Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.1983, Qupperneq 6
DV. MÁNUDAGUR 20. JUNl 1983.
&
--------VIDEO------------
OPIÐ ÖLL KVÖLD TIL KL. 23
K vikm yndamarkaðurinn
Skólavörðustíg 19.
Videoklúbburinn
Stórholti 7. Simi 35450.
.VIDEO.
KVEIKJUNA
Heimsþekktar vörur á frábæru verði.
Kerti frá AUTOLITE — BOSCH — CHAMPION.
Platínur — Kveikjulok, Hamrar, Þéttar og Kveikju-
þræöir frá USA og V.-Þýskalandi.
JL-HÚSIÐ, RAFDEILD,
AUGLÝSIR
Eigum gott úrval af lampasnúrum, marga
liti, einnig kapla og ídráttarvír frá 0,75q til
16q.
Eigum ýmis konar efni til raflagna,
innfellt og utanáliggjandi, jardbundið og
ójarðbundið, svo sem klœr, hulsur, fatn-
ingar, fjöltengi, tengla og rofa, örgggi,
dimmera, tengidósir, bjöllur, spenna,
einnig veggdósir, loftdósir, lekaliða og
margt fleira, m.a. klukkuslýrða tengla með
rofa.
EIGUM 100
MÖGULEIKA
í PERUM
Venjulegar perur, kertaperur, kúluperur,
ópalperur, Ýmsar gerðir af spegilperum,
línestraperur, flúrperur, m.a. gróðurperur,
12 v. og 24 v. 32 v. perur vœntanlegar.
JIS t
p i
’ lj ;
= 3 ÍJUiOj
'□UUUQ11-^
■ u m n ■■ m iu m ua i •»s t $?„
Jón Loftsson hf.________________
Hringbraut 121 Sími 10600
Neytendur Neytendur Neytendur
Verðlaun aprflmánaðar:
BÓKHALD EINA LEKNN
TIL AÐ FYLGJAST MEÐ
VERÐBÓLGUNNI
— segir verðlaunaf jölskyldan í Kópavogi
„Okkur fannst eins og peningarnir
væru hreinlega famir aö hverfa. Viö
höföum ekki hugmynd um það í hvaö
þeir höföu fariö. Því ákváðum við aö
fara aö halda bókhald,” sögöu hjónin
Gunnar Ámason og Sólveig Jóhannes-
dóttir. Seðillinn þeirra var dreginn út
úr innsendum upplýsingaseölum í
heimilisbókhaldinu fyrir aprílmánuö.
„Þaö vildi svo skemmtilega til aö
sama morguninn og hringt var til okk-
ar og sagt aö við heföum fengið apríl-
verölaunin skilaöi ég inn seölinum meö
maíútgjöldunum,” sagöi Gunnar.
Þau hjónin búa í Efstahjallanum í
Kópavogi. Þar eiga þau ljómandi
snotra íbúö. „Þaö munar miklu aö eiga
eigin íbúö. Af henni er ekkert eftir aö
borga annað en húsnæðislániö,” sögöu
þau.
Þrjá syni eiga þau, Hörö á ööra ári,
Árna Kristin, 3 ára, og Jóhannes sem
er orðinn 10 ára. Hann er einn af hinum
hraustu blaöbemm DV, ber út í Engi-
hjallanum. Ég tala af reynslu þegar ég
segi að hann standi sig eins og hetja í
því starfi.
Sólveig og Gunnar byrjuöu aö halda
bókhald um áramótin. Eg spuröi þau
að því hvort þeim þætti þaö erfitt verk.
„Nei, alls ekki. Eg fæ alltaf
kassakvittun í verslunum og safna
þeim saman. Á nokkurra daga fresti
færi ég þar inn,” sagöi Sólveig. Gunnar
stendur sig ekki síður. ,,Ég held
nokkurs konar dagbók sem ég færi inn
í ekki sjaldnar en annan hvern dag.
Meö því er auðvelt að fylgjast meö
jafnóöum hvað farið er og hvaö er eft-
ir,”sagöihann.
Allt er fært til bókar. Sælgætiö ekki
síður en nauösynjavaran, afborganir
og fatnaöur. „Þaö er helvíti hart þegar
70% af laununum fara í mat og hrein-
lætisvörur eins og geröi hjá okkur í
apríl,” sagði Gunnar. Og hann sagöist
vera búinn að reikna þaö út að frá ára-
mótum hafi þau eytt 10 þúsund krónum
meira en þau hafa aflað. Gengiö hefur
verið á þá varasjóöi sem til voru. Þau
keyptu sér nýjan bíl sem í fóru 12
þúsund krónur á mánuði. I annað en
mat og bílinn fóm hins vegar nær engir
peningar. „Þaö líöa oft mánuöir án
þess aö viö eyöum neinu í til dæmis
fatnað,” segjaþau.
„Bókhald er eina leiöin til þess aö
fylgjast meö raunverulegri veröbólgu.
Þá getur maður séö hvaö hlutimir
hækka á milli mánaöa. Allar tölur
stjórnvalda eru eitthvert fals,” segir
Sólveig.
Eg spuröi þau hjónin aö því hvort í
okkar verðbólgu væri yfirleitt hægt aö
spara eitthvað.
„Þaö er hægt, já. Meö því aö kaupa
kjöt í skrokkum og vömr í heildsölu.
En til þess þarf peninga og dýrt er orö-
iö að liggja með vörar. Viö höfum allt-
af tekið slátur þangaö til í haust en k jöt
í heilum skrokkum höfum viö ekki get-
aö keypt. En við reynum aö kaupa allt-
af ódýran mat Nauta- og svínakjöt er
aldrei keypt til dæmis,” segja þau.
Sólveig segist auk þess hafa komist aö
því fyrir nokkru aö meö því aö kaupa
grænmeti og kartöflur hjá Grænmetis-
versluninni megi spara ögn. „Auk
þess sem maöur fær miklu betra græn-
meti,” segir hún.
Reynt er aö kaupa til heimilisins
sem mest í ódýrum verslunum. Farið
er í Hagkaup eöa Stórmarkaðinn viku-
lega og reynt aö láta þaö sem keypt er
duga út vikuna. Þetta telja þau borga
sig þó fara veröi á bíl í þessar verslan-
ir. „Eg fer yfirleitt ekki í Hagkaup
nema fara eitthvað annaö í leiöinni.
Þaö er því ekki beinn bensínkostnað-
ur,”segirSólveig.
Þau era bæöi kennaramenntuð,
Gunnar og Sólveig. Hann vinnur ennþá
sem kennari en hún er heima og hugs-
ar um karlkynið. Einföld kennaralaun
duga skammt þannig aö í sumar er
Gunnar aö segja til í Siglingaklúbbi
Kópavogs og á vetuma er hann fram-
kvæmdastjóri Blaksambandsins.
DS
Fjölskyldan valdi sér tæki frá Braun í verðlaun. Þetta er hrærivél, hakkari, blandari, rifkvörn og ýinislegt fieira,
allt í sama tækinu. Þaö var keypt í Raftækjaverslun Kópavogs. Hér sést allur hópurinn, Gunnar, Höröur, Árni
Kristinn, Sólveig og Jóhannes, með gripinn.
DV-mynd Þó. G.
Heitten
ekkikalt
SKIPTIA
FRYSTIEININGUM
íkælibox
Húsmóðir á Egilsstöðum hringdi:
Mig langar að koma þeirri fyrir-
spurn á framfæri til kaupmanna víös
vegar um landið hvort ekki sé unnt að
bjóöa upp á frystieiningar þær sem
notaöar eru í kælibox. Margir nota slík
box á ferðalögum undir mat. En begar
búiö er aö opna boxiö nokkrum sinn-
um eru frystieiningamar orönar þíöar
og ekkert helst lengur kalt. Þaö væri
því mjög þægilegt ef fólk gæti farið
með slíkar einingar í næstu verslun og
skipt á þeim og öörum sem era frosn-
ar. Fyrir þetta mætti taka eitthvert
smágjald.
Hugmynd húsmóður á Egilsstöðum
er hér meö komiö á framfæri. Þaö sak-
ar ekki aö lauma því að kaupmönnum
aö þeir sem koma inn í verslun til að
skipta á frystieiningum eru líklegir til
þess að kaupa eitthvert smáræði í leiö-
inni. Svona þjónusta ætti því að vera
beggjahagur.
DS
I fréttinni um hinar nýju umbúðir
utan um fryst kjöt sem Vörumarkað-
urinn hefur látið hanna misritaðist
eitt orð. Sagt var að eftir að búið væri
aö pakka kjötinu inn væri því dýft f
kalt vatn, en svo er eigi. Vatnið er
heitt og skreppa umbúðirnar því
saman viö baðið. Er þaö leyndar-
dómurinn á bak við tveggja ára
geymsluþol kjötsins í þessum um-
búðum. Viökomandi eru beðnir vel-’
virðingar á mistökunum.
-sa