Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.1983, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.1983, Side 8
DV. FÖSTUDAGUR 30. SEPTEMBER1983. Gunnar Thoroddsen tH hægri ásamt bróður sinum, Vaigarð. Myndin er iikiega tokin 1912 þegar Gunnar var á öðru ári en Valgarð var 4 árum eldri. Gunnar og Vala ásamt börnum sínum. Fremstar eru dæturnar Dóra og Maria Kristín en fyrir aftan standa synirnir Sigurður og Ásgeir. Systkinahópur Gunnars. Frá vinstri: Valgarð, Kristin Kress, Sigriður Thoroddsen, Jónas Thoroddsen, Mergrét Thoroddsen og Gunnar. Myndin ertekin 1928eða 1929. 4. april 1941 kvæntist Gunnar Völu Ásgeirsdóttur og þá varþessimynd tek- in. 7. febrúar 1942 fæddist Gunnarl og Völu sonur sem skírður var Ásgeir. Myndin er tekin að vortagi 1942. Gutmar Thoroddsen borgarstjóri gengur i forarbroddi skrúðgöngu 17. júní 19BS i Reykjavík. Vala gengur honum á hœgri hönd en sonurinn Ásgeir heMur á Maríu Kristinu. SVIPMYNDIR ÚR LÍFI GUNNARS THORODDSENS Dr. Gunnar Thoroddsen kom víða við á ferli sínum eins og ljósmyndirnar hér á opnunni bera með sér. Þó er hvergi nærri að öllu hugað, heldur aðeins stikl- að á stóru og margt er undan skilið sem þó hefði verið fengur að kynnast. Elsta myndin var tekin 1912 þegar Gunnar var á öðru aldursári. Sú yngsta var tekin af ljósmyndara DV nú í sumar í bústað þeirra hjóna á Þingvöll- um. Vala Thoroddsen leyfði DV vinsamlegast að velja myndir úr mynda- albúmum þeirra Gunnars og eru flestar myndanna þaðan fengnar. Kunnum við henni bestu þakkir fyr- ir. Hinar myndirnar eru teknar úr ljósmyndasafni blaðsins. -BH Gunnar Thoroddsen borgarstjóri opnar Árbæjarsafn formlega árið 19S7. Gunnor Thoroddsen setur Reykjavikursýninguna 1949. Gunnar hafði þá gegnt borgarstjórastarfi í tvö ár og var þetta mjög umfangsmikil sýning, tíl húsa í Þjóðminjasafninu. Gunnar Thoroddsen var um skeið sondiherra ís- lands i Danmörku og var þá oft ærið gestkvæmt i sendiherrabústaðnum. Það er Gunnar Kvaran sem horfir svo kankvís i myndaválina.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.