Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.1983, Qupperneq 1
Samband eggjafram-
leiðenda mun klofna
— við treystum ekki orðum Framleiðsluráðs, segir Gunnar Jóhannsson
„Mér virðist málin hafa skipast
þannig að Samband eggjaframleið-
enda klofni og við sem erum
andstæðir stofnun eggjasamlags
stofnum nýtt félag. >að er ljóst að
við munum ganga úr Sambandi
eggjaframleiðenda ef það sam-
þykkir að standa að stofnun eggja-
samlagsins,” sagði Gunnar Jóhanns-
son, eggjabóndi á Ásmundarstöðum,
ísamtaliviöDV.
Ákvörðun um stofnun eggjasam-
lags var frestað á fundi sambandsins
sem haldinn var i síðasta mánuði og
ákveðið að taka máliö á dagskrá
aöalfundar sem fyrirhugað er aö
halda um miðjan þennan mánuð.
Beðið var eftir umsögn Framleiðslu-
ráðs landbúnaðarins um hvort það
ætlaöi að veita Sambandi eggjaf ram-
leiðenda einkasöluleyfi á eggjum eða
hvort aðrir aðilar gætu stofnað
annað eggjasamlag og fengið sams
konar fyrirgreiðslu og fjárveitingu
úr kjamfóðursjóði. Framleiðsluráð
hefur nú svarað aö þaö muni aöeins
veita sambandinu heildsöluleyfi en
ekkert svar hefur borist um hvort
aðrir geti fengið sams konar fyrir-
greiðslu.
.í'ramleiðsluráð segist ekki ætla
að beita einokunarheimildinni en það
er bara skrípaleikur,” segir Gunnar
Jóhannsson. ,,1 öllum bréfum sínum
fram til þessa hefur Framleiðsluráð-
ið vísað til þess að þaö ætli að veita
Sambandi eggjaframleiðenda einka-
söhdeyfi og ég treysti ekki á að þaö
muni ekki nýta sér lagaheimild sína
til þess. Sambandiö hefur ekki leitað
eftir heildsöluleyfi til sölu á eggjum
en samt er búið að veita því það.
Hins vegar hafa fjögur eggjabú
óskað eftir heildsöluleyfi, Vallá,
Holtabúið, Reykjagarður og Nesbú.
Af hverju sannar Framleiðsluráö
ekki mál sitt með því að veita
þessum búum heildsöluleyfi?” sagði
hann.
Gunnar sagöi aö Framleiðsluráð
væri skipað sauðfjár- og kúabændum
sem hefðu allt of mikið vald og hefðu
kúgaö aðrar búgreinar með því að
leggja á þær kjarnfóðurskatt sem
notaður væri til að hygla öðrum en
þeim sem skattinn greiddu.
ÓEF.
Kasparovvann
biðskákina
— sjá bls. 5
Pólska stjómin
skopast
aðWaíesa
— sjá erlendar
fréttir bls. 8 — 9
Banaslys
á Gunnars-
holtsvegi
Maður á sjötugsaldri beiö
bana á Gunnarsholtsvegi í
gær er jeppi sem hann ók fór
út af veginum. Ok maðurinn
eftir Gunnarsholtsvegi i átt
að Suðurlandsvegi og var
sonur hans með honum i bíln-
um.
Hann missti vald á bílnum
á beinum kafla á veginum og
fór út af. Mun hann hafa kast-
ast út úr bílnum og lent undir
honum. Sonur hans slapp
aftur á móti ómeiddur úr
slysinu. -klp-
Jólaundirbúningur er nú haf-
inn iríðast hvar, enda ekki
seinna vænna þar sem nú
eru ekki nema 18 dagar til
jóia. Starfsmenn borgarinnar
voru önnum kafnir viö að
reisa þetta myndarlega jóla-
tró á Mikiatorgi í gær þegar
ijósmyndari DV átti ieiö þar
um.
DV-mynd S