Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.1983, Qupperneq 22

Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.1983, Qupperneq 22
22 DV. MÁNUDAGUR 20. JUNl 1983. íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþré Socrates fer ekki til Roma Sá orðrómur kvisaðist út í Sviss, eftir landsleik Svisslendinga og Brasilíumanna á föstudaginn, að Socrates, fyrirliði brasilíska lands- liðsins, væri á förum til italska liðsins Roma. Tino Viola, framkvæmdastjóri Roma, var staddur í Basel til að ræða við Socrates. Eftir að Socrates haföi rætt viö forráöa- menn Roma í sex klukkustundir sagði hann aö dæmið hefði ekki gengið upp. — Ég mun ekki ræða frekar við forráðamenn Roma, sagði Socrates, sem sagði síðan að ekkert annað ítalskt félag heföi haft samband viö hann. -sos Socrates — sést hér á fullri ferð í landsleik gegn Rússum. Brasilíumenn voru heppnir að leggja Svisslendinga að velli 2-1 íBasel Þaö er óhætt að segja að Brasilíu- menn hafi haldið flugeldasýningu síðustu 15 minúturnar í landsleik þeirra gegn Svisslendingum í Basel á laugardaginn. 60 þús. áhorfendur sáu þá gera út um ieikinn á loka- Eindhoven vann forseta- bikarinn Hollenska félagið Eindhoven vann sigur í hinni árlegu forseta- knattspyrnukeppni í S-Kóreu þegar félagið vann sigur, 3—2, yfir landsliði S-Kóreu í úrslitaleik keppninnar, sem fór fram í Seoul í gær. Jurrie Koolhof (2) og Hallvar Thoresen skoruðu mörk Elnd- hoven. Landslið Ghana vann sigur, 5—0, yfir ólympíuliöi Bandaríkjanna í keppninni um þriðja sætið. -SOS mínútunum eftir að Svisslending- ar höfðu haft yfirhöndina — komist í 1—0 á 33. mín og átt síðan þrumu- skot sem hafnaði í stönginni á marki Brasilíumanna. Þegar 20 mín. voru til leiksloka náði Socrates að jafna, 1—1, úr vítaspymu sem hann fiskaöi sjálfur. Við jöfnunarmarkið vökn- uðu Brasilíumenn til lífsins og hófu þeir geysilega skothríð á mark Svisslendinga. Þegar þrjár mín. voru til leiksloka bar sú skothríð árangur. Það var Carera sem skoraði sigurmark Brasilíu (2—1) meö skoti af sex metra færi, með skalia. Það var Egli sem skoraöi mark Sviss á 33. mín úr vítaspymu og síðan átti Claudio Sulser þrumu- skot í stöng á marki Brasilíu á 41. mín. Heppnin var ekki með Sviss- lendingum því að á síðustu sek. leiksins átti Egli skalla sem rétt strauk marksúluna á marki Brasilíumanna sem máttu hrósa happi að fara meö sigur af hólmi. -SOS I . Johan Cruyff. Mikið áfall fyrir áhangendur Ajax —að Johan Cruyff skyldi ákveða að fara til Feyenoord Áhangendur Ajax urðu fyrir gífurlegu áfalli þegar Johan Cruyff ákvað að ganga til liðs við erki- fjenduraa Feyenoord. Eins og DV sagði frá fyrir helgi þá skrifaði Cruyff undir eins árs samning við Feyenoord. Þessum félagaskiptum hefur verið likt við að leikmaður hjá Rangers færi til Celtic. 1 Skot- landi væru þannig félagaskipti talin glæpsamleg. Cruyff var aðalmaðurinn á bak við sigur Ajax í holiensku meist- arakeppninni og bikarkeppninni sl. vetur. — „Eg hef veriö mjög hamingjusamur hjá Ajax og þakklátur fyrir að hafa fengið tækifæri til að leika með félaginu. Nú er ég farinn frá Ajax og því mun ég reyna hvað ég get með Feyenoord til að taka meistaratitil- inn frá Ajax,” sagði Cruyff. Cruyff hafði upp á vasann tíu tilboð frá félögum í Evrópu en hann ákvað eftir mikla umhugsun að vera áfram í Hollandi. — „Það tók mig langan tíma aö taka ákvörðun um hvað ég ætti að gera. Fjölskylda mín haföi mest að segja í þessu sambandi. Eg gat ekki hugsað mér að fara að rífa hana enn einu sinni upp og halda frá Hollandi,” sagði Cruyff, sem hefur áður leikiö á Spáni og í Bandaríkj- unum — með Barcelona og Los Angeles Azrecs. „Þetta verður síðasta keppnis- tímabil mitt sem knattspyrnu- maður. Eg mun leggja skóna á hiliuna eftir næsta keppnis- tímabil,” sagði Cruyff, sem er 36 ára. -SOS íþróttir íþróttir íþróttir UEFA refsar Möltubúum — vegna skrílsláta áhorfenda ílandsleik Möltu og Spánar Aganefnd Knattspyrausambands Evrópu, UEFA, hefur eim refsað Möltubúum vegna óláta á knattspyrnu- leik á Möltu. Eins og menn muna voru Möltubúar dæmdir árið 1982 i tveggja leikja leikbann á heimaveili og þurfti tsland þess vegna að leika gegn þeim á Sikiley á ttaliu. Aganefnd UEFA kvað upp þann úrskurð á fundi sínum í Bera i Sviss á laugardaginn að Möltubúar yrðu að leika næsta landsleik sinn án þess að áhorfendur fengju að vera viðstaddir. Astæöan fyrir þessu er að upp úr sauð í Evrópuleik Möltu og Spánar á dögunum. Þá köstuðu áhorfendur steinum í leikmenn spánska liðsins og gerðu aðsúg að dómara leiksins. Einnig töfðu boltadrengír leikinn af ásettu ráði. Knattspyrnusamband Möltu var þá sektaö um kr. 6.500 (íslenskar). Pólverjar fá refsingu Aganefnd UEFA refsaði emmg pólska liðinu Widzow Lodz. Félagiö má ekki leika næstu tvo leiki sina í Evrópukeppni á heimavelli og verða leikirnir aö fara fram í 250 km f jarlægð frá Lodz. Ástæðan fyrir þessu er að áhorfandi kastaði flösku í höfuöið á öðrum línuverðinum í leik Lodz gegn Juventus. Þá voru tveir leikmenn Lodz dæmdir í eins leiks keppnisbann í Evrópu- keppni.þeirGreboszogSwiatek. -SOS Meszöly fær nýtt starf Kalman Meszöiy, landsliðsþjálfari Ungverjalands, sem sagði starfi sinu lausu eftir aö Ungverjar töpuðu fyrir Dönum, 1—3, í Kaupmannahöfn, hefur fengið nýtt starf. Hann hefur verið ráðinn þjálfari 1. deildarliðsins Vasas frá Búdapest. -SOS Frankfurt sagði-Nei! — við tilboði Hamburger íKóreumanninn Cha Forráðamenn Frankfurt komu heldur betur á óvart um helgina þegar þeir neituðu að samþykkja samning þann sem Hamburger hafði boðið félaginu i sambandi við kaupin á S- Kóreumanninum Bum-Kun Cha. Forráðamennirnir sögðu að Hamburger hefði ekki boöið það verð sem Frankfurt vildi fá fyrir Cha — þ.e.a.s. ellefumillj. ísl. króna. — Við gefum Hamburger tækifæri til að endurskoða tiiboð sitt sagði einn af forráðamönnum Frankfurt. Eins og DV sagði frá fyrir helgina áttu árslaun Cha hjá Hamburger að vera fjórar milljónir sem geröu hann að tekjuhæsta knattspymumanni V- Þýskalands. -SOS íþróttir íþrótt KJUKLINGAR eru sérgrein okkar, nammi, namm. Franskar Kartöflur sósa og salöt Komiö á staöinn, eða hringið á undan ykkur og pantið í síma 29117 Þá er maturinn tilbúinn þegar þiö komið Veríð velkomin SOUTHERN FRIED CHICKEN Kjúklingastaðurinn í Tryggvagötu Svangir sækja Svörtu Pönnuna SvARTA PANNAN Hraórétta veitingastaóur íhjartaborgarínnar .^. O ahomi Tryggvagötu og Pósthússtrætis Sími 16480

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.