Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.1983, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.1983, Blaðsíða 34
34 DV. ÞRIÐJUDAGUR 6. DESEMBER1983. DÆGRADVÖL DÆGRADVÖL DÆGRADVÖL Rokk og rabb- stundir I draumaskapi í desember segjum dæmigerðu bílskúrshljómsveitum. við Dvalar eins og vera ber nú þegar Við óskum þeim góðs gengis í senn kemur að hangikjötsátinu og framtíðinni. jólasveinunum. Þá lítum við inn í biðskýli SVR á Og auðvitað gleymum við ekki að Hlemmi. Þar koma margir á bjóða ykkur góðan daginn, félagar hverjum degi, aðeins til aö hitta og vinir, frekar en fyrri daginn. Við náungann og ræöa málin. fjöllum aö þessu sinni um áhuga- Að lokum kíkjum við inn í Torfuna rokkara og rabbstundir. Nokkuðsem og hittum nokkra eitilhressa Vals- okkurfinnstfara vel saman. ara. En þeir koma þar saman í Þarmagustarnir í Kópavogi eru hádegismatáhverjumdegi. teknir í karphúsiö og þeir spurðir Við gerum okkur svo mat úr þessu spjörunum úr. Hressileg hljómsveit, og setjum punktinn fræga á sinn Þarmagustar, og ein af þessum stað. Texti: Jón G. Hauksson Myndir: Gunnar V. Andrésson Þetta eru mennirnir sem leysa vandamái þjóðarinnar með ióttu ívafi i hverju hádegi, allt félagar i Fóiagi íslenskra grjónapunga. Féiagið hefur starfað i tuttugu ár og taisverðar mannabreytingar orðið á þeim tima. Nokkra fastagesti vantaði i þetta skiptið. Taiið frá vinstri: Þorsteinn Einarsson, Pétur Guðmunds- son, Kari Harrý Sigurðsson, Þorsteinn Sievertsen, Jón Pétur Jónsson, Viihjáimur Kjartansson, Hermann Gunnarsson og Haiidór Einarsson (Hann er sá sem togar i spottana i þjóðfélaginu enda með 50 sauma- konurívinnu). DV-mynd: GVAt „Vandamálin leyst með léttu ívafi” í hádegismat með Félagi íslenskra grjónapunga „Hér eru vandamál þjóðarinnar leyst meö léttu ivafi,” sögöu nokkrir firnahressir félagar í Félagi íslenskra grjónapunga, FIGP, er við litum inn til þeirra í hádegismat í veitingahúsinu Torfunni. Grjónapungamir segjast hafa komiö saman í um tuttugu ár. Lengst af hafi þeir verið á veitingahúsinu Tröð í Austurstræti en hafi flutt sig um set fyrir nokkrum árum. „Við vorum í mjög góðu yfirlæti á Tröð. Og þegar þau heiöurshjón, Guðmundur og Kristel, hættu með staðinn leystu þau okkur út með gjöf- um og hringborði einu vitibomu.” „Þar sem hringborðið var vel þungt fómm við meö það á Hressó, næsta veitingastað. Þar var borðið í eitt ár, eða þar til viö fluttum það hingaö upp í Torfuna.” Hringborðið uppspretta fróðleiks „Borðinu hefur verið breytt lítillega en viðurinn er sá sami. Og hann er enn uppspretta mikils fróöleiks.” Rabbstundir þeirra grjónapunga í hódeginu hafa ávallt verið líflegar. Þannig varðar það til dæmis brott- rekstri ef menn eru með röfl eða í fýlu. Enda hefur enn ekki komið til neinna leiðinda. „Hér er það bjartsýnin og hressleik- inn sem ræður ríkjum og menn fara tilbúnir í að takast á við hlutina eftir snæðinginn.” Tökum okkur ekki of alvarlega Þeir segja að alvarlega mál séu ekki tekin til umfjöllunar. „Enda erum við allt valinkunnir menn sem tökum okkur ekki allt of alvarlega.” Þótt margir Valsmenn séu í félaginu þá er ekki svo að þetta sé útibú frá Val heldur eru einnig mætir menn úr félög- um eins og Fram og KR. Áöur var meira talað um íþróttir í hópnum en hópurinn lætur nú öll mál í þjóöfélaginu til sín taka. Við erum farnir að senda menn í stjórnmálin og má geta félaga okkar Halldórs Einars- sonar iðnjöfurs í því sambandi. Viö leggjum sem sagt áherslu á að eiga menn alls staöar þar sem eitthvað er að gerast í þjóðfélaginu.” Leikgleðin ræður ríkjum Þeir grjónamenn sögöust hafa keppt í alls kyns íþróttamótum. Heföu til dæmis keppt viö riddara hringborösins á ákveönum veitingastaö noröur á Akureyri. „Leikgleöin ræöur aö sjálf- sögöu ríkjum í þessum keppnum eins og hér viö matborðið.” Ekki vildu þeir félagar aö við færum út án þess að við nóteruðum það hjá okkur aö í þennan hádegismat heföi vantað menn eins og Berg Guðnason, Baldvin Jónsson, Ölaf H. Jónsson, Jón H. Karlsson, Grím Sæmundsen og síöast en ekki síst Olaf Aöalstein Jóns- son tollvörð og Axel Sigurðsson á Póst- stofunni. En hvað hafa svo grjónamenn aðal- legaímatinn? „Hann Örn héra á Torfunni er nú bú- inn að venja okkur við fiskinn og þaö kunnumvið velaömeta.” -JGH „Hingað koma góðir menn” — ségir Snorri Vigf ússon sem gjarnan lítur inn í biðskýli SVR á Hlemmi til að rabba við vini og kunningja Hingað koma bæði háir og lágir „Eg fer í gönguferöir tvisvar á dag, fyrir hádegi og eftir hádegi, og lít þá gjaman hér inn. Hingaö koma háir sem lágir, prestar og fleiri góöir menn.” „Nú, og hingaö slæöist líka talsvert af gömlum sjómönnum. Annars er þetta engin vinna að vera á togurum lengur. Menn koma nú varla upp á dekk.” „Þegar ég var á sjónum var þetta átján tíma vinna. Staðið í átján tíma og1 sofiö í sex. Nú segja mér sjómenn aö þeir vinni í sex tíma og sofi síðan í sex tíma.” Er úr Árnessýslunni Snorri sagöist vera austan úr Arnessýslu en heföi búiö í Reykjavík síðastliðin 63 ár. Hann er giftur, „en konan hefur veriö hálfslöpp og treystir sér þvi ekki í gönguferöir”. Lengst af var Snorri á skútum og togurum. Hann er ekki nógu ánægöur með vinnubrögð ungs fólks í dag. „Mér hreint blöskrar vinnubrögöin hjó unga fólkinu. Hugsaðu þér, ungt fólk, sem á aö vera að vinna, og er á besta aldri, vinnur fimm mánuöi á ári, en er svo í fríi hina sjö. Þetta gengur ekki.” ,,Ég á mína kunningja hér. En fer líka víöar til aö rabba viö fullorðna menn. Hef gaman af því. Eg ræði viö þá um stjórnmál og annað.” Hann var kampakátur hann Snorri Vigfússon þegar hann mælti fyrrnefnd orö viö okkur í biðskýli SVR á Hlemmi fyrir stuttu. Og hann lætur það greini- lega ekki hafa nein áhrif á sig þótt hann sé orðinn 82 ára að aldri. Hann er ern. Snorri er einn af fjölmörgum sem leggja leiö sína niöur í biöskýli SVR á hverjum degi til að hitta vini og kunn- ingja. Málin eru rædd og þaö umbúða- laust. Hver og einn hefur sínar skoöan- ir. Og þaö er ekki hvikað frá þeim. Tek i nefið og hef gert það lengi, segir Snorri um leið og hann fær sór smá- slurk. „Þá blöskrar mór að alþingismennirnir skuli taka fri i dag, 1. desem- ber. Þeirhafa vistnóg friin samt." Snorri rabbar við einn kunningja sinn. „Eg á mina kunningja hór. En fer líka' víðar til að rabba við fullorðna menn. Hefgaman afþvi. Ég ræði við þá um stjórnmál og annað." DV-myndir: GVA. Blöskrar frí alþingismanna Þá blöskrar mér aö alþingis- mennirnir skuli taka frí í dag, 1. desember. Þeir hafa víst nóg fríin samt. Þá er ég mjög óhress meö launamis- muninn hjá fólki. Aö þaö skuli vera til verkamaður sem á aö sjá fyrir heimili, og hefur aðeins 11 þúsund krónur á mánuði. Svo veit maöur um margar þúsundir sem hafa um 80 þúsund og yfir 100 þúsund á mánuði. Já, ég veit um marga slíka. Þeir eru mörg þúsund, og ég stend viö þaö. Aöalbölvaldurinn hjá íslensku þjóð- inni er þó fyrst og fremst yfirbyggingin og óstjómin hjá því opinbera. En alls ekki hin vinnandi stétt, til sjós eöa lands. Þú mátt láta þaö koma vel fram.” Tekið lengi í nefið Snorri haföi tekið nokkuð í nefið á meðan á þessari rabbstund stóö. Viö spuröum hann aö endingu hvort hann tæki mikiöínefið. „ Já, og hef gert þaö lengi. ” -JGH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.