Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.1983, Síða 1
Kraftaverk
—segir móðir Iftillar stúlku sem bjargað
var frá drukknun
„Þetta var kraftaverk,” sagöi
Þóra Helgadóttir, húsfreyja aö Aðal-
bóli í Aðaldal. Áfimmtudagskvöldiðí
fyrri viku bjargaði hún dóttur sinni
frá drukknun í bæjarlæknum.
Telpan heitir Kristín Dögg Hösk-
uldsdóttir og er þriggja ára síöan í
desember. Faðir hennar er Höskuld-
ur Þráinsson, bóndi að Aðalbóli.
Kristín Dögg var úti að leika sér á
fimmtudagskvöldið með öðrum
bömum. Klukkan rúmlega tíu komu
hin bömin inn en Kristín Dögg var
ekki með þeim. Hófst þá leit. Fyrst
var leitaö í hesthúsunum við bæinn
þar sem bömin léku sér oft. Þegar
Kristín Dögg fannst ekki þar gekk
móðir hennar hins vegar niður að
bæjarlæknum. Þar sem hún kom að
læknum lá litla stúlkan á botninum.
Móðir hennar sagðist ekki vita
hvemig á því stóö að henni var geng-
ið niöur aö læknum á nákvæmlega
þessum stað. Börnin lékju sér aldrei
viö lækinn. Kraftaverk var orðið sem
hún notaöi til að lýsa þessari hend-
ingu.
Stúlkan litla lá á töluverðu dýpi í
læknum og þurfti móðir hennar að
vaöa upp undir hendur til þess aö ná
henni upp. Það tókst giftusamlega.
Þegar hún var að vaða í land með
bamið í fanginu bar að tvo pilta.
Þetta vom þeir Bjami, bróðir
Kristínar Daggar og Holgeir Her-
mannsson. Þeir höfðu verið á æfingu
með Hjálparsveit skáta í Aðaldal.
Hafði Bjarni ekki ætlað sér að koma
heim þetta kvöld. En fyrir einhverja
mildi gerði hann það og bar að á ná-
kvæmlega réttum tíma. Hann og fé-
lagi hans hófu þegar blásturs-
tilraunir og héldu þeim áfram þar til
lögregla og sjúkralið komu á vett-
vang. Var Kristín Dögg þá farin að
ranka við sér. Bjarni sagðist hafa
lært blástursaðferðina þegar hann
var í 8. bekk í Hafralækjarskóla og
lesið sér síðar til í bókum umhana.
Litla stúlkan var flutt á sjúkra-
húsið á Húsavík þar sem læknir og
hjúkrunarliö beið hennar. Móðir
hennar vildi koma sérstöku þakklæti
til allra á sjúkrahúsinu, svo og bíl-
stjóra sjúkrabilsins, fyrir þeirra þátt
í þessari einstæðu björgun.
Kristín Dögg er við hestaheilsu og
hin hressasta. Fær hún að fara heim
í dag, að öllum Iíkindum.
DS/IM, Húsavik.
— sjá bls. 3
|
187 sttmtgar
á tveim dögum
— sjá Veiðivon
bls.2
Aöstoöar-
maöurfjár-
málaráöherra
— sjábls. 11
RaHogtor-
færukeppni
— sjá bls.
29og30
Þóra Helgadóttir og Kriatín
Dögg Höskuldsdóttir.
Myndin var tekin á sjúkra-
húsinu á Húsavík þar sem
Kristín Dögg hefur verid
sídan slysid vard. Á hinni
myndinni er Bjarni, bródir
Kristínar Daggar. Hann
vard 17 ára á föstudaginn,
daginn eftir að hann bjarg-
aði lífi systur sinnar.
DV myndir Ingibjörg
Magnúsdóttir.
Pólska stjórnin:
VARAR KIRKJUNA VID ÖLLU ANDÓFI
— sjá erl.fr. bls.8og9
ÁSA-
TRÚAR-
MENN
BLÓTA
GOÐIN