Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1983, Blaðsíða 40
40
DV. MIÐVHCUDAGUR 20. APRÍL1983.
í gærkvöldi
í gærkvöldi
Valkostir kjósenda
Sjónvarpiö og útvarpiö eru nú aö
kynna landsmönnum þá einstaklinga
sem bjóðast til aö stýra skipreika
þjóöarskútunni næsta kjörtímabil. I
gærkvöldi gaf að líta frambjóöendur
í Reykjavík í sjónvarpi og í út-
varpinu var gefið stutt sýnishom af
sameiginlegum framboösfundi á
Höfn íHornafiröi.
Sameiginlegir f ramboðsfundir hafa
sett mikið niður í seinni tíö þar sem
áheyrendur eru ekki lengur þátttak-
endur í fundunum meö fyrir-
spumum. Engu aö síður geta ræðu-
menn verið nokkuö líflegir, eins og
heyra mátti í gær. Vonandi sér sjón-
varpið ástæðu til aö gefa áhorf-
endum kost á aö fylgjast meö slíkum
fundi fyrir kosningar eöa sem
skemmtiatriöi á kosninganótt. Þaö
er enn í minnum haft þegar sjón-
varpið sýndi frá framboösfundinum
á Þingeyri íkosningunum 1978.
Kynningarfundurinn í sjónvarpinu
var einn sá besti af þessu tagi, þrátt
fyrir aö Ingva Hrafnj hafi oft fatast
stjórnunin. Kjósendur í Reykjavík
eiga nú væntanlega auöveldara meö
aö ákveöa hvemig þeir vilja verja
atkvæöi sínu. Þeir eiga kost á að
velja mann sem vill hreinan meiri-
hluta fyrir sinn flokk eöa annan sem
tekur því með jafnaðargeði ef
flokkur hans hverfur af sjónar-
sviðinu, þeir eiga kost á að velja um
fleiri en einn flokk sem fylgir stefnu
hinnar hagsýnu eöa hagnýtu hús-
móöur, þeir eiga kost á að velja um
tvo flokka sem vilja samstjóm meö
Sjálfstæöisflokki, þeir eiga kost á aö
velja konu og þeir eiga kost á aö
velja mann, þar af einn sem hélt ekki
þræöi í svömm sínum í gærkvöldi.
Hvaö vilja kjósendur meira ?
-ÓEF.
Andlát
Óskar Halldórsson fyrrv. dósent lést
11. apríl 1983. Hann fæddist í Kóreks-
staöagerði í Hjaltastaðaþinghá, N-
Múlasýslu, 27. október 1921. Oskar lauk
prófi fi Kennaraskóla Islands voriö
1944. Áriö 1956—57 stundaði hann
germönsk fræöi viö háskólann í KieL
Cand. mag.-prófi frá Háskóla Islands
lauk hann áriö 1958. Áriö 1944 geröist
hann kennari við Laugamesskólann í
Reykjavík og starfaði þar til ársins
1958 en það ár fékk hann stööu viö
Kennaraskóla Islands og starfaöi þar
til ársins 1964. Lektor í íslenskum bók-
menntum við Háskóla Islands varö
hann áriö 1968 og síðar dósent. Hann
var kvæntur Sigrúnu Ámadóttur og
eignuðust þau sex böm. Utför Oskars
veröur gerö frá Fossvogskapellu í dag
kl. 13.30.
Gróa Þórðardóttir lést 11. apríl 1983.
Hún fæddist 14. september 1919 í Eilífs-
dal í Kjós, dóttir hjónanna Þórdísar
Olafsdóttur og Þóröar Oddssonar.
Eftirlifandi eiginmaöur hennar er
Guömundur Magnússon, þau eign-
uöust tvær dætur. Utför Gróu veröur
gerð frá Fossvogskirkju í dag kl. 15.
Geir Benedikt Egill Benediktsson lést
13. apríl 1983. Hann fæddist 16. maí
1897 í Skíösholtum Hraunhreppi,
Mýrarsýslu. Foreldrar hans vom þau
Benedikt Þóröarson og Andreana Guö-
mundsdóttir. Geir var kvæntur Sigríði
Gottskáiksdóttur. Þau eignuöust þrjá
syni. Utför Geirs veröur gerö frá Foss-
vogskapellu ídag kl. 16.30.
María Símonardóttir, Sólvallagötu 7a,
lést 18. apríl í öldmnarlækningadeild
Landspítalans, Hátúni lOb.
Baldur Guðmundsson fyrrv. fram-
kvæmdastjóri, Háteigsvegi 23, lést að
morgnil9. apríl.
Guörún Jónsdóttir, Lindargötu 28, lést
16. apríl.
Guðmundur Einarsson, Skálholtsbraut
5 Þorlákshöfn, verður jarðsunginn frá
Þorlákskirkju, Þorlákshöfn, fimmtu-
daginn21.apríl kl. 14.
Kristin Gunnlaugsdóttir veröur
jarðsungin frá Hmnakirkju föstu-
daginn 22. þ.m. kl. 14. Bílferð verður
frá Bifreiöastöð Islands sama dag kl.
11.
Jón Lámsson vélstjóri, Sólvallagötu
60, verður jarösunginn frá Fríkirkj-
unni föstudaginn 22. aprílkl. 13.30.
Siguröur Jón Þorláksson bifreiöar-
stjóri veröur jarðsunginn frá Foss-
vogskirkju föstudaginn 22. apríl kl.
13.30.
Þorbjörg Friöriksdóttir hjúkmnar-
kennari, Stigahlíö 37, verður jarösung-
in frá Dómkirkjunni föstudaginn 22.
aprílkl. 15.
Björa Fossdai Hafsteinsson veröur
jarösunginn frá Hólaneskirkju, Skaga-
strönd, föstudaginn 22. apríl.
Messur
Guðsþjónustur í Reykjavíkurprófastsdæmi,
sumardaginn fyrsta 1982.
Árbæjarprestakall. Fermingarguðsþjónusta
í Safnaðarheimili Árbæjarsóknar kl. 11 og kl.
2. Sr. Guðmundur Þorsteinsson.
Ásprestakall. Barna- og fjölskylduguðs-
þjónusta hjá Ás- og Laugarnessóknum kl. 11 í
Laugameskirkju. Lok bamastarfsins í vetur.
Sr. Árni Bergur Sigurbjörnsson.
Bústaðakirkja, Fella- og Hólaprestakall.
Fermingarguðsþjónustur í Bústaðakirkju kl.
11 og kl. 14. Altarisganga. Sr. Hreinn
Hjartarsson.
Fríkirkjan í Reykjavik. Abnenn guðsþjónusta
kl. 14. Veislukaffi í umsjá Kvenfélags.
Fríkirkjunnar að Fríkirkjuvegi 11, að messu
lokinni. Sr. Gunnar Bjömsson.
Grensáskirkja. Almenn samkoma
fimmtudagskvöld kl. 20.30. Sr. Halldór S.
Gröndal.
Laugameskirkja. Barna- og fjölskyldu-
guðsþjónusta kl. 11 á vegum Ás- og Laugar-
nessókna. Lok barnastarfsins í vetur. Sr. Jón
Dalbú Hróbjartsson.
Seljasókn. Fyrirbænasamvera TindaseU 3,
fimmtudagskvöld kl. 20.30. Sóknarprestur.
Frikirkjan í Hafnarfirði. Fermingar-
guðsþjónusta kl. 14. Safnaðarstjórn.
Bústaðakirkja. Guðsþjónusta kl. 10
sumardaginn fyrsta á 75 ára afmælishátíð
Knattspyrnufélagsins Víkings. Organleikari
Guðni Þ. Guðmundsson. Séra Olafur Skúlason
dómprófastur.
Skemmfanir
Sumarfagnaður
Húnvetningafélagsins
verður haldinn í Domus Medica 20. apríl
(síðasta vetrardag) kl. 20.30.
Húnvetningafélagið
Skemmtun á sumardaginn fyrsta hjá Fóstru-
élagi Islands Kaffihlaðborð, kökubasar og
leikbrúðusýning verður haldin á sumardag-
inn fyrsta, 21. apríl, kl. 14—17 í Fósturskóla
Islands við Sundlaugarveg. Allir velkomnir.
Breiðfirðingar
Sumarfagnaður Breiðfirðingafélagsins
verður í Fóstbræðraheimilinu í kvöld, síðasta
vetrardag, kl. 21.00.
Breiðfirðingafélagið.
Skemmtun á sumar-
daginn fyrsta hjá
Fóstrufélagi íslands
Kaffihlaðborð, kökubasar og leikbrúðusýning
verður haldin á sumardaginn fyrsta, 21. apríl,
kl. 14—17 í Fósturskóla Islands við Sundlaug-
arveg. Allir velkomnir!
Hátíðahöld í Kópavogi
á sumardaginn fyrsta
Skátamessa í Kópavogskirkju kl. 11.00.
Safnast verður saman við Víghólaskóla kl.
10.30, gengið niður Álfhólsveg og upp í kirkju.
E.h.
Safnast saman viö Digranesskóla kl. 13.30,
ganga leggur af stað ki. 14.00 gengið verður
niður Álfhólsveg upp Meltr.öð og inn á
Víghólaskólalóðina að sunnanverðu þar sem
skemmtun fer fram.
Ávarp flytur Rannveig Guðmundsdóttir,
forseti bæjarstjórnar. Kynnir er Sigurður
Lyngdal. Barnakór Kársnes- og Þinghóls-
skóla syngur nokkur lög. Leikbrúðuland
verður á staðnum. Diskótekið Dísa verður til
staðar eftir skemmtiatriðin og sér um fjörið
fyrir krakkana.
Samkór Kópavogs.
Sumarhátíð Félags
harmóníkuunnenda
Félag harmóníkuunnenda stendur fyrir kaffi
og kökuveitingum i Skipholti 70 (húsi
Meistarafélags byggingamanna) sumardag-
inn fyrsta, 21. apríl, kl. 15.30. Börn koma fram
og spila og dansa, auk þess verður fleira til
skemmtunar. Allur ágóði rennur til styrktar
komu norsku harmónikuhljómsveitarinnar
Senja trekkspilklubb hingað til lands í sumar.
Allir velkomnir.
Ferðalög
Ferðafélag íslands
Dagsferðir sumardaginn fyrsta.
1. kl. 10. Gönguferð á Esju. Byrjið sumarið
með gönguferð á Esju.
2. kl. 13. Alfsnes. Létt ganga fyrir alla fjöl-
skylduna.
Verð kr. 150,- í báðar ferðirnar. Farið frá
Umferðarmiðstöðinni, austanmegin. Farmið-
ar við bíl.
Útivistarferðir
Á sumardaginn fyrsta, 21. apríl, verða farnar
tvær dagsferðir.
1. Þyrill—Sildarmannabrekkur, þar sem
finna má sjaldgæfa geislasteina.
2. Hrafnabjörg-Miðsandur, fjöruganga.
Langt verður af stað í báðar ferðirnar kl. 13.00
frá BSI bensínsölu.
Farþegar verða einnig teknir við kirkju-
garðinn í Hafnarfirði.
Verð kr. 200,00 en frítt fyrir börn í fylgd
fullorðinna. Sjáumst.
Tápað - fundið
Læða tapaðist frá
Háaleitisbraut
1 sl. viku tapaðist læða frá Háaleitisbraut 32.
Hún er hvít með svörtum og gulbrúnum
flekkjum með rautt hálsband. Finnandi
vinsamlegast hringi í símá 39164.
Tónleikar
Háskólatónleikar
Átjándu og síðustu tónleikar á starfsárinu
1982—1983 í Norræna húsinu miövikudaginn
20. apríl kl. 12.30.
Á efnisskránni eru verk fyrir klarinett og
slagverk. Flytjendur eru: Kjartan
Oskarsson, klarinett, Reynir Sigurðsson,
slagverk.
Kjartan Oskarsson stundaði nám í klari-
nettuleik hjá Vilhjálmi Guöjónssyni við Tón-
listarskólann í Reykjavík og lauk þaöan
einleikara- og kennaraprófi 1976. Stundaði
síðan nám við Tónlistarháskólann í Vínar-
borg, kennarar hans þar voru Rudolf Jettel og
Peter Schmidl. Kjartan hefur kennt við Tón-
listarskólann í Kópavogi, Franz Scubert Kon-
servatorium í Vín og Royndar tónlistarskól-
anum i Færeyjum.
Reynir Sigurðsson nam við Tónlistarskólann í
Reykjavík í Stokkhólmi. Hann er slagverks-
ieikari Sinfóníuhljómsveitar Islands. Reynir
er kennari við Tónlistarskóla Félags
íslenskra hljómlistarmanna.
Háskólatónleikar eru haldnir í Norræna
húsinu í hádeginu á miðvikudögum. Þeir
hefjast klukkan 12.30 og standa venjulega í 30
til 40 mínútur. Aðgangseyrir er 50,- kr. og 30,-
fyrir námsmenn.
Tónleikar í Hveragerði
á sumardaginn fyrsta
Kór Dómkirkjunnar í Reykjavík heldur tón-
leika í kirkjunni í Hveragerði sumardaginn
fyrstakl. 17.00.
Með kórtónlist eftir Vittoria, Brahms og
Mendelssohn ætlar Kór Dómkirkjunnar að
bjóða sumarið velkomið í Hveragerði
næstkomandi fimmtudag. Einnig mun EU'n
Sigurvinsdóttir syngja einsöng og stjórnandi
kórsins, Marteinn H. Friðriksson, leika á
orgel. Tónleikarnir hefjast kl. 17.00 og er
aögangurókeypis.
Útgáfukonsert
á Borginni
Nk. fimmtudagskvöld verður konsert á Hótel
Borg. Hljómsveitin GRAFlK er þar að verki,
liðsmenn hennar eru örn Jónsson bassi,
RAMO söngur gítar og fleira, Hrafn Jónsson
trommur, Rúnar Þórisson gítar, Vilberg
Viggósson hljómborö. Hljómsveitin mun leika
lög af síðustu hljómplötu sinni og kynna efni
af næstu plötu sem heitir SYN og kemur út á
næstu dögum. Konsertinn stendur yfir frá kl.
21—01 og er aldurstakmark 18 ár.
Tónleikar í
Hlégarði
Næstkomandi fimmtudag, 21. apríl 1983, kl.
20.30 verða haldnir tónleikar á vegum Tón-
listarfélags Mosfellssveitar.
Sigrún Hjálmtýsdóttir sópran syngur við
undirleik Önnu GuðnýjarGuðmundsdóttur.
Efnisskrá er fjölbreytt, létt og skemmtileg
lög og kammerverk eftir Mozart, Schubert,
Schumann, Brahms, Rossini o.fl.
Þetta eru fyrstu tónleikar Sigrúnar síðan
hún hélt utan til náms, en hún er nú á 3. ári við
Guildhall School of Music and Drama í Lon-
don. Hún mun ljúka þaðan burtfararprófi í
júlí 1984. Aðalsöngkennari hennar núna er
Laura Sarti. Áður en Sigrún fór utan stundaði
hún nám við Tónlistarskólann í Reykjavík,
undir handleiðslu Rut L. Magnússon.
Aðgöngumiðar veröa seldir við innganginn
og eru allir velkomnir.
Kvikmyndir
Kvikmyndaklúbbur
Alliance Francaise
sýnir miðvikudaginn 20sta og fimmtudaginn
21sta apríl kl. 20.30 í E-sal Regnbogans,
Hverfisgötu 54 í Reykjavík, myndina 1789:
ljóslifandi sögu Frönsku byltingarinnar.
Tilurð myndarinnar „1789”, sem tekin var
upp i 13 siöustu sýningum samnefnds leikrits í
París í júnímánuði 1973, má rekja til þeirrar
löngunar að varðveita þennan frábæra leik-
listaratburð. Notaðar voru fimm 16 m/m
myndavélar til að mynda þessa miklu leik-
húshátíð. Leikurinn fer fram á nokkrum pöll-
um umhverfis áhorfendur en röðin kemur líka
að þeim og veitist þeim sú ánægja að verða
sjálfir leikarar. Hér er sagt frá, sungið um og
leikin með látbragði Franska byltingin í upp-
höfnu andrúmslofti sameiginlegrar sköpunar.
Leikstjóranum Ariane Mnouchkine (sem líka
ber að þakka „Moliere”) og gamanleikurum
sólarleikhússins hefur tekist vel upp og þau
hafa skapað stórverk, jafnt á sviöi leiklistar
sem kvikmyndagerðar, lifandi kennslustund í
sögu. Fullkominn sjónleikur.
Myndin er í lit og tekur um tvær og hálfa
stund í sýningu.
Allar myndir Kvikmyndaklúbbsins eru
sýndar með enskum skýringartextum.
Nánari upplýsingar er að fá í síma 17621/2
og 23870.
Leiklist
Stúdentaleikhúsið
á sumardaginn fyrsta
Opið hús fyrir böm í Tjarnarbíói frá kl. 15—
18, barnagæsla á staðnum, þ.e.a.s. aðstand-
endur bamanna geta skilið bömin eftir frá kl.
15—18. Aðgangur ókeypis. Allir velkomnir
meðan húsrúm leyfir.
Síðustu forvöð að
sjá Jómfrú Ragnheiði
í Þjóðleikhúsinu
Nú era aðeins tvær sýningar eftir á rómaðri
uppfærslu Þjóðleikhússins á Jómfrú
Ragnheiði, nútímalegri leikgerð Bríetar
Héðinsdóttur á Skálholti Guðmundar
Kamban, og er Bríet jafnframt leikstjóri.
Verður næstsíðasta sýningin að kvöldi
sumardagsins fyrsta, 21. apríl, og síðasta
sýningin verður sunnudagskvöldið 24. apríl og
er það jafnframt 30. sýningin á verkinu.
Jómfrú Ragnheiður var frumsýnd á annan í
jólum og hlaut þá afar góðar viötökur leikhús-
gesta og gagnrýnenda sem hrósuðu verkinu í
hástert og hlaut leikstjórinn Menningarverð-
laun DV fyrir vikið. Tónhstin í sýningunni er
eftir Jón Þórarinsson, Sigurjón Jóhannsson
gerði leikmyndina og teiknaði búninga, David
Walters annaðist lýsinguna. I aðaUilut-
verkunum eru Guðbjörg Thoroddsen, Gunnar
Eyjólfsson, HaUmar Sigurðsson, Kristbjörg
Kjeld, Helga Bachmann, Þóra Friöriksdóttir,
Hjalti Rögnvaldsson, Hákon Waage,
Guðbjörg Þorbjarnardóttir og Árni Tryggva-
son.
Dagskrá helguð
Jónasi Árnasyni
Leikfélag MosfeUssveitar, mennmgarmála-
nefnd MosfeUshrepps og Álafosskórinn gang-
ast í kvöld fyrir dagskrá sem helguð er Jónasi
Arnasyni, rithöfundi og fyrrverandi alþingis-
manni. Skemmtunm verður í Hlégarði og
hefst hún klukkan 21. Leikfélag MosfeUs-
hrepps mun flytja valda kafla úr verkum
Jónasar og Alafosskórinn syngur ljóð hans.
Tilkynningar
Hallgrímskirkja
Náttsöngur verður í kvöld, miðvikudags-
kvöld, kl. 22.00. Nemendur úr tónskóla þjóð-
kirkjunnar flytja orgeltónUst.
Frá Félagi Snæfellinga
og Hnappdæla í Reykjavík
Vegna alþingiskosninganna feUur niður fyrir-
hugað spila- og skemmtikvöld félagsins sem
áttiað vera23. þ.m.
Pólýfónkórinn
Reykjavík
Pólýfónkórinn með kaffisölu á sumardaginn
fyrsta.
Pólýfónkórmn efnir til kaffisölu á Hótel Sögu,
Súlnasal, á sumardagUm fyrsta, fimmtudag-
inn 21. apríl nk. Auk kaffiveitinganna verður
hlutavelta með fjölmörgum ágætisvinning-
um.
Að sjálfsögðu verða einnig skemmtiatriði
við aUra hæfi, kórsöngur, einsöngur, tvísöng-
ur og hljóðfæraleikur.
Meðal þeirra sem þarna koma fram verða:
Ásta Thorstensen alt, Ásdís Gísladóttir
sópran, Elsa Waage sópran, Friðbjöm G.
Jónsson, sem syngur lög Sigfúsar HaUdórs-
sonar við undirleik höfundar, tvær ungar
stúlkur leika og syngja í léttum dúr og Josef
Fung leikur á gítar. Fjölskylda Hjálmtýs
Hjálmtýssonar mun syngja, en dóttirin í fjöl-
skyldunni er betur þekkt undir nafnrnu Diddú.
Þá mun hljómsveitin KOS leika lauflétta tón-
list.
Pólýfónkórmn væntir góðra undirtekta hjá
almenningi eins og aUtaf áður og þakkar
stuðnmg við kórstarfið. EngUin verður svik-
inn af því að drekka sumarkaffið í Súhiasal
Hótel Sögu og njóta fagurrar tónUstar um
leið.
GleðUegt sumar.
80 ára verður á morgun, fimmtudaginn
21. apríl, Helga Jónsdóttir,
Goðheimum 23 Reykjavík. Hún verður
aðheiman.
Sumardagurinn fyrsti:
Tværgöngur
íKópavogi
Samkór Kópavogs hefur umsjón með
hátíðarhöldum sumardagsins fyrsta
þar í bæ á morgun. Safnast verður
saman við Víghólaskóla kl. 10.30 og
gengið niöur Álfhólsveg til skátamessu
í Kópavogskirkju, sem hefst klukkan
11.
Skrúðganga leggur af stað frá Digra-
nesskóla kl. 14, og veröur gengið niöur
Álfhólsveg, upp Meltröð og inn á Víg-
hólaskólalóðina að sunnanverðu. Þar
mun Rannveig Guðmundsdóttir, forseti
bæjarstjórnar, flytja ávarp um kl.
14.30. Barnakórar Kársnesskóla og
Þingholtsskóla munu syngja nokkur
lög, Leikbrúðuland verður með sýn-
ingu og að lokum verður diskótek.
Kynnir verður Sigurður Líndal.
-EA