Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1983, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1983, Blaðsíða 11
DV. ÞRIÐJUDAGUR19. APRIL1983. 11 Sjónarsviptir að Krónunni „Nú er hún Snorrabúð stekkur,” datt úr úr gömlum vesturbæingi, er fréttir bárust um að Krónan væri hætt rekstri. Ríkharður Kristjánsson kaupmaður lokaði á laugardaginn fyrir páska eftir 27 ára kaupmennsku en verslunina stofnaði faðir hans, Kristján Guðmundsson, (kallaður „Stjáni blái” i vestur- bænum) um 1930. DV-mynd Einar Úlason. Ein elsta verslun á landinu, Krón- an í Vesturgötu 35, hefur hætt starf- semi sinni. Ríkharður Kristjánsson kaupmaöur lokaði versluninni laugardaginn 2. apríl eftir að hafa rekið verslunina í 27 ár. Verslunin varstofnsett áriö 1930 af föður Ríkharðs, Kristjáni Guðmundssyni. „Eg átti að vera með verslunina í 2 mánuði á meðan pabbi væri á spít- ala,” sagði Ríkharður i samtali við DV, „en núna 27 árum seinna er ég fyrst að hætta. Ástæðan fyrir því er ekki léleg af- koma. Ég vaknaði upp einn góðan veðurdag og gerði mér grein fyrir því að það væri ekki ástæða til að vinna 10—15 tíma á dag, nú þegar börnin eru farin og við hjónin erum orðin ein eftir. Það hlýtur að vera ró- legri leið til að komast af. Eg er kom- inn á sextugsaldur og ætla ekki að detta dauður niöur bak við búðar- borðið.” Ríkharður viöurkenndi að hann ætti eftir að sakna gömiu kúnnanna. En engin hætta er á ööru en hann muni hitta þá annað slagið enda býr hann áfram á Vesturgötunni, þar sem hann er borinn og barnfæddur. Næst á dagskrá er aö gera upp íbúðarhúsið en Ríkharður hefur ekki tekið ákvörðun um hvað taka muni við hjá honum. Sama máli gegnir um verslunina: enn er ekki ljóst hvort einhver annar tekur við verslunar- rekstri í Krónunni þar sem feðgamir Ríkharöur og Kristján Guðmundsson hafa starfaö hvor á eftir öðrum í 53 ár. ás. REVIULEIKHUSIÐ Hafnarbíó Hinn sDrenghlægilegi gamanleikur KARLINN í KASSANUM Vegna óstöðvandi aðsóknar verður enn ein aukasýning á þriðjudagskvöldkl. 20.30. Miðasalan opin frá kl. 16—19 alla daga. Simi 16444. SÍÐAST SELDIST UPP RÆKTUNARSAMBOMD VERKTAKAR Eigum til á lager takmarkað magn af beltakeðjum oq keðjuhjólum á International TD 8-B, TD 9-B og TD 15—C. Mjög góður staðgreiðsluafsláttur eða hagstæð greiðslukjör. s Eigum einnig til beltarúllur og spirnur á nokkrar § gerðir International jarðýtur. « < Flestar stærðir af spirnuboltum og róm. VEIADEILD SAMBANDSINS BÚVÉLAR Ármúla 3 Reykjavík S. 38 900 Starfsmannafélagið Sókn auglýsir orlofshús 3 í Húsaf elli líSvignaskarði 3 í Ölfusborgum. Hafið samband við skrifstofuna fyrir 28. þ.m. Stjórnin. Utankj örstaðakosning Utankjörstaðaskrifstofa Sjálfstæðisflokksins er í Valhöll, Háaleitisbraut 1 — símar 30866, 30734 og 30962. Sjálfstæðisfólk: Vinsamlega látið skrifstofuna vita um alla kjósendur sem verða ekki heima á kjördegi. Utankjörstaðakosning fer fram í Miðbæjarskólanum alla virka daga kl. 10—12, 14—18 og 20—22, sunnudaga kl. 14—18. Frestur til skila á skrám vegna sérstaks eignarskatts skv. lögum nr. 20 frá 23. mars 1983 á fasteignir sem nýttar voru við verslunarrekstur eða til skrif- stofuhalds í árslok 1982: Samkvæmt 5. grein laga nr. 20 frá 23. mars 1983 ber eigendum þeirra fasteigna sem nýttar voru við verslunarrekstur eða til skrifstofuhalds, að fylla út sérstaka skrá um þessar eignir. Skrám þessum ber að skila til viðkomandi skattstjóra. Eyðublöð til skrárgerðar er hægt að fá hjá skattstjórum. Framtalsfrestur er sem hér segir: a. fyrir framtalsskylda menn til og með hádegi 16. maí 1983 b. fyrir lögaðila til og með 31. maí 1983 Athygli er vakin á ákvæðum 4. gr. laga nr. 20/1983 sem eru svohljóðandi: „Við ákvörðun á því, hvaöa eignir myndi stofn sérstaks eignarskatts, skal miða við raunverulega notkun fasteignanna í árslok 1982. Sé sama eignin notuð við verslunarrekstur eöa til skrifstofu- halds, en einnig til annarra nota, skal við ákvörðun á skatt- stofni skipta verðmæti eignarinnar hlutfallslega.” Reykjavík 14. aprU 1983. RÍKISSKATTSTJÓRI. SJÚKRAHÚSIÐ Á SEYÐISFIRÐI innhússfrAgangur Tilboð óskast í innanhússfrágang á 1. hæð og í kjallara að hluta í Sjúkrahúsinu á Seyðisfirði. Húsiö er nú tilbúið undir tréverk meö uppsettum loftræsilögn- um að mestu. Verkinu skal skila í 3 áföngum. Endanleg verklok eru 1. júní 1985. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri gegn 2.000,- kr. skilatryggingu eftir miðvikudaginn 20. apríl 1983. Tilboð verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 3. maí 1983 kl. 11.00. INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006 V. s Ð '83 er f rábær LAKKRÍS sem verið er að dreifa i verslanir núna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.