Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1983, Síða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1983, Síða 26
26 DV. MANUDAGUR 29. AGUST1983. íþróttir íþróttir íþrótt íþróttir M 0 Brad Miley. Miley byrjaður að þjálfa Keflvíkinga Körfuknattleikskappinn Brad Miley, fyrrum leikmaöur Keflvík- inga, er kominn til Kefiavikur. Miley mun þjáifa Keflavíkurliöið í vetur, en hann má ekki ieika með því þar sem bann hefur verið sett á erlenda leikmenn. Keflvíkingar hafa orðið fyrir bióðtöku þar sem Axel Nikulásson hefur ákveðið að fara til Bandarikjanna til náms og hann mun einnig leika körfuknatt- leik þar. -SOS Tapí Finnlandi Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu mátti þola tap 0:3 gegn Finnum í Finnlandi. Finnsku stúlkurnar fengu óskabyrjun er þær skoruðu mark eftir aðeins 120 sekúndur og þar með voru þær búnar aö taka leikinn í sínar hendur. Þórsstúlk- urnar lögðu Hött að velli Þórsstúlkurnar frá Akureyri tryggðu sér sigur í 2. deildarkeppni kvenna í knattspyrnu þegar þær unnu Hött frá Egilsstiiðum 2:0 í úr- slitaleik. Þór og Höttur höfðu áður tryggt sér rétt til að leika í 1. deild. ísafjörður og FH þurfa að ieika aukaleik um sæti í 1. deild en ákveðið hefur verið að fjölga um tvö lið í deildinni. Þau verða því átta næsta keppnistímabii. -SOS Eins og markvörður Coventry væri með fjórar hendur... — þegar Coventry vann Watford 3:2 Hollendingurinn Arnold Miihren átti stórgóðan leik með Manchester United þegar bikarmeistararnir léku á als oddi og unnu öruggan sigur, 3:1, yfir nýliðunum QPR á Old Trafford. Miihren stjórnaði leik liðsins og þá skoraði hann tvö mörk. United var búið að senda knöttinn tvisvar í netiö hjá Lundúnaliðinu eftir aðeins 17 mín. Miihren skoraði á 10. mín. — úr vítaspyrnu sem Mike Duxbury fiskaði, og síöan skoraði Frank Stapleton glæsilegt mark með skalla. Ray Wilkins átti allan heiðurinn af markinu því að snilldarsending hans rataði rétta leið. Stapleton skoraði meö skalla af sex metra færi og átti Peter Hucker, markvöröur QPR, ekki mögu- leika á að verja. Gestirnir gáfust ekki upp og Clive Allan náði að minnka muninn í 2:1 meö fallegu marki á 55. mín., en síðan kom það í hlut Miihrens að innsigla sigur United. Það er greinilegt að United verður sterkt í vetur og þegar Remi Moses byrjar að leika að nýju á miðjunni veröur leikur liösins mun beittari. 230 handteknir í London Táningurinn Tony Cottee var á skot- skónum þegar West Ham vann stórsig- ur, 4:0, yfir Birmingham á Upton Park í London. Þessi smávaxni leikmaður skoraði tvö mörk en hin mörkin skoruðu þeir Alvin Martin og Dave Swindiehurst. Áhangendur Birmingham voru ekki ánægðir með leik sinna manna sem áttu aldrei möguleika gegn „Hamm- ers”. Lögreglan þurfti að handtaka 230 stuðningsmenn Birmingham — fyrir skrílslæti. Tvö sjálfsmörk Watford Bobby Gould, framkvæmdastjóri Coventry, brosti breitt eftir að strákarnir hans höfðu lagt Watford að velli, 3:2, í London. Þeir fengu góða hjálp leikmanna Lundúnaliðsins því aö þeir Ian Bolton og Pat Rice skoruðu sjálfsmörk og komu Coventry á bragðið, 0:2. Bolton skoraöi eftir aðeins 9 mín. — sendi knöttinn í eigið net, eftir skot frá Terry Gibson, og síðan skoraöi Pat Rice með skoti af 30 m færi á 55. mín. John Barnes minnk- aöi muninn í 1:2 á 60. mín. en það dugði skammt. Terry Gibson, sem Coventry keypti frá Tottenham, skoraöi 1:3 áður en varamaðurinn David Johnson skoraði fyrir heimamenn 2:3 á 89 mín. Hinn ungi markvörður Coventry, Enska knattspyrnan Perry Suckling, sýndi snilldarmark- vörslu og það var oft eins og hann væri með fjórar hendur. Gary Daly átti góðan leik á miðjunni og var nær búinn aðskora tvö mörk. Markaflóð á Villa Park Já, það var sannkallaö markaregn á Villa Park, þar sem leikmenn Aston Villa lögöu WBA að velli 4:3 í f jörugum leik. Romeo Zondervan skoraði fyrsta mark leiksins — 0:1 fyrir Albion á 5. mín., en Alan Evans jafnaði fyrir heimamenn og síðan kom Reymond Walker þeim yfir 2:1. Gery Thompson jafnaði 2:2. Gary Shaw skoraöi 3:2, en fyrir leikhlé jafnaöi Cyrille Regis 3:3 fyrir Albion. Það var svo Brendan Ormsby sem tryggði Aston Villa sigur í seinni hálfleik. Tony Barton, fram- kvæmdastjóri Villa, var að sjálfsögðu ánægður með sigurinn. Hann sagðist þó ekki hafa átt von á aö sínir menn þyrftu að skora fjögur mörk til að sigra. Þrenna hjá Christie Trevor Christie hjá Notts County varð fyrstur til aö skora þrjú mörk í leik. Hann vann það afrek þegar County vann góðan sigur, 4:0, yfir Leicester á Filbert Street. Það var Martin O’Neill sem skoraöi fyrsta mark leiksins — í sínum fyrsta leik fyrir County. • Peter Shilton bjargaði Dýrlingun- um frá Southampton frá tapi á City Ground, þar sem hann lék gegn sínum gömlu félögum hjá Nottingham Forest. Danny Wallace skoraði eina mark leiksins — 1:0 fyrir Southampt- on. Nær allan seinni hálfleikinn sóttu leikmenn Forest að marki Dýrling- anna en Shilton var fastur fyrir og varði hvað eftir annað mjög glæsilega. • Graeme Sharp tryggöi Everton sigur, 1:0, yfir Stoke á Goodison Park. • Keith Bertschin skoraði fyrir Nor- wich á Roker Park í Sunderland, en Colin West jafnaði fyrir heimamenn, 1:1. Tottenham fékk skell Leikmenn Tottenham sóttu ekki gull í greipar leikmanna Ipswich á Port- man Road. Ipswich-liðið, sem hefur misst fjóra snjalla leikmenn undanfar- in ár — Mike Mills, Amold Muhren, Frans Thijssen og Alan Brazil — vann 3:1. Glenn Hoddle og Mike Hazard fengu nóg að gera á miðjunni þar sem þeir þurftu að taka á öllu sem þeir áttu til að verjast ágengni leikmanna Ips- wich. Eric Gates, sem lék að nýju með Ipswich eftir meiösli — hefur ekki leikið síðan í janúar, átti frábært „come-back” og skoraði hann tvö mörk — á 37. mín. og 47. mín., en Paul Mariner skoraði þriðja markið á 89. mín. Steve Archibald, sem var klaufi að skora ekki þrjú mörk í leiknum, skoraöi mark Tottenham á 55. mín. -SOS. PjTrevor Christie — fyrstur tll að skora þrennu. Skólaritvélar Olympla ritvélarnar eru allt í senn skóla-, ferða- og heimilisritvélar. Ódýrar og fáanlegar í mörgum gerðum. CarinaS áreiðanleg vél, búin mörgum vinnslum sem aðeins eru á stœrri ritvélum. Trave]lerdeLuxe fyrirferðaiítn og léttbyggð vél sem þolir auðveldlega hnjask og ferðalög. Regma C rafritvél með leiðréttingar- búnaði. Fisléttur ásláttur auk annarra kosta stórra skrifstofuritvéla þótt Regina sé bœði minni og ódýrari. Leitið nánari upplýsinga KJARAIVI ÁRMULI 22 - REYKJAVÍK - SÍMI 83022 mmm Arnold Miihren — skoraði tvö mörk fyrir United. URSLIT Urslit urðu þessi í ensku knattspym- unni á laugardaginn: 1. DEILD: Arsenal-Luton 2—1 Aston Villa-WBA 4—3 Everton-Stoke 1—0 Ipswich-Tottenham 3—1 Leicester-Notts C. 0—4 Man. Utd.-QPR 3—1 Nott. For.-Southampton 0—1 Sunderland-Norwich 1-1 Watford-Coventry 2—3 West Ham-Birmingham 4—0 Wolves-Liverpool 1—1 2. DEILD: Barnsley-Fulham 3—0 Blackburn-Huddersfield 2—2 Carlisle-Cambridge 0—0 Charlton-Cardiff 2—0 Chelsea-Derby 5—0 C. Palace-Man. City 0-2 Grimsby-Shrewsbury 1—1 Leeds-Newcastle 0—1 Oldham-Brighton 1-0 Portsmouth-Middlesb. 0—1 Swansea-Sheff. Wed 0—1 3. DEILD: Bolton-Wimbledon 2—0 Bournemouth-Preston 0—1 Brentford-Mill wall 2—2 Exeter-Walsall 0—1 Hull-Burnley 4—1 Newport-Bristol R. 2—1 Orient-Bradford 2—0 Oxford-Lincoln 3—0 Plymouth-Wigan 0—0 Port Vale-Scunthorpe 0-0 Sheff. Utd.-Gillingham 4—0 Southend-Rotherham 2—2 4.DEILD: Aldershot-Hereford 1-4 Blackpooi-Reading 1-0 Bristol C.-Mansfield 4—0 Chester-Northampton 1—1 Chesterfield-Swindon 1—0 Dariington-Coichester 0—2 Doncaster-Wrexham 3—0 Halifax-Torquay 2—2 Petersborough-Hartlepool 3—1 Rochdale-Crewe 1—0 Stockport-York 0-2 Tranmere-Bury 1—1 íþróttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.