Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.1983, Page 20
20
DV. MÁNUDAGUR20. JUNI1983.
Nauðungaruppboð
sem auglýst hefur verið í Lögbirtingablaðinu á fasteigninni Lynghoiti
11 Keflavík, þingl. eign Ævars Þorsteinssonar, fer fram á eigninni
sjálfri að kröfu Vilhjálms Þórhallssonar hrl. og Ölafs Thoroddsen hdl.
miðvikudaginn 22.06.1983 kl. 11.30.
Bæjarfógetinn í Keflavík
Nauðungaruppboð
sem auglýst hefur verið í Lögbirtingablaðinu á fasteigninni Sunnu-
braut 40 Keflavík, þingl. eign Gunnars Jónssonar, fer fram á eigninni
sjálfri að kröfu Garðars Garðarssonar hdl. miðvikudaginn 22.06. 1983
kl. 11.45.
Bæjarfógetinn í Kefiavik.
Nauðungaruppboð
sem auglýst hefur verið í Lögbirtingablaðinu á mb. Arnari KE 260,
þingl. eign Ragnars Ragnarssonar, fer fram við bátinn sjálfan í
Keflavíkurhöfn að kröfu Tryggingastofnunar rikisins miðvikudaginn
22.06.1983 kl. 13.30.
Bæjarfógetinn í Kefiavik.
Nauðungaruppboð
sem auglýst hefur verið í Lögbirtingablaðinu á mb. Sjávarborg GK 60,
þingl. eign Utgerðarfélagsins Sjávarborgar hf., fer fram við skipið
sjálft í Skipasmíðastöð Njarðvíkur hf. í Njarðvík að kröfu Jóns G.
Briem hdl. miðvikudaginn 22.06.1983 kl. 14.30.
Bæjarfógetinn í Njarðvík.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á fasteigninni Túngötu 2, rishæð í Sandgerði, þingi.
eign Ingþórs Óla Ólafssonar, fer fram á eigninni sjálfri að kröfu Ævars
Guðmundssonar hdl. og fl. miðvikudaginn 22.06.1983 kl. 15.45.
Sýslumaðurinn í Gullbringusýslu.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 19., 24. og 27. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1983 á
eigninni Kaldárselsvegi 4 Hafnarf irði, þingl. eign Þóris Gíslasonar, fer
fram eftir kröfu Hafnarfjarðarbæjar á eigninni sjálfri fimmtudaginn
23. júní 1983 kl. 13.30.
Bæjarfógetinn í Hafnarfiröi.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 19., 24. og 27. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1983 á
eigninni Óseyrarbraut 9—11 Hafnarfirði, þingl. eign Hreifa hf., fer
fram eftir kröfu Hafnarfjarðarbæjar á eigninni sjálfri fimmtudaginn
23. júni 1983 kl. 14.00.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 19., 24. og 27. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1983 á
eigninni Suðurgötu 73 Hafnarfirði, þingl. eign Bjarna Halldórssonar
o.fl., fer fram eftir kröfu innheimtu ríkissjóðs á eigninni sjálfri
fimmtudaginn 23. júní 1983 kl. 14.15.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 19., 24. og 27 tölublaði Lögbirtingablaðsins 1983 á
eigninni Fagrahvammi 5 Hafnarfirði, þingl. eign Jóns S. Magnús-
sonar, fer fram eftir kröfu Hafnarfjarðarbæjar og Einars Viðar hrl. á
eigninni sjálfri fimmtudaginn 23. júní 1983 kl. 14.30.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 19., 24. og 27. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1983 á
eigninni Öldutúni 12,2.h.t.v., Hafnarfirði, þingl. eign Ottós Karlssonar,
fer fram eftir kröfu innheimtu ríkissjóðs á eigninni sjálfri
fimmtudaginn 23. júní 1983 kl. 14.45.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 19., 24. og 27. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1983 á
eigninni Bröttukinn 33, 1. hæð, Hafnarfirði, þingl. eign Steinunnar
Olafsdóttur, fer fram eftir kröfu innheimtu ríkissjóðs á eigninni sjálfri
fimmtudaginn 23. júní 1983 kl. 15.00.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði.
AL JARREAU— JARREAU
STORSONGVARINN JARREAU
Það eru ekki margir söngvarar sem
syngja léttari tegund tónlistar, er hafa
yfir jafnmikilli tækni að ráða og A1
Jarreau. Rödd hans viröist geta fylgt
eftir hvaða hljóðfæri sem er þegar
hann vill, og hann sýndi það á fyrstu
plötum sínum að hann er sjálfsagt
meðal fremst.u jasssöngvara í heimin-
umnú.
En það er erfitt aö verða vinsæll meö
því að syngja eingöngu jasstónlist; því
hefur hann undanfarið brugðið á það
ráð að syngja sölumeiri tónlist inn á
plötur sínar og hefur öðlast vinsældir
fyrir. Hann er ekki einn bandarískra
tónlistarmanna í jassinum um að leita
f yrir sér í poppinu. Dettur mér í augna-
blikinu í hug hinn þekkti gítarleikari og
söngvari George Benson, sem á árum
áður var talinn efnilegasti jassgítar-
leikarinn í Bandaríkjunum en hefur nú
öðlast vinsældir sem poppsöngvari.
Nýjasta plata A1 Jarreau nefnist
einungis Jarreau og inniheldur niu lög.
Hefur A1 Jarreau samið sex þeirra í
samvinnu við aðra en þrjú eru utanað-
komandi. Það er skemmst frá því að
segja að Jarreau er virkilega
skemmtileg í alla staði, og þótt lögin
séu frekar léttvæg, þá bætir A1 Jarreau
upp það sem á vantar með sinni frá-
bæru söngrödd. Hann rennir sér létt í
gegnum þessi lög sem gera að minu
mati of litlar kröfur til hans sem
söngvara. Það er í rauninni aðeins í
einu lagi sem hann fær eitthvað að
leika sér, en það er í Boogie Down, sem
er virkilega skemmtilegt lag.
Það eru að sjálfsögöu þekktustu og
bestu „session” mennimir sem að-
stoða A1 Jarreau á þessari plötu. Má
þar nefna meðal annarra Steve Gadd,
Steve og Jeff Porcaro og gömlu
kempuna Victor Feldman.
Jarreau er ekki meöal þess besta sem
A1 Jarreau hefur gert, en hún er fag-
mannlega gerð, án þess að vera tilfinn-
ingalaus. Það sem mér finnst helst
vera að er að ég veit að A1 Jarreau
getur gert betri plötu, þar sem hin ein-
stæða rödd hans nýtur sín til fulls, en á
meðan við bíðum eftir henni ætti
engum aö leiðast viö að hlusta á
Jarreau. HK.
ROXY MUSIC: MUSIQUE ROXY:
„Pottþétt”, hvíslaði einhver
Skækjulegar konur virðast vera aöals-
merki gömlu kempunnar Brian Ferrys
og hljómsveitar hans, Roxy Music.
Allflestar plötur Roxy flagga ungum
og huggulegum stúlkum, með
vafasamt „meiköp”, í eggjandi stell-
ingum og fáklæddum á plötuumslag-
inu. Nýja „mini LP”-skífa Roxy, hvort
sem hún heitir Musique Roxy eða The
High Road, er þar engin undantekning.
Af einhverjum ástæðum togar stúlkan
nú í munnvikiö á sér.
Roxy Music er eitt af stærstu
nöfriunum í poppheiminum. Allt frá því
hljómsveitin hóf að koma fyrst fram á
árinu 1972 (hún var reyndar stofnuð
1970) hefur hún átt firnavinsældum að
fagna sem ekki er að undra. Tónlist
Roxy, sem einu sinni var lýst sem
blendingi af rokki sjötta áratugarins,
jassi og nýjum tæknibrellum, hefur
jafnan verið afskaplega seiðandi; svo
róleg og vönduð sem hún er. En
jafnframt verður aö bæta við að Roxy
Music hefur staðið fyrir framsækið
rokk þótt sú nafngift eigi vart við nú
þegar vel er liöið á níunda áratuginn.
til að mynda var Brian Eno eitt sinn
meðlimur.
Nýja skífan geymir aðeins fjögur lög
og flutningur þeirra tekur innan við 28
mínútur. Upptökur fóru fram á hljóm-
leikum í Glasgow ekki alls fyrir löngu.
En lögin fjögur eru öll komin til ára
sinna. Á fyrri hliðinni eru tvö lög eftir
Ferry, annað, Can’t Let Go, er frá 1978
og hið síðara, My Only Love, er frá
1980. Hinum megin eru einnig gamlar
lummur, Like a Hurrycane eftir Neil
Young og Jealous Guy eftir Lennon af
plötunni Imagine (1971).
Vart er hægt að segja að breytingar
hafi oröið miklar frá því sem áður var.
Samanborið við Avalon (1982) er vart
hægt að greina breytingar, nema auð-
vitað að sú skífa var stúdíóafurð og þar
með var yfirborðiö allt svo slétt og fellt
sem best varð á kosiö. Annars er
„sándið” á þessari „mini LP” sérlega
fínt þegar litið er til þess að upptakan
er „live”.
Lögin hafa öll þennan seiðandi hljóm
sem fær hlustanda til að setjast niður
og hlýða á með yfirvegaðri athygli
enda er liðsskipan með nær sama hætti
og á Avalon og lögunum áöur: Phil
Manzanera (gítar), Andrew Mackay
(saxófónn), Neil Hubbart (gítar),
Andy Newmark (trommur), Alan
Spenner (bassi) og Jimmy Maelen
(ásláttur). Auk þess koma við sögu
Guy Flethcer (hljómborð?) og tvær
söngkonur. Og Ferry er auðvitað á
sínum stað með sína letilegu og
væmnu rödd sem gengur svo ótrúlega
vel í saklausan hlustandann. Oþarfi er
aö tíunda afrek hvers og eins.,
Lögin eru ljúf sem vænta mátti,
renna inn um hlustina, standa þar kyrr
og gerjast við mátulegan hita. „Pott-
þétt,” hvíslaði einhver að mér. Hér er
ekki að finna nein óp og frammíköll
meðal viðstaddra. Áheyrendur hlýða
andaktugir á listamennina og hvergi
má greina mistök. Þvert á móti. Helst
heföi ég kosið að platan væri helmingi
lengri.
-TT.