Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1983, Blaðsíða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1983, Blaðsíða 1
/tjli! >*!■«» SvtítVT Fr»,VÍ! $öpí)USSí.r?t ViltlHífKllS Gylfason Oíafur Joharmeason JooBádvín Hanbaisson igjgpll Mikið fjölmenni var á kosningafundi DV i gærkvöldi. Húsið var þéttsetið og staðið á göngum, auk þess sem sjónvarpað var til fólks íanddyrínu. Fundurinn tókst mjög vel, ræður DV-myndir GVA m m Kosningafundur DV tókst með ágætum: HORKUFUNDUR FYR- IR TRODFULLU HÚSI sagt frá fundinum í máli og myndum á bls. 18-19-20-21 Einnig verður sagt frá fundinum f blaðinu á morgun Mikil og skemmtileg stemmning var í troðfullu Háskólabíói á kosningafundi DV í gærkvöldi. Hvert sæti hússins var setiö, auk þess sem staöið var á göngum og fólk í anddyri hússins fylgdist meö á sjónvarps- skermum. Sex frambjóöendur alira lista í Reykjavík fluttu framsögu- ræöur og svöruðu fyrirspurnum fundargesta. Þeir voru Jón Baldvin Hannibalsson, Olafur Jóhannesson, Vilmundur Gylfason, Friörik Sophusson, Svavar Gestsson og Guörún Agnarsdóttir. Fundarstjóri var Magnús B jamfreösson. Langt er síðan haldinn hefur verið sameiginlegur framboösfundur allra framboðslista í Reykjavík en greini- legt var af undirtektunum að full þörf er á slíkum fundi. Frambjóö- endurnir voru skeleggir í málflutn- ingi, bæði í inngangs- og lokaorðum og fundargestir vel meö á nótunum meö fjörugum og gagnlegum fyrir- spurnum. Skriflegar fyrirspurnir fundargesta voru sendar fundar- stjóra en hann beindi fyrirspurnum síöan jafnt til allra frambjóöend- anna. Askilin voru stutt svör frambjóðendanna og þannig náðist að svara tugum fyrirspuma. Fyrir- spumirnar voru þaö margar aö ekki vom tök á því að birta nema hluta þeirra í blaðinu í dag. Hinar veröa birtar á morgun. Frásögn í máli og myndum af hinum fjöruga stjómmálafundi DV er á fjómm síðum í blaöinu í dag. -JH. 3»---------------► Séð yfir þéttsetið Háskólabió á fundinum i gær.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.