Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1983, Side 22
22
DV. LAUGARDAGUR 4. JÚNI1983.
Kvikmyndir________ Kvikmyndir Kvikmyndir Kvikmyndir
Þaö eru ófáir sem kannast viö
nafniö Walt Disney. Þetta nafn hefur
í 55 ár veriö nátengt hugmyndum
fólks um fjölskylduskemmtun, ann-
aðhvort í formi kvikmyndar eða
heimsóknar á útivistarsvæði Disney-
lands. Margt bendir þó til þess aö
kvikmyndir þær sem enn eru fram-
leiddar undir merkjum Walt Disney
hafi efnislega fjarlægst þessar hug-
myndir fólks um „skemmtun fyrir
alla fjölskylduna”. Hver heföi t.d.
látið sér detta í hug fyrir 10—15 árum
aö gera Walt Disney mynd sem væri
bönnuö bömum innan sextán ára
aldurs? Eöa láta söguhetjuna tengj-
ast eiturlyfjasölu eins og gerist í
einni nýjustu myndinni sem Walt
Disney fyrirtækiö hefur sent frá sér
undir heitinu TEX?
Margt bendir til þess að Walt
Disney hafi ekki verið sérlega hug-'
myr.daríkur listamaöur. Aftur á
móti haföi hann þann hæfileika aö
eiga auðvelt meö að stjóma fólki og
laða það besta fram af listrænum
hæfileikum þess. Einnig hafði
Disney mjög ákveönar og fastmótað-
ar skoöanir hvernig æskilegt væri aö
ala ungdóminn upp og byggöi marg-
ar sínar myndir á þessum hugmynd-
um sínum.
Róleg byrjun
Walt Disney reyndi viö margt áöur
en hann lenti á réttri hillu varðandi
ævistarf sitt. I fyrri heimsstyrjöld-
inni keyröi hann m.a. sjúkrabíl en
upp úr 1920 kom hann sér upp vinnu-
aöstööu í Hollywood og fór aö teikna.
I fyrstu geröi hann stuttar teikni-
myndaseríur eins og ALICE IN
CARTOONLAND og OSWALD THE
RABBIT en þaö var ekki fyrr en 1928
aö hann hóf kvikmyndagerö. Á þess-
um ámm skóp Disney ásamt Ub
Iwerk teiknimyndapersónuna Mikka
mús (sem hét að vísu í fyrstu Mort-
imer) ásamt Plútó og Andrési önd.
Þessar persónur birtust á hvíta
tjaldinu í formi stuttra teiknimynda
og urðu fljótlega mjög vinsælar. Um
1926 var jafnvel fariö aö líkja Disney
við þá félaga Chaplin og Eisenstein.
Það var þó ekki fyrr en 1937 aö
mynd frá Walt Disney sló verulega í
gegn. Var þaö teiknimyndin SNOW
WHITE sem er fyrsta teiknimyndin
sem Ðisney gerði í fullri lengd.
Disney var himinlifandi yfir þeim
móttökum sem myndin fékk og
ákvaö að stækka kvikmyndaver sitt
til muna. Einnig fjölgaöi hann teikn-
umm sem unnu við gerð teikni-
mynda hans upp í 1000 manns.
Árangurinn lét heldur ekki á sér
standa og á næstu ámnum 1940—1942
sendi hann frá sér m.a. myndimar
PINOCCHIO (1940), FANTASIA
(1940) ogBAMBI (1942).
Erfiðár
Þótt sagan hafi sýnt að hér var um
aö ræða kvikmyndasöguleg listaverk
þá tapaði Disney þó nokkrum fjár-
munum í upphafi á PINOCCHIO og
FANTASIA meðan BAMBI geröi
ekki meira en aö vinna upp kostn-
aðinn af gerð myndarinnar. Sama
gilti um DUMBO sem Disney fram-
leiddi 1941.
Á stríös- og krepputímum er ekki
óalgengt að kvikmyndahusum f jölgi
til muna. Kvikmyndin er tiltölulega
ódýr skemmtun sem flestir geta látið
eftir sér og einnig er auðvelt aö
gleyma áhyggjum og eymd þegar
sest er inn í sal k vikmyndahússins og
ljósin hafa slokknað. Þetta gerðist í
Bandarikjunum í seinni heimsstyr-
jöldinni og náöi aðsóknin aö kvik-
myndahúsunum hámarki árið 1946.
Andstastt þessu féll niður aösóknin aö
þeim myndum sem Walt Disney
framleiddi sem varö til þess aö kvik-
myndaver hans einbeitti sér aö gerð
heimildar- og áróðursmynda fyrir
bandaríska ríkið.
Það var ekki fyrr en 1950 sem hjól-
in fóru að snúast aftur hjá kvik-
myndaverinu þegar myndin CIND-
ERELLA hlaut mjög góðar viötökur
fáum oröum sagt blómstraöi starf-
semi kvikmyndavers Walt Disneys á
þessum árum.
En árið 1976 gerðist það í fyrsta
sinn I níu ár að tekjur vegna sölu
kvikmynda minnkuðu miöaö við árið
á undan. Sölumenn Disney-kvik-
myndaversins kenndu myndinni
TREASURE OF MATECUMBE um
tekjumissinn en hún var sumarmynd
fyrirtækisins og gekk illa. Þegar
sama þróun hélt áfram næsta ár var
ákveðið aö gera andlitslyftingu á
kvikmyndaverinu og kynna hina
„Nýju Disney-línu”. Ákveöið var aö
reyna að höfða til eldri og breiöari
aldurshóps því aö á sl. tuttugu árum
haföi börnum á aldrinum 5 til 13 ára
fækkaö úr 18,2% niður í 13,6% af
bandarísku þjóöinni. Einnig var texti
myndanna færöur í nútíma form og
því mátti heyra orö og setningar í
þessum „nýju Disneymyndum” sem
voru alger bannorö áöur fyrr.
Stjörnustríð Disneys
Ein fyrsta myndin sem gerö var
eftir þessari nýju línu var PETER’S
DRAGON og FREAKY FRIDAY
sem Barbara Harris og Judy Foster
léku í. Þessar myndir höföu margt
sér til ágætis en náöu aldrei víðtækri
úrbreiöslu. Á sama tíma var ný teg-
und fjölskyldumynda aö koma fram
á sjónarsviðið með stjömustríðs-
myndir George Lucas í fararbroddi.
Disney kvikmyndaveriö ákvaö aö
taka þátt i leiknum og sendi á jóla-
markaðinn 1979 sína dýrustu mynd
sem nefnist THE BLACK HOLE.
Myndin, sem gerist um borð í geim-
skipi úti í himingeimnum, gekk
hvorkivelné illa.
Næst reyndi Disney kvikmynda-
verið að framleiða í samvinnu viö
Paramount kvikmyndaveriö söngva-
og dansmyndina POPEYE og
galdramyndina DRAGONSLAYER
en líkt og áöur varð útkoman ekki
nógu góö. Aöaltekjur Disney kvik-
myndaversins voru fyrir gamlar
myndir sem höföu verið dregnar
fram í dagsljósiö, dustaö af þeim
rykiö og endursýndar. Þannig gekk
THE JUNGLE BOOK vel þegar hún
var endursýnd og átti þetta sérstak-
lega við um Evrópu sem virtist opn-
ari fyrir endursýndum Disney-
myndum.
Óviss framtíð
Sú mynd sem hefur veriö talin einn
besti fulltrúi hinnar „nýju” Walt
Disney línu er líklega TRON, þar
sem söguhetjunum er breytt í raf-
agnir svo þær geti komist óhindrað
inn í heim og vídd tölvunnar. Myndin
hefur hlotiö þokkalegar viðtökur
áhorfenda.
Walt Disney kvikmyndaveriö
hefur þó ekki gleymt eða gefið upp á
bátinn gerö teiknimynda þótt þeim
hafi fækkað mikið á síðari árum.
Aðsóknin að THE RESCUERS, sem
gerö var 1977, slagaöi hátt upp í met-
aðsóknina aö STAR WARS bæöi í
Þýskalandi og Frakklandi. Aö und-
anförnu hefur teiknarahópur kvik-
myndaversins unniö við að fullgera
mynd byggöa á goösögn frá Wales. Á
myndin aö bera heitið THE BLACK
COULDRON og verður frumsýnd ár-
iö 1985. Einnig eru nokkrar stuttar
teiknimyndir á leiðinni og má nena
THE BRAVE LITTLE TOASTER og
BASIL OF BAKERSTREET.
Segja má aö Walt Disney kvik-
myndaveriö standi á líkum tímamót-
um og það geröi eftir síöari heims-
styrjöldina. Þaö getur tekið fyrirtæk-
ið nokkur ár að finna þann hóp áhorf-
enda sem þaö er aö leita eftir. Ein sú
mynd sem Walt Disney kvikmynda-
veriö bindur miklar vonir viö aö geti
gefið vísbendingu hvort þaö sé á
réttri leið eöa ekki er TEX. Hún
verður sett í almenna dreifingu í
sumar og þaö veröur því ekki fyrr en
í haust sem kemur í ljós hvort áhorf-
endum líkar nýja linan frá Disney.
B.H.
Er það þetta sem koma skal? A triöi úr myndinni TRON sem er dæmigerð fyrir nýju h'nuna frá Disney kvik-
myndaverinu.
\'ja línan
frá Disney
Walt Disney kvlkmyndaverid reynir ad adlaga
sig breyttum tínium
hjá áhorfendum. A næstu árum gekk
framleiðsla kvikmyndaversins nokk-
uð vel, ekki síst ef haft er í huga að á
þessum tíma kom sjónvarpið fram á
sjónarsviðið sem beinn keppinautur
kvikmyndahúsanna. Nú haföi dæmið
hins vegar snúist viö. Meðan aörir
kvikmyndaframleiðendur sáu fram
á þverrandi aösókn aö myndum sín-
um fóru áhorfendur aftur aö streyma
í kvikmyndahúsin til að sjá Walt
Disney myndir.
Ný stefna tekin
En Walt Disney komst fljótlega aö
því aö bæði var of dýrt aö framleiöa
teiknimyndir í fullri lengd og svo aö
áhugi almennings á teiknimyndum
virtist á þessum tíma vera mjög tak-
markaður. Eftir aö hafa stórtapaö
á myndinni Sleeping Beauty
reyndi Disney fyrir sér meö gerð
leikinna mynda á borð við POLLY-
ANNA (1960) og DARBY O’GILL
AND THE LITTLE PEOPLE (1959).
Þótt mikiö væri lagt í þessar myndir
þá varö uppskeran heldur rýr. En á
sama tíma sendi Disney frá sér tvær
myndir í léttum dúr sem lítiö var
Ein af fyrstu teiknimyndum i fullri lengd sem Disney gerði var Mjallhvit
og dvergarnir sjö.
lagt í. Þetta voru myndimar THE
ABSENTMINDED PROFESSOR og
THE SHAGGY DOG sem varð önnur
söluhæsta myndin í Bandaríkjunum
áriö 1959. Þarna haföi WALT
DESNEY fundið töfraformúlu sem
hann átti eftir aö nota óspart næstu
árin. Aö vísu framleiddi kvikmynda-
verið rándýrar myndir sem voru
settar á markaðinn um jólin en uppi-
staöan var gamanmyndir sem voru
umfram allt einfaldar og ódýrar í
framleiöslu.
Segja má aö tvennt hafi aðallega
orsakað þessar vinsældir mynda
Disney. A þessum tíma höfðu hin
kvikmyndaverin misst að miklu leyti
áhugann á að framleiöa myndir sem
gætu höfðaö til allrar f jölskyldunnar.
Samtímis jókst mjög hratt sá fjöldi
bama sem kominn var á „kvik-
myndahúsaaldurinn” því gífurleg
fólksfjölgun hafði orðið í Bandaríkj-
unum upp úr stríðinu eöa á árunum
1946-1953.
Sömu stefnu haldið
Hin orsökin var að öfugt viö önnur
kvikmyndaver notfæröi Disney sér
sjónvarpiö í stað þess aö loka augun-
um fyrir tilvist þess eöa ber jast gegn
því. Hann geröi myndir fyrir sjón-
varp er fjölluðu um framleiðslu kvik-
myndavers hans og einnig fékk nafn
hans góða auglýsingu í sjónvarpi
gegnum allar stuttu teiknimyndirnar
sem hann seldi sjónvarpinu sýning-
arréttinn á.
Þótt Walt Disney félli frá áriö 1966
hélt kvikmyndaverið áfram á sömu
braut og hann haföi markað. Ein-
hver hugvitssamur handritahöfund-
ur kom fram með tillögu um að gera
kvikmynd um lítinn fólksvagn sem
væri gæddur mannlegu eðli. Þannig
varö til myndin THE LOVE BUG
sem varð söluhæsta myndin 1969. I
Myndin The Absent minded
Professor markaði timamót hjá
Disney kvikmyndaverinu 1961.