Það er
tilbúið í fjármálaráðuneytinu,”
sagði Steingrimur Hermannsson
samgönguráðherra í morgun.
Ráðherrann sagði aö gjaldið yrði
lagt á nú aðeins fyrir þetta ár og með
meiri undantekningum en gert hafði
veriö ráð fyrir á Alþingi. Málið var
komið þar til lokaafgreiðslu fyrir
þingrof.
Undantekningarnar ná meðal
annarstilaldraðra.
Upphaflega átti krónugjaldið að
vera króna á hvert kíló bilaflotans.
Þvi var breytt í krónu upp að 2000
kílóum, 70 aura á kiló á bilinu að 5000
kilóum og 50 aura á kíló þar fyrir of-
an. Og sett var á 7.600 króna þak
vegna hverrar bifreiðar. Þá var gert
ráð fyrir að lækka tolla á stórum
h jólbörðum úr 40% í 20%.
Veggjaldið á að gefa rúmlega 100
milljónir í Vegasjóð í ár, upp í 1.000
milljóna vegaframkvæmdir.
HERB