Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.1983, Side 2
2
DV. MÁNUDAGUR 20. JUN! 1983.
Þverá, Kjarrá:
Stórganga kom í ána fyrir nokkrum dögum
— og f iskurinn farinn að veiðast
Margir stangveiðimenn hafa rennt
fyrir lax í Kjarrá og Þverá. En Kjarrá
kemur úr vötnum á Tvídægru, Kvísla-
vatni og Langavatni og ýmsum fleiri.
Fellur hún í Kjarrárdal. I ömólfsdal
eru að henni nær óslitin gljúfur og heit-
ir þar um skeiö ömólfsdalsá. Eftir aö
Utla-Þverá fellur í hana heitir hún
Þverá og rennur um Þverárhlíð og nið-
ur í Hvítá. Viö reyndum aö afla okkur
frétta um veiði þarna um slóðir.
„Þetta var allt kolmórautt, eins og
stórfljót, er við veiddum,” sagöi Egg-
ert Skúlason stangveiðimaður, en hann
reyndi ásamt fleiri að veiða í Kjarrá
nýlega. „Snjór var um allt, í öllum
kvömum og svakalega kalt. Við þurft-
um sums staðar að standa á snjósköfl-
um til að veiöa. Sá einu sinni líf, en það
hefur liklega verið niðurgöngulax.
Veiddum á sjö stangir í þrjá daga, en
þetta gekk bara ekki þó að við reynd-
um mikiö. Við veiddum fram á
þriðjudag.” Við höfum frétt aö fyrstu
laxamir hafi veiöst á miðvikudag, 4
laxar, og á fimmtudag veiddust6 laxar
í viðbót. Fengust þessir laxar í Sel-
strengnum, neðsta veiöistaðnum á
efra svæðinu. En veiðimennimir sem
þessa laxa fengu fóru heim á föstu-
dagsmorgun, enda komin mikil flóð í
ána.
En hvað skyldi vera að frétta af
neðri hluta árinnar? Við höfðum sam-
band við veiðihúsiö við Helgavatn í
gærdag. „Mjög góö veiöi síðustu daga
og það eru komnir á land um 112 lax-
ar,” sagði Halldór Vilhjálmsson í
veiðihúsinu. ,,Sá stærsti sem veiðst
hefur ennþá er 18 pund. Það kom mikil
ganga í ána fyrir þrem dögum svo að
menn eru bjartsýnir. Af efra svæðinu
em komnir 11 laxar sem ég veit um en
það getur allt breyst því að það er
hörkuliö þar við veiðar núna. Fiskur-
inn ætti líka að vera á leiðinni til
þeirra,” sagði Halldór.
G.Bender.
VITRETEX
önnur eykur endinguna
Nýju litakortin okkar hitta alveg í mark
Á þeim finnurþú þinn draumalit.
Afm
VITRETEX Sandmálning er hæfilega gróf til að
regn nái að þrífa vegginn og litirnir njóta sin í áraraðir,
hreinir og skínandi.
Góð ending VITRETEX Sandmálningar er viðurkend
staðreynd. Reynslan hefur þegar sannað hana,
sem og ítarlegar veðrunarþolstilraunir.
Hlutfall verðs og gæða VITRETEX Sandmálningar
Jeljum við vera hið hagstæðasta sem býðst á markaðnum
og er það líklegasta skýringin á sífeldri
aukningu sölunnar,-auk þess auðvitað hve litirnir eru fallegir.
Ný litakort á fimm sölustöðum i Reykjavík
og fjölda sölustaða út um land allt.
£NDING(HVEXtMEÐ VfTRmX
w {] Slippfélagið íReykjavíkhf
MálningarverksmiÖjan Dugguvogi
Sími84255
Vestmannaeyjar
Kaupfél. Vestmannaeyja
Sauðárkrókur
Trésmiðjan Borg
ísafjörður
Friðrik Bjarnason
málarameistari
Stykkishólmur
Skipavík
Akranes
Málningarþjónustan.
Djúpavatn
Fengu 187 silunga
á tveimur dögum
— en f iskurinn er frekar smár
Margir segja að langt sé að fara í
góöan silung. Það er töluvert til í
þessu. Að minnsta kosti er þetta heil-
mikið mál sunnanlands, en þar má þó
finna ágætis veiðivötn. En úrvalið
mætti svo sannarlega vera meira.
Vestan-, norðan- og austanlands eru
mörg mjög góð veiðivötn, þar sem
hægt er að finna góöan silung. Kannski
er um meira að velja heldur en hér
sunnanlands, a.m.k. koma öllu
skemmtilegri veiöisögur utan af landi,
um meira aflamagn og stærri fisk. Svo
eru það líka margir Sunnlendingar
sem fara gagngert út á land til að
komast í góðan silung. A Norðurlandi
má t.d. finna með fjörum góðan og
vænan sjóbirting. Menn geta skroppið
á kvöldin og veitt í soðið, án þess aö
þurfa alltaf að kaupa veiöileyfi. Hægt
er að lenda í mokfiski á góöum degi.
Það er ekki spurt um aldur, allir geta
veitt sem vilja. Það er bara að eiga
stöng og spún og kunna síðan að kasta
fyrir sjóbirtinginn því að hann getur
tekið hvenær semer.
Eitt er það vatn sunnanlands sem
VEIÐIVON
Gunnar Bender
lítið hefur verið rætt og ritaö um, en
það er Djúpavatn á Reykjanesi, vestur
af Kleifarvatni og er Sveifluháls á
milli. Vissirðu um vatnið? Nei, ekki ég
heldur, nema að litlu leyti, hef þó reynt
að komast að vatninu nokkrum sinnum
að vetri til. En það gekk ekki, fann ekki
vatnið. Frá Reykjavík til Djúpavatns
eru um 35 km. Farinn er Krísuvíkur-
vegur aö Vatnsskarði sem er norðan
við KJeifarvatn. Þar er farið af aðal-
vegi á braut sem liggur um skarðið
vestur fyrir Sveifluháls og meðfram
Það var margt um manninn við
Eiiiðaárnar á föstudagskvöidið. Þá
veiddi Birgir Hrafnsson fallegan
lax, um 8pund.
DV-mynd G. Bender.
honum aö vestan. Þetta var áður
gömul þjóöleið um Sveifluháls, frá
Krísuvík til Hafnarfjarðar og
Reykjavíkur, lá yfir Sveifluháls um
Ketilstíg, sem kenndur er við Ketil,
djúpa og bratta kvos vestan í háls-
inum. Sveifluháls er móbergshryggur,
hæstur um 397 m, en þetta er bara fyrir
landkönnuðina okkar. Að sumri til er
akleiðin að vatninu fær öllum bílum, þó
þetta sé nú kannski ekki lúxusvegur.
Djúpavatn var talið fisklaust hér í eina
tíð, en sleppt hefur verið bleikju í
vatnið og laxbirtingum var sleppt fyrir
einum þrem árum.
Nú sfðast fyrir nokkrum
dögum slepptu félagar úr Stangaveiði-
félagi Hafharfjarðar um 2500 urriða-
seiðum úr Laxá í Mývatnssveit. Við
höfðum samband við Þórð Einarsson,
formann Stangaveiðifélags Hafnar-
fjarðar, en hann renndi fyrir fisk ír
Djúpavatninýlega.
Hvemig gekk veiðin hjá ykkur?
„Heldur tregt hjá okkur, fengum
saman 13 fiska um 250 gramma.
Nokkrum dögum áður en við vorum
fengu félagar úr Stangaveiöifélaginu
187 fiska, þá stærstu um tvö pund. Þeir
fengu þessa veiði á tveimur dögum.”
Nú eru þiö með Hlíðarvatn og
Kleifarvatn, hvað er að frétta þaðan?
„Ur Hliðarvatni eru heldur litlar
aflafréttir, hollin hafa veriö að fá
þetta 20—30 fiska sem er lítið, það er
svo kalt ennþá. A virkum dögum er
veitt á 10 stangir en um helgar á 8. Eg
veit ekki um neinn fisk sem hefur
veiðst í Kleifarvatni núna í sumar. Við
ætlum núna í kringum 17. júní að
leggja net í vatnið og ganga úr skugga
um fiskinn. Við höfum sett um 16
þúsund urriðaseiöi í vatnið í gegnum
árin,” sagði Þórður Einarsson að
lokum.
Þaö má segja aö hafnfirskir
veiöimenn séu frekar í silungnum en
laxinum, hafa þrjú vötn á móti einni
laxveiöiá, en Flókadalsá í Borgarfirði
hafa þeir á leigu með keflvískum
veiðimönnum. Eitthvað er víst lítið um
veiðileyfi í Djúpavatni og Hlíðarvatni,
eníKleifarvatneralllafhægtaðrenna
G. Bender.