Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.1983, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.1983, Blaðsíða 5
DV. ÞRIÐJUDAGUR 6. DESEMBER1983. 5 Mikið líf í áskorendaeinvfgjunum í Lundúnum: KASPAROV VANN BIÐSKÁKINA — og Smyslov tef Idi af þrótti æskumannsins og hef ur unna biðskákgegn Ribli Sovéski stórmeistarinn Garrí Kasparov sigraöi í 6. einvígisskák- inni viö Viktor Kortsnoj sem tefld var áfram í Lundúnum í gær eftir örlagarík mistök Kortsnojs í jafntefl- isstööu. Eftir næturlangar rannsókn- ir á biöstööunni í herbúðum beggja keppenda var hún talin jafnteflisleg og svo fór aö staðan einfaldaöist mik- iö skömmu eftir biö. Kasparov náöi til baka því liði sem hann fórnaði og í hróksendataflinu sem upp kom virt- ist Kortsnoj hafa jafnteflið í hendi sér. 1 55. leik gerði hann hins vegar afdrifarík mistök: Öð fram meö kóng sinn sem leiddi til taps eftir hárnákvæma taflmennsku Kaspar- ovs. Getum var aö því leitt í Lundún- um að Kortsnoj heföi meö þessum vanhugsaöa kóngsleik verið að tefla til vinnings og ekki viljað sætta sig við iafntefli. Hitt er víst aö þar brást þessum mikla endataflsjöfri boga- listin og nú getur hann nagaö sig í handarbökin. Kasparov hefur náö að jafna metin I einvíginu, staöan er 3— 3, en sá vinnur sigur er fyrr fær 6 1/2 v. Rétt er aö rif ja upp stööuna tveim- ur leikjum áður en skákin fór í bið því aö Kasparov missti af gullnu tækifæri í tímahrakinu: Svart: Garrí Kasparov abcdefgh Hvítt: Viktor Kortsnoj I þessari stööu gat hann að því er virðist tryggt sér vinningsstöðu meö 39. —Hxd3+! 40. exd3 Hb2+ 41.Ke3 (41.Kc3 Bb4 mát) a2 og síðan b5— b4—b3.1 staö þess hleypti hann hvíta hróknum of snemma í leikinn. Framhaldiðvarö: 39.—b4? 40. Ha5! Hxd3 41. exd3 Bxf4+ Biöleikur Kasparovs. Talið var að hann hefði einhverja vinningsmögu- leika en eins og framhaldið leiöir í ljós ætti hvítur aö halda jöfnu. 42.Ke2Hc343.g5!bcl44.h5 Kortsnoj myndar sér mótvægi á kóngsvæng og þvingar Kasparov til þess að skipta upp í hróksendatafl. 44.—b3 45.H5xa3 Bxa3 46. Hxa3 b2 47.Ha6+ Kf5 48. Hb6 Hc2+ 49.Ke3 Kxg5 50. d5 Kxh5 51. Kd4g5 52.Hb8! Ekki 52. d6 vegna 52.—hc6! 52. —g4 53.d6 Hc6 54.Ke5 Hc5+ 55.KÍ6?? Eftir 55. Kd4 er staðan ekkert nema jafntefli. Eina vinningstilraun svarts er 55.—Hc8 en eftir 56. Hxb2 f5 57.Ke5 Kg5 58.d7 Hd8 59.Hf2 leysist taflið upp. Nú vinnur Kasparov með hárnákvæmri taflmennsku. 55.—g3 56.Hxb2 Hd5 57.Kxf7 Hvítur er of seinn eftir 57.Ke7 Kg4 58.d7 f5 59.d8=D Hxd8 60.Kxd8 f4, og getur ekki stöövaö svörtu peöin. 57.—Hxd6 58.Hd2 Kg4 59.d4 Kf5! 60.Ke7 Hd5 61.Hd3 Kf4 62.Ke6 Hg5! 63. d5Hg6+64.Ke7 Eöa 64.Kf7 Hd6! 65.Ke7 g2 66.Hdl Hxd5 og vinnur. 64. —g2 65.Hdl Ke5 66.d6 Hvítur var leiklaus. Svartur vekur upp nýja drottningu og eftirleikurinn er auöveldur.66.—He6+ 67.Kd7 Hxd6+ 68.Hxd6 gl=D 69.He6+Kf5 70.Hd6 Da7+71.Kd8 Ke5 72.Hg6 Da5+ 73.Kd7 Da4+ 74.Ke7 Dh4+ 75.KÍ8 Dd8+ 76.KÍ7 Kf5 77.Hh6 Dd7+ — Og Kortsnoj gafst upp. Smyslov með vinningsstöðu Smyslóv og Ribli sátu einnig aö tafli í Lundúnum í gær og tefldu sína 7. skák. Eftir 42 leiki fór skák þeirra í bið og er samdóma álit „sérfræö- inga” að Smyslov haföi vinnings- stöðu eftir glæsilega taflmennsku. Þeir tefldu sömu byrjun og í 5. skák- inni og rétt eins og þá tefldi hinn 62 ára gamli Smyslov af krafti æsku- mannsins. Beindi öllum spjótum sín- um að svarta kónginum og svo fór aö eitthvað varö aö láta undan. Ribli reyndi aö ná mótfærum en Smyslov gaf drottningu sína fyrir tvo hróka og í biðstöðunni viröist fátt um vam- ir fyrir Ribli. Takist Smyslov aö vinna biöskák- ina hefur hann náö tveggja vinninga forskoti í einvíginu, meö 41/2 v. gegn 21/2 v. Ribli. Hvítt: Vassily Smyslov Svart: Zoltan Ribli Tarrasch-vöra. I.d4 Rf6 ?.Rf3 e6 3x4 d5 4.Rc3 c5 5. cxd5 Rxd5 6.e3 Rc6 7.Bd3 Be7 8 0—0 9.a3 cxd410.exd4 Bf6 ll.Be4. I 5. skákinni lék Smyslov U.Dc2, sem er óvenjulegri leikur. 11.—Rce7 12.Re5 g6 13.Bh6 Bg7 l 14.Bxg7 Kxg715.Hcl b616.Rxd5 Rxd5 17.Bxd5! Smyslov kærir sig kollóttan um hvítareitsbiskupinn því aö nú kemur hann hrók inn á 7. reitaröðina og nær að virkja alla menn sína til sóknar. 17.—Dxd5 18.Hc7 Bb7 19.Dg4 Had8 20. Hdl a5 21.h4 Hc8 22.Hd7! De4 23.Dg5Bc624.f3! Enn teflir Smyslov í anda fléttu- „ skákmanna. Ef Nú 24,—De2, þá 25.Rg4! Dxdl+ 26.Kh2 og óverjandi mát! 24.—Df5 25JIa7 Ba4 26.Hel Hc2 27.b4Bb328.bxa5bxa5 29.He4! h630.De3Hb231.Hg4! Hin rökrétta og markvissa tafl- mennska heimsmeistarans fyrrver- andi vekur aðdáun. Vegna hótunar- innar 32.Hxg6+! er svar svarts þvingað. 31.—g5 32.hsg5 h5 33.Hg3 h4 34.Hg4 h335.g6! h2+(?) Betri vörn er fólgin í 35.—Hxg2+ 36.Hxg2 Dbl+! 37.Kh2 hxg2 38.Kxg2 Hh8, því aö Smyslov hefði oröiö áö finna hina undurfögru vinningsleið! 40.HÍ8+!! Kxf8 41.g7+! Kxg7 (41.- Kg8 42. gxh8+ Kxh8 43. Dh6+ Kg8 44. Dg5+ er svipað) 42. Dg5+ Kh7 43. Dh5+ Kg7 44.DÍ7+ Kh6 45.Rg4+ Kg5 46.DÍ6+ Kh5 47.Dxh8+ Kg6 (47.—Kg5 er mát í 2.) 48.DÍ6+ Kh7 49.DÍ7+ Kh8 50.Rf6 og mátar! Skák lón L. Ámason 36.Kxh2 Hh8+ 37.Kg3 Hxg2+ 38.Kxg2 Dc2+ 39.DÍ2 Hh2+ 40. Kxh2 Dxf2+41. Kh3 Dfl+ 42Hg2 vörn við hótun Smyslovs, 45.gxf7 ásamt fráskák með kónginum. Tveir stórir dráttar bflar í árekstri við Sultartanga Tveir menn slösuöust í höröum árekstri sem varð á vegamótunum aö Sultartanga virkjun um hádegið í gær. Slysiö varö meö þeim hætti að stór dráttarbíll meö festivagni frá Steypu- stöðinni á Selfossi ók aftan á annan samskonar bíl frá sömu stöö. Mikiö hríðarkóf var á veginum og haföi ökumaður fremri bifreiðarinnar stöövað hana til að sjá til vegar. Hinn sem kom á eftir sá ekki bílinn í tæka tíð og ók aftan á hann á fullri ferö. Báöir ökumennirnir slösuðust og voru fluttir á sjúkrahús, og annar bíllinn er talinn ónýtur eftir áreksturinn. -klp- Bæjarstjóm Kópavogs: Hef ur áhyggjur af umferö- inni á Kringlumýrarbraut „Bæjarstjórn Kópavogs vekur at- hygli yfirvalda á því ófremdarástandi sem nú ríkir í umferö á Kringlumýrar- braut sem jaörar viö hættuástand og augljóslega mun versna mikið á komandi vetri meö verri f ærö. Hin mikla umferð á Kringlumýrar- brautinni í Reykjavík hefur vakiö óhug hjá mörgum og nær þaö út fyrir borgartakmörkin. Þannig var eftirfar- andi tillaga samþykkt með 11 sam- hljóöa atkvæðum nú f yrir skömmu: Bæjarstjórn samþykkir aö skora á Vegagerð ríkisins og Reykjavíkurborg aö gera nú tafarlaust úrbætur til aö greiöa fyrir umferð á Kringlumýrar- braut, t.d. meö fjölgun akreina og lag- f æringu gatnamóta. ’ ’ -klp- Vestmannaeyjar. llppskeran f rollumaga Frá Frlðblrnl Valtýssyni, fréttaritara DV í Vestmannaeyjum. Vestmannaeyingar þurfa ekki aö kvarta yfir skorti á sjoppum og sæl- gætisbúðum. Kaupmenn i Eyjum sjá bæjarbúum vel fyrir þeirri þjónustu. Alls eru nú 15 slikar verslanir starf- ræktar í bænum og þykir flestum nóg um. Þá hafa videoleigur sprottiö upp aö undanfömu og dæmi eru um aö slíkar leigur séu opnar til kl. 3 aö nóttu. Þaö ætti því ekki að vera vandkvæðum bundiö fyrir Eyjamenn aö ná sér í videospólur. Glatt á hjalla á Seyðisfirði — er haldið var upp á 70 ára afmæli Hugins Mikiö fjör var í félagsheimilinu Herðubreið á laugardagskvöld er haldiö var upp á 70 ára afmæli íþrótta- félagsinsHugins. Um 250 manns voru á afmælishátíð- inni sem tókst meö miklum ágætum. Að sögn Seyöfiröinga var glatt á hjalla í Heröubreiöinni eins og vera ber og mikill hugur í mönnum. -JGH Hundahald hefur veriö nokkuö á döf- inni hér sem annars staöar og blessuö sauökindin hefur einnig verið að angra bæjarbúa. Dæmi eru til um aö upp- skera sumarsins hafi endaö i rollu- maga. Þykir mönnum þaö misgott. Rollubændur fagna aö sjálfsögöu aukn- um fallþunga dilka, en garöeigendur eru nánast æfir sem vonlegt er. -GB Tiskusýningin þótti takast glæsilega þrátt fyrir að óvanir færu þar með hlutverk og æfingatíml hafi verið skammur. Mikill mannf jöldi fylgdist með. DV-myndir: Ingibjörg Magnúsdóttir Iðnaður og þjónusta á Húsavík: Húsvíkingar f jöl- menntu á sýninguna JC-félagar á Húsavík stóðu fyrir mjög umfangsmikilli sýningu i félags- heimilinu þar í bæ dagana 20. og 21. nóvember. Var hún kölluð JC og neytandinn og sýndu þar yfir 30 einstaklingar og fyrirtæki á Húsavík hvaö þau hafa upp á að bjóöa. Þarna voru bæöi vörur, sem Húsvíkingar framleiöa sjálfir, og einnig höfðu ýms- ir þjónustuaöilar fyrirtækja annars staöar frá sína bása. öll uppsetning þessarar sýningar var með miklum ágætum. Aðsókn var líka sérlega góð, yfir 2000 gestir munu hafa komiö þessa tvo sýningardaga. Auk þess aö ganga um sali og skoöa vörur á sýningunni gafst gestunum kostur á að bragöa á framleiðslu í mat- vælaiðnaöi. Einnig var haldin tísku- sýning á sunnudaginn þar sem tísku- verslanirnar á Húsavík sýndu fatnað sem þær hafa á boðstólum. JBH/Akureyri. Félagsmálafulltrúar í Hafnarfirði og Garðabæ: Reyna að spoma við sölu sniffef na Félagsmálafulltrúar í Garðabæ og í Hafnarfiröi eru þessa dagana aö reyna aö sporna viö snifffaraldri í byggðar- lögunum meö því aö hvetja starfsfólk í apótekum og öörum verslunum, sem hafa á boöstólum efni sem unglingar sniffa, til að afgreiða þessi efni ekki til barna og unglinga. Aö sögn Braga Benediktssonar, félagsmálafulltrúa í Hafnarfiröi, hefur afgreiðslufólk yfirleitt tekiö þessari málaleitan vel. Þó bendir þaö á einn vanda, nefnilega aö krakkarair reyna þá a ö hnupla ef nunum. Bragi vildi líka benda fólki á að hafa þessi efni ekki á glámbekk heima hjá sér, því þaö kynni að freista baraa þeirra eöa kunningja bamanna til að fara að fikta við efnin. -GS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.