Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1983, Qupperneq 48
73090
SENDIBÍLASTÖÐ
KÓPAVOGS
auglýsingar
jLÉ \jLL SÍÐUMÚLA 33
SAAÁAUGLÝSINGAR —AFGREIÐSLA
SKRIFSTOFUR
ÞVERHOLTI 11
Símsvari á kvöldin
og um helgar
86611
RITSTJORN
SÍÐUMÚLA 12—14
Björn Sigurðsson við Star Castle
tölvuspilið, en samkvæmt bestu
heimildum setti hann heimsmet á
tækið á dögunum, 2 milljónir og 200
þúsund stig.
D V-m ynd Einar Ólason
19ára
fjölbrautaskólanemi:
Setti heims-
metí
tölvuspili.
„Ég náöi stigatölunni 2 milljónir og
220 þúsund í þessu spili og samkvæmt
bók um tölvuspil er þetta heimsmet,”
sagöi Bjöm Sigurðsson, 19 ára gamall
f jölbrautaskólanemi, í samtali viö DV.
Heimsmetið setti Björn á dögunum í
leiktækjasalnum Tralla á Skúlagötu.
Spiliö sem Björn er heimsmeistari í
nefnist „Star Castle”, en Bjöm hefur
sett met í mörgum tölvuspilanna í leik-
tækjasalnum Tralla.
„Samkvæmt bók um tölvuspil sem
gefin er út á þessu ári var heimsmetið
2 milljónir og þúsund stig þannig að ég
hef slegið þaö met vel ríflega. Aftur á
móti gæti einhver annar hafa sett met
eftir aö bókin kom út,” sagöi Björn.
Björn sagöi aö hann heföi mikiö
spilað tölvuspil síöustu tvo mánuði,
nánast mætt daglega til leiks. Bjöm
stundar nám viö Fjölbrautaskólann í
Breiöholti og er þar á bóknámssviði,
eölisfræðibraut; en vinnur í sumar hjá
Sparisjóöi Reykjavíkur og nágrennis.
á.
LOKI
Þeir eru þá ekki sam-
viskulausir á lögreglu-
stöðinni.
Bráð-
kvaddur
undirstýri
Maður varö bráökvaddur í bíl sínum
á Alftanesveginum rétt fyrir klukkan
átta í gærmorgun, föstudagsmorgun.
Hann var á ferö ásamt eiginkonu sinni
er hann lést. Bíll þeirra fór út af vegin-
um en engin slys uröu vegna þess.
-JGH.
BANNAÐI SPEGILLINN
GEFINN ÚT AFTUR
Lögreglan handtók í gær sölumenn
sem hugðust selja eintök af blaöi sem
nefnt var Samviska þjóöarinnar —
Spegillinn í gær og lagði hald á þau
eintök sem þeir höfðu undir höndum.
Úlfar Þormóðsson er útgefandi
blaösins sem er í dagblaösbroti og
inniheldur nákvæmlega sama efni og
þaö tölublað Spegilsins sem lögreglan
lagöi hald á að kröfu ríkissaksóknara á
mánudag.
Olfar Þormóösson boðaði blaöamenn
á sinn fund kl. 4 í gær og tilkynnti aö
— lögreglan handtók tvo sölumenn
2000 eintök af Samvisku þjóöarinnar —
Speglinum hefðu veriö prentuð og
sölumenn væru aö fara af staö meö
blaðið. Úlfar fylgdi síöan blaöinu úr
hlaöi meö stuttri ræöu af þaki húss
Kamabæjar viö Austurstræti og sagöi:
„Viö gefum þetta út til þess að gefa
fólki kost á að dæma sjálft.” Skoraöi
hann síöan á fjölmarga vegfarendur í
Austurstræti aö kaupa blaöiö og lesa
það vandlega áöur en þaö kvæði upp
sinn dóm. „Verið fljót aö kaupa blaöiö
áöur en lögreglan kemur.”
Tíu mínútum síðar renndi lögreglu-
bifreiö inn í Austurstræti og tóku
lögreglumenn eitt eintak af Samvisku
þjóðarinnar — Speglinum 1 sínar
vörslur. . Ræddu lögreglumenn við
sölumenn og tóku niöur nöfn þeirra og
heimilisföng. Eftir aö hafa ráögast viö
yfirmenn sína handtóku þeir tvo
sölumenn.
Er lögreglumenn hugðust fara meö
hina handteknu í burtu varnaði hópur
fólks þeim brottfarar. Lagöist einn
maöur í veg fyrir bifreiöina. Lögreglu-
menn stugguðu þá viö hópnum og var
einn maöur handtekinn.
Um 20—30 manns seldu Samvisku
þjóðarinnar — Spegilinn í gær og var
ekki annaö að sjá en salan gengi vel.
Lögreglan yfirheyrði sölumennina tvo
en að lokinni yfirheyrslu var þeim
sleppt. Hald var lagt á þrjú eintök af
Samvisku þjóöarinnar — Speglinum
sem þeirhöfðu undirhöndum.
-ÁS.
Á myndinni til hliðar býður sölumaður Samvisku þjóðarinnar til sölu en á
stóru myndinni er hann leiddur á brott af lögregluþjónum.
DV-myndir: EÓ og S.
Oska eftir
flóttafólki
frá Póllandi
— til vinnu í Hraðf rystihúsi Patreksfjarðar
Oskað hefur verið eftir því viö
ríkisstjórnina að hún veiti 20 pólsk-
um flóttamönnum landvistarleyfi
hér á landi. Beiðnin kemur frá
Hraðfrystihúsi Patreksfjaröar.
Aö sögn Jóns Kristinssonar, for-
stjóra hraðfrystihússins, stendur
mannekla fyrirtækinu mjög fyrir
þrifum. Erfiölega hefur gengið aö fá
aökomufólk í vinnu en ástralskar og
danskar stúlkur hafa þó unniö á Pat-
reksfirði um tíma undanfarin ár. Jón
sagöi aö hagkvæmast væri aö fá fólk
sem vildi setjast að á staðnum og því
hef öi verið leitaö eftir landvistarleyf i
fyrir 20 pólska flóttamenn, og þá ein-
göngu kvenfólk, til vinnu í hraö-
frystihúsinu.
Jón sagðist fyrst hafa rætt þetta
mál viö Steingrím Hermannsson, þá-
verandi sjávarútvegsráðherra, og
niðurstaöan heföi veriö aö sótt yröi
formlega um atvinnuleyfi fyrir
flóttafólkið til félagsmálaráðuneytis-
ins. I gær haföi umsóknin ekki borist
til ráðuneytisins og ríkisstjómin
hefur enga afstööu tekið í málinu.
-ÖEF.
1
Ók nýja bfínum sínum
réttindalaus út af
Lögreglan á Isafirði tók þrjá pilta
um klukkan fjögur í gærdag eftir að
þeir höfðu ekið Ladafólksbil út af veg-
inum í Dagverðardal viö Isaf jörð.
Piltarnir eru ailir sextán ára og því
án ökuréttinda. Einn þeirra mun hafa
keypt bílinn fyrir um viku.
Að sögn lögreglunnar á Isafirði lenti
bíllinn um einn og hálfan metra frá
veginum og út í mýri. Hann mun vera
lítið skemmdur.
Piltarnir sluppu allir án meiösla.
-JGH.