Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1983, Side 29

Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1983, Side 29
DV. LAUGARDAGUR 4. JUNI1983. fallegan reit "a e4. Kóngsriddari Petrosjans er hins vegar álappalega staösettur, en nú bætir hann úr þvi. 15.—Rg8! 16.0—0—0 Re7 17.f5 Re4 18. Df3 Rc6! Eftir uppskipti á riddurum er allur máttur úr hvítu stöðunni. Eftirlifandi riddari svarts á e4 er sterkari en hvíti biskupinn. 19. Rxc6 Dxc6 20.Bd4 Freistandi var að hindra langa hrókun með 20.Bh4, en svartur hefði svarað með 20.—exf5! og hótað 21,— Dh6+ sem vinnur biskupinn. 20. —0—0—021.h4Kb8 Petrosjan byggir nú stöðu sína upp í rólegheitum. Hvítur kemst ekkert á- leiðis á kóngsvæng og verður að láta sér vel líka að bíða átekta. 22.Hh2 Hd7 23.Kbl Hc8 24.Dd3 Hdc7 25.HÍ1 Dd7 26.Hf3 Da4 27.Ddl Hc4 28. Hd3Da529.h5 Hótar engu, því að h6 má ávallt svara með —g6. Peðið hefði því mátt vera kyrrt á sínum stað því að nú myndast „hola” á g5 sem Petrosjan reynir strax að hertaka. En hvítur var orðinn leiður á biðinni eins og svo margir mótherjar Petrosjans. 29. —Db5 30.Hb3 Hótunin var 30.—Hxd4! 31.Hxd4 Rc3+ o.s.frv. 30. —Dd7 31.Hf3 Dd8 32.Hd3 Dc7 33.HÍ3 f6(?) Lítur ágætlega út því að hrókurinn á h2 er valdlaus. En nú opnast staðan og hvítur nær andanum. Rétta áætlunin er fólgin í framrás peðanna á drottningarvæng, en hún krefst ræki- legs undirbúnings og er auk þess bund- in nokkurri áhættu. 34.fxe6 fxe5 35.Bgl Dd6 36.HÍ7 H4c7 37. He2? Rétt er 37.e7! því að eftir 37.—Hxe7 38. Hxe7 Dxe7 39.Dxd5 er hvíta staðan vænlegri. Eftir textaleikinn missir hvítur peð en honum verður til bjargar að svartur kemur peðum sínum ekki á hreyfingu. 37.—Dxe6 38.Hxc7 Hxc7 39.Bh2 g6 40. Dd3 Kb7 Hér fór skákin í bið. Petrosjan taldi stööuna vera jafntefli, en hvítur þarf þó aö gæta að sér. 41. hxg6 hxg6 42.DÍ3 Hf7 43.Dg2 Ka6! ? Leikið eftir langa umhugsun. Nú virðist 44.c4 liggja beint við en Petrosjan hafði ákveðiö framhald í huga sem hann taldi mjög sterkt. Engu að síður... 44.c4! Dc645.cxd5Dc4! Nú gengur hvorki 46.D né Hxe4 vegna 46—Hfl+ og vinnur og 46.Bxe5 er svarað með 46.—Hfl+! 47.Dxfl Rd2+ 48.Hxd2 Dxfl+. Hvítur á einn leik sem heldur í horfinu, Petrosjan sást yfir hann. 46. Hel! Dd3+ Petrosjan bauð jafntefli áður en hann lék og ég samþykkti eftir að hafa séð leikinn. I fyrstu vildi hann ekkert við það kannast að hafa boðið jafntefli, því að enn þarf hvítur aö vanda sig. 47. Dc2?? tapar auövitað vegna 47.— Rd2+ 48.Kcl Hc7! 49.Dxc7 Rb3 mát og 47. Kal er svarað óþægilega með 47.— Rd2 og ekki gengur þá 48.De2 vegna 48, —Rb3+ 49.Ka2 Rcl+ o.s.frv. Best er 47.Ka2! Dxd5+ 48.Kal Hc7! 48.De2+ b5 50.Hdl Dc6 51.Bxe5 og taflið leysist upp í jafntefli. 29 Storlr strákar fá raflost og fiisi ti■« waú m.M. U% Á meðan stórir strákar fá raflost og Sísi fríkar út verðum við sem borgum skattana og gerum heiðar- legar tilraunir til að lifa á loftinu að una 13% kjaraskerðingu og má nú fara að búast við að ýmislegt falli í gjalddaga og kannski verðum við að segja upp Morgunblaöinu af því að við getum ekki hætt að vera áskrif- endur að útflutningsbótum og tap- rekstri á togurum. Eg varð fyrir því óláni um daginn að lesa stjórnarsáttmála þeirra manna sem kalla sig ríkisstjóm og vegna þess að ég var alinn upp á hafragraut svo að ég yrði stór og sterkur skildi ég næsta fátt af því sem ég las en fékk það þó á tilfinn- inguna aö þaö ætti að bjarga þjóöfé- lagi á þann hátt aö þeir verst settu yrðu best settir og er þetta í sam- ræmi við kenningar biblíunnar um- himnaríki sem hefur komið upp úti- búi við Austurvöll og var ekki seinna vænna. Það er dálítið undarlegt að eftir allt talið um svartnætti íslensks efna- hagslífs og aflabrest skuli sólin enn vera að buröast við að skína en hún hlýtur þó að fara að hætta því í Garöabænum og á Laufásveginum. En það er ekki í okkar verkahring að hugsa um þessa hluti heldur mann- anna með lyklana sem eru rauðir og bláir samkvæmt fréttum dagblað- anna og þeirrar náttúru að það er hægt að opna með þeim ráðuneyti af því að það hefur engum dottið í hug að setja eldspýtu í skráargatið eins og nemendur gera þegar þeir eru búnir að fá leiða á landafræði eða reikningi. Við sem eigum ekki ráðuneytis- skráargat og höfum ekki efni á þvi aö kaupa okkur eldspýtur en erum búin aöfá lífstíöarleiða á reikningi náum í hamar og nagla og neglum bréfalúg- una okkar kirfilega aftur og biðjum póstinn vinsamlegast að setja nótur héðan í frá beint í öskutunnuna en léttu umslögin sem innihalda launin okkar með vísitölubótunum á milli stafs og hurðar því að það skiptir okkur ekki nokkru máli hvenær eða hvert þau fjúka. En mitt í öllu þessu volæði gefur ríkisstjórnin út bráðabirgöalög um lækkun tekjuskatts sem nemur þremur krónum og áttatíu og f jórum aurum á dag og við verðum svo fegin að það léttir svo þungu fargi af okkur að það liggur nærri að við tökum undir með henni Sísí sem fríkar út daglega og stundum tvisvar á dag og virðist aldrei ætla að verða búin að þessu. Sumar Sumarið er komið, a.m.k. í Breið- holtinu, og sonur minn þriggja ára spyr mig daglega hvort ég sé hrædd- ur við flugur en ég er ekkert hræddur við flugurnar nema þær sem menn fá stundum í höfuðiö og hann vill þá fá að vita hvort það séu stingflugur því að einhver álíka vitur og hann hefur talið honum trúumaðþærséu hættu- legar, jafnvel hættulegri en ríkis- stjómir og sexmannanefndir sem hafa þó sem betur fer ekki vængi frekar en kýrnar. Þessi ágæti sonur minn þykist ekki vera hræddur viö flugur og kemur stundum með þær til mín og leyfir mér að skoða þær, hann kom með eina um daginn sem viö nánari at- Háaloftið Benedikt Axelsson c hugun reyndist vera rúgbrauð og áður en hann vissi hvað þetta var í raun og veru fannst honum það mik- ið afreksverk hjá sér að hafa ekki orðið hræddur við brauðmolann og sló í því efni föður sinum við sem var forðum daga alveg ógurlega hræddur við sláturtunnur sem geymdar voru í dimmum kjallara og hann hélt aö væru draugar. Á æskuárunum er ímyndunaraflið næstum því ótakmarkað og ég man eftir því aö þegar við frændi minn einn vorum í sveit í gamla daga fór- um við í útreiðartúr á hverjum sunnudegi og vorum ekki fyrr komn- ir út fyrir túngarðinn en viö vorum orðnir Roy Rogers og Lone Ranger og drápum hvor annan svo oft með vísifingri hægri handar að önnur eins fjöldamorð hafa ekki þekkst í gjörv- allri mannkynssögunni. Þegar líða tók á haustið og farið var að skyggja urðum við undan- tekningarlaust myrkfælnari en al- mennt gerist og jafnframt fljótari að hlaupa en aðrir menn því að við vor- um alltaf að flýja draugana sem voru stöðugt á hælunum á okkur þótt þeir næðu okkur sem betur fer aldrei. Eitt sinn munaöi þó litlu. Á bænum var kirkja og síðsumarskvöld nokk- urt þegar við vorum að reka heim kýmar sáum við mann standa við kirkjugarðinn og hann ropaði svo ferlega að það var engu líkara en þessi búkhljóð byrjuðu í skeifugöm- inni og enduðu ekki fyrr en úti á Kistu. Við gripum auðvitað til þess eina ráðs sem við kunnum í þessum efn- um, hlupum sem fætur toguðu heim í bæ og svo var asinn mikill á okkur að við hlupum í sameiningu önamu okk- ar um koll þar sem hún var að skúra bæjargöngin og átti sér einskis ills von. Auðvitaö var draugurinn vinnu- jakki sem hengdur hafði verið til þerris og ropinn hafði komið frá rjúpugreyi sem hefur örugglega ekki haft neitt illt í huga þegar hún flaug upgundan klaufum kúnna. Nú eru engir draugar til lengur nema vísitöludraugurinn sem fitnar eins og púkinn á fjósbitanum og gagnvart honum dugir ekki nokkum skapaðan hlut að taka til fótanna hversu hratt sem menn gætu annars hlaupiö. Og því miður er hann eins og Sísí, honum ætlar aldrei að takast að fríka almennilega út. Kveðja Ben.Ax.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.