Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1983, Page 26

Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1983, Page 26
26 DV. LAUGARDAGUR 4. JUNÍ 1983. Bæknru^ bríkasöinun XXIII: Tímamót Vlðeyjar- prentsmiðju Enn um rit Bessastaðaskóla I lok síðustu greinar var getið hinna árlegu rita Bessastaðaskóla, sem fyrst hófu útkomu árið 1828 og nefndust fram til 1840 „Skólahátíð”, en síöan til 1846 „Boðsrit”. Lang- mestur og um leið merkastur hluti þessa ritflokks voru fylgiritin um ýmis efni, samin eða saman tekin af kennurum skólans, sem allir voru í hópi lærðustu manna landsins á sín- um sviöum. Sveinbjörn Egilsson Einn hinn þekktasti þeirra og án efa afkastamesti viö fræði- og út- gáfustörf var Sveinbjörn Egilsson (1791—1852). Eru engin tökáaðgera þeim málum skil hér, en látið nægja að vísa til skrár „Fiskesafns” I, bls. 122, og æviminningar um S.E. eftir Jón Árnason í „Merkir Islendingar”, II. Rvík 1947. Kemur þar ljóslega fram, hvílíkan afburða fræðimann hér hefur verið um aö ræða, og þekk- ing hans á fornmálunum, grísku og latínu, slík aö tæplega yröi við jafn- að. Var og vel staðið að menntun hans allt frá barnæsku, og kemur þar Magnús Stephensen enn viö sögu, þar sem S.E. var komið til hans í íóbtur 10 ára gömlum til uppeldis og forsjár. Odysseifs drápa Verður nú aftur vikiö að ritum Bessastaðaskóla, en þar lagöi Svein- björn Egilsson til stærsta skerfinn með útgáfum sínum. Var hin lang- mesta þeirra þýöing hans úr grísku á Odysseifs drápu Hómers, sem út kom á skólahátíðunum 1829—30,1835 og 1838—40. Þrjú önnur smærri rit gaf S.E. út á sama vettvangi, „Olafs drápu Tryggvasonar”, 1832, „Brotaf Placidus-drápu”, 1833, og „Fjögur gömul kvæði”, 1844, en öll voru rit þessi prentuö í Viðey eins og ártölin gefatilkynna. Björn Gunnlaugsson og Hallgrímur Scheving Tveir aðrir af kennurum Bessa- staöaskóla stóðu einnig að umrædd- um ritum. Var annar þeirra Björn Gunnlaugsson (1788—1876), stærð- fræðikennari, sem þekktastur er sem brautryðjandi hér á landi í land- mælingum og kortagerð. Komu út eftir hann sex rit, hið fyrsta „Nockr- ar einfaldar reglur til að útreikna túnglsins gáng”, 1828. Verða önnur ekki nefnd hér, utan hið sérstæða rit „Njóla eöur auðveld skoðun himins- ins meö þar af fljótandi hugleiöing- um um hátign Guðs og alheims áformið, eða hans tilgáng meö heim- inn”. Kom þetta heimspekirit út árið 1842 og var aö því leyti óvenjulegt, aö þaö var í bundnu máli, alls 518 erindi, en auk þess skýringar. Þriðji kennarinn, sem lagði efni í ársrit Bessastaðaskóla, var Hall- grímur Scheving (1781—1861), alls þrjú, hiö síðasta „Islenskir máls- hættir” árið 1843. Kom framhald þeirra út í Reykjavík árið 1847 sem fylgirit með skýrslu „Hins læröa skóla” yfir skólaárið 1846—47. Dregurað leiðarlokum með Magnúsi Stephensen Ekki verður annað séð en nú hafi verið getiö flestra helztu rita, er gef- in voru út í Viðey í umsjá Magnúsar Stephensen, en auk þess ýmissa, er þar voru prentuö síðar. M. St. hefur einnig sjálfur komið mikiö viö sögu, en þó aðeins i sambandi við bókaút- gáfuna og málefni tengd henni. Vant- ar þó mikið á, að þeim hafi verið gerð æskileg skil, en á því hefur ekki gef- izt frekari kostur í þessum stuttu yfirlitum. Slíkar upplýsingar er hins- vegar að finna í mörgum ritum og eru því nokkur þeirra upp talin í lok þessarar greinar. Augljóst er af ýmsum slíkum heimildum, að M.St. hefur yfirleitt ekki veriö vinsæll maður meðal alþýöu manna, enda þótt ýmsum rita hans hafi verið vel tekiö. Viröist svo sem hinn einkenni- legi ritháttur hans og hin óviðfelldna meöferð á íslenzku máli hafi líkað miður, en þó ekki síður einræði hans í vali og útgáfu prentaðs máls hér á landi, sem var að heita algert um 40 ára skeið. Varð Magnús af þessum og öörum tilefnum fyrir miklum óþægindum og raunar andstreymi, sem slíkur metnaðar- og kapps- maöur átti erfitt með að þola. Spunn- ust af þeim sökum margvíslegar deilur, sem ollu honum sárra von- brigða, einkum er á leið. Ummæli Halldórs Hermannssonar Um þetta fjallar Halldór Her- mannsson nokkuð í Islandica, Vol. XI, Ithaca, N.Y. 1918, en efni þess heftis er „The periodical literature of Iceland down to the year 1874”. Var upphafið þýtt af Hallgrími Hall- grímssyni, bókaverði við Lands- bókasafn Islands, og birt í „Helga- felli”, IV. árg., Rvík 1946 (október), undir heitinu „Fyrstu íslenzku tíma- ritin”. Fer vel á, aö þessum þætti ljúki með stuttum kafla úr þeirri rit- gerö, en þá hafði áður verið gerð grein fyrir hinum ýmsu tímaritum M.St.: „Meö þessum tímaritum lauk hinni löngu og viröingarverðu út- gáfustarfsemi Magnúsar Stephen- sen. 1826 var ráðizt á hann í dönskum blöðum fyrir stjórn hans á Lands- uppfræðingarfélaginu, og brátt tóku landar hans einnig þátt í árásunum. Þetta leiddi til rannsóknar, sem lauk með þeim úrskurði, að félagið væri hætt störfum og Viðeyjarprent- smiðja væri opinber eign, sem skyldi háð eftirliti stjórnarinnar. Hún var þó leigð Magnúsi Stephensen, og rak hann hana til dauöadags 1833. Vegna alls þessa voru síöustu ár hans beiskju blandin. Hann var án efa oft hlutdrægur og ráðríkur og æsti menn upp gegn sér og málstað sínum. Hann hafði lagt alla sína elju og miklu þekkingu í þjónustu ættjarðar sinnar, en fannst það einatt vera lítils metið. Áhrif hans voru aðeins t'l bráðabirgða, en það var sjálfs hans sök. Hann vildi veita nýjum straum- um inn í líf þjóöarinnar, en hann gerði sér ekki Ijóst, að það gat því að- eins borið árangur, aö þeir væru í samræmi við menningu hennar og erföir. Þetta skildist Magnúsi ekki fremur en mörgum öðrum 18. aldar mönnum. Störf hans sköpuöu því engan varanlegan grundvöll, er andlegt líf þjóðarinnar gæti þróazt á í framtíðinni. Samt sem áður mun hans jafnan verða minnzt sem eins Bödvar Kvaran skrffar um bækur og bókasöfnun af mikilmennum landsins. Þó hann byggði ekki upp, þá ruddi hann að minnsta kosti brautina og opnaði ný útsýni.” Stiftsyfirvöld koma til skjalanna Eins og fram kemur hér að framan hafði oröið sú breyting á með kon- ungsúrskurði þ. 28. september 1831, að Magnús Stephensen skyldi af- henda stiftsyfirvöldum Viðeyjar- prentverk ásamt öðrum eigum Landsuppfræðingarfélagsins. Var jafnframt ákveðið, að hinir nýju um- ráðaaðilar prentverksins gerðu ráö- stafanir til áframhaldandi starfsemi með útvegun húsnæðis, enda lagt til nauðsynlegt fé til þeirra aögeröa. Hinsvegar urðu úrslit málsins þau, aö M.St. var leigð prentsmiðjan til 5 ára, þó með vissum skilyrðum, er betur en áður tryggöu rétt manna og aðstöðu til afnota af prentsmiðjunni. M.St. bjó þó ekki lengi við þá ný- skipan, því hann lést hinn 17. marz 1833. Prentverkið leigt Ólafi Stephensen Stiftsyfirvöldin seldu nú syni Magnúsar Stephensen, Olafi „sekretera” Stephensen, prent- smiðjuna á leigu til 10 ára frá 1834 til 1844 og verður ekki annað séð en að verulegur kraftur hafi verið í starf- seminni á því tímabili. Fyrrnefnt viðurnefni mun O.St. hafa fengiö af starfi sínu sem ritari í Landsyfirrétt- inum á árunum 1826—34, en eftir það gegndi hann ekki slíku föstu emb- ætti, en bjó búi sínu í Viðey samfellt frá 1834 til æviloka 1872. Hefur hann því augljóslega haft betri aðstööu til að hafa umsjón með prentsmiðjunni og hinum útgefnu ritum en hinn störfum hlaðni faðir hans, og kann það því að vera að nokkru skýring á meiri umsvifum en áður. Aukin útgáfustarfsemi Hefur fyrr komið fram, að prentuð hafi verið alls um 75 rit á dögum M.St. í Viðey og því að meöaltali rúmlega fimm á ári. Ovarlegt væri hinsvegar aö slá fram slíkri tölu yfir síöara timabilið án allrækilegrar rannsóknar, sem ég hefi ekki haft spurnir af, aö gerð hafi verið. Telja veröur þó líklegt, að hér sé ekki um að ræða undir 100 bækur og bæklinga og hefði þá árlegt meöaltal veriö 10 eða allt að helmingi hærra en áður. Ber aö vona aö niöurstaða fáist í þessum efnum um síðir. Viðeyjarbiblía og fyrri útgáfur Enginn vafi er á, að trúmálarit eru enn stærsti bókaflokkurinn, og má vænta, að þau hafi verið rúmlega 50 talsins. Hafa sum þeirra þegar verið nefnd í endurútgáfum eldri prent- ana, en mjög mikið var um að slík rit væru prentuð að nýju, og þá væntan- lega farið saman vinsældir ritsins, takmarkað upplag hverju sinni og hagur útgefanda af nýtingu eldra prentsáturs. Eru ekki tök á að nefna önnur hér en Biblíuna, sem kom út 1841, og þar talin á titilblaði útgefin í fimmta sinn. I raun var þó um 6. útg. að ræða þar sem áður höfðu komiö út á íslenzku Guðbrandsbiblía 1584, Þorláksbiblía 1637, en einnig með titilblaði lokaprentársins 1644, Steinsbiblía 1728, Biblia útg. í Kaup- mannahöfn 1747, oft nefnd Waysen- húsbiblía eftir prentsmiðjunni, og Biblía útg. í Kaupmannahöfn 1813, einnig oft nefnd Harmagrútsbiblía eða Grútarbiblía vegna misprentun- ar á orðinu harmagrátur. Er þá komið að þeirri útgáfu, sem hér um ræöir, hinni sjöttu, en tvær komu síöar á 19. öldinni, í Reykjavík 1859 og í London 1866. Fjör færist í rímnaútgáfur Annar bókaflokkur færöist nú nokkuð í aukana, en það voru rím- urnar. Magnúsi Stephensen hafði lítið þótt til þeirra koma og í sam- ræmi við það voru nær engar rímur prentaðar meðan hann réð ríkjum í bókaútgáfu hér á landi. I Hrappsey höföu verið prentaðar 9 rímur, en í Leirárgörðum aðeins ein, „Rímur af Gissuri jarli”, árið 1800, og á Beiti- stöðum engin. Sömu stefnu var hald- ið í Viöey á dögum M.St., þar var að- eins ein rímnaprentun, endurútgáfa á „Eitt æfintýri, er kallast Jóhönnu raunir” og áður var prentaö í Hrappsey 1784, en nú aö nýju 1829. Á þessu verður veruleg breyting á um- sjónarárum Ölafs Stephensen, en á því tímabili voru útgefnar í Viðey 13 rímur, þar af sex eftir hið mikla rímnaskáld Sigurð Breiðfjörð (1798—1846). Er lítill vafi á, að meginástæðan hefur verið, hve ljóða- gerð þessi, sem talin er hafa átt upp- tök sín hér á landi á 14. öld, hefur enn verið vinsæl meö þjóðinni og sala slíkra rita því trygg. Rímurnar láta undan síga Um þessar mundir voru hinsvegar aö koma fram ný viöhorf, sem smám saman ollu fráhvarfi frá rímum. Má segja, aö upphaf þeirra hafi veriö gagnrýni Fjölnismanna, sem m.a. kom fram í hinni hvössu ádeilu Jónasar Hallgrímssonar á „Rímur af Tristani og Indíönu” eftir Sigurö Breiðfjörð, Kaupmannahöfn 1831, sem birtist í 3ja árgangi Fjölnis, Kh. 1836. Verða þessi mál hér ekki frekar rædd, en bent á stutt en glöggt yfirlit um ágreining S.B. og Fjölnismanna í inngangi að þriðju útgáfu „Núma- rímna”, Rvík 1937, eftir Sveinbjörn Sigurjónsson. Ekki veröur þó dregiö í efa, að mestu hefur valdiö um breyttan smekk almennings, að nú voru að koma fram á sjónarsviöiö ýms af okkar fremstu ljóðskáldum og hafa rímurnar lítt þótt standast þann samanburð. Heimildir um Magnús Stephensen: a) Agnar Klemens Jónsson. Lög- fræðingatal. Rvík 1963, bls. 443— 447. b) Autobiographia drs. Magnúsar Stephensens (Brot). I „Tímariti Hins íslenzka bókmenntafélags”, 9. árg. 1888, bls. 197—268. Sama í „Merkir Islendingar”, II., Rvík 1947, bls. 66-137. c) Jón Sigurðsson. Ágrip af æfi Magnúsar Stephensens. I „Nýj- um félagsritum”, 6. árg., K.höfn 1846, bls. V-XIV. d) Ferðarolla Magnúsar Stephen- sen. Rvík 1962. e) Þorkell Jóhannesson. I „Skírni”, 107. árg., Rvík 1933, bls. 166-193. I „Andvara”, 69. árg., Rvík 1944, bls. 44-65. f) Jón Jónsson (Aðils). Dagrenn- ing, Rvík 1910, bls. 69—96. Böðvar Kvaran.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.