Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.1983, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.1983, Síða 14
DVÍ ípíSMMSAGOft 13. SEPfBMBER'IÖffiK t í*i Tíðarandinn Tíðarandinn Tíðarandinn Tíðarandinn Tíðarandinn Móðurmoldin, þjóðin og ógnvaldur óbyggðanna Rofabörðin eru siöustu vigi móöur- moldarinnar, en sauökindin hættir ekki viö hálfnað verk. þunga en nokkur jökull, hægt og bít- andi og án allrar miskunnar eins og seigdrepandi eitur sem læsir sig fram eftir landinu og grandar öllum gróðri og verður ekki stöðvaö. Rofabörðin eru þarna eins og hálffú- in slitur af ævagömlu handriti — þau inna okkur ekki alla sögu af þeirri náttúrudýrð sem þama hefur skiniö viö sólu í árdaga, en við lesum samt Fjallamenn hafa boriö okkur þær fregnir ofan úr óbyggðum að jöklarnir séu famir að bæra á sér og skríða fram og er þaö aö vonum eftir kuldalegt tíðarfar síðustu ára. SUkar fregnir vekja alltaf hjá okkur hálfgildings óhug, því að hvort tveggja er að harðæri fyrri alda eru þjóðinni ennþá ofarlega í sinni og eins er víst flestum kunnugt hvernig fara mun um mannabyggð í landi þessu þegar næsta ísöld gengur í garð — hvenær sem það núverður. En það gerast aðrir voveiflegri við- burðir ofar byggðum en framskrið jökla. Obyggðirnar búa yfir öðrum ógnum, hljóðum en hræðilegum. Sá ferðalangur sem ekur að úthall- anda sumri veginn að Gullfossi og Geysi sér ekki ýkja margt annað á leið sinni en fegurðina eina, en bregöi hann sér upp afleggjarann frá Gullfossi, sem reyndar er upphafið að sjálfum Kjalvegi, veröur hann fróðari um margt sem honum er annars hulið. Hann hefur ekki lengi farið þegar gróðurlendinu sleppir og við blasa víð- áttumiklar auðnir og melar. Heldur finnst honum þetta ófögur sjón en tvennt er það aðallega sem vekur' honum furöu og kannski dálitla hneykslun. Annað er fjárbreiðurnar sem þama eru á reiki og rífa í sig með áfergju þann örlitla gróður sem berst við að lifa í trássi við veður og vinda; hitt eru rofabörðin sem rísa upp úr auðninni á strjálingi eins og helsærðar skepnur sem óargadýr hafa sært til óh'fis og skilið þar eftir vetrarhörkum að bráð. Handrit náttúrunnar Það verður kannski enginn til þess að gefa sig á tal við hinn forviða ferða- lang til þess að útskýra fyrir honum hvað þarna hefur gerst og er enn að gerast — en hann þarfnast ekki shkra útskýringa. Rofabörðin eru að vísu þögul vitni, en vitni samt, og þau gefa honum ljóslega til kynna þann harm- leik sem þarna á sér staö víðsfjarri mannanna sjónum. Hæð rofabarðanna segir honum til um jarðvegsdýptina, eins og hún var hér áöur en ógnvaldur óbyggðanna hóf sinn sigursæla eyöileggingarhemaö sem ennþá varir og ekkert lát virðist á. Melamir umhverfis rofabörðin sýna ferðalanginum ummerki þeirrar orr- ustu sem þarna var háð í leynum og þeir færa honum heim sanninn um það, hvemig eyðingin skríður fram af meiri Náttúruvernd: Baldur Hermannsson „Hæð rofabaröanna segir til um jarðvegsdýptina, eins og hún var hir áöur en ógnvaldur óbyggöanna hóf sinn sigursæla eyðileggingarhernað." „Fymim var ég frjó og rík” Móðurmoldin á sér marga fjendur en fáa vini. Stundum koma spekingar saman til þess að spjalla um þrifnað hennar. Þá er sjaldan vcrið að skipuleggja skjótar úrbætur til þess að bjarga því sem enn verður bjargað. Þá fara menn stundum að volka fyrir sér hver muni einna verstur ógn- valdur óbyggðanna — hrossin eða sauðfénaðurinn. En meðan spekingar spjalla eykur auðnin stöðugt við ríki sitt og móðurmoldin tapar hverri orrustunni á fætur annarri. Þó er ekki öll nótt úti. Móðurmoldin á sér von ef éinhver þorir. Sú von er sterk og henuar gætir fúrðu víða meðal annars í vísum eftir séra Emil og skulu þær marka niðurlag þessarar frásagnar. Fyrrum var égfrjó ogrík, fyllti landið ilman slík að hún virtist engu lík upp að fjalla hæstu brík. En svo kom öxi, síðan kind, seinast varð svo pjóðin blind áþá miklu erfðasynd, sem eyddijörð og spillti mynd. ÁKALL MÓÐURM OLDARINNAR Og ólán þitt varð eyðing mín, íslandgrætur rjóðrin stn ekki síst er sólin skín og sundur flaka dánarlín. Rofabörð mín eitt og eitt á þig hróþa vítt og breitt. Efþú gerir ekki neitt, ertu glötuð, lífþittdeytt. Ennþá leynist tó og tó, tórandi t sviðnum mó. Hrökkva tár í heiðarró, hérna varþað líf sem dó. Færið út hvert friðarband, flosiklæðið eyðisand; öllu sem var unniðgrand, aftur skilar þetta land!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.