Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.1983, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.1983, Page 2
2 DV. ÞRIÐJUDAGUR13. SEPTEMBER1983. ALMANNAVARNIR RÍKISINS vilja ráða ritara. Umsækjendur snúi sér til skrifstofu Al- mannavarna í aðallögreglustöðinni v/Hverfisgötu, 4. hæð. ALMANNAVARNIR RÍKISINS. Starfsstúlkur óskast Oskum eftir starfsstúlkum, hálfan eða allan daginn. 4 vinnudagar í viku, frá mánudegi til fimmtudags. SÆLGÆTISGERÐIN GÓA, Reykjavíkurvegi 72, Hafnarfirði, sími 53466. VIDEOLEIGA TIL SÖLU Þeir sem hafa áhuga leggi inn nafn og símanúmer á DV merkt „Videoleiga” fyrir 15. september. Dvalarheimili Á Hvolsvelli Tilboð óskast í að steypa upp kjallara viðbyggingar dvalar- heimilisins Lundar, alls um 520 fm. Einnig skal leggja lagnir. Verkinu skal að fullu lokið 15. apríl 1984. Otboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Borgartúni 7, gegn 1.500 kr. skilatryggingu. Tilboð verða opnuð hjá Innkaupastofnun ríkisins þriöjudaginn 27. september 1983 kl. 11.00. ORKAN OG EIGINMAÐURINN — meðalverð á raforku til álvera hefur lækkað niður í 17 verðeiningar hÍálDfÚSÍ eiffinmaftiir tlP m I I<' n imrAmiinnn-*-- - MH ■ Sá hjálpfúsi eiginmaður, sem röltir út í búð eftir erfiðan vinnudag til þess að kaupa í helgarmatinn samkvæmt löngum og ítarlegum pöntunarlista húsfreyju sinnar, er ævinlega við því búin að varan kosti ívið meira á einum stað en öðrum. Sjaldnast er þó verðmunurinn svo mikfll að hann nenni að aka í annaö borgarhverfi til þess að gera hag- kvæmari innkaup og spara heimflinu fáeinarkrónur. Það er líka mjög ósennilegt að hann beri sig upp við búðarmanninn þegar honum ofbýður dýrtíðin — að öllum likindum skammast hann bara út í rikisstjórnina og verðbólguna eins og við hinir og þar við situr. Raforkuverð til álvera á víð og dreif um heimsbyggðina á það sam- merkt með hinum almenna neyslu- varningi, að það er breytiiegt eftir löndum og jafnvel innan landamæra eins og sama ríkis er talsverður munur á verðlagi orkunnar til hinna ýmsu álvera. Mills/kwh En verðmunur orkunnar er öllu meiri en gengur og gerist um venju- legar neysluvörur — satt aö segja er hann svo firnamikfll að hver einasti hjálpfús eiginmaður sem ekki vill kafna undir nafni myndi óðara leggja á sig óhemju fyrirhöfn til þess að versla á þeim mörkuöum sem hagfelldastir eru, ef svo óliklega bæri til að hans betri og röggsamari helmingur myndi fela honum á hend- ur að kaupa inn ásamt helgarmatn- um fáeinar kílóvattstundir af raf- orku til álvinnslu á heimflinu! Þrítugfaldur munur Eins og sjá má af meðfylgjandi linuriti er verðlag einna lægst í Kanada, um það bil 3 verðeiningar að meöaltali, en langhæst í Japan þar sem það slagar upp í nærri 80 verðeiningar. Hvað veldur þessum gífurlega mun? Hvað Kanada áhrærir, þá er þar skemmst frá aö segja að verðlagning raforkunnar til álvera er víða hreint bókhaldsatriði — sama fyrirtæki á þá bæði orkuver og álver og hagar ölium greiðslum þar á milli eins og best lætur gagnvart skattheimtu ríkisvaldsins. Um verðlag í -Japan er það að segja, að ekki er þar völ á nægilegri raforku frá vatnsföllum, svo að Japanir neyðast til þess að vinna sína raforku úr kolum, olíu, gasi og kjarnorku, en sá framgangsmáti sprengir upp verðalgið eins og vænta mátti. Staðreyndin er sú, að Japanir kaupa geysilegt magn af áli frá erlendum stóriðjuverum og er þeim mjög í mun að tryggja sér örugg við- skiptasambönd erlendis. Þeir eru sérlega háðir áli um iðnaðarfram- leiðslu sina og hafa því haldið uppi töluverðri álvinnslu á heimaslóö, þrátt fyrir mikinn tilkostnað, en á síðustu tveimur árum hafa þeir dreg- ið mjög saman í þeim efnum og lokað 6 álverum af 13. Meðalverð er marklaus tala ORKUVERÐ TIL ÁLVERA INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006 UVIKM FJÖLBREYTT FJÖLSKYLDUBLAÐ Askriftarsíminn er 27022 HEIMSFRAMLEIÐSLA ÁLS 1981 12 millj. TONN Þetta línurit sýnlr mlgmunandl orkuverð til álvera víðsvegar í heimlnum. Það er unnið af sérfræðlngum Landsvirkjunar eftir upplýsingum fyrir árið 1981, en um það ór liggja fyrir einna gleggstar tölnlegar heimildir. A ltauritinu er sýnt meðal- verð nokkurra framleiðslusvæða, en innan hlnna ýmsu svæða er verðlag oft ærið mismunandi. USA BPA táknar Bonneville Power Admtaistration og USA TVA táknar Tennessee Valley Administration. Meðalverð á raforku til álvera í löndum utan sósfalistaríkjanna var þá um 20 verðeiningar, en hefur lækkað niður í 17 verðetaingar, vegna gengisbreyttaga sums staðar og eins vegna þess að mörg álver sem greiddu mjög hátt orkuverð haia lagt niður starfsemi sfaa. Sam- kvæmt þessu hefur sú breyting orðið ó ltauritinu að hægri helmtagur ltaunnar hefur slgið og meðaltalið þar af leiðandl lækkað. Það má af framansögðu skilja að það meðalverð raforku til álvera í heiminum, sem oft hefur verið getið í íslenskum fjölmiðlum aö undan- förnu, er nánast marklaus tala og hefur enga þýðingu þegar samningar eruannarsvegar. Til þess að flækja máliö enn frekar er meðalverðið útreiknaö af sérfræð- ingum á mismunandi máta. Til er ákveðið meðaltal, byggt á fram- leiðslugetu álveranna í stað raun- verulegrar framleiðslu, og þetta meðaltal er að sjálfsögðu oftast ívið hærra en raunverulegt meðalverð, vegna þess aö þær verksmiðjur sem hæst greiða orkuverðið eru líklegast- ar til þess að draga við sig fram- ieiðsluna. Raunverulegt meðaltal raforku til álvera árið 1981 mun hafa verið nálægt 20 verðeiningum, trúlega eitt- hvað undir því marki samkvæmt áreiöanlegustu heimildum. Á tveimur síðustu árum hafa Japanir dregið saman seglin og sömuleiðis hafa bandarísk álver, sem sætt hafa háu verðlagi, lagt niður starfsemi sina eða knúið fram hagstæðari orkuverð, og þetta hvort tveggja hefur keyrt niður meðal- verðið. Samkvæmt nýjustu heimildum, sem eru fró 20. júní á þessu ári (skýrsla R.F.J. Butíers á þingi „The Aluminum Association Energy Conservation) var meðalverð nálægt 17 verðeiningum á síðasta ári. -BH LITMYNDIR SAMDÆGURS FILMAN INN FYRIR KL. 11. MYNDIRNAR TILBÚNAR KL. 17. Athugið, opnum kl. 8.30 alla virka daga. Opið á iaugardögum kl. 9-12. LJOSMYNDAÞJÓNUSTAN HF. LAUGAVEGI 178 REYKJAVÍK, SIMI 85811.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.