Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.1983, Page 28
28
DV. ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGUST1983.
I gærkvöldi í gærkvöldi
FRÁ EÐA ÚR REYKJAVÍK
Hið fyrsta sem ég heyrði í útvarpi í
gær voru giefsur úr lestri Erlends
Sigmundssonar é smásögu eftir
August Strindberg, Brauð og ást.
Ekki vakti efnið athygli mina, en
lesturinn var með þeim hætti, að
óöara mátti heyra að hér var prestur
á ferð.
Arni Böðvarsson fjallaði að þessu
sinni um forsetningamar „fyrir” og
„handa” i þættinum Daglegt mál.
Eg var öldungis á sama máli, það er
allt að þvi s jaldgæft núorðið að heyra
að eitthvaö sé handa hinum eða
þessum. Forsetningin „fyrir” hefur
unnið stórlega á, hvort sem um er að
kenna margnefndum enskum áhrif-
um eöa ekki (sbr. auglýsinguna:
„hreinn safi fyrir hresst fólk”).
Svipuö hefur þróunin orðiö meö
„frá” og „úr”, notkun hinnar fyrr-
nefndu er nú mun algengari en áöur;
nú segja menn varla lengur: „Eg er
aö koma úr Reykjavik”, heldur „frá
Reykjavík”, o.s.frv. Þetta tvennt er
aðeins litið dæmi um þær breytingar
sem eru að verða á islensku nútima-
máli, og menn gefa almennt ekki
mikinn gaum. Arni Böðvarsson
hefur bent á margt í þessu sambandi
undanfarin misseri.
Þorsteinn Matthiasson talaði um
daginn og veginn. Hann kom viða
við, þó ekki of víða, eins og mörgum
hættir til á þessum vettvangi.
Þorsteinn flutti mál sitt áheyrilega,
en margir þeir sem flytja erindi af
þessu tagi mættu hafa það i huga að
þeir eru að tala við hlustendur en
ekki bara aö lesa fyrir þá.
Féir liðir voru á dagskrá sjón-
varps. lþróttaþáttarins get ég að
engu, en mikill fengur var aö leikrit-
inu um systurnar þrjár eftir
Tchekov. Það var hér sýnt i mjög
góöri finnskri útgáfu og þrátt fyrir
tveggja tíma lengd varð það ekki
langdregið. Leikurinn var framúr-
skarandi, og var svo sem ekki við
ööru að búast af hálfu Finna. Þetta
er makalaus þjóð, ekki sist á leik-
listarsviðinu. Finnskan er með fall-
egri mólum, hörð en samt mjúk,
gerólik okkar máli en þó lík því.
Aherslan er t.d. á fysta atkvæði orös,
eins og i islensku. Yfirleitt finnst mér
finnskt sjónvarpsefni með því betra
sem sést af erlendu efni.
Skandinavíska 20. aldar tónlistin
síöast á útvarpsdagskránni gladdi
eyrað hins vegar lítt. Þetta var gleöi-
snauö tónlist, enda bar siðasta tón-
verkið heiti viö hæfi: Sinfonia
dolorosa.
Pétur Astvaldsson.
Andlát
Magnús Pétursson tónlistarmaöur lést
28. júli sl. Hann fæddist á Akureyri 12.
febrúar 1930. Foréldrar hans vom Rósa
Soffía Þorsteinsdóttir og Pétur
Jónasson. Ariö 1951 lauk Magnús prófi
i hljómfræði frá Tónlistarskólanum í
Reykjavik. Haustið 1963 settist
Magnús í söngkennaradeild Tónlistar-
skólans og brautskráðist þaðan sem
tónmenntakennari vorið 1965. Það
sama haust hóf hann störf við Mela-
skóla og starfaöi þar óslitið til dauöa-
dags. Magnús samdi fjöldann ailan af
dans- og sönglögum. Eftirlifandi kona
hans er Ragnheiöur Hannesdóttir. Þau
eignuðust tvö börn. Otför Magnúsar
veröur gerð frá Fossvogskirkju í dag
kl. 13.30.
Kristinn K. Albertsson bakarameistari
lést 28. júli sl. Hann fæddist á Húsavík
10. apríl 1927, sonur hjónanna
Kristjönu Sigtryggsdóttur og Alberts
Flóventssonar. Er Kristinn hafði lokið
námi i bakaraiðn fluttist hann til
Reykjavikur og vann þar að iðn sinni.
Stofnsetti hann Alfhelmabakari árið
1959 og hin siöari ár rak hann einnig
Brauð hf. ásamt fjölskyldu sinni.
Kristinn var formaöur Landssam-
bands bakarameistara um árabil og
gegndi ýmsum trúnaðarstörfum.
Eftirlifandi eiginkona hans er Dýrleif
Jónsdóttir. Eignuðust þau fjögur böm.
tJtför Kristins verður gerð frá Bú-
staðakirkju í dag kl. 15.
J6n G. Jónsaon fyrrverandi gjaldkeri,
Víðimel 40 Rvik, lést 1. ágúst sl. Jón
fæddist 24. janúar 1902. Hann vann
mikiö aö félagsmálum, m.a. i Verk-
stjórafélagi Reykjavíkur, Verkstjóra-
sambandi Islands og Slysavamafélagi
Islands. tJtför Jóns verður gerð frá
Fríkirkjunni í Reykjavik fimmtu-
daginn 11. ágúst kl. 10.30.
Friðrlk Þórður Bjarnason tollvörður,
Baldursgerði 5 Keflavík, andaðist i
Sjúkrahúsi Keflavíkur 7. ágúst.
Guðmundur Guðmundsson frá
Blómsturvöllum Stokkseyri andaðist
ó Elliheimilinu Grund 7. ágúst sl.
Hulda K. Lilliendahl, Birkimel 8A, lést
7. ágúst.
Karl Hjálmarsson, fyrrverandi póst-
og simstjóri, Hringbraut 43, andaöist
laugardaginn 6. ágúst.
Skúli Pálsson, Norðurtúni 6 Keflavík,
lést í Landakotsspitala laugardaginn
6. ágúst.
Helga Laufey Thoroddsen, Barmahliö
24, lést 29. júli. Otförin hefur farið
fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Anna Lovísa Pétursdóttir veröur
jarðsungin frá Kópavogskirkju mið-
vikudaginn 10. ágúst kl. 15.
Halldóra Elin Halldórsdóttir,
Barðavogi 9, verður jarðsungin frá
Fossi’ogskirkju miðvikudaginn 10.
ágústkl. 13.30.
Hermann Eriendsson, Mávahlíð 32,
verður jarösunginn frá
Fossvogskirkju miövikudaginn 10.
ágúst, kl. 15.
Frá utanrfkisráðuneytinu
Ræðlsmaður Islands f Lagos, Dan I. Agba-
koba, andaðist föstudaginn 15. júli 1983.
Tilkynningar
Tónleikar í IMorræna húsinu
Næstkomandi laugardag kl. 17.00 stendur
tslandsdeild Ung Nordisk Musik samtakanna
fyrir tónleikum í Norræna húsinu. Árleg tón-
listarhátíð samtakanna verður haldin í Osló í
lok ágúst og gefur á laugardaginn að heyra
framlag Islands á henni, auk fleiri nýrra tón-
verka.
Tilgangur tónleikanna er að auki sá að afla
fjár til utanfarar íslensku þátttakendanna á
hátíðinni.
Flutt verða verk eftir Mist Þorkelsdóttur,
Lárus Halldór Grímsson, Kjartan Olafsson,
Hilmar Þórðarson, Hauk Tómasson, Guðna
Ágústsson og Atla Ingóifsson.
Fyrirlestrar um jarðfærði og
myndbreytingu bergs á
jarðhitasvæðum
Gestafyrirlesari Jaröhitaskóla Háskóla
Sameinuðu þjóðanna 1983 er dr. Patrick R.L.
Browne frá Auekland háskóla á Nýja Sjá-,
landi. Hann mun flytja fyririestra á sal Orku-
stofnunar, Grensásvegi 9, Reykjavík, dagana
8. til 11. ágúst og 16. ágúst. Fyrirlestramir
hefjast kl. 9.00. Efni fyrirlestranna er sem hér
segir:
Mánudag 8. ágúst: Stratigraphy, structure
and hydrology of some geothermal systems in
New Zealand.
Þriðjudag 9. ágúst: Hydrothermal minerals
and temperature.
Miðvikudag 10. ágúst: Hydrothermal alter-
atión — recognition of permeability.
Fimmtudag 11. ágúst: Geothermal systems
amim&re deposits.
Þriðjudag 16. ágúst: The evolution of geo-
thermal systems.
The boys from Chicago
GRAMM hefur sent frá sér plötuna The Boys
from Chicago með Þorláki Kristinssyni. Þor-
láki til aðstoðar á plötunni er hljómsveitin
Ikarus en í henni eru þeir Bergþór Morthens
(úr Egó) á gítar, Bragi Olafsson (úr Purrki
Pillnikk) á bassa og Kormákur Geirharðsson
(úr Q4U) á trommur.
Sérlegur gestur Þorláks á plötunni er
Megas, en hann syngur fjögur af tuttugu og
einu laga plötunnar. Hin 60 mínútna ianga
plata skiptist nokkuð greinilega í tvö horn
(eða siður). A fyrri hliðinni er söngur og
kassagítarspil Þorláks en á þeirri seinni
keyrir hann rokkið upp við undirleik Ikarus.
öll lög og útsetningar eru eftir Þorlák, Megas
og Ikarus. Upptökur á The Boys from Chicago
fóru fram í Grettisgati í mars.
Þess má að lokum geta að nafnið á þessari
frumraun sinni sækir Þorlákur í samheitið á
hinum kunnu peningamagnskenninga-hag-
fræðingum en lærimeistari þeirra er hinn um-
deildi Milton Friedman. Nánari upplýsingar
varðandi þetta atriði fylgja plötunni.
Námsdvöl á
Álandseyjum
Alandseyingar eru þess mjög fýsandi að fá Is-
lending til námsdvalar við Lýöháskóla
Alandseyja. Nokkrir Islendingar hafa verið
þar við nám og borið dvölinni og kennslunni
góöa sögu. I bréfi frá skólastjóranum,
miklum Islandsvini og valmenni, Sten-Erik
Fagerlund, skýrir hann frá því að á næsta
námsári 1983—84 sé stjórn Álandseyja reiðu-
búin að veita námsstyrk að upphæö 2000
finnsk mörk en kostnaður við námsdvölina í
eitt ár er talinn vera 3000—3500 finnsk mörk.
Styrkurinn er því allríflegur, 60—70% af
heildarkostnaði.
Skólinn leggur helst áherslu á listir og hand-
íðir. A næsta skólaári verður lögð sérstök
áhersla á leikritakynningu og leikhússtarf-
semi.
Allar nánari upplýsingar er að finna á skrif-
stofu Norræna félagslns í Norræna húsinu.
Lestunaráætlun
Sambandsskipa
HULL/GOOLE: GAUTABORG:
Jan , 8/8 Hvassafell , 2/8
Jan .22/8 Hvassafell .16/8
Jan 5/9 Hvassafell .30/8
Jan .19/9 Hvassafell .13/9
ROTTEHDAM: KAUPMHÖFN:
Jan 9/8 Hvassafell , 3/8
Jan .23/8 Hvassafell .17/8
Jan 6/9 Hvassafell .31/8
Jan .20/9 Hvassafeil .14/9
ANTWERPEN: SVENDBORG:
Jan .10/8 Hvassafell , 4/8
Jan .24/8 HelgafeU .19/8
Jan 7/9 Hvassafell .18/8
Jan .21/9 HvassafeU .15/9
HAMBORG: AARHUS:
Jan .12/8 Hvassafell 4/8
Jan . 26/8 Helgafell .19/8
Jan 9/9 Hvassafell .18/8
Jan .23/9 Hvassafell .15/9
HELSINKI: GLOUCESTER:
Helgafell . 15/8 SkaftafeU .19/8
HelgafeU 9/9 SkaftafeU .17/9
LARVtK: HALIFAX,
Hvaasafell .15/8 CANADA:
Hvassafell .29/8 Skaftafell .20/8
Hvassafell 12/9 SkaftafeU .19/9
Trúnaðarbréf afhent
Hannes Hafstein sendlherra afhenti hinn 2.
ágúst sl. Erik Suy, framkvæmdastjóra skrif-
stofu Sameinuðu þjóðanna i Genf, trúnaðar-
bréf sitt sem fastafulltrúi Islands hjá alþjóða-
stofnunum i Genf.
íbúðir fyrir aldraða
í Vík í Mýrdal
Um þessar mundir er að ljúka byggingu
fyrsta áfanga íbúöa fyrir aldraða í Vík í Mýr-
dal. Er hér um að ræða fjórar íbúðir, en í
þeim geta dvalið 5—8 manns. Byggingaraðil-
ar eru Minningarsjóður Halldórs Jónssonar
o.fl. og sveitarfélögin tvö í Mýrdalnum,
Hvammshreppur og Dyrhólahreppur.
Heildarkostnaður við þennan lokaáfanga
nemur u.þ.b. 2.500.000,- kr. og af þeirri
upphæð á Minningarsjóðurinn að greiða um
600.000,- kr. á þessu ári. Sjóðurinn hefur engar
tekjur aðrar en gjafir velunnara þessa mál-
efnis. Hefur stjórn hans því afráðið að efna til
almennrar fjársöfnunar til að sjóðnum verði
gert kleift að standa við skuldbindingar sínar.
Hafa í því sambandi verið sendir út gíróseðlar
til Mýrdælinga, Austur-Eyfellinga og þeirra
Skaftellinga á höfuðborgarsvæðinu sem sjóðs-
stjórninni er kunnugt um. Ekki er þó ólíklegt
að ýmsir, sem gjaman vildu leggja þessu
brýna málefni lið, hafi ekki fengið bréf frá
sjóðnum. Viljum við því fá að vekja athygli á
þessari söfnun hér og benda viökomandi á, að
hægt er að koma framlögum til skila í öllum
peningastofnunum með því að greiða með
gíróseðli inn á söfnunarreikning sjóðsins, sem
er hlaupareikningur nr. 1155-1 í útibúi Búnað-
arbanka Islands í Vik. Þá munu frú Agústa
Vigfúsdóttir, Drápuhlíð 24 Reykjavík og sr.
Gísli Jónasson, Ránarbraut 7 Vík, einnig taka
við gjöfum til sjóðsins.
Aö lokum skal þess svo einnig getið hér að
nýlega var sjóðnum afhent minningargjöf um
Eyjólf Högnason frá Hvoli í Mýrdal að
upphæð kr. 37.071,18. Um leið og þessi rausn-
arlega gjöf og aðrar þær gjafir sem sjóðnum
hafa undanfariö borist eru þakkaðar viljum
við einnig fá að nota tækifæri til að þakka
allar þær gjafir, sem sjóðnum berast í þeirri
söfnun sem nú er að hef jast.
F.h. Minningarsjóðs Halldórs Jónssonar
o.fl., Einar Oddsson, Gisli Jónasson.
Ert þú
undir áhrifum
LYFJA?
Lyf sem hafa áhrif á athyglisgáfu
og viðbragðsflýti eru merkt með
RAUÐUM VIÐVORUNAR-—,
ÞRlHYRNINGI
tí^SHW1
Ferðalög
Sumarleyfisferðir Ferðafé-
lagsins:
1. 12,—17. ágúst (8 dagar); Landrnannalaug-
ar—Þórsmörk. Uppselt.
2. 12,—21. ágúst (9dagar): Egilsstaðir—Snæ-
fell—Kverkfjöll—Jökulsárgljúfur—Sprengisand-
ur. Gist í tjöldum/húsum.
3. 18.—21. ágúst (4 dagar): Núpsstaðaskóg-
ur—Grænalón. Gist í tjöldum.
4. 18.—22. ágúst (5 dagar): Hörðudalur—Hít-
ardalur—Þórarinsdalur. Gönguferð með við-
leguútbúnað.
5. 27,—30. ágúst (4 dagar): Norður fyrir Hofs-
jökul. Gist í húsum.
Upplýsingar um ferðirnar á skrifstofu F.I.,
Öldugötu3,s. 19533 ogll798.
Ferðafélag íslands.
Útivistarferðir
Mlðvlkudagur 10. ágúst, kl. 20: Kvöldganga út
í blálun. Verð kr. 150,- frítt f. böm. Létt ferð
fýrir alla. Brottför frá bensínsölu BSI. SJá-
umst.
80 ára veröur á morgun, mlöviku-
daginn 10. ágúst, frú Ingibjörg
Slguróardóttír fró Neakaupstaö. Eigin-
maður hennar er Eyþór Þóröarson
kennari. A afmælisdaginn tekur hún á
móti gestum sínum á heimili dóttur
þeirra hjóna og tengdasonar á Hliðar-
vegi2íKópavogi.
Bella
Ertu alveg viss um, að þú hafir
ekki misst linsuna á gólfið, þegar
viö vorum aö dansa?
VEITINGAMENN —
MÖTUNEYTISSTJÓRAR
Til sölu er Vollrath hitaborð, 4ra hólfa, ásamt 25—30 stálbökk-
um, Bjorn-Varimixer, 60 1 hrærivél ásamt grænmetiskvörn,
Dagard kæliklefi, 2200 1. og Meiko uppþvottavél.
Upplýsingar í síma 10312.
RAFSUÐUKAPLAR
MED ÁL- EÐA
KOPARLEIÐURUM,
einnig rafsuðutangir,
hjálmar, kúplingar
og fleira til rafsuðu,
öryggis- og hlífðarbúnaður ýmiss
konar.
FJALAR HF. Ægisgötu 7, Reykjavik, simar 17975 og 17976.