Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.1983, Blaðsíða 40
40
DV. MÁNUDAGUR 20. JUNl 1983.
Andlát
Halldóra H. Valdimarsdóttlr lést 8.
júní sl. Hún fæddist á Raufarhöfn 9.
maí 1930. Ung aö árum fluttist hún til
Reykjavíkur. Hún gekk í Ljósmæöra-
skólann og útskrifaðist þaðan voriö
1950. Eftirlifandi maöur hennar er
Guömundur Halldórsson. Þau eignuð-
ust sex böm. Sl. 10 ár starfaöi Halldóra
sem ljósmóðir á Landspítalanum þar
af átta ár á vökudeild barnaspítala
Hringsins. Utför hennar veröur gerö
fráBústaðakirkjuídagkl. 15.
Gísli Loftsson leturgrafari lést 13. júní
sl. Hann fæddist í Reykjavík 29.
september 1928. Foreldrar hans voru
Loftur Guömundsson og Stefanía E.
Grímsdóttir. GísU fór tU náms í letur-
greftri til Kaupmannahafnar, og vann
aö iön sinni til dauðadags. Gísli vartví-
kvæntur. Með fyrri konu sinni, Nínu F.
Hansen, átti hann tvær dætur. Þau
slitu samvistum. Meö seinni konu
sinni, Þorbjörgu Jósefsdóttur, átti
hann tvö börn. Einnig gekk hann í
föðurstað Steen Johanssyni, syni Þor-
bjargar. Gísli og Þorbjörg slitu sam-
vistum. Utför Gísla var gerð frá
Dómkirkjunni í morgun kl. 10.30.
Margrét Þórðardóttir, Birkilundi 15
Akureyri, veröur jarðsungin frá Akur-
eyrarkirkju 21. júní kl. 13.30.
Sigríður Loftsdóttir, Garðabæ Grinda-
vík, veröur jarðsungin frá Grinda-
víkurkirkju þriðjudaginn 21. júní kl.
14.
Rannveig Ásgeirsdóttir frá Látrum,
Aðalvík, er lést 13. þ.m., verður jarð-
sungin frá Fossvogskirkju þriðjudag-
inn21. júní kl. 15.
Steinþór Ingvarsson, Ásgarði 157,
verður jarðsunginn frá Fossvogs-
kirkju mánudaginn 20. júní kl. 13.30.
Anna Bjarnadóttir frá Fáskrúðsfirði
andaðist 25. maí á Vífilsstöðum. Jarð-
arförin hefur fariö fram í kyrrþey að
ósk hinnar látnu.
7 videoleigur
á höfuðborgarsvæðinu.
EUROCARD
TIL DAGLEGRA NOTA
um helgina um helgina
HVAR VAR FJALLKARLINN?
Þetta var löng helgi. En ekki
leiðinleg. Utvarp og sjónvarp með
besta móti og þá er ekki hægt aö láta
sérleiðast.
Á sjálfan lýöveldisdaginn var
mjög áheyrilegur þáttur í útvarpinu,
þar sem Sturla Sigurjónsson fjallaði
um fánatökuna á Reykjavíkurhöfn
1913. Var fróölegt að hlusta á Sturla
og gaman, eftir að þættinum lauk, að
velta fyrir sér gildi fánatökunnar í
sjálfstæöisbaráttu þjóðarinnar. Þótt
hann hafi e.t.v. verið lítill hefur
atburðurinn táknrænt gildi, sem síst
skyldi vanmetiö. En svona eiga út-
varpsþættir að vera, skilja við hlust-
andann hugsandi undir feldi.
Þá kom röðin að útvarpi frá
hátíðarhöldunum. Þaö var vel til
fundið að hafa útvarpsmenn stað-
setta hér og þar um miðbæinn, lýs-
andi því sem fyrir augu og eyru bar.
Hins vegar fannst mér erfitt að
fylgjast með því hvað var að gerast
og hafði á tilfinningunni að svo væri
um fleiri hlustendur. Alla vega var
kunningi minn ekki betur með á nót-
unum en svo að þegar götuleikhúsiö
fór á stúfana og hvellhettur og flug-
eldar byrjuöu að springa og fólkið að
æpa og kalla hélt hann aö hafin væri
bylting. Þetta form á dagskrá frá
-hátíðarhöldunum hefði hentað mun
betur fyrir sjónvarp. Inni á milli
voru þó góðir kaflar, eins og t.d.
pistill Einars Kárasonar um hvað
væri einkennandi fyrir Islendinga.
Ekki var það gestrisnin og ekki
heldur bókhneigðin. Ö-nei, heldur
voru þaö drykkjusiðirnir. Fyndinn
var Einar og hefði pistill hans
gjaman mátt vera lengri.
Helga Tómasson horfði ég á meö
öðru auganu því af ballett hef ég lítt
gaman, en opnaði hins vegar hitt
augað er Fjalla-Eyvindur birtist á
skjánum. Sígild kvikmynd og mætti
gjaman vera sýnd einu sinni á ári.
Jafnveloftar.
Lýðveldisdeginum lauk svo meö
komu Náttfara frá Akureyri.
Þægilegur þáttur sem Gestur Einar
Jónasson stjómaði.
Eitt fannst mér vanta í hátíðar-
höldin á föstudag, en það var fjall-
karlinn. Finnst mér ekki annaö hægt
nú á öld jafnréttis en að við kynbræð-
umir fáum fjallkarl til að vega upp á
móti fjallkonunni.
Á laugardagskvöldiö hóf göngu
sína í sjónvarpi nýr flokkur sem
Susan Harris hefur skrifað. Ekki list
mér jafnvel á hann og Lööur, enda
mun hin nýi flokkur vera skrifaöur í
alvöru. Hann virðist þó ekki verri en
aðrar bandarískar sápur.
Á laugardag var þáttur í útvarpi
um David Bowie (Jones), sem
Sigmar B. Hauksson hafði tekið
saman. Sigmar fékk Ásgeir Tómas-
son til sín í útvarpssal og saman
spjölluöu þeir um Bowie og feril
hans. Inni á milli lék Sigmar síöan
lög Bowie, sem hvað mestum
vinsældum hafa náð. Þetta var
áheyrilegur þáttur, og tek ég ofan
hattinn fyrir Sigmari.
Að endingu er rétt að þakka Jóni
Múla fyrir þætti sína um sögu jassins
sem eru á sunnudagskvöldum. Jón
Múli þekkir sitt fag og það fer alltaf
ákaflega vel á því að enda helgina
við Ijúfa tóna jassins.
Sveinn Agnarsson.
Marta Kristmundsdóttir, Heiöargerði
6, lést á gjörgæsludeild Landspítalans
fimmtudaginn 9. júní. Utför hennar
hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinn-
ar látnu.
Ágúst A. Snæbjörnsson fyrrv. skip-
stjóri, Dalbraut 25, lést í Borgarspítal-
anum 15. júní.
Valgeir Bjömsson, fyrrverandi hafn-
arstjóri, lést í Landspítalanum aðfara-
nótt 16. júní.
Þorsteinn Snorrason, Eskifirði, er
látinn.
Lúðvik Ottó Guðjónsson, Hverfisgötu
66A, andaöist 7. þ.m. Jarðarförin hefur
farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Olafur R. Einarsson menntaskóla-
kennari, Þverbrekku 2, verður jarð-
sunginn frá Fossvogskirkju miðviku-
daginn 22. júní nk. kl. 13.30.
Jón E. Ragnarsson hæstaréttarlög-
maður veröur jarðsunginn frá
Dómkirkjunni í Reykjavík þriðjudag-
inn21. júníkl. 13.30.
Jón Kr. Jónsson, Ránargötu 24, veröur
jarðsunginn frá Fossvogskirkju
þriöjudaginn 21. júní kl. 13.30.
Ferðalög
Breiðfirðingafélagið
í Reykjavík
Sumarferö veröur aö þessu sinni farin í
Þórsmörk, föstudaginn 8. júlí kl. 20.00. Fariö
veröur frá Umferöarmiöstööinni. Allar
nánari upplýsingar gefur stjórn félagsins.
Útivistarferðir
Símsvari: 14606.
Sumarleyfisferð nr. 1.
Við Djúp og Drangajökul. Jónsmessuferð
23.-26. júni. Fuglaparadísin Æðey. Kaldalón
og Möngufoss. Drangajökulsganga ef vill.
Góð gisting.
Styttriferðir:
Sumarferð 1983 tU Vestmannaeyja: 25,—26.
(laugard.—sunnud.).
Áætlun: Lagt af stað frá Fríkirkjunni stund-
víslega kl. 11.00 árdegis 25. júní og ekið til
Þorlákshafnar og siglt með Herjólfi kl. 12.30
tU Vestmannaeyja.
Þar tekur Páll Helgason á móti þátttak-
endum og annast framhaldið, þ.e.a.s. sér
fyrir gistingu, skoðunarferðum og máltíð.
Heimleiðis verður haldið með Herjólfi kl.
14.00 26. júní og i Þorlákshöfn bíður rúta og
flytur farþega í bæinn.
Innifalið í miðaverði er: farmiði Reykjavík
— Vestmannaeyjar — Reykjavík, gisting,
skoðunarferð, skoðun náttúrugripasafns og
ein máltíö.
Verð miða er kr. 1.450,00 ATH: Miðafjöldi
er takmarkaður. Kaupið því miða strax.
Nánari upplýsingar í símum 33454, 32872 og
43465.
Rangæingafélagið
í Reykjavík
efnir til skemmtiferðar laugardaginn 25, júní
nk. Brottfór veröur frá Umferöarmiöstööinni
kl. 8.00. Farið veröur í Þjórsárdal, um
virkjanasvæöi Búrfells, til Sultartanga og
Hrauneyjafoss. Virkjanirnar veröa skoðaðar
meö kunnugum leiösögumanni. Komiö verður
að Laugalandi í boöi kvenfélaga Asa- Holta-
og Landhreppa. Skráning og upplýsingar í
símum 76238 og 83792.
Stjórnin.
Frá Húsmæðraorlofi
Kópavogs
Orlofið verður á Laugarvatni vikuna 27. júní
— 3. júlí. Tekið verður á móti innritun og
greiðslum miðvikudaginn 15. júní milli kl. 16
og 18 í Félagsheimili Kópavogs.
Nánari upplýsingar veittar í síma 40576
Katrír., 40689 Helga og 45568 Friðbjörg.
Orlofsdvöl húsmæðra
í Garðabæ
verður á Laugarvatni vikuna 11.—17. júlí.
Nánari upplýsingar gefur Kolbrún Lorange i
sima 42526 eftir kl. 19.30 á kvöldin.
Heimsókn forseta
tilVestfjarða
hefst á morgun
Heimsókn forseta Islands, Vigdísar
Finnbogadóttur, til Vestfjaröa hefst á
morgun. Forsetinn mun heimsækja
Barðastrandarsýslur og Isafjaröar-
sýslur. Áætlaö er aö feröinni ljúki
sunnudaginn 26. júní.
Á hádegi á morgun mun forseti koma
aö sýslumörkum Austur-Baröa-
strandarsýslu í Gilsfjarðarbotni þar
sem Stefán Skarphéöinsson, sýslu-
maöur Baröstrendinga, tekur á móti
henni. Síðan veröur boröhald í
Bjarkarlundi í boöi sýslunefndarinnar.
Síöar um daginn veröur Þörunga-
vinnslan á Reykhólum skoöuö, komiö
verður viö í Flatey og um kvöldið
verður borðhald á vegum sýslunefndar
Austur-Baröastrandarsýslu.
-ÓEF.
Happdrætti
Almanakshappdrætti
Landsamtakanna
Þroskahjálpar
Dregið var 15. þ.m. Upp kom númer 77238.
Osóttir vinningar á árinu eru í janúar 574,
apríl 554269, maí 68441. Osóttir vinningar á
árinu 1982: Sept. 101286, október 113159,
nóvember 127803, desember 137171.
Læknar
Frá skrif stofu
borgarlæknis:
Farsóttir í Reykjavíkurumdæmi í apríl-
mánuði 1983, samkvæmt skýrslum 22 lækna.
Inflúensa 1006, lungnabólga 85, kvef, kverka-
bólga, lungnakvef o.fl. 1134, streptókokka-
hálsbólga, skarlatssótt 52, kíghósti 8,
hlaupabóla 50, mislingar 1, rauðir hundar 1,
hettusótt 39, iðrakvef og niðurgangur 117.
Tilkynningar
Vilt þú vera með
í f riðarhópi?
Eins og konur minnast eflaust var stofnuð
friðarhreyfing íslenskra kvenna hinn 27. maí
sl. Nokkrum dögum síðar hittust fáeinar
konur sem voru á stofnfundinum til að ræða
um stofnun friðarhópa. Nú er það ætlun
þeirra að hittast aftur hinn 20. júní kl. 17 i
Norræna húsinu til þess að halda umræðum
áfram. Þær konur sem hafa áhuga á að stofna
friðarhópa eru meira en velkomnar. Verk-
efnin eru næg ef áhuginn er fyrir hendi.
Klarinett
í Norræna húsinu
Þriðjudaginn 21. júní nk. heldur bandaríski
klarinettleikarinn Margot Leverett tónleika í
Norræna húsinu. Anna Guöný Guðmunds-
dóttir píanóleikari leikur með á tónleikunum
sem hefjast kl. 20.30.
Efnisskrá tónleikanna er mjög fjölbreytt,
en leikin verða tónverk eftir Schumann,
Poulenc, Bernstein, Rachmaniov, Stravinsky
og Áskel Másson. Margot Leverett lék verk
Áskels, Bilk, nýlega í Bloomington Indiana og
vakti við það tækifæri mikla athygli fyrir leik
sinn.
Hún hefur leikið m.a. á hátíðunum New
Music America og New Music Chicago, í sjón-
varp og fyrír Radio Nova og Radio Paris í
Frakklandi, auk þess sem hún hefur haldið
einleikstónleika í París, Chicago og
Bioomington.
Margot Leverett hefur frumflutt allmörg
tónverk ýmissa höfunda og frumflutti m.a.
nýlega tvö verk sem samin voru sérstaklega
fyrir hana; Four pieces for solo clarinet eftir
David Franck og Kickin’ Around the
Cayahoga eftir Paul Sturm. Hún hefur starfað
náið með tónskáldum og jafnvel samið tónlist
sjálf, m.a. rafverkið Secretary Music, haldið
fyrirlestra og námskeið um nýja tækni á
klarinett og leikið og kennt, aðaUega í
Bloommgton og Chicago.
Skíðaráð Reykjavíkur
Störf Skíðaráðs Reykjavíkur hafa tekið
nokkrum breytingum og starfsemi þess
aukist verulega á þessu starfsári.
SKRR réð héraðsþjálfara bæði í alpagrein-
um og göngu. Aðalhéraðsþjálfari var ráðrnn
Tómas Jónsson sem þjálfaði héraðsUðið í
aplagreinum og Halldór Matthíasson var
ráðinn í hlutastarf við þjálfun gönguliðsins.
Allt fremsta skiðafólk héraðsins sótti æfingar
hjá héraösþjálfurunum.
SKRR tók upp breytt fyrirkomulag við veit-
ingu Reykjavíkurmeistaratitils í alpa-
greinum. Aður var sérstakt Reykjavíkur-
meistaramót og Reykjavíkurmeistarar í
svigi, stórsvigi og alpatvíkeppni í hverjum
flokki en nú telst sá keppandi í hverjum flokki
Reykjavíkurmeistari, sem bestum árangri
nær í héraðsmótum á árinu. Ford umboðið
Sveinn EgUsson og Sindrasmiðjan gáfu
verðlaunagripi tU Reykjavikurmeistara.
Reykjavíkurmeistarar 1983 urðu eftirtaldir:
í alpagreinum: Karlar: Tryggvi
Þorsteinsson, Armanni. Konur: Guðrún
Bjömsdóttir, Víkingi. 15—16 ára: Drengir:
Gunnar Smárason, IR. Stúlkur: Bryndís Yr
Viggósdóttir, KR. 13—14 ára: Drengir:
Sveinn Rúnarsson, KR. Stúlkur: Snædis
Ulriksdóttir, Armanni. 11—12 ára: Drengir:
EgiU I. Jónsson, IR. Stúlkur: Auður
Amardóttir, IR. 9—10 ára: Drengir: GísU
Reynisson, IR. Stúlkur: Valdís Amardóttir,
IR. 8 ára og yngri: Drengir: Kristján
Kristjánsson, KR. Stúlkur: Theodóra
Mathiesen, KR.
Igöngu:
3 X10 km boðganga karla: C-sveit SR.
30 km karlar: Riíbert Gimnarsson, SR.. 15
km karlar: Ingólfur Jónsson, SR. 5 km konur:
Guðbjörg Haraldsdóttir, SR. 5 km 17—19 ára
stúlkur: Rannveig Helgadóttir, SR. 8 km 15—
16 ára drengir: Garöar Sigurðtson, SR. 5 km
!'-! ára drengir: Einar Kristjánsson, SR. 2,5
km 11—12 ára drengir: Sveinn Matthíasson,
SR.
Sú nýbreytni var tekin upp við verðlauna-
veitingu í héraðinu að verðlaun til keppenda
voru aukin. Tekið er nú meira mið af fjölda
keppenda í hverjum flokki og við verðlauna-
veitingu skal miða við að 30% af ræstum
keppendum hljóti verðlaun eða aðra sérstaka
viðurkenningu fyrir góðar. árangur.
Firmakeppni SKRR fór fram 1. maí sl.
Eftirtalin fyrírtæki hlutu verðlaun:
1. Lúkasverkstæðið, 2. Blikkver hf., 3.
Satúrnus hf., 4. Þingvallaleið hf., 5.
Rakarastofan Fígaró., 6. Vatnsvirkinn, 7.
Skíðalyftumar í Bláfjöllum, 8. Verslunin
Jónsval, 9. Einar S. Einarsson múrara-
meistari, 10. Toyota umboðið, 11. Daihatsu
umboðið, 12. Skátabúðin.
Toppmenn í toppformi,
en hvar eru Bringuhárin?
Nýlega hefur nafni hljómsveitarinnar
Bringuhárin veriö breytt yfir í Toppmenn
vegna misskilnings sem gætti um tónlistar-
lega stefnu hljómsveitarinnar. Toppmenn eru
nú komnir út í sumarhitann til þess að halda
uppi svakalegu stuði á dansleikjum
sumarsins. Hljómsveitina skipa allt
þaulreyndir hljómlistarmenn: Hafþór
Hafsteinsson trommur, Hannes Hilmarsson
bassi, Jón Olafsson hljómborð og söngur og
Stefán Hjörleifsson gítar og söngur. Sími
umboðsmanns er 79559.
Grafík- og Ijósmyndir frá
Grænlandi í anddyri NH
Sett hefur verið upp í anddyri Norræna
hússins sýning á grafíkmyndum og ljós-
myndum eftir Aka Heegh og Ivars Silis.
Sýningin kemur hingað frá Færeyjum en
Norræna húsið sendi hana þangað sem
framlag Norræna hússins til Norðurlanda-
hússins í Færeyjum og hefur hún farið víðs
vegar um eyjamar.
Aka Hoegh sýnir 23 grafíkmyndir og Ivars
Silis 22 ljósmyndir.
Aka Heegh er fædd 1947 á Grænlandi,
málari, myndhöggvari, en þó einkum
grafíker. Hún sótti tíma við Listaháskólann í
Kaupmannahöfn en er að mestu leyti sjálf-
menntuð. Hún hefur haldið einkasýningar á
Grænlandi og í Danmörku. og tekið þátt í
samsýningum, m.a. í Norræna húsinu á
Grænlandsvikunni 1976 og á sýningunni
„Land mannanna” 1980. Aka Heegh sýndi nú i
maimánuði í Gallerí 20 i Kaupmannahöfn og
hlaut hún mikið lof gagnrýnenda fyrir myndir
sínar og vora henni veitt Emst Goldschmidts-
verðlaunin að upphæð 5000 dkr.
Ivars Sllis er fæddur 1940 í Riga, Lettlandi,
en ólst upp í Danmörku. Fór þaðan til
Grænlands til að vinna að verkfræðistörfum.
Lagði þau störf á hilluna og lagði af stað með
hundasleða, byssu og myndavél og slóst í för
með bjamdýraskyttum grænlenskum. Hann'
hefur ferðast árum saman um norðurheim-
skautssvæðið og þaulþekkir það. Myndir hans
hafa birst í mörgum þekktum tímaritum s.s.
National Geographic Magazine, Stem og
GEO. Hann hefur sjálfur skrifað bækur með
frásögnum og ljósmyndum af ferðum sínum.
TO Bridge
Sumarbridge
50 pör mættu til leiks á þriöja
sumarkvöldi í Domus Medica sl.
miðvikudag. Spilaö var í fjórum riðl-
um og urðu úrslit þessi:
A) stig
Auðunn Guðmundss.-Sigtryggur Slgurðss. 265
Þóra Ölafsdóttir-Véný Viðarsdóttir 25
Ámi Magnúss.-Björa Theódórss. 232
AldaHansen-NannaÁgústsdóttir 228
B) Stig
BjömHalldórss.-JónÚlfljótss. 189
Kristmann Guðmundss-Sigfús Þórðars. 179
Guðrún Halldórss.-Guörún Einarsdóttir 176
Birgir Isleiíss.-Karl Stefánss. 17
C) Stig
Gestur Jónsson-Sverrir Kristinss. 141
Sveinn Sigurgeirss.-Tryggvi Gislason 130
Bragi Erlendsson-Rikharður Steinbergss. 129
D) Stig
Friðrik Guðmundsson-Hreinn Hreinss. 135
Hrálfur Hjaltason-Jónas F. Erlingss. 128
Kristján Blöndal-Valgarð Blöndal 124
Meðalskor í A: 210, í B: 156, í C og
D: 108.
Efstir eftir 3 kvöld í Sumarbridge
eru: * Stig
SigtryggurSigurðsson 8,5
Hrönn Hauksdóttir 6
Böðvar Magnússon 6
Gylfi Baldursson 6
Sigurður B. Þorsteinsson 6
Alls hafa 57 spilarar þegar hlotið
stig í Sumarbridge, en samtals hafa
keppendur verið um 300 það sem af er
(3kvöld).
Spilað verður að venju nk. fimmtu-
dag og hefst spiiamennska upp úr sjö,
en í síðasta lagi kl. 19.30. Aliir vel-
komnir meðan húsrúm leyfir.
Bridgedeild
Skagfirðinga
Þriðjudaginn 14. júní var spilaöur
tvímenningur í tveim 10 para riölum.
Bestuskorhlutu:
A-riðill Stig
1. Karolína Sveinsd.-Sveinn Sveinss. 119
2. Agnar Ivarss.-Guðmundur Kr. Sig. 115
3. BaldurÁrnason-SveinnSigurgeirss. 111
4. Guðlaugur Sveinsson-
Guðmundur Thorsteinsson 110
B-riðilI Stig
1. Hulda Hjálmarsd.-
Þórarinn Andrcwss. 127
2. Hjáimar Pálsson-Þórarinn Áraason 124
3. -4. Guðrún Hlnriksdóttir-Jón Andréssonlll
3.—4. Sigrún Pétursdóttir-Öli Andreass. 111
Næst verður spilaö þriðjudaginn 21.
júní klukkan 19.30 stundvíslega. Nýir
spilarar velkomnir.