Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1983, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1983, Blaðsíða 24
24 DV. ÞRIÐJUDAGUR19. APRlL 1983. Menning Menning Menning Menning Daufur Fauré en góður Skoti Tónleikar Sinfóntuhljómsveitar íslands í Hó- skólabíói 14. aprfl. Stjórnandi: Guðmundur Emilsson. Einsöngvarar: Elísabet F. Eiríksdóttir, sópran, og Robert Becker, barýtón. Kór: Söngsveitin Fflharmónia. Efnisskrá: Gabriel Fauró: Requiem op. 48; Felix Mendelssohn-Bartholdy: Sinfónla nr. 3 ( a-moll. Skammt er um liöiö síðan Söngsveit- in Fíiharmónía veitti Sinfóníuhljóm- sveitinni aöstoð viö flutning óperunnar Tosca. Nú stóðu söngfélagar aftur á fjölunum, aö þessu sinni í öllu viða- meira hlutverki. í Requiem Faurés leikur kórinn aöalhlutverkiö. Hljóm- sveitarþátturinn skrifaöur með ýtr- ustu sparsemi, hnitmiðaöur og ein- söngvaramir notaöir sem krydd. Sé kryddiö kjarngott þarf lítið af því. 1 öllu sínu látleysi er Fauré mikiil. Um snilld hans vitna öll hans verk, hvort Tónlist Eyjótfur Melsted sem um ræöir tónsmíöar eða upp- fóstran tónskálda á borö viö Ravel og Enescu. Látleysi þýðir ekki deyfð En látleysi á ekki aö leiða til deyfðar eins og ríkti í söng Fílharmóníu. Þrátt fyrir aö lengi hafi ekki verið svo gott jafnvægi raddanna í milli sem nú, breytti þaö því ekki aö fyllingu vantaöi í hljóminn og deyfö var yfir öllu. Einsöngvararnir skiluðu sínu verki meö ágætum. Robert Becker kannski ekki alveg öruggur á hátóna í upphaf- inu, en var snöggur að syngja sig upp. Elísabet var örugg frá fyrsta tóni til hins síðasta í sínu örstutta en glæsilega hlutverki. 1 upprööun kórs og hljómsveitar reyndi Guömundur Emilsson nýjung- ar. Karlaraddir hafði hann miökórs og tenórana fyrir framan bassana, sem ég held aö hafi stuölaö að auknu jafn- vægi. Fiölum skipaði hann sínum til hvorrar handar, líkt og gert er í mið- Evrópu. Meira reynir á slagtækni stjómandans meö þessum hætti og Guömundur haföi alla burði til aö halda hljómsveitinni saman meö upp- rööun þessari. Hljómsveitin þekkir sig aö vísu lítt í þessari stööu og ég var ElisabotF. Eiríksdóttir. Robert Becker. hissa á því að Guðmundur skyldi ekki fylgja tilrauninni eftir í Skozku sin- fóníu Mendelssohns, þeirri númer þrjú. Sinfóníunúmer hjá Medelssohn em allsherjar kraöak. Þær eru opinber- lega taldar fimm, en sú númer eitt í c- moll var víst í raun og veru hans þrettánda sinfónía. Góð tök á verkinu Mesta púörið i Skozku sinfóníunni er í öömm kafianum (vivace non troppo) en hún stendur aö baki ööra skozk- stemmdu verki Mendelssohns, sjálfum Fingals helli. Guömundur haföi góö tök á verkinu. Leikurinn var aö vísu eilítið loöinn í fyrsta kaflanum, en þaö ergöi mann ekki frekar en vandræöi trompetanna með samstillingu sína, því í stómm dráttum lék hljómsveitin skínandi vel. EM Konur og atvinnumál Þess varð vart strax í Kvenna- framboðinu í fyrra aö margir efuðust um aö konur gætu boriö nokkurt skynbragö á atvinnumál. Siíkar raddir hafa oröiö jafnvel enn hávær- ari nú meö tilkomu kvennalistanna. Kannski er engin furða þótt fólk efist, því aö enda þótt konur hafi flykkst út á vinnumarkaöinn á undanfömum árum eru þaö ekki þær sem fara meö stjómina í atvinnu- málum. í þeim málum hafa karlam- ir alfariövöldin. Og hvemig hefur þeim svo farist stjóm atvinnumálanna úr hendi? Eitt helsta einkenni íslenskrar at-| vinnustefnu undanfarinna ára eru: miklar og misaröbærar (svo ekki sé meira sagt) fjárfestingar í öllum helstu atvinnugreinum landsmanna. Viröist mér að þar hafi oft veriö fariö meir af karlmannlegu kappi en kven- legri forsjá. Nægir að benda á fiski- skipastólinn sem oröinn er allt of stór miðað viö fiskana í sjónum. Allt hefur veriö miöaö viö metafla án þess aö huga aö því, hvernig úr honum hefur veriö unniö, en allir vita og viöurkenna aö þar hefur margt fariö í súginn. Draumurinn um skjótfenginn auö, skammtíma- gróöasjónarmiöin, hefur allt of víöa ráöiö feröinni. Eitt skýrasta dæmið um afhroð þessarar atvinnustefnu er einmitt úr sjávarútvegi, nefnilega hiö sæla síldarævintýri. Þá létu karla- spekúlantarnir greipar sópa um auðlindir hafsins og beittu í landi fimum fingmm söltunarstúlknanna fyrir milljónaplóg sinn. Hvaö skildu þeir okkur eftir? Yfirgefnar verk- smiöjur, mannlaus pláss og næstum silfurlausan sjó. Að vísu hefur vald- höfum eitthvaö lærst af þessari of- veiði og annarri. Nógu fjálglega er a.m.k. talaö um verndun fiskstofna, skynsamlega nýtingu þeirra o.s.frv. En það er óhugnanlegt aö enn þann dag í dag skuii margir bíöa eftir Kjallarinn SigríðurH. Sveinsdóttir áþekkum ævintýrum. Sumir eygja þau í stóriöju. Kvennalistinn býöur ekki upp á þess háttar lausnir í at- vinnumálum. Kvennalistinn leggur til forsjálni og fyrirhyggju hinnar hagsýnu húsmóöur. Hagsýn hús- móöir myndi aldrei steypa sér í skuldir eins og karlapólitíkusamir hafa nú þegar gert vegna stóriðju. Þaö er umhugsunarvert aö 40—50 prósent þeirra erlendu lána sem viö nú eram aö kikna undan voru tekin vegna virkjana til stóriöju. Stóriðju- ver eru heldur alls ekki eins atvinnu- skapandi og reynt hefur veriö að telja okkur trú um. Til dæmis mvndi stóriðjuuppbygging i samrærni viö stórvirkjanaáætlanir til aldamóta aöeins veita atvinnu 6% af því fólki sem út á vinnumarkaðinn kemur á sama tíma. Mér býður í gmn aö aðeins lítill hluti af þessum 6 hundraöshlutum yrði konur. Aðrar áherslur Stóriöjan hefur líka þann leiða fylgifisk aö einn daginn er kannski ekki lengur markaður fyrir afuröir hennar. Hvaö veröur þá um fólkið sem treysti á hana sér til viöurvær- is? Svari hver fyrir sig, en ég get ekki ímyndað mér öllu kaldranalegri sýn en hálfyfirgefinn verksmiöjubæ þar sem íbúamir stara vondaufir út í bláinn og bíöa eftir atvinnuleysisbót- um. Ég held varla aö mannræktin yröi fyrirferöarmikil á slíkum staö. Nei, okkur er nær aö byggja á þeim grunni sem viö þrátt fyrir allt höfum í sjávarútvegi og landbúnaöi. Efling úrvinnsluiönaöar (án vinnuþrælk- unar) úr þeim hráefnum sem þessar atvinnugreinar færa okkur í hendur hlýtur aö vera þaö sem okkur ber aö leggja höfuöáherslu á á næstu ámm. Fyrir utan þá traustu undirstöðu sem fólgin er í öflugum og vönduðum matvælaiönaöi get ég ekki stillt mig um aö benda á hve vel hann fellur aö því mannræktarsamfélagi sem viö viljum stefna að. Eg hef hér rétt drepið á örfá atriði úr stefnu Kvennalistans í atvinnu- málum. Til frekari upplýsingar fyrir ykkur, lesendur góöir, vísa ég til stefnuskrár okkar. Lesiö hana og þið munuð sjá aö konur bera vissulega skynbragð á atvinnumál. Þær leggja bara aðrar áherslur og hafa annað mat á þeim málum en karlamir. Sigríður H. Sveinsdóttir. forsjá. jVirðist mér að þar hafi oft verið farið meir af karlmannlegu kappi en kvenlegri „StóriÖjan hefurlíka þann lelða fylgifisk að einn daginn er kannskiekki lengur markaður fyrir afurðir hennar. .

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.