Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1983, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1983, Blaðsíða 9
DV. ÞRIÐJUDAGUR 19. APRlL 1983. 9 Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Þessir dúkur var hengdur á aöaldyr fyrirtækisins Hoifmann-La Roche í Basel í Sviss, en efnaverksmiöjan í Seveso var dótturfyrirtæki þess. Áletrunin segir: „Seveso eitur. Roche ber ábyrgðina”. — Málið hefur aö nýju komist í fréttirnar vegna réttarhaldanna og vegna orðróms um aö 41 tunnu með eitruðum úrgangs- efnum hafi veriö smyglað úr landi í ítalíu til einhvers annars lands. Eiturmálinu í Seveso frestað Réttarhöldunum yfir fimm stjórn- endum efnaverksmiðjunnar í Seveso var frestað í gær um leið og þau loks hófust sjö árum eftir eitursprenging- una. Þegar fram kom við réttarhöldin í gær aö um 200 einstaklingar leggja fram kröfur um skaöabætur á hendur mönnunum óskuöu verjendur f rests. — Rannsóknin beinist að því hvort ábyrgðarleysi í öryggisbúnaöi verk- smiöjunnar hafi verið orsök sprenging- arinnar. Fyrirtækið hefur þegar greitt Lombardy-héraöi og ítalska ríkinu um 145 milljónir króna í skaöabætur auk annarra bóta til alls um 25 þúsund einstaklinga og þriggja sveitarfélaga. Pulitzer afhent Pulitzer-verölaununum fyrir blaöa- mennsku var úthlutaö í dag í Banda- ríkjunum og fengu tveir blaöamenn þau sameiginlega fyrir fréttaflutning af fjöldamoröunum í búðum Palestínu- araba í Líbanon. Þá fékk ljósmyndari einnig verölaun fyrir ljósmyndir af aðkomunni eftir aö morðingjarnir voru famir. Það voru Loren Jenkins frá Washington Post og Thomas Friedman frá New York Times sem fengu blaða- mannaverðlaunin. Dómurum bar saman um það aö bæöi heföu unnið verk sitt svo vel að í þetta sinn mæltu þeir með því aö verðlaununum yröi skipt, sem gerist ekki oft. Og Bill Foley, ljósmyndari frá AP, fékk verðlaunin en hann var meöal fyrstu ljósmyndara á staðinn. Pulitzer-verölauhin fyrir skáld- sagnagerö fékk Alice Walker blökku- kona, fyrir skáldsögu sína The colour purple. WALESA YFIRHEYRÐUR DAGLEGA OG JANUSZ í VARDHALDI Lech Walesa var haldið í yfirheyrslu í níu klukkustundir í gær og hefur verið boöaöur aftur á fund lögreglunnar í Gdansk til frekari yfirheyrslu í dag. Hann segist ætla aömæta. Yfirvöldin í Póllandi hafa vakaö yfir Walesafjölskyldunni síðan hann átti leynifund með neöanjarðarforingjum óháöu verkalýðshreyfingarinnar „Einingar”, sem er bönnuö. Walesa og heimilispresturinn, Henryk Jankowski, auk tveggja félaga þeirra voru teknir á leið þeirra frá Varsjá til Gdansk í gær og yfirheyrðir um erindið sem þeir heföu átt til höfuö- borgarinnar. — Walesa kvaöst hafa fariö til þess aö votta hinum föllnu hetjum úr gyðingauppreisninni í Var- sjávirðingusína. Á rr.eðan hefur Janusz Onyszki- ewics, fyrrum talsmaöur „Einingar”, veriö haföur í haldi lögreglunnar í V ar- sjá. Hann var handtekinn eftir aö hafa athöfn um gyðingauppreisnina. Hús- ávarpað mannsafnaö í minningar- leithefurveriögeröheimahjáhonum. r"-------T-----—----------------------------1 Ohugnanleg framtíðarsýn: l Þjófnaðir á líffærum ! ! og jafnvel morð til | | að selja líkamshluta j ■ Glæpamenn 21. aldar gætu tekið upp á því aö drepa til þess aö komast yfir : I mannslíkama til þess aö selja í líffæraflutninga, eftir því sem einn af saka-1 I málasérfræðingum Kanada telur sig sjá í framtíöinni. Segir hann að geymsla á líkum og ígræðslur líffæra og líkamsparta eigi eftir aö veröa glæpamönnum einhvern tíma freisting, því aö líffæri nýlátinna eigi eftir aö veröa mikil verömæti. t TILEFNISUMARKOMU ■sláttur ^Vormíáttun ^ cVor@fs(áttur HJÁ GULLSMIÐUM ÞEKKING — ÞJÓNUSTA — VERSLIÐ HJÁ GULLSMIÐ Merkíð tryggir gæðin. ÁBYRGÐ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.