Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.1983, Qupperneq 24
24
DV. MANUDAGUR 20. JUNI1983.
Brasilíu-
menn heims-
meistarar
Brasilíumenn tryggðu sér heims-
meistaratitil unglmgalandsliða
þegar þeir lögðu Argentinumenn að
velli 1—0 á Aztec-leikvellinum í
Mexíkó þar sem 110 þús. áhorfend-
ur voru saman komnir. Það var
Silva, sem var kosinn maður
keppninnar, sem skoraði sigur-
mark Brasilíumanna úr vítaspyrnu
á 39. min. Brasilíumenn gáfu
Argentinumönnum aldrei tckifcri
til að jafna metin.
Pólverjar urðu í þriðja s*ti —
unnu S-Kóreu 2—1 í framlengdum
leik.
-SOS.
IngiB
hér skora
íþróttir
Enn tapar
Real
Madrid
Allt bendir nú til að
Reai Madrid missi enn af
lestinni á siðasta augna-
bliki í knattspyrnukeppni.
Real Madrid tapaði 3—5
fyrir Real Zaragoza í gær-
kvöidi í fyrri leik liðanna i
undanúrslitum spánsku
deildarbikarkeppninnar.
Skotar
unnu
Skoska landsliðið í
knattspyrnu vann sig-
ur 2—0 yfir Kanada í
vináttulandsleik í
knattspyrnu sem fór
fram í Toronto í gær-
kvöldi.
Golflands-
liðiníEM
Golflandsliðin eru
farin til keppni í
Evrópukeppninni í
golfi. Kvennalandslið-
ið keppir í Belgíu en
karlalandsliðið í
Frakklandi. Mótið
hefst á miðvikudaginn.
Víkingur
mætir
Þrótti
íkvöld
Leik Víkings og Þrótt-
ar, sem átti að fara fram
á Laugardalsvellinum í
gærkvöldi, var frestaö
vegna þess h vað vöilurinn
— Hallarflötin — var
blautur og forugur. Þar
fór einn leikur fram í gær
— Fylkir og Siglufjörður
gerðu jafntefli 0—0.
Víkingur og Þróttur
mætast í kvöld kl. 20.
-SOS.
Stóri bréð-
irvann
Manuel Ballesteros —
stóri bróðir Severiano
BaUesteros, gólfkappaus
snjalla, varð sigurvegari
á opnu golfmóti í Frakk-
landi sem lauk i gær.
Hann lék 72 holurnar á 262
höggum. Annar var Bret-
inn Nick Faldo á 264 högg-
um og Spánverjinn Jose-
Maria Canizares lék á 265
höggum. -SOS.
Ovett
var
harður
Ólympíumeistarinn Steve Ovett
varð sigurvegari í 1500 m hlaupi i
London á laugardaginn. Aðeins
tveimur mínútum eftir að
varð að hætta i 800 m hlaupi vegna
taks sem hann fékk í læri.
Eins og menn muna var Ovett frá
keppni í tíu mánuði á sl. árí vegna
meiðsla í hásin. — Eftir sigurinn i
1500 m hlaupinu, sem Ovett hljóp á
3:46,45 mín., sagöi hannaðástæðan
fyrir því að hann þurfti að hætta í
800 m hlaupinu hafi verið sú að
hann fékk krampa. — „Það var því
skemmtilegt að geta tekið þátt í
1500 m hlaupinu, til að sanna að
meiðslin væru ekki alvarleg,”
sagðiOvett.
-SOSj
„Þetta var mjög þýðinga r-
mikill sigur
— sem kom á réttum tíma,”sagði Ingi Bjöm
Albertsson, eftirað Valsmenn höfðu unnið
stórsigur4:l yfirKR
— Þetta var mjög þýðingarmikill sigur hjá okkur. Við
gerðum okkur fyllilega grein fyrir því fyrir leikinn að við
þurftum að leggja KR-inga að velli — til að rífa okkur upp
af botninum, sagði Ingi Björn Albertsson, eftir að Vals-
menn höfðu unnið stórsigur 4—1 yfir KR-ingum í 1. deild-
arkeppninni á Laugardalsvellinum.
— Við náöum okkur á strik í fyrri
hálfleiknum og yfirspiluðum KR-inga
þá algjörlega og lögðum þá hornstein-
inn aö sigri okkar, sagði Ingi Björn,
sem var mjög ánægður með að hafa
náð að skora sitt 100. mark í 1. deildar-
keppninni. — Með smá heppni hefði ég
átt að skora fleiri en tvö mörk, sagði
IngiBjörn.
Ingi Björn opnaði leikinn á 23. mín.,
þegar hann skoraði örugglega úr víta-
spyrnu — sendi knöttinn fram hjá Stef-
áni Jóhannssyni, markverði KR-inga
Stefán fékk
högg á lærið
Stefán Jóhannsson, markvörður KR,
varð fyrir því óhappi að fá högg á læri i
leiknum gegn Val og þurfti hann að
yflrgefa völlinn. Stefán átti við meiðsli
að striða i læri — á sama stað og hann
fékk högglð sl. keppnistimabil. Stefán
Arnarson tók stöðu hans í markinu.
Það má því reikna með aö Stefán
Jóhannsson leiki ekki næstu leiki meö
KR. -SOS.
og í þaknetinu hafnaði knötturinn.
Vítaspyrnan var dæmd á Jóstein Ein-
arsson sem felldi Hilmar Sighvatsson
inn í vítateig.
KR-ingar jöfnuöu metin á 31. mín. er
Ottó Guðmundsson skoraði með
þrumuskoti úr vítaspyrnu sem var
dæmd á Grím Sæmundsen sem hand-
lék knöttinn inn í vítateig.
Eftir jöfnunarmark KR náðu Vals-
menn góðum tökum á leiknum og léku
þeir oft mjög skemmtilega. Sérstaka
athygli vakti hinn 17 ára nýliði, Jón
Grétar Jónsson, sem hefur næmt auga
fyrir samleik og fer vel með knöttinn.
Það var einmitt Jón Grétar sem lagði
upp annað mark Valsmanna. Hann lék
skemmtilega upp hægri kantinn og
sendi knöttinn fyrir mark KR-inga þar
sem Ingi Bjöm Albertsson kom á fulíri
ferð — kastaði sér fram og skallaði
knöttinn í netið hjá KR-ingum.
Aðeins f jórum mín. seinna var knött-
urinn aftur kominn í netið hjá Vestur-
bæjarliðinu. Jón Grétar fiskaði þá
aukaspyrnu út við hliðarlínuna — á
móts viö vítateigslínu. Hilmar Sig-
hvatsson tók aukaspyrnuna og sendi
knöttinn á nærstöngina á marki KR.
Það var Valur Valsson á réttum stað
og skoraði hann örugglega með skalia.
Valsmenn gerðu síöan út um leikinn
á 65. mín. þegar Ingi Björn brunaði
laglega fram völlinn með knöttinn og
renndi honum síöan út til Bergþórs
Magnússonar sem kom á fullri ferð og
skaut föstu skoti að marki KR — knött-
urinn hafnaöi í stönginni og þeyttist
þaðan í netið.
KR-ingar reyndu að minnka muninn
en þeim tókst það ekki. Sæbjörn
Guðmundsson var nærri því að skora
— átti skot í slána á marki Valsmanna.
Ingi Björn Albertsson fékk mörg góð
tækifæri til að bæta við mörkum en
hann varö að sætta sig við aö skora
aðeins tvö mörk. Ingi Björn átti t.d.
stangarskot.
Valsmenn náðu sér vel á strik gegn
KR og þá sérstaklega í fyrri hálfleikn-
um. Jón Grétar Jónsson var þá mjög
sprækur og einnig Ingi Björn Alberts-
son — og gerðu þeir oft mikinn usla í
vörn KR-inga. Hörður Hilmarsson og
Guðmundur Kjartansson voru traustir
sem miðverðir. Valur Valsson og
Hilmar Sighvatsson áttu góða spretti.
KR-liðiö náði sér aldrei á strik í
leiknum.
Liftin sem léku voru skipuft þessum lelk-
mönnum:
Valur: Sigurftur H., Grímur, Þurgrimur,
Hörftur H., Guðmundur K., Hilmar S., Valur,
Ingi Björn, Jón Grétar (Hilmar H.),
Bergþór og Guftmundur Þ. (Magni).
KR: Stefán Jóhannsson (Steián Amarson),
Ingi Bjöm, Jón Grétar (Hilmar H.),
Oskar, Magnús J., Willum og Jón Bjaraason
(Erling).
Maðurleiksins:
Jón Grétar Jónsson.
-SOS.
ann nann ■hí Mnn ^nm ■■■ nnn wnn mna n^
Valsmenn voru meðj
gamla refi
Valsmenn kölluðu á gömlu kemp-
| una Sigurð Haraldsson tU að verja
| markið hjá sér í leUoium gegn KR.
Valsmenn hafa verið markvarða-
Ilausir eftir að Brynjar Guðmunds-
son melddist. Sigurður stóð sig vel í
| lelknum gegn KR þótt hann væri
ekki í mikUli æfingu. Varamark-
vörður Vaismanna var Slg-
urður Dagsson.
Hörður HUmarsson lék að nýju
með Valsliðinu — tók stöðu Dýra
Guðmundssonar, sem er meiddur.
Hörður stóð sig mjög vel sem mið-
vörður.
I
-sos.
Félagar Inga Björn
deUdarmark.
íþróttir
(þróttir
(þróttir
(þróttir
(þróttir