Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1983, Blaðsíða 5
DV. LAUG ARDAGUR 4. JUNÍ1983.
Kynferðislega brenglaðir menn á Miklatúni:
HANN BAÐ ÞÆR UM AÐ
VEGA SALT VID SIG
— krakkar vari sig á ókunnugum mönnum, segir móðir sem býr við Miklatúnið
„Viö íbúamir erum nú mjög á
varöbergi gagnvart þessum
mönnum og ég veit að það eru
margir sem fylgjast með túninu í
kíki, enda staðreynd að krakkar hér
hafa orðið fyrir áreitni þeirra,”
sagöi móðir, sem býr í námunda við
Miklatúnið, um ferðir kynferðislega
brenglaðra manna um túnið, en eins
og kunnugt er hafa lögreglunni borist
nokkrar kvartanir vegna þeirra á
síðastliðnu ári.
Á föstudagskvöld fyrir viku var
tekinn maður sem áður hefur komið
við sögu í slíkum málum. Stóð hann
þar innan um trén og sýndi á sér kyn-
færin. Það voru nokkrir unglingar,
sem leið áttu fram hjá, sem tilkynntu
ummanninn.
Móöirin, sem við ræddum við
vegna þessara mála, vildi ekki láta
nafns síns getið. Hún á fimm stúlkur
og hafa sumar þeirra orðið fyrir
áreitni þessara manna.
,,Ein stúlknanna var stödd á rólu-
vellinum hér úti á túninu ásamt vin-
konu sinni. Þær voru að róla sér
þegar til þeirra kom maður og bað
þær að vega salt við sig. Stúlkumar
færðu sig yfir á vegasaltið og
byrjuðu að vega salt við manninn, en
skyndilega sáu þær hvar hann var
búinn að opna buxnaklaufina.”
Að sögn móðurinnar er róluvöllur-
inn á Miklatúninu umlukinn trjám og
því oft erfitt að fylgjast meö
krökkum sem þar eru að leika sér.
„Eg tel reyndar að völlurinn sé
nokkurs konar gildra, því aö litlir
krakkar sækja á hann, og þessir
Róluvöllurinn á Miklatúni. Er hann gildra fyrir krakka? Hann er umluktur trjám
og því er erfitt að fylgjast með krökkum sem þar eru að leik. DV-mynd: Þó. G.
menn eru einmitt þar á ferð.
Þá finnst mér vanta betri lýsingu á
Miklatúnið. Eg leyfi krökkunum til
dæmis ekki aö ganga y fir túnið þegar
farið er að skyggja og ég tel að allir
foreldrar ættu að brýna fyrir
krökkunum sínum þá hættu sem get-
ur stafað af því aö tala viö ókunnuga
mennþama.”
Móðirin vildi að lokum taka fram
að hún vonaðist tU að enginn skUdi
orð sín svo að um neyðarástand væri
að ræða, þannig að enginn maður
þyrði að láta sjá sig á túninu án þess
að verða „stimplaður”.
,,Eg vU með þessu fyrst og fremst
ítreka við krakka að vera vör um sig
gagnvart ókunnugum mönnum á
túninu.”
—JGH
BLÚMIN TALA
þau biðja um Pokon blómaáburð
ESJA SF.
REYKJANESBRAUT 12
SÍMI 26020.
Ný sérfargjöld t9
Amsterdani og DusseMorf
einu sinni í uiku!
Við mætum verðbólgu og verðhækkunum með umtalsverð-
um lækkunum - einu sinni i viku á hvorn áfangastað.
Amsterdam
Þriðjudagsferðir +30% af lægsta fargjaldi = 8.581
+50% barnaafsláttur= 4.290
Dilsseldorf
Helgarbrottför +20% af lægsta fargjaldi = 10.096
+50% barnaafsláttur = 5.048
EACiLE ÁlR
« C•II I f
Um sérfargjöldin gildir
eftirfarandi:
• Þú verður að panta og
greiða ferðina með
minnst hálfsmánaðar
fyrirvara.
• Miðanum er ekki hægt
að breyta.
• Ef þú hættirviðferðina
endurgreiðum við
helming af andvirði
hennar.
• Ferðin verður að vera
minnst vikulöng - mest
mánuður.
Kynntu þér nýju sérfargjöldin - og ferðin er hafin
Flugfélag með ferskan blæ
Sarnarflug
Lágmúla 7, sími 84477