Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.1983, Page 28
28
DV. MANUDAGUR20. JÚNl 1983.
íþróttir
íþróttir
íþróttir
íþrótt
23 mörk skoruð Í3. deildarkeppninni:
Sigurlás heldur
áfram að hrella
markverði
— tryggði Selfossi sigur 3:2
yfir Víkingi frá Ólafsvík
Grindvíkingar eru heldur betur aö
sækja í sig veðrið í 3. deildarkeppninni
— unnu öruggan sigur 4:1 yfir Snsef elli
í A-riðli. Selfyssingar áttu í miklu basli
með Víking frá Ólafsvík á Selfossi og
það var ekki fyrr en 10 mín. fyrir leiks-
lok að Sigurlás Þorleifsson tryggði
þeim sigur eftir óbeina aukaspyrnu inn
í vítateig Oisaranna.
Tindastóll vann öruggan sigur 2:1
yfir Austra á Sauðárkróki í B-riðli með
tveimur mörkum Guðbrands Guð-
brandssonar.
Við skulum ekki hafa þennan for-
mála lengri heldur leggja upp í flakk
okkar um landið og sjá hvemig úrslitin
urðu í leikjum 3. deildarkeppninnar.
A-riðill
Grindavík-Snæfell 4—1(1—0)
Snæfell fékk leikinn fluttan til
3. DEILD
Urslti urðu þessi í 3. deildarkeppn-
inni í knattspyrau um helgina:
A—RIÐILL:
HV-Skallagrímur 1-3
Ármann-ÍK 1—1
Selfoss-Víkingur ÓL 3—2
Grindavík-Snæfell 4—1
Selfoss 5 4 0 1 13—7 8
Grindavik 5 4 0 1 11—8 8
Skallagrímur 4 3 0 1 12-4 6
ÍK 5 13 1 9—6 5
Vikingur Ó1 5 2 0 3 7-8 4
HV 5 1 0 4 7—18 2
Ármann 4 0 1 3 3—7 1
Snæfell 3 0 1 2 2-6 1
B—RIÐILL:
Valur-Þróttur N 0—2
Sindri-Magni 0-1
Tindastóll-Austri 2—1
Huginn-HSÞ 2-0
Tindastóll 5 4 10 12—3 9
Austri 4 3 0 1 9—4 6
Þróttur N 4 3 0 1 6-4 6
Huginn 4 2 11 6—3 5
Magni 4 2 0 2 4—3 4
Valur 3 10 2 2—4 2
HSÞ 5 10 4 3—9 2
Sindri 5 0 0 5 2—14 0
Grindavíkur þar sem völlurinn á
Stykkishólmi er enn ekki kominn í leik-
hæft stand. Guðmundur Armannsson
skoraðifyrirGrindavíkífyrri hálfleik
og Kristinn Jóhannsson kom Grinda-
vík í 2—0 með marki úr víti strax í síð-
ari hálfleik. Olafur Sigurðsson minnk-
aði muninn í 2—1 en þeir Ari Haukur
Arason og Ragnar Eðvarðsson
innsigluðu sigur heimamanna áður en
yfir lauk.
Selfoss-Víkingur Ól. 3—210—2)
Víkingamir frá Olafsvík komust í
2—0 undan vindinum á Selfossi. Atli
Alexandersson skoraði úr víti og Viðar
Gylfason skoraði síðara markið.
Ingólfur Jónsson skoraði fyrir Selfoss
á fyrstu mínútum síðari hálfleiksins og
Heimir Bergsson jafnaði 2—2 skömmu
síðar. Sigurmarkið skoruðuSelfyssing-
ar þegar 10 mínútur voru eftir af leikn-
um. Var Sigurlás Þorleifsson þar að
verki eftir óbeina aukaspyrnu inn í
vítateig.
Ármann-ÍK 1—1(1—01
Rúnar Jónsson skoraði fyrir
Ármann í fyrri hálfleiknum og þannig
var staöan þar til ein mínúta var eftir
af leiknum. Þá jöfnuðu Kópavogsmenn
og sá Sigurður Sigurðsson um það
mark þeirra.
HV-Skallagrímur 1-3(0-1)
Borgnesingar komust í 3—0 á
móti HV á Akranesi. Björn Axelsson
skoraði í fyrri hálfleiknum en þeir
Loftur Viðarsson og Omar Sigurösson í
þeim síðari. Mark HV gerði Einar
Jónsson og kom það þegar um 15
mínútur voru eftir af leiknum.
B-riðill
Huginn-HSÞ 2-010-0)
Sveinbjöm Jóhannsson var maður
Hugins í leiknum gegn HSÞ á Seyðis-
firði á laugardaginn. Skoraði hann
bæði mörk heimaliðsins en þau komu í
síðarihálfleiknum.
Sindri-Magni 0—1(0—1)
Leikur þessi fór fram á fimmtudag-
inn á Hornafirði. Urðu Heimamenn að
sætta sig þar viö 1—0 tap fyrir Greni-
víkurliðinu en mark þess gerði Jón
Ingólfsson úr vítaspyrnu í fyrri hálf-
leiknum.
Valur-Þróttur 0—2(0—21
Þessum leik var líka flýtt vegna
17. júní hátíðarhaldanna. Leik liðanna,
sem bæði bera nöfn „stórliða” í 1.
deildinni úr Reykjavík, lauk með sigri
Þróttar Neskaupstað 2—0. Fyrra mark
Þróttar gerði Sigurður Friðjónsson en
þaö síðara, sem var sérlega glæsilegt-
negling utan af kanti upp í samskeytin
— gerði Bergvin Haraldsson.
Tindastóll-Austri 2—1(1—0)
Guðbrandur Guðbrandsson skoraði
bæði mörk Tindastóls, sem hafði mikla
yfirburði í leiknum, en leikmenn liðs-
ins voru ekki á skotskónum í gær —
nýttu illa færin sín. Sigurjón Kristjáns-
son skoraði mark Austra.
-klp/-SOS
Hér sjást nokkrir áhorfendur á opna bandariska meistaramótinu, þar sem
þeir nota stóla sína sem regnhlífar. Það hefur rignt mikið á meðan keppni
hefur farið fram.
Þrumur og elding-
ar í Oakmont
— urðu til þess að hætta varð keppni í opna bandaríska meistaramótinu
ígolfi, þegar hæst stóð
Það tókst ekki að ljúka opna banda-
riska meistaramótinu í golfi í gær-
kvöldi þar sem þrumur og eldingar
urðu til þess að hætta varð keppni þeg-
ar sex kylfingar áttu eftir að ljúka
siðustu umferðinni. Það voru þeir Gil
Morgan, Raymond Floyd, Calvin
Peate, Larry Nelson, Tom Watson og
Spánverjinn Severiano Ballesteros.
Allt benti til að keppnin um meist-
aratitilinn yrði á milli Nelson og Tom
Watson sem voru báðir fjórum högg-
um undir pari vallarins í síðustu um-
ferðinni þegar hætta þurfti keppninni.
Watson átti þá eftir að leika fimm hol-
ur og Nelson þrjár. Þremur höggum á
eftir þeim kom svo Gil Morgan.
Ballesteros, sem lék síðustu um-
ferðina með Watson, var einu höggi
yfir pari vallarins. Áðumefndir sex
Unglingasíður DV
Eins og undanfarin ár mun DV birta
fréttir frá yngri flokkunum í knatt-
spyrau. Fyrstu frásagnirnar verða í
næsta Helgarblaði DV — á laugardag-
inn kemur. Þeir þjálfarar og forráða-
Lögreglulandsliðið til Osló
Myndin hér að ofan er af landsliði
lögreglumanna í knattspyrnu, sem
tekur í fyrsta skipti þátt í Norður-
landamóti lögreglumanna i knatt-
spyrnu sem haldið er í Úsló. íslensku
lögreglumennirnir, sem héldu utan í
morgun keppa fyrst við kollega sína
frá Finnlandi á morgun og við Dani á
miðvikudaginn. Það fer síðan eftir úr-
slitum þessara leikja, hvert áfram-
haldið verður, en mótinu lýkur á
fimmtudaginn með úrslitaleikjum.
Lið lögreglumanna okkar hefur æft
af krafti að undanfömu undir stjórn
Karls Hermannssonar lögreglumanns
og fyrrum knattspyrnukappa frá
Keflavík. Engu skal spáð um frammi-
stöðu okkar liðs í þessari keppni, en
vitað er að Danir og Norðmenn hafa
harðvítugu liöi á að skipa og sama má
raunar segja um Svía.(Mynd Helgi Dan.)
menn félaga, sem vilja koma fréttum
og frásögnum af leikjum liða sinna á
framfæri, eru beðnir að hringja í síma
86618 á þriðjudags- og fimmtudags-
kvöldum kl. 26—22.
kylfingar munu ljúka keppni í dag.
Þaö var ákveðið í gærkvöldi að kylf-
ingamir léku 18 holur í dag. Það skeði
síðast 1975 að fresta varð keppni vegna
rigninga — þá vann Lou Graham sigur
yfir John Mahaffey í úrslitakeppni.
-SOS.
: Mikilblóð- :
• takahjáKA ;
I Akureyrarliðið hefur misst þjálfara sinn og sex I
I leikmenn á einu bretti I
I
I
Nýliðar KA í 1. deildarkeppninni
" í handknattleik þurfa að tefla fram
I nýju liði í baráttunni um íslands-
meistaratitilinn næsta vetur. Sex
I af leikmönnum muna ekki leika
Imeð Akureyraliðinu næsta vetur.
Eins og hefur komið fram í DV
Íþá verður danski þjálfarinn Jan
Larsen ekki áfram meö KA og
I dönsku leikmennirnir Kjall
1 Mauruthsen og Flemming Bevesee
| veröaheldurekkiíherbúðumKA.
. Þorleifur Ananiasson hefur
ákveðið að leggja skóna á hilluna.
Annar linumaöur, Guðmundur
Guðmundsson, hefur ákveöiö að
ganga til liðs viö Islandsmeistara
Víkings. Þriðji línumaðurinn
Erlendur Hermannsson, fyrrum
landsliðsmaður úr Víkingi, erá för-
um til Danmerkur og einnig lang-
skyttan Friðjón Jónsson sem fer til
náms í Danmörku.
Á þessu sést að KA hefur orðið
fyrir mikilli blóðtöku — misst þjálf-
arann og sexlykilmenn liðsins. -SOS