Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1983, Page 28
KOSNINGAFUNDUR DV
KOSNINGAFUNDUR DV
28
DV. RUÐVKUDAGUR 20. APRIL1983.
KOSNINGAFUNDUR DV
FYRIRSPURNIR A KOSNINGAFUNDIDV
Mikill fjöldi fyrirspurna barst á hinum fjölmenna kosningafundi DV,
sem haldinn var í Háskólabíói í fyrrakvöld. í blaðinu í gcer birtust
framsögurœður talsmanna allra listanna í Reykjavík auk lokaorða
þeirra á fundinum. Vegna plássleysis var aðeins unnt að birta hluta
fyrirspurnanna á fundinum. Við bœtum úr þessu nú og birtumþær fyrir-
spurnir, sem bíða þurftu. Eins og fram kom í DV í gœr, var mikil
stemmning á fundinum og rœðumenn sóttu og vörðust fimlega. Fundar-'
gestir voru vel með á nótunum og spurðu um hin fjölbreyttustu efni, svo
sem sjá má hér á síðunum.
-JH.
Dæmi um vald-
dreifingu
Jónína Sverrisdóttir spurði Guðrúnu
Agnarsdóttur: Getur fulltrúi Kvenna-
listans gefið dæmi um valddreifingu í
verki?
„Valddreifingin verður misjöfn eftir
aðstæðum og málaflokkum en ég get
tekið dæmi um skóla. Þar til dæmis
gætu foreldrar, böm, kennarar og
skólastjóri ráðiö um það hvemig fjár-
munum yrði ráðstafað sem best í þágu
skólans ef búið væri að fullnægja ein-
hverjum ákveðnum lágmarkskröfum.
I stað þess að nú eru það miðstýrðar
ákvarðanir sem kennarar og skóla-
stjórar hafa lítinn sveigjanleika til að
breyta og foreldrar ráöa nánast engu.
Það væri eitt dæmi sem ég gæti tekið,”
sagði Guðrún.
Þjóðnýtingar-
áformin
Jóhann Lámsson spurði Svavar
Gestsson: Hvernig standa þjóö-
nýtingaráformin gagnvart olíufélögun-
um, Lyfjaverslun ríkisins og
tryggingafélögunum eftir margra ára
samfellda stjórn Alþýöubandalagsins?
„Við höfum nú ekki verið einir í
stjórn þannig að við höfum orðið að
sæta því aö gera samkomulag við
ýmsa aðila. Að því er varöar olíu-
verslunina þá hefur Framsóknar-
flokkurinn staöiö mjög dyggilega vörö
um hana vegna þess að hann á þar
hagsmuna aö gæta. Að því er varðar
sameiningu bankanna, sem við höfum
lagt mikla áherslu á, til dæmis að sam-
eina rikisbankana, þá hefur Sjálf-
stæðisflokkurinn staðið þá vakt mjög
dyggilega, meðal annars í núverandi
ríkisstjórn. Að því er varðar hins veg-
ar Lyfjaverslunina þá hefur miðað i
áttina, annars vegar með því að það
hefur verið tekin um það ákvörðun að
Háskóli Islands rekur nú Reykjavíkur-
apótek og svo hitt að Lyfjaverslun
ríkisins er nú komin undir heilbrigðis-
og tryggingamálaráðuneytiö og er
þannig hluti af hinni almennu heil-
brigðisþjónustu í landinu. Þetta eru
skref í áttina en fleiri verða að sjálf-
sögöu stigin um leiö og við höfum afl
til, sem viö munum vonandi fá áður en
mjög langur tími líöur,” sagöi Svavar.
Siglt undir
f ölsku f laggi?
Steinn Bollason spyr Jón Baldvin
Hannibalsson: Nú er það mál manna
að þú sért svokallaður hægrikrati, það
er aö segja hallur undir Sjálfstæðis-
flokkinn. Finnst þér ekki að þú siglir
undir fölsku flaggi, þegar þú ert í
framboði fyrir Alþýöuflokkinn?
„Steinn Bollason, heldur þú að
maður eins og Helmuth Schmidt sigli
undir fölsku flaggi sem sósíaldemó-
krati. Það held ég ekki. Spumingin um
samstarf við Sjálfstæöisflokkinn er
stærra mál en þetta. Spumingu um
stjórnarmyndun eftir kosningar er
ekki í höndum okkar aö svara, hún er í
höndum ykkar. Ég hef hins vegar sagt
að reynsla aiþýðuflokksmanna af sam-
0JHITACHI I
HÖRKUTÓLIN
FAGMANNINUM TIL HEILLA
Umboðsmenn
fyrir
Hitachi-
rafmagnsverkfæri:
REYKJAVÍK: Byggingavörur, Armúla
REYKJAVÍK: O. Ellingaen, Ananaustum
KÓPAVOGUR: Bykö
HAFNARFJÖRÐUR: Lækjarkot
AKRANES: Múlningarþjónustan
BORGARNES: Kaupfélag Borgfirðinga
STYKKISHÓLMUR: Kaupfilag Stykkishölms
PATREKSFJÖRDUR: Rafbúö Jónasar P6r
ÍSAFJÖRDUR: Póllinn hf.
BOLUNGARVÍK: Jón Fr. Einarsson
SAUÐÁRKRÓKUR: Rafsjá
ÓLAFSFJÖRÐUR: Versl. Valberg
AKUREYRI: Norðurljós
HÚSAVÍK: Bókeverslun Þórarins Stefánssonar
SEYÐISFJÖRDUR: Stálbúðin
EGILSSTAÐIR: Versl. Fell
HÖFN, HORNAFJÖRDUR: Kristall
VESTMANNAEYJAR: Brimnes
SELFOSS: G.A. Böðvarsson
KEFLAVÍK: Stapafell
t
Dieselvélar hf.
Suðurlandsbraut 16 105 — Simi 35200.
starfi við Alþýöubandalag og
Framsóknarflokk er slæm. Reynsla
þjóðarinnar er að samstjóm þessara
flokka er slæm. Reynslan af samstarfi
alþýöuflokksmanna við Sjálfstæðis-
flokkinn í viðreisn var góð. Ég hef enga
fordóma gegn því að vinna með sjálf-
stæðismönnum, en það er á hreinu aö
þeir svari nú skýrt og skilmerkilega: i
em þeir tilbúnir að leggja niður|
Framkvæmdastofnun ríkisins, eruj
þeir tilbúnir að stokka upp land-(
búnaðarmálin?” svarar Jón Baldvin.
Hannibalsson.
Skilyrði fyrir
stjórnar-
samstarfi
Ragnar A. Þórsson spurði Vilmund
Gylfason: Ætlar þú að gera kröfuna
iðnað, að stórefla íslenska framleiðslu.
Ég tók það fram, einmitt þegar ég var
, að útlista stefnu hinnar hagsýnu hús-
móður, að hún framleiðir sem mest
heima og nýtir það sem hún á. Það er
bæði atvinnuskapandi og gjaldeyris-
sparandi,” sagði Guðrún.
Aukið heildar-
fylgi jaf naðar-
stefnunnar?
Ásgeir R. Helgason spyr Jón Baldvin
Hannibalsson: Er það rétt aö framboð
Vilmundar sé meðvitað klofningsfram-
boð til að auka heildarfylgi jafnaðar-
stefnunnar?
„Spurningin er hvort framboð Vil-
mundar sé meðvitað yfirleitt. Ég er
Atvinnurek-
endurfáiað
fara á hausinn
Grétar Jónsson spurði Friðrik
Sophusson: Er flokkur yðar því
fylgjandi að arðsemissjónarmið ráði í
fjárfestingum og að þeir atvinnurek-
endur fái að fara á hausinn sem ekki
em menn til að reka fyrirtæki sín arð-
vænlega?
„Okkar stefna er sú að það sé stjóm-
valda aö sjá fyrir því að þaö séu
rekstrarskilyrði fyrir atvinnuvegina,
það sé þeirra skylda og að því beri þau
að starfa. Hins vegar eigi stjómendur
fyrirtækja og fólkið sem vinnur í fyrir-
tækjum að sjá svo til að fyrirtækin séu
vel starfandi og samkeppnin að láta þá
Ræðumenn á kosningafundi DV í fyrrakvöld vora: Jón Baldvin Hannibalsson af A-lista, Olafur Jóhannesson af B-
lista, Vilmundur Gylfason af C-lista, Friðrik Sophusson af D-lista, Svavar Gestsson af G-lista og Guðrún Agnars-
dóttir af V-lista. Á myndinni er Guðrún i ræðustóli.
um aðgreiningu löggjafarvalds og
framkvæmdavalds að skilyrði fyrir
stjórnarsamstarfi ef þú kemst á þing?
,,Svarið er já. Og þaö er meira en það.
Bandalag jafnaðarmanna, hvort sem
við verðum nú einhver, mörg eða fá,
sem komum til með að sitja á Al-
þingi, munum sjálf haga okkur í smáu
og stóru eins og við erum að leggja til
að menn og konur hagi sér í stjórnkerf-
inu. Okkar fólk, sem veröur í lög-
gjafanum, mun hvergi koma nálægt
framkvæmdavaldsstöðum á sama
tíma. Og ég skal segja ykkur í þeim
efnum: Ég hef séð of mikiö,” sagði Vil-
mundur.
Afstaða til
innflutnings
Margrét R. Guðmundsdóttir spurði
Guðrúnu Agnarsdóttur: Hver er af-
staöa hinnar hagsýnu húsmóður til inn-
flutnings? Ber hún meiri virðingu fyrir
heildsalanum en barninu?
„Við leggjum áherslu á íslenskan
ekki alveg viss. Nei, við höfum ekki
borið saman bækur okkar, við Vil-
mundur, um þetta. Við höfum að vísu
oft lýsteftirþví út af hvaða ágreinings-
málum Vilmundur yfirgaf Alþýðu-
flokkinn. Við vitum ekki hver þau eru.
Það er ekki ágreiningur um það mark-
mið að skilja betur milli löggjafar-
valds og framkvæmdavalds. Alþýðu-
flokkurinn hefur lagt fram tillögur um
að leggja niður stofnanir eins og Fram-
kvæmdastofnun. Alþýðuflokkurinn
hefur ekki skipað þingmann í banka-
ráð ríkisbanka og í stjórnarskrárnefnd
höfum við reynt aö draga skilin milli
löggjafarvalds og framkvæmdavalds
betur. Þaö er hins vegar nýja tillagan,
patentlausnin um hinn þjóðkjörna for-
sætisráöherra, sem er ný hjá Vil-
mundi. Hún var að vísu mikið rædd
innan Alþýðuflokksins en henni var
hafnað þar eftir rækilegar rökræður
vegna þess að hún er röng. Hún leiðir
ekki til réttrar niðurstöðu. Því miður,
þetta er ekki ráðabrugg milli okkar
Vilmundar, hann anaði út í þetta alveg
einn og án samráðs við okkur,” svarar
JónBaldvin Hannibalsson.
starfa áfram sem starfa vel. Hinir,
sem ekki geta starfað í samkeppninni,
eiga að fá að fara á hausinn,” sagði
Friðrik.
Stöðvalauna-
og verðhækk-
anir með
lagaboði?
Geir R. Andersen spyr Ólaf
Jóhannesson: Ætlar Framsóknar-
flokkurinn að halda fast viö þá stefnu
sem hann hefur boðað að stjórnarsam-
vinna við aðra flokka byggist á aö
stöðva launa- og verðhækkanir ákveðið
tímabil til dæmis allt að tveimur árum
meðlöggjöf?
„Framsóknarflokkurinn hefur sett
fram þá stefnu að það eigi að setja há-
mark á hækkanir. Það hámark verður
aö vera þannig gert að þar sé um þrep