Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.1983, Qupperneq 3
DV. ÞRIÐJUDAGUR13. SEPTEMBER1983.
3
Skrekkur í sfldarútvegs-
mönnum vegna offramboðs
á öflum sfldarmörkuöum
— gæti þýtt verðhrun og söluerf iðleika. Norðmenn þora ekki að byrja veiðar
úr norsk-íslenska stofninum
Talsverður skjálfti er nú í þeim
aöilum hérlendis, sem hafa hags-
muna að gæta í síldveiðum og vinnslu.
Stafar það af því að nú stefnir í mikið
offramboð síldar á helstu mörk-
uðumokkar. Þessi staðreynd varð
ljós þegar Efnahagsbandalagið
ákvað að auka kvótann í Norðursjó
um 100 þúsund tonn og er sú aukning
ein nær helmingi meiri en heildar-
veiðar okkar. Víðar aukast síldveið-
ar og er fyrirsjáanlegt að svo verður'
í náinni framtíö m.a. vegna nýrra
frétta frá Noregi þess efnis aö á
nokkrum næstu árum megi tí- eða
tuttugufalda síldveiðar úr hinum
svonefnda norsk-íslenska stofni.
Hann var uppistaða síldveiða okkar
á hinum svonefndu síldarárum. Þá
var stofninn geysistór og kom hluti
hans hingað í ætisleit.
Undanfarin ár höfum við selt okk-
ar saltsíld allt að 30 prósent dýrari en
aðrir og er það m.a. vegna þess að
við höfum notið trausts sem góðir
síldarsaltendur. En nú gerist
erfiðara að halda þessu forskoti þar
sem fréttir berast víða að þess efnis
aö erlendir framleiðendur séu að ná
sömu vinnslugæðum og við.
Þá erum við í vissum tilvikum á
milli steins og sleggju á Skandi-
navíumörkuðum því súdin okkar er
of lítil til að keppa við stærri og feit-
ari norsk—íslensku síldina til vissrar
framleiðslu. Ungt f ólk í Svíþ jóð hefur
aukið síldarneyslu en sú aukning er
einkum fólgin í smærri og fituminni
síld en okkar er.
En þar sem saltsíldin okkar hent-
ar þykir hún góð. Um þessar mundir
er Síldarútvegsnefnd aö ganga frá
fyrirframsölu á um það bil helmingi
þeirra 55 þúsund tonna sem veiða má
í ár. Þaö er svipað og var í fyrra, um
þetta leyti, en Einar Benediktsson
aðstoöarframkvæmdastjóri SUN
sagði í viðtali við DV að óvarlegt
væri að gera sér vonir um viðbótar-
samninga úr þessu eins og tekist
hefði að gera undanfarin ár.
Því blasir við að nú verði að frysta
mun meira en gert hefur verið ef
kvótinn verður fullnýttur.
Sigurður Markússon, fram-
kvæmdastjóri sjávarafurðadeildar
SIS, sagði að deildin væri nú að
undirbúa samninga. Ljóst væri að
fyrri kaupendur okkar væru ánægðir
með frystu síldina héðan en í árferði
sem nú myndi verðlagið líklega
skipta meira máli en áður.
Agúst Einarsson, hagfræðingur
Landssambands íslenskra útvegs-
manna og fulltrúi LIO í verðlags-
ráði, sagði að aðeins væri búið að
halda einn fund um síldarverðið.
Næsti fundur yrði á fimmtudag og
lægju þá væntanlega fyrir meiri upp-
iýsingar til að byggja samninga um
síldarverð til útgerðarinnar á. Vafa-
lítið verða mikil átök um síidarverð-
ið að þessu sinni því það hefur verið
hærra hér, upp úr sjó, en í helstu
samkeppnislöndunum. Er þá miðað
viö síldina hér boma saman við aðr-
ar tegundir hér, og eins farið að og
erlendis.
Sem dæmi um óvissuna í síldar-
málum aimennt þá var í sumar
ákveðið að norskir sjómenn mættu
hef ja veiðar upp í 25 þús. tonna kvóta
úr norsk—íslenska sildarstofninum
um síðustu mánaðamót en áöur en sú
ákvörðun kom til framkvæmda var
veiðum frestað og eru ekki byrjaöar
enn.
-G.S.
Í»
Kartöflur teknar
upp í Vatnsmýri
Menn slógu ekki slöku við í kartöflu-
upptökunni á laugardaginn. Fólk úr
Verslunarmannafélagi Reykjavíkur,
um eitt hundrað fjölskyldur, tóku upp
um tíu tonn á svæði innan Reykjavík-
urflugvallar, gegnt Umferðarmiðstöð-
inni. Hver f jölskylda gat tekið upp 100
kg á kr. 10 hvert kíló. Umsjón með
þessu hafði Edvald B. Malmqvist yfir-
matsmaður en hann setti niður í vor
meö vélum. Uppskeran var ágæt og
ánægja ríkti meðal fólksins enda lék
veðriðviöþað.
Ilmandi kvikmynd íBíóbæ
Bíóbær hefur hafið sýningar á
Polyester, þekktri amerískri kvik-
mynd eftir ieikstjórann John Waters,
en hann fer eigin leiðir í kvikmynda-
gerð og hefur vakið athygli fyrir frum-
leik. Það sem er sérkennilegast viö
Polyester er að hver áhorfandi fær
spjald sem á eru 10 reitir og inniheldur
hver reitur fyrir sig ilm er áhorfandinn
á að finna þegar númer kemur á tjald-
ið. Polyester er gamanmynd þar sem
aöalhlutverkin eru leikin af Divine og
Tab Hunter.
HK.
Margar hendur vinna létt verk og gott er að fá kartöflumar á 10
kg. Á minni myndinni em þsr Eva Björk og Sigrún Hulda að hjálpa til og
þykir gaman. DV-mynd Loftur
Handþuirkur
Tork á
Tork þurrkurnar eru
sérstaklega framleiddar
fyrir atvinnulííið, hvort
sem um er að rœða
olíuþurrkúr, þurrkur fyrir
elektrónisk tœki, þurrkur
íyrir eldhús og mötu-
neyti, verkstœðisþurrkur
eða afraímagnaðar
þurrkur fyrir tölvur, ljós-
nœma hluti og ljós-
myndatœki.
Haíðu samband við
söludeild okkar og fáðu
upplýsingar um Tork
þurrkur, sem hœfa
þínum vinnustað.
asiacohf
Vesturgötu 2, P.O.
Box 826. 101 Reykjavík
sími 26733