Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1983, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1983, Blaðsíða 2
2 DV. ÞRIÐJUDAGUR19. APRIL1983. Akerrén-ferðastyrkurinn 1983 'Boftinn hefur verið fram Akerrén-ferðastyrkurinn svonefndi fyrir árið 1983. Styrk- urinn, sem nemur 2 þús. sænskum krónum, er ætlaður Islendingi sem ætlar til náms á Norðurlöndum. — Umsóknum skal komið til menntamálaráðuneytisins. Hverfisgötu 6,101 Reykjavík, fyrir 15. maí nk. Umsóknareyðublöð fást í ráðuneytinu. MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ, 14. april 1984. Þó að sumardagurinn fyrsti sé á næsta ieiti er vetur konungur enn viO völd og ekki horfur á að hann láti kórónu sina af hendi i bráð. Snjónum kyngir niður fyrir norðan, þurr og kaidur vindur nistir merg og bein fyrir sunnan. Þessi mynd var tekin i Óiafsfirði 8. aprii sl. þegar loks stytti upp eftir nokkurra daga byl. Eins og sjá má var snjórinn gifurlegur, mörg hús nær þvi á kafi. Og siðan þá hefur enn bætt verulega á. DV-mynd Þórir JónsspnIJBH ) SMÁ-AUGLÝSINGADEILD verður opin miðvikudag 20. apríi TIL KL. 22 og fimmtudaginn 21. apríi KL. 18-22. og munu þær auglýsingar birtast í föstudagsblaði. — kemur EKKi út sumardaginn fyrsta. GLEÐILEGT SUMAR SMA-AUGLÝSINGADEILD, Þverho/ti 11, sími27022. Kosningarnar á laugardag: HVERJIR SENDA FULLTRÚA SÍNA í KJÖRDEILDIRNAR? —Sjálf stæðisf lokkurinn einn eftir í Reykjavík Bandalag jafnaöarmanna og Kvennalistinn eru einu aöilamir sem bjóöa fram í alþingiskosningunum nú og ekki hafa fulltrúa í kjör- deildum á kosningadaginn. Alþýöubandalag, Alþýöuflokkur, Framsóknarflokkur og Sjálfstæðis- flokkur setja í hendur flokksmanna sinna á hverjum stað hvort þeir gera það. Hjá Sjálfstæðisflokki gildir yfir- leitt aö hafa fulltrúa en þó eru einstaka staöir aö hætta viö það, Akureyri og Hafnarfjörður til dæmis. Flokkurinn hefur fuUtrúa sína á kjörstööum í Reykjavík og er eini framboðsaöiUnn sem það gerir. Hjá Alþýöubandalagi er aUur gangur á hvort hafðir eru fuUtrúar í kjördeildum eða ekki. Sama er aö segja meö Framsóknarflokkinn. BB- Ustinn í Norðurlandskjördæmi vestra veröur aö öllum líkindum meö fuUtrúa og T-listinn í Vestfjarðakjör- dæmi ákveöiö. Alþýðuflokkurinn sendir öllum alþýöuflokksfélögum gögn til aö stunda eftirlit í kjör- deildum en síöan er ákveðið á hverjum stað, hvort slíkt er gert. Vitað er að svo veröur á nokkrum stööum, ekki þó á Vestfjörðum og í Reykjavík. Helsti tUgangur meö því aö hafa fulltrúa í kjördeildum er aö fylgjast meö hverjir kjósa og gera þannig mögulegt aö hafa samband við fólk, sem einhverra hluta vegna lætur sig vanta. JBH Fögnum sumri MEÐ ALBERT efsta manni á iista Sjalfstæðisflokksins í Reykjavík á fjölbreyttri FJÖLSKYLDUSKEMMTUN í HÁSKÓLABÍÓI, SUMARDAGINN FYRSTA, KL. 21-22.30. i s. ■{S Albert Guðmundsson. ÓKEYPIS BINGÓ, tvær umferöir GLÆSILEGIR FERÐAVINNINGAR TIL LIGNANO MEÐ Ferðaskrffstofan IÍTSÝN FERÐ MEÐ FARSKIP Fatiaðir hafi samband við skrifstofuna í síma 21078 vegna sæta. DAGSKRÁ 1. Ragnheiður Steindórsdóttir flytur Ijóð eftir Tómas Guðmundsson 2. Sr. Gunnar Björnsson selló, Jónas Ingimundarson píanó, i Ágústa Ágústsdóttir einsöngur. 3. Garðar og Ágústa syngja við undirleik Magnúsar Kjartanssonar^fiSj/*^ 4. Jón Magnússon f/ytur stutt ávarp. 5. Magnús Þór Sigmundsson /eikur og syngur. 6. Ókeypis bingó. Bingóstjórnandi Magnús Kjartansson. * Vinningar ferð til Lignano með Útsýn og ferð með Farskip. 7. Pá/mi Gunnarsson og Bergþóra Árnadóttir \rfi syngja. 8. Albert Guðmundsson ávarp. 9. Hinn bráðskemmtilegi Laddi skemmtir. KYNNIH: SIGURJÓN FJELDSTED. # ■Vf? *

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.