Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1983, Blaðsíða 16
16
DV. ÞRIÐJUDAGUR19. APRIL1983.
Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur
Innanlandsflug Flugleiða:
Slæm símaþjónusta
Spurningin
Hvað finnst þér
um skoðanakannanir
blaðanna að
undanförnu?
Ingi Jónsson, starfsmaður Flugleiða:
Mér finnst þær nú svolítiö vafasamar.
Þær eru ekki alveg raunhæfar, gefa
ekki rétta mynd af úrslitunum.
Kristín Hauksdóttir húsmóðir: Mér
finnst þær á ýmsan hátt góðar.
Kristin Einarsdóttir kennari: Ég lesl
blööin ekki aö staðaldri og hef ekkert
sett mig inn í þær sérstaklega.
Ingibjörg Aradóttir háskólanemi: Mér
finnst þetta allt í lagi og það er gaman
að fylgjast með þessu. Ég er sjálf ekki
búin að ákveða mig.
Valdimar Hannesson málari: Mér
finnst þær mjög misjafnar. Þátttaka
og útkoma virðist mér vera lík. Mér
fannst niðurstöðurnar úr Hagvangs-
könnuninni traustvekjandi, svo
framarlega sem hægt er að taka mark
áþeim.
Sóley Tómasdóttir póststarfsmaöur:
Ég get nú lítið sagt um þær, þó hef ég
aðeins kíkt á þær. Ég hugsa að þær séu
nokkuð nálægt því að vera réttar.
Sigríður Björnsdóttir skrifar:
Ég hreinlega verð að minnast á
innanlands-símaafgreiðslu Flugleiða,
en hún er orðin svo léleg aö maður
getur engar upplýsingar fengið um
flug. I gær, 4. apríl, var ég í símanum
frákl. um 17 tilkl. 21.30 aöreyna aðfá
uppgefið hvort Akureyrarvél myndi
örugglega lenda á Keflavíkurflugvelli,
eins og reyndar var löngu ákveðið. En
viti menn, hún lenti á Reykjavíkurflug-
velli og aldrei náði ég sambandinu við
þá, hringingin var tekin af hjá mér í
flestum tilfellunum.
Flugleiðir hafa enga afsökun. Ég
veit aö fólk vill reyna að skýla sér á
bak við „en það var nú annar í pásk-
um”, en það er orðið sama hvaða
dagur er, símaþjónustan er nánast
engin.
Svo er eitt annaö, en það varöar
þjónustu um borö. Ég heimta að Flug-
leiðir bjóði upp á kaffi og dagblööin að
lesa, innanlandsfarmiðinn er nefnilega
ekki svo ódýr, hann er reyndar rándýr.
Herðiö ykkur, Flugleiðamenn, og
sinnið sanngjarnri kvörtun.
Einar Helgason, forstöðumaður innan-
Iandsflugs Flugleiða, svarar:
Það er eins og bréfritari gerir ráð
fyrir. Skýringin á hinni mjög slæmu
símaþjónustu hjá innanlandsflugi
Vilhjálmur Pétursson skrifar:
Kjarninn í stefnuskrá Alþýðubanda-
lagsins fyrir þessar kosningar og tvær
þær síöustu er íslensk atvinnustefna.
Eining um íslenska leið nefna þeir
fyrirbærið. Það er hins vegar rang-
nefni og ætti aö nefnast, eining um ís-
Ein af innan/andsvélum Flugleiða.
Flugleiða 4. apríl sl. er sú að sá dagur
er annar í páskum. Þennan dag voru
fluttir í innanlandsflugi um 2.200
farþegar, sem er helmingi meira en á
góðum sumardegi þegar allt leikur í
lyndi veðurfarslega séð.
Það verður að viðurkennast og biðj-
ast afsökunar á að þegar slíkir
flutningar eru á einum degi, sem kem-
ur fyrir tvisvar til þrisvar á ári, og við
bætist rysjótt veðurfar , sem hefur í
lenska neyð, sé skoðaður munurinn á
orðum og athöfnum forystumanna
flokksins.
Verkamannabústaðakerfið er hið
pólitíska skömmtunarkerfi Alþýöu-
bandalagsins. Nú er verið aö ljúka
för með sér örar breytingar á brottfar-
ar- og komutímum flugvéla, þá ræöur
símakerfi okkar ekki við vandann og
símaþjónustan verður algjörlega ófull-
nægjandi.
Þetta hefur því miöur skeö alloft sl.
vetur vegna hins slæma tíðarfars, þótt
flutningar hafi verið minni.
Við venjulegar aðstæður á þjónusta
Flugleiöa á þessu sviði að geta veriö í
stórri blokk vestur á Eiðsgranda.
Hvemig skyldi íslenska atvinnustefn-
an vera í praxís þar? Guðmundur jaki,
Guðmundur Þ. Jónsson og fleiri
forystumenn Alþýðubandalagsins í
verkalýðshreyfingunni ákváöu að
kaupa belgíska ofna í blokkina þó fyrir
lagi og við munum finna leiðir til að
svo verði.
Varðandi þjónustu um borð á leiðum
innanlands þá hefur ekki verið á dag-
skrá að taka það upp að bera fram frí-
ar veitingar. Hins vegar hefur verið
gerð tilraun með að hafa til sölu létta
hressingu og finnst okkur það hafa
gefist vel og fjölbreytni á því sviði
verður aukin, meöal annars með kaffi
á vissum tímum dagsins.
væru í landinu ofnasmiðjur og íslensk-
ur iðnaöur á í vök aö verjast gegn
eriendri samkeppni. Fáránleiki máls-
ins verður ennþá meiri þegar haft er í
huga að Guðmundur Þ. Jónsson er for-
maður Iðju, félags iðnverkafólks.
Matthias Á. Mathiesen
Magnús Eriendsson.
SELTJARNARNES
Salome Þorkelsdóttir
Bragi Michaelson
Siqurgeir Sigurflsson
Almennur stjórnmálafundur verður haldinn á Seltjarnarnesi
þriðjudaginn 19. apríl kl. 20.30 í félagsheimilinu. Frummæl-
endur eru Matthías Á. Mathiesen alþm., Salome Þorkels-
dóttir alþm., Bragi Michaelson framkvstj. og Sigurgeir
Sigurðsson bæjarstjóri. Fundarstjóri er Magnús Erlendsson,
forseti bæjarstjórnar.
Að loknum framsöguræðum verða fyrirspurnir eftir því
sem tími leyfir.
FULLTRÚARÁÐ
SJÁLFSTÆÐISFÉLAGANNA
Á SELTJARNARNESI.
SJÁLFSTÆÐISFÉLÖGIN Á SELTJARNARNESI
r
Islensk atvinnustefna Alþýðubandalagsins:
Eining um íslenska neyð