Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.1983, Síða 48
Prestastefnan
hefstámorgun
A morgun hefst prestastefnan 1983.
Velflestir prestar landsins veröa þá
viöstaddir á stefnunni.
Prestastefnan hefst á því að prest-
ar ganga hempuklæddir frá Alþingis*
húsinu yfir í dómkirkjuna. Þar
verður sungin messa. Stefnan sjálf
veröur svo sett í Hátíöarsal Háskóla
íslands klukkan 14 á morgun. Eftir
setninguna hefjast umræöur. I ár er
rætt um hinn lúterska arf í nútíma
kirkju. -DS.
LOKI
Súr myndi jógúrt-
Gunnar allur.
Q
- TÍMARIT
FYRIR ALLA.
ÁSKRIFTARSIMI
ER 27022.
Skagafjörður:
Fullorðin kona
lést íbilslysi
Sjötíu og eins árs gömul kona úr
Reykjavík beiö bana í hörðum
árekstri á milli tveggja Toyotu-bíla,
Crown og Tercels, viö bæinn Ytra-
Kot í Norðurárdal í Skagafirði rétt
fyrirklukkan tvöá laugardag.
Konan var farþegi í aftursæti
Tercel-bdsins og var hún að koma
frá Akureyri ásamt þremur öörum.
Aö sögn lögreglunnar á Sauðár-
króki liggur ekki alveg ljóst fyrir
hvaö olli árekstrinum. En biiarnir
voru aö mætast og mun Crown
bíllinn, sem var aö koma úr Reykja-
vík, hafa lent í hlið Tercel-bilsins,
þeim megin sem konan sat.
Akstursskiiyrði voru góö, gott út-
sýniogbeinnvegur.
Ekki munu aðrir hafa meiðst
aivarlega í árekstrinum. Báöir bíl-
amir eru mikið skemmdir og er
Tercel-bíllinntalinnónýtur. -JGH.
íkveikja í Jakabóli:
Liðlegaþrítugur
maðurívarðhaldi
Liölega þrítugur maöur var úr-
skurðaður í gæsluvarðhald í gær,
sunnudag vegna gruns um aö hafa
kveikt í hinu svokallaöa Jakabóli,
æfingaaðstöðu lyftingarmanna, um
klukkan hálf sjö aöfaramótt 18. júní.
Talsvert tjón varö á húsinú.
Þetta er í annað skiptið sem
kveikt er í húsinu á skömmum tíma
og hefur í bæöi skiptin verið hellt
olíu um húsakynnin og síðan kveikt í.
I fyrra sinnið var kveikt í um hvíta-
sunnuhelgina.
Að sögn RannsóknarlÖgreglu rik-
isins hefur maöurinn ekki komið
áöurvið sögu lögreglunnar.
Talsvert t jón varð á húsinu og log-
aði upp úr þakinu, þegar slökkviliö-
iö kom á vettvang. Greiðlegagekkað
slökkva eldinn.
Gæsluvarðhaldið er til 6. júlí.
-JGH
27022 AUGLÝSINGAR SÍÐUMÚLA 33
SMÁAUGLÝSINGAR —AFGREIÐSLA
SKRIFSTOFUR ÞVERHOLTI 11
86611 RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12—14
MANODAGUR 20. JUNI 1983.
Mjólkursamlag KEA:
Verd á jógúrtumbúð-
um i endurskoðun
„Eg get ekki gefið þér upp verö á
jógúrtumbúðum og liggja ýmsar
ástæður fyrir því,” svaraði Þórarinn
Sveinsson, mjólkurbússtjóri KEA á
Akureyri, spurningublaðamanns um
verö á j ógúrtumbúöum þeirra.
Þó aö jógúrtlandamærin séu rofin
er ekki öllum spurningum svarað i
jógúrtmálinu. Deilt hefur verið um
umbúöakostnaö svo og framleiöslu-
kostnað á jógúrt, auk sölubannsins.
WSAVÍKUR-
JOGÚRTie
kowhð AFTUR
GJÖROU svo vel
Sem kunnugt er af fréttum hefur
landbúnaöarráöherra aflétt sölu-
banni á jógúrt frá Húsavík til
Reykjavíkur. En aörir endar í
jógúrtmálinu eru lausir.
I mjólkurbúi KEA á Akureyri eru
framleiddar sjö jógúrttegundir.
Einni tegund, jaröaberjajógúrt, er
pakkaö í hálf s lítra plastbikara.
„Verö á jógúrtumbúöum hjá okkur
er í endurskoðun þessa dagana,”
sagöi Þórarinn mjólkursamlags-
stjóri. „Viö höfum skipt viö plast-
verksmiðjuna Sigurplast undanfarin
ár en samningar eru nú lausir og
verö þvíóvíst.”
„Hvaö viö greiddum fyrir umbúðir
á síðasta ári? Ég get svarað því. Við
greiddum 50 aura fyrir minni bikar-
ana, 180 ml. og 85 aura fyrir hálfs
lítra bikarana.”
Og Þórarinn Sveinsson bætti við:
„Viö fengum tilboð frá Reykjalundi
snemma í febrúar en þeir framleiöa
plastbikara. Þaö tilboö var aðeins til
umræðu þá en hefur ekki orðið fram-
hald á. Þeir buðu hálfs lítra plast-
bikara á 1,03 krónu og lokið á bikar-
anná 42aura.”
Kvað Þórarinn að áhersla yrði lögð
á þaö í framtíöinni aö pakka jógúrt i
hálfs h'tra fernur og jafnvel í eins
lítra fernur líka. Litlu plastbikaram-
ir yrðu samt áfram á markaönum.
-ÞG.
Sú húsvíska rann út
„Ódýra Húsavikur-jógúrtin komin aftur. Gjörðu avo vet", atóð
stórum stöfum við mjólkurkælinn i Hagkaupi i laugardaginn. Starfa-
menn verslunarinnar kepptust við að raða jógúrtinni i hillurnar en við-
skiptavinir bókstaflega rifu hana jafnóðum út úr höndum þeirra.
Væntanlegum kaupendum var boðið að bragða á jógúrtinni og virtist
lika hún vel. Verðið var þó það sem menn voru hrifnastir af, þvi hús-
viska jógúrtin er rúmlega 3 krónum ódýrari en sú reykviska ihálfs lítra
umbúðum. Það gerir 6 krónur á lítra. Þegar stórar fjölskyldur kaupa
jógúrt munar um minna.
A myndinni raðar Karl West upp glösum fyrir viðskiptavini Hagkaups,
tH að bragða á húsvísku jógúrtinni. í innfelldu myndinni sést hins
vegar skiltið sem sett var upp eftir að salan á henni hafði verið
stöðvuð. DV-myndir Einar Ólason.
-DS.
Eldurírækjubáti ut
af Vestfjörðum
ímorgun
Eldur kom upp í vélbátnum Gunn-
jóni GK 506 um níuleytiö í morgun þar
sem hann var aö rækjuveiðum norö-
austur af Hombjargi. Mikill reykur er
í bátnum, en engin slys hafa orðið á
mönnum.
Þegar þetta er skrifað, rétt fyrir
klukkan hálfellef u, er hluti áhafnarinn-
ar kominn í nærstödd skip sem sigldu
strax að Gunnjóni þegar eldurinn kom
upp.
Þá er flugvél Landhelgisgæslunnar
og varðskip að koma á staðinn.
Mjög gott veður er á þessum slóöum.
Gunnjón er um 250 tonna bátur.
-JGH.
Grimsvötn:
„Gosn viroist
tiggja niöri”
„Gosið viröist liggja niöri, við
höfum aila vega ekki oröið varir viö
neitt,” sagöi Sveinn Sigurbjarnar-
son, einn leiöangursmanna Jökla-
rannsóknafélagsins við Grímsvötn, í
samtaliviöDV.
Félagar í Jöklarannsóknafélaginu
eru staddir viö Grímsvötn og vinna
m.a. að því að bora eftir gufu til að
knýja ýmis mælitæki sem komiö
hefur veriö fyrir á jöklinum.
Jafnframt fylgjast þeir með gos-
stöðvunum og framkvæma ýmsar
athuganir. Þeir eru á 4 snjóbílum og
7 vélsleðum.
„Viö höfum ekki getað fariö niður
að vötnunum enn,” sagöi Sveinn.
„Þaö er ekkert skyggni og sést því
lítið. Annars hefur þetta gengiö
þokkalega miöað við aðstæður og í
augnablikinu erum við aö vinna að
borunum.” ás.
Fyrsta umferðar-
óhappið á Borgar-
fjarðarbrúnni
varð um helgina
Fyrsta umferðaróhappið á Borgar-
f jaröarbrúnni varð á sjötta tímanum á
laugardagsmorgun er bandarískur
fólksbíll ók þar út af. Enginn slasaöist
alvarlega.
Bílhnn var að koma til Borgarness
og var á brúaruppfyUingunni Borgar-
nesmegin er ökumaðurinn missti vald
á honum vegna hraöaaksturs. Þeyttist
bíUinn í gegnum vamargrind úr tré og
hafnaði á hvolfi í uppfyUingarkantin-
um rétt ofan við fjöruna.
Þrennt var í bílnum en enginn mun
hafa meiðst alvarlega. Grunur leUcur á
aðökumaöurhafiveriöölvaður. -JGH.